Morgunblaðið - 17.08.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 15
ERLENT
Max Adenauer kjörræðismaður íslendinga í Köln
Einstætt að menning sé
jafn mikilvægnr þáttur
Max Adenauer hefur
verið íslandsvinur í
tæpa átta áratugi. í
samtali við Steingrím
Sigurgeirsson metur
hann samskipti íslend-
inga og Þjóðverja og
greinir frá skoðunum
sínum varðandi þróun
Þýskalands.
MAX Adenauer, kjörræðismaður
íslands í Köln, sem verður 84 ára
gamall í næsta mánuði, hefur und-
anfarna daga ferðast um landið.
Líklega hafa fáir jafngóða yfirsýn
yfir tengsl íslendinga og Þjóðveg'a
á þessari öld og Adenauer, en Is-
landsáhugi hans vaknaði er hann
las Nonnasögurnar sem litill
drengur. Hann segir áhuga Þjóð-
veija á íslandi mikinn og fara
vaxandi. Það sé líka einsdæmi í
samskiptum Þjóðverja við aðrar
þjóðir að menning gegni jafn veiga
miklu hlutverki og í samskiptum
íslendinga og Þjóðveija.
Adenauer segir þetta vera í
sjötta eða sjöunda sinn, sem hann
komi til íslands, og sé tilgangurinn
sá að ferðast um landið með
nokkrum vinum. Síðast var hann
hér í fylgdarliði Richard von
Weiszáckers, þá Þýskalandsfor-
seta, er hann kom til íslands sum-
arið 1992. Adenauer segist hafa
borið sterkar taugar til íslands,
en sem ungur drengur kynntist
hann landinu í gegnum bækur,
ekki síst Nonnasögurnar. „Þær
eru skrifaðar á mjög rómantískan
hátt fyrir ung börn og maður fer
að þrá að sjá landið með eigin
augum. Þannig byijaði þetta,“
segir Adenauer. „Eg elska þetta
land. Ekki bara náttúrunnar vegna
heldur af mörgum öðrum ástæðum
einnig. Náttúran hefur ávallt heill-
að mig en einnig menningin og
það er magnað að sjá hvernig Is-
lendingar, 250 þúsund manna
þjóð, mynda fullkomið nútíma-
þjóðfélag."
Hann segir tengsl íslendinga
og Þjóðveija ávallt
hafa verið átakalaus
þó- svo að smávægi-
legur ágreiningur hafi
komið upp í kringum
landhelgisdeilurnar.
Þjóðveijar hafi líka
almennt mjög jákvætt
viðhorf til íslands og
íslendinga og menn-
ingararfur þjóðanna
sé um margt sameig-
inlegur. Hann telur að
áhugi Þjóðveija á ís-
landi fari vaxandi með
árunum. „Það á ekki
síst við um ferðamenn
en þýskum ferða-
mönnum til íslands
fjölgar stöðugt. Það
má líka segja að þýskir ferðamenn
séu gæðaferðamenn. Þeir hafa
raunverulegan áhuga á landinu
og gera miklar kröfur. Margir
þeirra vilja iíka endurlifa rómantík
æskuáranna og ferðast um landið
á hestum og gista í tjaldi. Ég held
að ísland eigi mikla möguleika í
framtíðinni sem ferðamannaland."
Hann segir Þjóðveija nú vera á
skeiði þar sem þeir hafi mjög gam-
an af því að ferðast og hlutfalls-
lega ferðist engin önnur þjóð
meira en þeir. „Við veljum líka
út lönd sem hafa ákveðna róman-
tík til að bera. Við Þjóðveijar erum
frekar rómantísk þjóð. Áhuginn á
landinu sést líka á því að mörg
þýsk-íslensk vináttufélög eru
starfandi í Þýskalandi og er ég til
dæmis formaður Félags ísland-
svina í Köln. Slík félög eru starf-
andi í mörgum borgum í Þýska-
landi, Hannover, Hamborg,
Stuttgart, Miinchen og Dortmund.
Þetta eru, ólíkt flestum slíkum
félögum, ekki félög sem rekin eru
vegna viðskiptalegs áhuga heldur
einbeita sér fyrst _og fremst að
menningarsviðinu. Ég vil líka taka
fram að um er að ræða raunveru-
legan djúpstæðan áhuga á landinu
en ekki bara að fara þangað. ís-
lenskar bókmenntir njóta mikilla
vinsælda í Þýskalandi og þá alls
ekki bara fornbókmenntirnar og
margir kynnast landi og þjóð í
gegnum þær. Ég held að hvergi
sé hægt að finna dæmi um það,
í samskiptum Þjóðveija við aðrar
þjóðir, að menning hinnar þjóðar-
innar gegni jafn veigamiklu hlut-
verki. Oftast eru það viðskipta-
hagsmunir sem eru
í fyrirrúmi."
