Morgunblaðið - 17.08.1994, Síða 18

Morgunblaðið - 17.08.1994, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Norræn alþýðutónlistarhátíð DAGANA 19.-21. ágúst verður haldin norræn alþýðutónlistarhátíð í Norræna húsinu. Hátíðin er haldin í tengslum við ársfund Norrænu al- þýðutónlistarnefndarinnar, „Nordisk folkmusik kommité". Af því tilefni voru stofnuð samtök í vetur sem nefnast ISAT (íslensku alþýðutón- listarsamtökin) en þar vinna saman Kvæðamannafélagið Iðunn, Kvæða- mannafélag Hafnarfjarðar, Félag harmóníkuunnenda, Samband ís- lenskra harmóníkuunnenda, Þjóð- dansafélag Reykjavíkur og Vísnavin- ir. Vaxandi áhugi er meðal ungs fólks á alþýðutónlist og er gaman að segja frá því að til hátíðarinnar er boðið ungum og efnilegum spilurum frá Danmörku, -Finnlandi, Noregi og Svíþjóð auk þess sem íslenskir spilar- ar, dansarar og kvæðamenn munu koma fram. Frá Danmörku kemur hópur sem nefnir sig Baltinget. Baltinget spilar danska alþýðutónlist fyrir dansi eða á tónleikum kryddaða með nýjum hugmyndum. Baltinget hefur m.a. komið fram á vestuijósku vísnahátíðinni í Tarm, spilararhátíðinni í Árósum, Europade í Horsens 1993 en það er evrópuhá- tíð þjóðdansara og spilara sem hald- in er á hverju ári í einhveiju evrópu- landanna og einnig komið fram í dönsku útvarpi. í tengsium við hátið- ina í Horsens skrifaði gagnrýnandi Horsens Folkeblad: „ ... Þá var kominn tími til að kynna fyrstu dönsku grúppuna þetta kvöld, Baltin- Dagana 19.-21. ágúst verður haldin norræna alþýðutónlistarhátíð í Norræna húsinu í Reykjavík, segir Lilja Petra Ásgeirsdóttir, og þar koma fram ýmsir áhugaverðir listamenn. get. Varla voru fyrstu tónamir þagn- aðir er hin sanna evrópadastemmn- ing - hin rétta næstúm euforiska stemmning þar sem áheyrendur hrópuðu, stöppuðu, flautuðu, klöpp- uðu og sungu með.“ Meðlimir í Balt- inget eru Per Bo sem spilar á fiðlu og syngur, Johnnie Frederiksen sem spilar harmóníku, Tove de Fries sem spilar á fíðlu og syngur, Klaus Ravnsborg sem spilar á gítar og Peter M. Sejersen sem spilar á kontrabassa. Frá Finnlandi kemur einnig hópur ungra hljóðfæraleikara. Sá hópur nefnir sig IN4FUN. Sveitin var stofn- uð 1992. Meðlimir eru : Christofer Öhman, Mathias Hildén, Johan Sjö- berg, Ida Friberg og Anders Portin. Þau spila á fiðlu, lágfíðlu, gítar, banjo, mandolin og ýmis slagverks- hljóðfæri, s.s. trommur, skeiðar ofl. Tónlistin sem þau spila er sænsk, fínnlands-sænsk, írsk og blönduð al- þýðutónlist. Frá Svíþjóð koma fjórir ungir spil- arar. Þeir eru sérstaklega valdir til þessarar farar, en á dagskrá þeirra er aðallega alþýðutónlist frá Dölum og Upplöndum Svíþjóðar. Anna Ristner er tvítug og fædd í Falun. Hún spilar á fiðlu, blokkflautu og syngur. Hún er meðlimur í 3 spilara- félögum og kom fram á Falun al- þýðutónlistarhátíðinni 1993 fyrir Dalina. Hadrian „Hady“ Prett er 26 ára, frá Rattvik og spilar á fiðlu. Hann er vanur leiðbeinandi í þjóðla- gatónlist. Hady kom fram á alþýðu- tónlistarhátíðinni í Falun 1992 fyrir Dalina. Markus Svensson er 21 árs frá Vanersborg. Hann spilar á fíðlu og nyckelhörpu. Nyckelharpa er eitt af elstu hljóðfærum Svía en hefur breyst nokkuð á síðustu öld. Hún hefur notið mikilla vinsælda í Svíþjóð síðustu áratugi. Markús varð ríkis- spilari (riksspelmann) 1992 en það er titill sem bestu