Morgunblaðið - 17.08.1994, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Yarað við
blóðugum
óeirðum
SETTUR forseti Búrúndí varaði
í gær við hættunni á, að blóðug-
ar ættbálkaerjur blossuðu upp
í landinu, sem er byggt hútúum
og tútsum, ef andstæðar stjórn-
málafylkingar koma sér ekki
saman um hver skuli verða
næsti forseti landsins. I höfuð-
borginni Bujumbura hafði her-
inn mikinn viðbúnað á götum
úti, til þess að reyna að stöðva
óeirðir sem staðið hafa í rúma
viku, eða frá því stjórnarand-
stæðingurinn Mathias Hi-
timana var handtekinn. Hann
hefur nú verið látinn laus.
S-Kóreskir
kjarnakljúfar
UTANRÍKISRÁÐHERRA Suð-
ur-Kóreu sagði í gær að Norð-
ur-Kóreumenn yrðu að sam-
þykkja að byggja kjamakljúfa
að suður-kóreskri fyrirmynd,
samkvæmt ákvæðum samnings
sem Bandaríkin og Norður-
Kórea gerðu í síðustu viku.
Sagði ráðherrann, að ekki væri
neinn „raunhæfur valkostur
annar í íjósi ákvæða samnings-
ins.“ Norður-Kóreumenn höfðu
áður hafnað þessum kosti af
stjórnmálalegum ástæðum.
Kólera í
Tsjetsjníju
KÓLERA hefur orðið íjórum
að fjörtjóni í rússneska sjálf-
stjórnarlýðveldinu Tsjetsjníju,
samkvæmt fregnum frá Inter-
fax fréttastofunni. Sextán hafa
látist af völdum faraldursins og
tæplega 500 smitast í ná-
grannaríkinu Dagestan. Einn
hefur látist í Moskvu. Yfirvöld
í Tsjetsjníju segja að 34 kóleru-
tilfelli hafi verið skráð í land-
inu, öll í tveim bæjum sem eru
við landamærin við Dagestan.
Lögmönnum
úthýst
LÖGREGLA í Albaníu meinaði
í gær tveim virtum, grískum
lögfræðingum um aðgang að
réttarsal þar sem standa rétt-
arhöld yfir fímm grískum Al-
bönum, sem eru sakaðir um
njósnastarfsemi og vopnahald.
Þeir hafa allir lýst sakleysi sínu.
Þeir eru allir framarlega í flokki
Omona-samtaka Grikkja, sem
voru handteknjr í apríl í kjölfar
atviks á landamærum Albaníu
og Grikklands, þar sem tveir
Albanir féllu. Grísku lögfræð-
ingarnir höfðu bréf upp á að
mega fara inn í réttarsalinn,
undirrituð af forseta réttarins,
en var samt meinaður aðgang-
ur.
Fjöldamord
í Frankfurt
LÖGREGLA í Frankfurt sagði
í gær að íjogur fómarlambanna
sex sem voru kyrkt í vændis-
húsi þar á mánudag hefðu verið
vændiskonur frá Sovétríkjunum
fyrrverandi, og hin tvö verið
ungversk hjón sem stóðu að
starfseminni í húsinu. Að sögn
lögreglu bentu aðstæður til að
þama hefðu atvinnumorðingjar
verið að verki. Engar vísbend-
ingar hefðu fundist um hverjir
þeir væru. Fjölmiðlar í Þýska-
landi hafa leitt getum að því,
að ástæða morðanna hafi verið
átök milli bófaflokka, og að
rússneska mafían hafi átt hlut
að máli.
Reuter
Litskrúðugur verjandi
FRANSKI lögfræðingurinn Jacqu-
es Verges hefur fallist á að verja
„Sjakalann Carlos", hermdar-
verkamanninn illræmda, sem bíður
nú réttarhalda í París. Verges er
talinn einn snjallasti lögfræðingur
Frakklands og hann er þekktur
fyrir að viþ'a ögra mönnum og taka
að sér mál, sem þykja illveijanleg
og aðrir lögfræðingar hafna. Hann
varði til að mynda Klaus Barbie,
yfirmann Gestapo í Lyon, sem
hafði þá verið dæmdur tvisvar til
dauða fyrir stríðsglæpi. Þegar
Barbie flúði frá Frakklandi árið
1944 var Verges á meðal hermanna
de Gaulle hershöfðingja sem frels-
uðu París. „Ef Barbie hefði verið
hinum megin byssuhlaupsins hefði
ég skotið hann,“ sagði Verges.
