Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 11 LANDIÐ Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir FLUGVÉL Atlantic Airways við brottför frá Egilsstaðaflug- velli eftir að flugvöllurinn í Vogum hafði opnast á ný. Fleiri lendingar á Egilsstaðaflugvelli Ekki aðstaða til að taka við stórum fhigvélum með mörgum farþegum Egilsstöðum - BAE146 þota fær- eyskaflugfélagins Atlantic Airways lenti á Egilsstaðaflugvelli á mánu- dag. Vélin var í áætlunarflugi með um 35 farþega, á leið frá Kaup- mannahöfn til Færeyja. Flugvöllur- inn í Vogum hafði lokast vegna veðurs og því stefnan sett á vara- flugvöll sem var Egilsstaðaflugvöll- ur. Vélin lenti á Egilsstaðaflugvelli um kl. 11.30, tók þar eldsneyti og fór aftur um kl. 12.50 áleiðis til Færeyja en þá hafði veður batnað og völlurinn opnast þar. Áætlaður flugtími til Færeyja var ein klst. Þetta er í annað sinn í sumar sem erlend þota lendir á Egilsstaðaflug- velli. í fyrra skiptið var það sviss- nesk einkavél sem ætlaði til Akur- eyrar en völlurinn þar hafði lokast. Breytingai- á flugstöð hefjast Egilsstaðavöllur hinn nýi var tek- inn í notkun fyrir ári, en ekki hefur verið lokið við breytingar á flug- stöðvarbyggingu. Því er það ýmsum erfiðleikum bundið ef hingað koma stórar flugvélar með 100 til 200 farþega, að taka á móti þeim, til lengri eða skemmri dvalar. Einar Halldórsson, umdæmisstjóri Flug- leiða, segir aðstöðu í afgreiðslu þrönga, þeir geti þó tekið við allt að 100 manns í stuttan tíma, ef ekkert áætlunarflug ber upp á á sama tíma. Unnið verður við breyt- ingar á flugstöðinni í haust og þeim líklega lokið fyrir næsta sumar. Eftir það verður hægt að taka við 200 farþegum með góðu móti. 911 CH LÁRUS Þ. VALDIMARSSON. FhAMKVÆMDASTJORI L I I J\J"L I O / U KRISTJAN KRISTJANSS0N, loggiltur fasteig\asali Til sýnis og sölu m.a. eigna: Úrvalseign - útsýni Nýlegt steinhús með 5 herb. íbúð, 136 fm, á hæð auk bílskúrs. Á jarð- hæð eru tvær sólríkar 2ja herb. íbúðir m.m., önnur tengd hæðinni. Bílskúr 27 fm. Glæsilegur trjá- og blómagarður á frábærum stað skammt frá nýju sundlauginni í Árbæjarhverfi. Nánari upplýsingar að- eins á skrifst. Verslunarhúsnæði við Bankastræti Á úrvalsstað um 120 fm auk kj. um 90 fm. Port með geymsluhús- næði fylgir. Nánari upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Við Eiríksgötu - langtímalán Sólrík 3ja herb. íb. á jarðh. Innréttingar og tæki að mestu ný. 40 ára húsnæöislán kr. 3,1 millj. Gott verð. Vinsæll staður. Skammt frá Árbæjarskóla Glæsilegt raðhús með 6 herb. íbúð á tveimur hæðum. Snyrting á báð- um hæðum. Sauna, föndur og vinnuhúsnæði i kj. Bílskúr. Þríbýlishús í Smáíbúðahverfi Reisulegt steinhús, grunnfl. um 90 fm, með 2ja herb. íb. í kj., 3ja herb. íbúð á hæð og 3ja herb. íb. í risi. Sérbyggður bílskúr (verkstæði) 43 fm. Teikning á skrifstofunni. Suðuríbúð - frábært verð Á 2. hæð við Hraunbæ, 2ja herb. íb., 53 fm nettó. Sólsvalir. Góð sam- eign. Útsýni. 