alþýðutónlistar- menn Svíþjóðar fá. Jobs Karl Larsson er 22 ára, frá Leksand og spilar á fíðlu. Frá Noregi koma einnig fjórir listamenn. Það eru Haakon Tveito frá Hallingdal. Hann hefur dansað þjóðdansa i'rá 10 ára aldri og hefur keppt í dansi frá 1978. Árið 1993 vann hann landsmótið í dansi. Hákon spilar á harmóníku og er danskenn- ari og stundakennari í tónlistarskól- anum í heimabyggð sinni. Egill Sy- versbraaten er fæddur í Hemsedal. Hann er 25 ára og byijaði að spila á fiðlu sex ára gamall. Hann lærði hjá föður sínum, afa og öðrum dug- legum Hallingdals-fíðlurum. Hann sigraði á Landsmóti alþýðutónlistar- j* manna í sínum flokki 1992 og 1993. f Egill spilar á harðangursfíðlu, sem er þjóðarhljóðfæri Norðmanna. Hann hlaut minningarverðlaun Öyvinds Bergs 1993. Vidar Underseth er fæddur í Ytre Sogn í Noregi. Hann byijaði að spila á harðangursfíðlu 16 ára gamall en dansar einnig og hefur tekið þátt í landsmótum bæði sem spilari og dansari. Hann sigraði r árin 1989, 1991 og 1994 í dansi. Árið 1989 fékk hann kóngabikarinn. Vidar hefur spilað bæði heima og | erlendis. Marit Karlberg er 26 ára fædd í Valdres. Hún lærði snemma að dansa og fór síðan að læra á lang- spil (langeleik), en í Valdres hefur langspilshefð haldist óslitin frá mið- öldum. Á hátíðinni munu einnig koma fram fjölmargir íslenskir harmoníku- leikarar víða að af landinu. Kvæða- menn úr Kvæðamannafélögunum í Reykjavík og Hafnarfirði munu kveða rímur, dansarar úr Þjóðdansa- | félagi Reykjavíkur sýna dans og * margt fleira. Haldin verða námskeið í dansi, harmoníkuleik og fíðluleik. Hljóðfæraleikararnir fara í bæjarferð þar sem þeir spila fyrir gesti og gang- andi bæði í Reykjavík og Hafnarfírði. Það má ljóst vera að það er ekki á hveijum degi sem við íslendingar fáum tækifæri til að hlýða á svo fjöl- breytta dagskrá norrænnar alþýðu- tónlistar. Ekki er að efa að mikið | fjör verður á tónleikunum í Norræna ? húsjnu og á Hótel Sögu í ágúst og I hvet ég alla sem áhuga hafa á al- þýðutónlist að koma, sjá og heyra. Höfundur er dansari og spilari í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur ogí undirbúningsncfnd hátíðarinnar. Tækifæri í skipa- smíðaiðnaði Á SJÖUNDA áratugnum byggðu íslendingar upp öflugan stálskipa- iðnað. Þar voru í fararbroddi dugn- aðarforkamir Skafti á Akureyri, Þorgeir á Akranesi og Marselíus á ísafírði sam allir höfðu rekið slippa og smíðað tréskip um langt árabil, svo og bjartsýnismaðurinn Jón Sveinsson sem stofnaði nýtt fyrirtæki, Stálvík í Garðabæ. Bjarni Benediktsson þáver- andi forsætisráðherra hvatti mjög til þessarar uppbyggingu og hafði tröllatrú á framtíð þessarar iðngreinar. Þessi starfsemi óx hratt og um 1.000 árs- verk voru í greininni þegar best lét. Verkefni vom næg við nýsmíðar og viðhald. Skip smíðuð á íslandi voru vönduð og þóttu ekki síðri en þau bestu sem komu erlendis frá. Samdráttur Á fyrir hluta níunda áratugarins varð mikil breyting á. Nýsmíði skipa innanlands lagðist nær alveg af, bæði í kjölfar kvótakerfísins og vegna vaxandi niðurgreiðslna í sam- keppnislöndum. Mikil verðbólga og háir vextir skekktu samkeppnisstöð- una, ásamt ýmsu fleiru sem hér verður ekki tínt til. Þá vóg einnig þungt langvarandi áhugaleysi og vantrú stjórnvalda á þessari iðn- g'ein. Allt þetta varð til þess að starfsmönnum skipasmíðastöðvanna