„Núna er ég einfaldlega að sinna
starfi mínu sem lögfræðingur."
Verges er 69 ára að aldri og varði
einnig eiginkonu Cariosar, Magda-
lenu Kopp, sem var félagi í Rauðu
herdeildinni í Þýskalandi og var
dæmd í þriggja ára fangelsi í
Frakklandi eftir að byssur og
sprengiefni höfðu fundist í fórum
hennar. Hún var látin laus árið
1985.
Verges þykir sækjast eftir því að
vera í sviðsljósinu en hann hvarf
þó á árunum 1970-78 og neitar að
skýra frá því hvað hann aðhafðist
á þeim tíma.
Verges aðhylltist snemma komm-
únisma, var fyrst stalínisti og síðan
maóisti, barðist gegn nýlendu-
stefnu og hóf að lokum baráttu
gegn zíonisma. Sem stúdentaleið-
togi og félagi í franska kommúni-
staflokknum komst hann í vinfengi
við Pol Pot, sem varð síðar leiðtogi
Rauðu khmeranna illræmdu í
Kambódíu og stóð fyrir fjölda-
morðum þar.
Myndin var tekin af Verges þegar
hann gekk úr dómhúsinu i París
eftir að hafa enn einu sinni vakið
athygli með vali sínu á skjólstæð-
ingi.
Smyglari handtekinn í Þýskalandi
Smyglað plúton
finnst í þriðja sinn
á skömmum tíma
YFIRVÖLD í Bremen í Þýskalandi
sögðust í gær hafa handtekið 34 ára
gamlan mann sem var með plúton
í fórum sínum. Handtakan fór fram
sl. laugardag og var maðurinn að
sýna væntanlegum kaupanda sýnis-
horn af efninu sem er geislavirkt
og baneitrað. Það fæst úr úrgangs-
efni kjarnaofna og hægt er að nota
það til að framleiða kjarnavopn.
Þetta er í þriðja sinn á fjórum mán-
uðum sem smyglað plúton finnst í
landinu og telja þýsk yfirvöld að
efnið komi frá fyrrverandi lýðveldum
Sovétríkjanna gömlu.
Sovétlýðveldi þar sem kjarnavopn
voru til varnar voru auk Rússlands
Úkraína, Hvíta-Rússland og Kaz-
akhstan. Nýlega fullyrti einn af út-
sendurum þýsku lögreglunnar að
fyrrverandi liðsforingjar í a-þýska
hernum og leyniþjónustu alþýðulýð-
veldisins horfna nýttu sér sambönd
í fyrrverandi Sovétlýðveldum til að
gera Þýskaland að helsta vettvangi
alþjóðlegrar „kjarnorkumafíu“.
Úm helgina var skýrt frá því að
rúm 300 grömm af plútoni hefðu
fundist í fórum smyglara í Bæjara-
landi og þótti meðferðin á varningn-
um benda til að ekki væru neinir
viðvaningar á ferð. í Reuters-frétt-
um segir að plútonið hafi fundist í
farangri tveggja Spánveija og eins
Kólumbíumanns í flugvél sem kom
frá Moskvu. í vélinni var einnig Vikt-
or Sídorenko, aðstoðarkjarnorkuráð-
herra Rússlands, en ekki er vitað
hvort éinhver tengsl eru þarna á
milli.
Margir óttast að hermdarverka-
menn og ríki á borð Líbýu og írak
reyni að komast yfír efnið og hygg-
ist nota það við smíði kjarnavopna.
Á mánudag vísuðu Rússar því á
bug að plúton-fundurinn sýndi að
öryggiseftirlit í kjarnorkuiðnaði
landsins væri í molum. Efnið gæti
ekki verið frá Rússlandi. Einn af
aðstoðarmönnum Helmuts Kohls
Þýskalandskanslara, Bernd Scmi-
edbauer, sagðist í blaðaviðtali senn
myndu halda til Moskvu til að ræða
hvernig koma mætti í veg fyrir frek-
ara smygl á kjarnorkuefnum til
Vesturlanda.
