Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI í i Nýtt loft- ræstikerfi í leikhúsinu UNNIÐ er að uppsetningu nýs loftræstikerfis í áhorfendasal Samkomuhússins, þar sem Leikfélag Akureyrar er til húsa. Loftræstingu hefur lengi þótt ábótavant í húsinu, „en ég vona að andrúmsloftið í húsinu verði betra í vetur en áður,“ sagði Viðar Eggerts- son, leikhússtjóri, á blaða- mannafundi í vikunni er hann kynnti verkefni LA í vetur. Nýja loftræstikerfið verður komið í gagnið fyrir fyrstu frumsýningu í haust. Opið hús miðstöðar fólks í at- vinnuleit MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit verður með opið hús í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju í dag kl. 15 til 18. Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Al- þýðusambands Norðurlands, mætir og ræðir við viðstadda. í frétt frá miðstöðinni segir að kaffi og brauð verði á boðstól- um að vanda, þátttakendum að kostnaðarlausu og dagblöðin liggi frammi. Myndir Veturliða til sölu PASTELMYNDIR eftir Vetur- liða Gunnarsson verða til sýnis og sölu í Aðalstræti 63 á Akur- eyri á næstu dögum, á vegum Jóhönnu Gunnarsdóttur, sem þar verður stödd, skv. tilkynn- ingu sem blaðinu hefur borist. „Veturliði er einn af þekktari listamönnum þjóðarinnar af eldri kynslóð og hefur haldið fjölda sýninga. Hann er ekki hvað þekktastur fyrir lands- lags- og sjávarmyndir sínar,“ segir ennfremur í tilkynning- unni. Morgunblaðið/Björn Gíslason Trjáplanta að • •• • x g)OI Vlð 4 ára skoðun EFTIR fjögurra ára skoðun á Heilsugæslustöðinni á Akureyri fá börn afhent gjafakort frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga upp á eina trjáplöntu úr gróðrastöð félagins í Kjarna. „Þetta er mjög sniðugt og afskaplega vinsælt, en ég veit ekki til þess að þetta tíðk- ist annars staðar á landinu. Gjöfin vekur áhuga hjá æskunni á þess- um málum; það var félagsmála- nefnd Skógræktarfélagsins sem fann upp á þessu á sínum tíma,“ sagði Valgerður Jónsdóttir hjá Skógræktarfélaginu í samtali við Morgunblaðið. Þetta er fjórða árið sem börnum á Akureyri eru gefnar plöntur. Skv. upplýsingum Heilsugæslustöðvarinnar eru það um eða yfir 300 börn á ári sem koma í fjögurra ára skoðun og Valgerður sagði um 90% gjafa- kortanna skila sér til þeirra. „Krakkarnir setja þetta yfirleitt niður í garðinum heima hjá sér, jafnvel hjá afa og ömmu. Allir virðast að minnsta kosti geta pot- að þessu einhvers staðar niður, sagði Valgerður. „Þeim finnst öll- um mjög skemmtilegt að fá svona plöntu og ég veit til þess að marg- ir fylgjast vel með trénu sínu; skoða reglulega hvernig því reið- ir af,“ sagði hún. „Rosalega spennandi“ Ragnar Logi Búason varð fjög- urra ára í maí en fór í fjögurra ára skoðun í fyrradag og mætti í gróðrastöðina í Kjarna strax í gær til að ná í tréð sitt og er á myndinni. „Ég vissi ekkert um þetta; ekki fyrr en við vorum að fara eftir skoðunina að mér var sagt að hann ætti eftir að fá gjafa- kort. Honum fannst það rosalega spennandi að fá svona tré, þannig að við drifum okkur að ná í það,“ sagði Aðalborg Benediktsdóttir, móðir Ragnars Loga, við Morgun- blaðið. Hún sagðist vera að und- irbúa að láta strákinn planta því heima á lóð. f í Þriðja ljósmyndamaraþon áhugaljósmyndaraklúbbs Akureyrar um helgina Sigurgeir Haralds- son tók bestu filmuna FIMMTÍU og sex keppendur mættu til leiks í sumarblíðu er áhugaljósmynd- araklúbbur Akureyrar, ÁÚKA, hélt þriðja ljósmyndamaraþon sitt á í bænum á laugardaginn. Bestu filmu (heildarlausn) tók Sigurgeir Haraldsson frá Akureyri og vann aðalverðlaun keppninnar, Canon EOS 500 myndavél, en bestu mynd keppninnar — Á floti — tók Hafþór Hreiðarsson frá Húsavík og hlaut Canon Prima mini myndavél að launum. Keppni hófst að morgni laugar- dags og við rásmark fengu keppend- ur 12_ mynda filmu og þijú verk- efni. Á þriggja tíma fresti næstu 12 tímana mættu þeir síðan á ýmsum stöðum víðs vegar um bæinn og fengu fleiri viðfangsefni. Að 12 tím- um og 12 myndum teknum var film- um síðan skilað í endamarki á Ráð- hústorgi. Allir luku keppni. 