fækkaði um helming. Markvissar aðgerðir Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hef- ur tekið þessi mál föstum tökum og gjörbreytt rekstrarumhverfí skipa- iðnaðarins með markvissum aðgerð- um. Má þar m.a. nefna: 1. Breytt var 70 ára gömlum lög- um um aðgengi erlendra skipa að íslenskum höfnum, en það hafði ver- ið baráttumái landssambands iðnað- armanna um langt árabil. Þessi breyting hefur þegar leitt til við- skipta upp á mörg hundruð milljónir við erlend skip. 2. Lánshlutföllum Fiskveiðasjóðs var breytt, þannig að lán til innlendr- ar skipasmíðaverkefna eru nú mun hærri en til verka erlendis, jafnframt því sem ekki eru veitt lán til slíkra verkefna erlendis nema þau hafí áður verið boðin út hér innanlands. 3. Ríkissjóður hefur lagt verulegt fé f jöfun- araðstoð, sem hefur skapað íslenskum skipasmiðjum verkefni fyrir hundruð milljóna á þessu ári. 4. Veitt hefur verið fá til ráðgjafar, mark- aðsátaks og þróunar- verkefna, svo og til námskeiðahalds um nýjustu tækni í málms- uðu. 5. Aðstöðugjaldi af fyrirtækjunum var af- létt og skattur þeirra lækkaður. 6. Vextir hafa verið lækkaðir verulega og verðbólga hef- ur lækkað niður fyrir það sem gerist hjá helstu samkeppnisþjóðum okkar. 7. Sett hafa verið lög um jöfnun- artolla og undirboðstolla, en samtök skipasmíðastöðvanna hafa lengi bar- ist fyrir slíkri lagasetningu. Fleira mætti nefna, svo sem bar- áttu fyrir niðurfellingu ríkisstyrkja til skipasmíðastöðva í samkeppnis- löndunum. Nú hefur sá merki áfangi náðst að OECD-ríkin hafa samþykkt að fella niður þessa styrki frá 1. janúar 1996 og tilskipun um niður- fellingu ríkisstyrkja er væntanleg frá Evrópusambandinu á næsta ári. Það má því segja að öll helstu baráttumál íslenskra skipasmíða- stöðva á liðnum árum hafa náð fram að ganga í tíð ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Það er mikil og ánægju- leg breyting frá því sleni og áhuga- Ieysi sem stjómvöld höfðu sýnt þess- ari iðngrein um langt árabil. Staða fyrirteekjanna Þær aðgerðir sem hér hafa verið nefndar gera íslenskan skipaiðnað samkeppnisfæran við erlendan, enda hefur verkefnastaða fyrirtækjanna batnað verulega. Vandamálið er hins vegar þær gríðarlegu skuldir sem hvíla á fyrirtækjunum eftir langvar- andi erfiðleika og í vetur hafa fimm af stærstu fyrirtækjunum verið í greiðslustöðvun. Það er mál málanna að þessi fyrirtæki komist í rekstrar- Ríkisstjóm Davíðs Oddssonar hefur tekið þessi mál föstum tök- um, segir Guðjón Guð- mundsson, og gjör- breytt rekstrarumhverfi skipaiðnaðarins með markvissum aðgerðum. hæft ástand að nýju, en hjá þeim unnu um 7-800 manns fyrir nokkr- um árum, en aðeins um 300 í vetur. Afkastageta ekki of mikil Því hefur verið haldið fram að eitt af vandamálum íslensks skipa- iðnaðar sé of mikil afkastageta og að stöðvunum þyrfti að fækka. Þetta tel ég alrangt og fékk það raunar staðfest með svari iðnaðar- ráðherra við fyrirspum minni á Al- þingi sl. haust um kostnað við ný- smíði og endurbætur fiskiskipa er- lendis og innanlands á undanförnum árum (upphæðir í millj. kr.): 1993 erl. 1.700 innanl. 500 1992 — 5.658 — 923 1991 — • 1.851 — 1.068 1990 — . 