Sýnishorn fasteignasala
Stjórnvöld í Bæjaralandi sögðu á
fimmtudag í liðinni viku að þau
hefðu náð litlu sýni af auðguðu plút-
oni, sem nota má í sprengju, í borg-
inni Landshut hinn 13. júní; efnið
var talið vera frá Rússlandi. Málinu
var að sögn International Herald
Tríbune haldið leyndu þar til lög-
reglu tókst að handtaka þýska konu,
fasteignasala, sem talin er vera höf-
uðpaurinn í glæpahring. Sýnið hefði
verið sent til hennar til að þess að
væntanlegir kaupendur á svarta
markaðnum gætu séð að rússnesku
sölumennirnir gætu útvegað rétta
vöru og nóg væri til af henni.
Frakkar klófesta Carlos, alræmdasta hermdarverkamann heims
Handtakan sögð árangur
leynímakks við Súdani
París. Reuter.
HANDTAKA „Sjakal-
ans Carlosar", alræmd-
asta hermdarverka-
manns heims, er af-
rakstur viðleitni Frakka
til að klófesta hann með
því að byggja upp leyni-
íeg tengsl við herfor-
ingjastjórn múslima í
Súdan - ríki sem Frakk-
ar hafa fordæmt opin-
berlega sem griðastað
fyrir hryðjuverkamenn.
Þetta er mat fréttaskýr-
enda og stjórnarerind-
reka í París.
Franska stjómin var
fljót að vísa á bug fregn-
um um að handtakan
væri liður í vafasömu leynisam-
komulagi hennar og herforingja-
stjórnarinnar í Súdan. Vestrænir
stjórnarerindrekar í París sögðu hins
vegar að Frakkar hefðu, á bak við
tjöldin, komið sér upp tengslum við
embættismenn herforingjastjórnar-
innar í Súdan undanfarna mánuði í
því skyni að binda enda á 20 ára
íeit að hermdarverkamanninum ill-
ræmda. Súdanir hefðu handtekið
Carlos vegna þrýstings frá Frökkum,
einkum fyrir tilstilli Charles Pasqua
innanríkisráðherra.
Lögreglan í Súdan neitaði því í
fyrstu að „Sjakalinn Carlos", réttu
nafni lllich Ramirez Sanchez, væri
í landinu en handtók hann síðan í
einbýlishúsi í Khartoum og færði í
hendur franskra leyniþjónustu-
manna sem höfðu haft uppi á honum
í höfuðborginni.
Súdan hefur verið á svörtum lista
bandarískra stjórnvalda yfír lönd
sem veita hermdarverkamönnum
athvarf. Súdönsk yfir-
völd sögðust hafa hand-
tekið Carlos vegna þess
að hann hefði verið að
undirbúa valdarán í
Khartoum. Vestrænir
fréttaskýrendur gefa lít-
ið fyrir þá skýringu.
Carlos var eftirlýstur
í nokkrum ríkjum, en
talsmaður alþjóðalög-
reglunnar Interpol sagði
að aðeins Frakkar og
Súdanir hefðu átt hlut
að máli.
Lögfræðingur Carlos-
ar, Mourad Oussedik,
sagði að handtakan væri
liður í vafasömu leyni-
makki Frakka og Súdana. „Stjórn-
völd í Súdan og Frakklandi gerðu
með sér samning. Carlos var svikinn
og seldur fyrir fjárhæð sem er miklu
hærri en 30 silfurpeningar. Þetta
var mannrán sem á heima í spennu-
sögu,“ sagði hann. „Súdanskir ör-
yggisverðir, sem áttu að vernda
hann, sviku hann og kefluðu, spraut-
uðu í hann deyfilyfjum og settu í
franska flugvél þar sem franskir
leyniþjónustumenn biðu hans.“
Áður hafði Pasqua innanríkisráð-
herra neitað harðlega fregnum um
að súdanska herforingjastjórnin
kynni að hafa handtekið Carlos
vegna þess að Frakkar hefðu aðstoð-
að hana í baráttunni við aðskilnaðar-
sinna sem hafa gert uppreísn í suð-
urhluta Súdans. Franska dagblaðið
Liberation, sem er vinstrisinnað,
hafði sagt að súdanskir embættis-
menn hefðu nokkrum sinnum heim-
sótt stöðvar frönsku leyniþjón-
ustunnar, síðast fyrir tveimur mán-
uðum - eða um það leyti sem frönsk
stjórnvöld segjast fyrst hafa fengið
upplýsingar um að Carlos væri í
Súdan.