672 myndir voru framkallaðar og stækkaðar um nóttina. Dómnefnd, sem skipuð var Gunnari Finnbjörns- syni frá Hans Petersen hf., Rúnari Þór Björnssyni, ljósmyndara hjá Morgunblaðinu og Rósu Kristínu Júlíusdóttur, myndlistarkennara, hóf störf að morgni sunnudagsins og lágu niðurstöður hennar fyrir þegar sýning á öllum myndum keppninnar var opnuð utandyra um miðjan dag. Verðlaunahafar voru eftirtaldir, nafn verkefnis í sviga: Hilmar Harð- arson, Akureyri (Gluggj), Hákon Gunnarsson, Húsavík (Á hjólum), Halldór Björn Halldórsson, Akureyri (Ber), Bryndís P. Magnúsdóttir, Ákureyri (sem hlaut verðlaun fyrir tvö verkefnanna, Höfuðfat og Elli), Halla Jóhannsdóttir, Djúpavogi (Sæla), Berglind Helgadóttir, Akur- eyri (Augnaráð), Richard Simm, Akureyri (Línur), Haukur Hauksson, Akureyri (Lækur tifar létt um máða steina), Arna Einarsdóttir, Akureyri (Röndótt) og Hafþór Hreiðarsson, VERÐLAUNAHAFAR í ljósmyndamaraþoninu. Frá vinstri: Hilmar Harðarson, Halla Jóhannsdóttir, Arna Einarsdóttir, Berglind Helgadóttir, Bryndís Magnúsdóttir, Sigurgeir Haralds- son, sem átti bestu filmuna og fékk þar af leiðandi aðalverðlaun- in, Hafþór Hreiðarsson, sem átti bestu myndina, Hákon Gunnars- son, Richard Simm, Halldór Halldórsson og Haukur Hauksson. Húsavík (Hingað og ekki lengra). Hafþór Hreiðarsson tók bestu myndina sem fyrr segir og bestu filmuna átti Sigurgeir Haraldsson. Dómnefnd vakti einnig athygli á vel unnum heildarlausnum keppend- anna Halldórs Björns Halldórssonar, Arnar Inga og Örnu Einarsdóttur. Besta filma keppninnar var undan- skilin við val bestu myndar hvers flokks. Sýning með öllum myndum keppninnar og stækkuðum vinnings- myndum er í anddyri íþróttahallar- innar við Skólastíg. Henni lýkur í dag, en opið er kl. 17 til 21. Aðgang- ur _er ókeypis. ÁLKA hélt ljósmyndamaraþonið í samvinnu við Kodak-umboðið Hans Petersen hf. og Pedrómyndir á Akur- eyri, auk nokkurra annarra fyrir- tækja. i 3ja herb. íbúð í Hafnarfirði Til sölu 60 fm efri hæð við Álfaskeið. Stór bílskúr. 16 fm herb. í kjallara. Gott útsýni. Verð 5,9 millj. Ámi Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 50764. Vesturbær - vandað! Raðhús við Aflagranda 11 er til sölu. Húsið er 207 fm, tilbúið undir tréverk og málningu, með inn- byggðum bílskúr. Mikil lofthæð á efri hæð og fjölbreyttir möguleikar til innréttinga. Fullfrágengin lóð með hitalögn í bílastæði. Allur frágangur vandaður. if ÁSBYRGI .f SuAurlandsbraut 54, 108 Reykiavik, simi 682444, fax: 682446. INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali. SÖLIJMENN: Þórður Ingvarsson og Lárus Hauksson. L \ Gróðrarstöð f Hveragerði Til sölu rekstur og húseignir Gróðrarstöðvarinnar Snæ- fells í Hveragerði. Um er að ræða 4 gróðurskála, sam- tals um 600 fm. Einnig fylgir stöðinni 150 fm nýlegt ein- býlishús ásamt 50 fm bílsk. Stöðin er í fullum rekstri. Skipti koma til greina á fasteign í Reykjavík. Verð 28,0 millj. Áhv. húsbréf 6,0 millj. Firmasala Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 50, sími 885070. Gunnar Jón Yngvason, sölumaður. Listasumar ’94 Tjarnarkvartettinn Tjarnarkvartettinn heldur tónleika í Deiglunni í kvöld kl. 21.30. Kvartettinn skipa Rósa K. Baldursdóttir, Krist- jana Arn- grímsdótt- ir, Hjörleif- ur Hjartar- son og Kristján Hjartarson. í haust kemur út geisladiskur með söng kvartettsins og á tónleikun- um flytur hann lög af um- ræddum diski. Efnisskrá er fjölbreytt, íslensk lög og er- lend, djass og dægurflugur í nýjum útsetningum fyrir söng án undirleiks. i 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.