1.066 _ 1.680 1989 — 3.277 — 1.413 1988 _ 6.819 _ 3.536 Samt. — 20.371 — 9.120 Bjartara framundan Aðgerðir ríkisstjórnarinnar valda því að framtíð skipasmíðaiðnaðar- ins er bjartari en hún hefur verið um langt árabil. Möguleikar á stór- fjölgun atvinnutækifæra eru óvíða meiri en einmitt í þessari grein, þar sem laun eru hærra hlutfall af veltu en í flestum öðrum atvinnugreinum. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Vesturlandskjördæmi. Guðjón Guðmundsson Glerhúsið I I FÖSTUDAGINN 12. ágúst birtist hér í Morgunblaðinu, greinarkorn eftir Magnús Óskarsson, hæstaréttarlögmann sem hann kallaði „Til umhugsunar". Þar hvetur hann til um- ræðu um kynþátta- vandamál er kynni að skapast hér á íslandi ef hinir svokölluðu „nýbúar" halda of fast í menningu sína og kraftar þeirra beinist jafnframt að því að innleiða þessa menn- ingu hér. Magnús seg- ir tilefni þessara hug- leiðina sinna vera „langa frásögn" í Morgunblaðinu af því er eitt hundrað Tælendingar héldu hátíð- ina „Khao pansandaginn, fyrsta dag þriggja mánaða regntímabils". En auk hátíðarinnar fögnuðu Tæ- lendingar sérstaklega því að hafa fengið hingað munkinn Dham- mando Bhikku, sem andlegan leið- toga sinn. Magnús telur það m.a. ankannalegt að fagna rigningar- tímabili hér á íslandi. Mig langar til að benda Magnúsi á að fylgjast með fjölmiðlum á kom- andi þorra en á þeim tíma árs má undantekningarlítið lesa og heyra frásagnir af þorrablótum íslendinga víða um heim. Gæti ekki verið að öðrum þjóðum þyki sá siður skrít- inn? Og. ekki get ég ímyndað mér að okkur íslendingum þætti það réttlætanlegt að kasta trú okkar þó við settumst að í framandi landi. Ætli okkur þætti það líka ekki full- langt gengið að vera sökuð um að vilja „innleiða", eins og Magnús orðar það svo sterkt, okkar menn- ingu hjá öðrum þjóðum þó við stofn- um íslendingafélög, höldum okkar þorrablót, 17. júní hátíðarhöld og fáum okkar eigin íslenska presta svo eitthvað sé nefnt af því sem íslendingar taka sér fyrir hendur á erlendri grund. Því seint verður það líklega talið íslendingi til lasts að vera ætt- og þjóðrækinn. Enda getum við íslendingar vart hamið aðdáun okkar á Vestur- íslendingum sem mörgum hveijum hef- ur tekist að varðveita sína íslensku arfleifð, kynslóð fram af kyn- slóð þrátt fyrir alda- . langa búsetu á fram- andi slóðum. Þar sem staðir og fólk bera ís- g lensk nöfn og barna- B barnabörn innflytjend- anna (nýbúanna!) skilja jafnvel íslensku. Magnús, það hvarfl- ar ekki að mér að bera á móti því að kyn- þáttavandamál sé til staðar í mörgum lönd- , um. En er sökin aðeins hjá þeim aðfluttu? Gæti ekki hroki og virðingarleysi | okkar Evrópubúa fyrir öðrum B menningarsamfélögum átt þar hlut að máli. Hroki sem oft á uppsprettu sína í vanþekkingu og sjálfsbirg- ingshætti. Því líkt og í öðrum sam- böndum þurfa báðir aðilar að leggja Gæti hroki og virðing- g arleysi okkar Evr- ópubúa gagnvart öðrum * menningarsamfélögum, spyr Sólveig Pálsdótt- ir, átt hlut að kynþátta- vandamálum. sig fram um að skilja og virða hvor | annan, því það þarf tvo til. Magnús, þú hvetur til umræðu um þá staðreynd að hingað til lands hefur flutt fjöldi fólks frá framandi löndum. Ég tek heilshugar undir það en vörumst þá að falla í þann fúla pytt að sjá ekki út fyrir fjós- hauginn. Við eigum nú að heita upplýst þjóð. Höfundur er leikkona og stundar 6 nú nárn í bókmennta- og | fjölmiðlafræðum við Háskóla Islands. Sólveig Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.