Blaðið sagði að franska leyniþjón-
ustan hefði einnig látið súdönsku
herforingjastjórninni í té gervi-
hnattamyndir sem kæmu henni að
gagni í stríðinu við uppreisnarmenn-
ina. Þetta hefði verið gert að frum-
kvæði embættismanna Pasqua.
Frakkar urðu verst fyrir
barðinu á Carlos
„Um leið og Carlos kom til Súd-
ans hafði hann ástæðu til að ætla
að Súdanir myndu svíkja hann. Hann
var ekki lengur í landi algjörrar og
sjálfkrafa samstöðu," sagði Francois
Burga, sérfræðingur hjá frönsku
rannsóknastofnuninni CNRS. „Súd-
anir hafa ítrekað reynt að binda
enda á alþjóðlega viðskiptabannið
sem þeir hafa orðið fyrir barðinu á.
Þeir hafa þegar fengið sína umbun
vegna þess að þeir fá nú tækifæri
til að koma fram í fjölmiðlum á áber-
andi hátt sem virðingarvert land.“
Hver sem umbun Súdana kann
að vera eru vestrænir stjórnarerind-
rekar í París sammála um að Frakk-
ar hafi lagt meiri áherslu á að finna
Carlos en aðrar þjóðir. Franska
stjórnin segir að hann hafi drepið
að minnsta kosti 15 manns í Frakk-
landi og hann hefur þegar verið
dæmdur þar í lífstíðarfangelsi í rétt-
arhöldum að honum fjarstöddum,
fyrir dráp á tveimur leyniþjónustu-
mönnum. „Frakkar urðu verst fyrir
barðinu á Carlos. Þannig að þeir
voru áfjáðastir í að grípa til að-
gerða," sagði stjórnarerindreki.
Ottast hefndaraðgerðir
Samkvæmt Pasqua hefur Carlos
sjálfur sagt að hann hafi drepið 83
menn í Evrópu og Miðausturlöndum
á tuttugu ára ferli sínum sem hermd-
arverkamaður. Frakkar vonast til
þess að Carlos afhjúpi starfsemi
hryðjuverkasamtaka víða um heim
og veiti upplýsingar um tengsl ríkja
við hryðjuverk í Evrópu, Miðaustur-
löndum og Japan.
Fréttaskýrendur vöruðu við því
að nokkur ríki kynnu að reyna að
koma í veg fyrir réttarhöld yfir Carl-
os. Aðrir sögðu hættu á því að
hryðjuverkasamtök, sem aðhyllast
svipaða vinstriöfgastefnu og Carlos,
kynnu að fremja mannskæð hermd-
arverk til að hefna handtökunnar.
„Hættan á tilræðum er vissulega
fyrir hendi,“ sagði Pasqua, sem
bætti við að gerðar hefðu verið ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir hefnd-
araðgerðir. „Maður eins og Carlos
sest aldrei í helgan stein.“
Eiginkonan býr í Venezuela
Carlos og Magadalena Kopp, þýsk
eiginkona hans, hafa verið aðskilin
síðustu árin og hún býr nú í Venezu-
ela með átta ára dóttur þeirra, að
sögn móður hennar. Kopp var félagi
í Rauðu herdeildinni í Þýskalandi og
kynntist Carlos í Austur-Berlín á
áttunda áratugnum. Þá hafði hún
verið ástkona þýsks samverkamanns
Carlosar, Johannesar Weinrichs, og
Stasi, austur-þýska öryggislögregl-
an, studdi Carlos á þessum tíma.
Kopp hvarf árið 1985 eftir að
hafa afplánað þriggja ára fangelsis-
dóm í Frakklandi.
Reuter
Gömul mynd af
„Sjakalanum
Carlos".