40 ára húsnæöislán kr. 3,1 millj. Verð aðeins kr. 4,8 millj. í þribýlishúsi í Þingholtunum Mikið endurn. 1. hæð, 99,4 fm, í reisulegu steinhúsi. Góð lán. Vin- sæll staður. Hentar m.a. námsmönnum. Skammt frá Háskólanum 2ja herb. íb. á 1. hæð 56,1 fm nettó. Sérinng. Sérþvottaaðstaða. Innr. og tæki 3ja ára. ••• MMENNA Fjöldifjársterkra kaupenda. Margskonar eignaskipti. rASTEllÍnASALAN Opið á laugardaginn. LAUGAVEG118 StMAR 21150-21370 Engin ber á Húsavík Húsavík - Vel leit út með berja- sprettu á síðastliðnu vori. Mikið var af sætukoppum og hin sérstaka sum- arblíða sem einkennt hefur þetta sumar gáf mönnum góðar vonir um mikla beijasprettu. En í ve! rómuðu beijalandi á Húsa- vík og í nágrenni sjást nú varla ber á lyngi svo þrátt fyrir gott sumar mun beijatínsla ekki almenn. Um er kennt köldu vori og kuldum í júní. „Fyrst er vísirinn, svo berið,“ seg- ir máltækið en svo mun ekki verða þetta árið hér um slóðir. -----é-4-4--- Brotist inn í í veitingahús Egiisstöðum - Brotist var inn í veitingahúsið LA Café í Fellabæ að- faranótt laugardags. Innbrotið upp- götvaðist þegar starfsfólk kom til starfa á Iaugardag. Þjófar höfðu brotið rúðu við útidyr til að geta opnað dyrnar innanfrá. Einhverju áfengi var stolið, en engu öðru og ekkert skemmt. Málið er í rannsókn. Frábær fyrirtæki Ritfangaverslanir Til sölu eru tvær ritfangaverslanir, vel staðsett- ar, á mjög góðu verði og kjörum. Einstaklega góður sölutími framundan, skólatíminn og jólin. Seljast saman eða í sitt hvoru lagi. Skemmtileg og uppbyggileg vinna. Til afhendingar strax. Sælgætisverslun með útilúgu og mikilli sölu á pylsum, hamborg- urumog þess háttar. Há meðalálagning. Mánað- arvelta um 3 millj. Langur húsaleigusamningur. Hagstæð leiga og góð kjör. Góðar tekjur og öruggar fyrir duglegt fólk. Matvöruverslun í verslunarkjarna. Mánaðarvelta 6-7 millj. Góð tæki. Frábær aðstaða. Góðirviðskiptasamningar fylgja. Opið til kl. 22 öll kvöld. Staðsett í rót- grónu íbúðarhverfi. Góðir tekjumöguleikar fyrir hagsýnt og dugmikið fólk, sem vill skapa sér atvinnu og eigið fyrirtæki. Upplýsingar um öll fyrirtæki aðeins á skrifstof- unni. BCTrrTnT^njrpyrnaa SUDURVERI SlMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Ab læra meira Sunnudagsblaði Morgunblaðins, 28. ágúst nk., fylgir blaðauki sem heitir Að læra meira. í þessum blaðauka verður fjallað um þá menntunarmöguleika sem standa munu til boða í vetur, ýmist í dag- eða kvöldskólum. Leitast verður við að hafa efnisvalið sem fjölbreyttast, allt frá námskeiðahaldi til æðri menntunarstiga fyrir unga sem aldna. Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 17.00 mánudaginn 22. ágúst. Nánari upplýsingar veita Helga Guðmundsdóttir og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 69 1111 eða símbréfi 69 1110. - kjarni málsins! UTSALA io-6o o Opið laucardae kl. 10-16. O AFSL. SFORTBÚÐIN Ármula 40.Simar 813555 og 813655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.