En Adenauer
hefur einnig fylgst
grannt með þróun-
inni í Þýskalandi
undanfarna ára-
tugi, enda var faðir
hans Konrad Ade-
nauer, fyrsti kansl-
ari Þýska sam-
bandslýðveldisins.
Hann segir nokk-
urn kynslóðamun
vera á afstöðu
manna. Hans kyn-
slóð, sem upplifði
sameinað Þýska-
land, t.d. á tímum
Weimarlýðveldis-
ins, hafi aldrei getað hugsað sér
framtíð Þýskalands öðruvísi en
sameinaða. Yngri kynslóðir hafi
aftur á móti alist upp við tvö þýsk
ríki og í þeirra augum sé samein-
ingin eitthvað afbrigðilegt. „Hvað
á maður að segja við því? Það
mun ekkert sérstakt gerast í kjöl-
far sameiningarinnar. Hið samein-
aða Þýskaland mun áfram gegna
sama hlutverki og áður og taka á
sig þær skuldbindingar _sem nú-
tíma ríki þarf að gera. Ákvörðun
hæstaréttar Þýskalands að leyfa
þátttöku i friðargæsluverkefnum
á vegum Sameinuðu þjóðanna er
liður í því. Það mun ekkert breyt-
ast nema kannski að bundinn er
endi á hina undarlegu stöðu ríkis,
sem tekur fullan þátt í efnahags-
lífi heimsins, en lifir samt einangr-
uðu lífi.“
Hann segist vera algjörlega viss
um það að engir stórveldisdraum:
ar blundi í hugum Þjóðveija. „I
öllum ríkjum meðal allra þjóða eru
til menn sem hrópa gífuryrði á
götunum. Við verðum að vera sér-
staklega á varðbergi, sögu okkar
vegna, gagnvart þvi að hrópin
verði ekki of mörg. Með því er líka
grannt fylgst. Það eru engin merki
uppi um stórveldisdrauma meðal
þýsku þjóðarinnar eða þá að kynt
sé undir slíkt með einhveiju móti.
Við viljum fylgja okkar stefnu
áfram og uppfylla skuldbindingar
okkar, rétt eins og aðrar þjóðir á
borð við íslendinga. Við tökum á
okkur skyldur innan ramma al-
þjóðlegra stofnana en öðlumst
einnig réttindi. Þannig er það og
þannig á það að vera.“
Morgunblaðið/Þorkell
Max Adenauer
Olga á Gaza-svæðinu
FÉLAGAR í öfgasamtökunum
Hamas kröfðust í gær lausnar
manna sem palestínska lögreglan
hafði tekið fasta í tengslum við
morð á Israela á Gaza-svæðinu á
sunnudag. Reiddist Yjtzhak Rab-
in, forsætisráðherra ísraels,
morðinu svo mjög, að hann hótaði
því að koma í veg fyrir frekari
friðarviðræður þar til örygg-
issveitir Palestínumanna hand-
tækju ódæðismennina. Voru fjör-
tíu menn handteknir en 28 þeirra
látnir laUsir í gær. Þá hófust í gær
að nýju viðræður ísraela og Frels-
issamtaka Palestínu um kosningar
Palestínumanna á Vesturbakkan-
um og Gaza en viðræðurnar höfðu
legið niðri frá því að ísraelskur
Iandnemi framdi fjöldamorð í
mosku í febrúar sl.
-----♦--------
Stj órnarmyndun
í Færeyjum
Lítið
þokast
Þórshöfn.
SAMBANDSFLOKKURINN í Fær-
eyjum telur útilokað að samþykkja
20% launalækkun með lagasetningu
og hefur því hætt stjórnarmyndunar-
viðræðum við Fólkaflokkinn.
Um síðustu helgi ræddu fulltrúar
Sambandsflokksins við flóra litla
fiokka um stjórnarmyndun. Á sunnu-
dag brá svo við að Sjálfstýrisflokkur-
inn hafnaði öllu samstarfi við Sam-
bandsflokkinn sem sneri sér þá á ný
til Fólkaflokksins. Formaður Sam-
bandsmanna, Edmund Joensen,
sagði í viðtali við Dimmalætting á
mánudag að gengi ekki saman með
Fólkaflokknum og þrem litlum flokk-
um yrði reynt að semja við jafnaðar-
menn.
m
TisnsnsH
ELFA VORTICEl
VIFTUR
AUKIN VELLÍÐAN !
Borðviftur Gólfviftur
Fjölbreytt úrval - hagstætt verð I
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgarlúni 28 — S 622901 og 622900
fi'isrisnsr/
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
-kjarni málsins!
BOLTAMAÐURINN
Laugavegi 23 • Sími15599
Þú kemst ekki hjá því aö gera mjöggóö kaup á vönduöum
íþróttavörum á haustútsölunni okkar.
Mættu bara snemma - viö byrjum kl. 9:00 í fyrramáliö.