Morgunblaðið - 17.08.1994, Page 24

Morgunblaðið - 17.08.1994, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ 24 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 MINNINGAR OLAFUR SKAFTASON ARNFRÍÐUR J. SVEINSDÓTTIR SAMÚELINGVARSSON ■4- Ólafur Skafta- ■ son fæddist I Reykjavík 31. des- ember 1922. Hann andaðist á Land- spítalanum 9. ág- úst síðastliðinn. Ólafur var sonur hjónanna Skafta Gunnarssonar og Guðfinnu Ólafs- dóttur. Alsystkini Ólafs voru Eva, » fædd 26. maí 1924, Gunnar, fæddur 22. febrúar 1927, sem kvæntur er Kristínu Eddu Kornerup-Hansen, og Hulda, fædd 10. ágúst 1929, en hún lést í júní 1990. Hálfsystir Ólafs, Ólöf Helga Kristmundsdóttir, lést 22. febrúar 1941, var fædd 30. ágúst 1917. Ólafur starfaði lengst af sem verkamaður í Reykjavík en 1959 var hann ráðinn húsvörður við Vogaskól- ann og 5 árum síðar húsvörður við Reykjavíkurhöfn þar sem hann starfaði í um 15 ár. Útför Ólafs fer fram frá Seltjarnar- neskirkju í dag. ÓLAFUR Skaftason, fyrrum hús- vörður í Vogaskóla og Hafnarhús- inu, er látinn. Fallin er í valinn maður dreng- lyndur og Ijúfur. Ólafur fæddist á gamlársdag 1922 á Árbakka við Rauðarárstíg í Reykjavík. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Skafti Gunnarsson frá Lóni í Viðvíkur- sveit og Guðfínna Ólafsdóttir frá > Ártúni við Elliðaár. Systkini Ólafs á lífí eru þau Eva og Gunnar, en Hulda systir hans lést fyrir nokkr- um árum. Bernskur fluttist Ólafur með foreldrum sínum að Laugavegi 74 og þaðan að Laug við Reykjavík- urveg. Árið 1932 fluttist fjölskyldan að Baugsvegi 9, nú Bauganesi, í Skerjafirði. Þar átti Ólafur svo heima þangað til 1980, að hann fluttist með Evu systur sinni að Eiðistorgi 1, þar sem þau áttu sam- an heimili í þijú ár, en þá fluttist Ólafur að Hátúni 12. Heimilið á Baugsvegi 9 var annálað heiðursheimili og fjölskyld- an átti ríkan þátt í því að móta þann hugljúfa staðblæ, sem Skeija- fjarðarbyggð býr að enn í dag og á vonandi eftir að endast lengi. Torfi Hjartarson mælir svo um heimilið á Baugsvegi: „Árið 1932 byggðu þau hjón- in húsið að Baugsvegi 9 í Reykjavík og hafa búið þar síðan ásamt bömum sínum, en þau eru enn í foreldrahúsum að und- anteknum Gunnari, sem fór að heiman og kvæntist á síðast- liðnu ári. Það fór saman að Skafti var óvenjulega umhyggjusamur og góður heimilisfaðir, sem helgaði heimilinu alla frítíma sína, Guð- Erfidrykkjur Glæsileg kiífí- hkiðlxirð killegir síilir og mjög 'jgóð þjóniista. Upplýsingar í síma 2 23 22 FLUOLEIDIR IÍTEL LIFTLEIIIK finna frábær húsfreyja að dugnaði og myndar- skap, og börnin og for- eldrarnir sérstaklega samrýnd og hjálpfús hvert við annað. Var heimilið að Baugsvegi 9 því bæði gott og með miklum myndarbrag. Bæði voru þau hjón- in glaðvær og gestris- in. Voru vinir og kunn- ingjar jafnan tíðir gest- ir á heimili þeirra og ávallt vel fagnað. Þar var gott að koma.“ Frá fæðingu átti Ólafur við augn- galla að stríða og var hann fýrst skorinn upp við þessu meini innan við fermingu og oft síðar. Sem að líkum lætur háði þetta Ólafi ævi- langt, en hann bar það af karl- mennsku, sem honum var í blóði borin. Ólafur tók ungur að starfa, fyrst sem sendill í Reykjavíkur Apóteki, en þá tók við verkamannavinna hjá borginni, Eimskipafélagi íslands o.fl. Um fimmtugt veiktist Ólafur af alvarlegum sjúkdómi sem þjáði hann ævilangt, þó hélt hann áfram störfum og eðlislægri trúmennsku og dugnaði, uns hann varð að sætta sig við að vera bundinn hjólastóln- um. Eftir það hélt hann áfram að ferðast, enda áhugamaður mikill um ferðalög. Þá hafði hann mikinn áhuga á ljósmyndun og var um skeið forystumaður áhugaljós- myndara, þ. á m. formaður félags þeirra árum saman. Þá hafði hann mikið yndi af tón- list og í hinsta sinn sá ég Ólaf á eftirminnilegum tónleikum í Hall- grímskirkju í sumar, þar sem við nutum 9. sinfóníunnar í dýrlegum flutningi Hamrahlíðarkórsins og Sinfóníuhljómsveitar íslands. Ólafur var einlægur sjálfstæðis- maður og brást þar ekki trú- mennskan fremur en annars staðar. Hann á að baki farsælt starf í Óðni, Verði og Dagsbrún. Eg minnist þess á árum áður, þegar tíðkuðust smölunarstöðvar í hinum ýmsu hverfum á kjördegi. Við vorum nokkur sem mönnuðum slíkar stöðvar hér í Skeijafirði, þ. á m. Ólafur og systkini hans. Reyndum við að greiða götu kjós- enda á kjörstað og fylgdi þessu oft nokkur kátína og spaugileg atvik. Ef fyrir kom, sem sjaldan var, að kjósendur væru óglaðir og ófúsir að sælcja kjörstað, var Ólafur jafnan sendur en hann var gæddur þeirri ljúfmennsku og fortölutækni, sem nægði til þess að verma svöl hjörtu. Aldrei heyrði ég Ólaf segja eitt styggðaryrði um andstæðinga sína í stjómmálum, enda tíðkast það ekki fyrir sunnan völl. Kristín og ég kveðjum nú góðan vin og sendum systkinum hans og öðrum vandamönnum innilegar samúðarkveðjur. Genginn er halur vammlaus og vítalaus. Guðmundur Benediktsson. Vinur minn, Ólafur Skaftason, er állur. Við höfðum þekkst í ára- raðir og þess vegna langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Hann verður mér minnisstæður maður. Hann þjáðist af sjúkdómi, sem dró úr honum allan líkamlegan þrótt en hans lífskraftur breyttist aldrei. Hann hlakkaði ætíð til næstu viku því þá gæti hann farið á sinfón- íuna eða í leikhús, eða heim til vin- anna, sem honum þótti svo vænt um. Hann fann alltaf eitthvað, sem hann gat hlakkað til. Það var ná- kvæmlega það sem gerði hajin svo einstakan í mínum augum. I hvert skipti, sem ég heimsótti hann eðr. hann kom heim til mín, þá skildi hann eftir í hjarta mínu hlýju og bjartsýni. Ég sendi ástvinum hans samúð- arkveðjur og bið þeim blessunar. Aðalheiður. + Samúel Ing- varsson fædd- ist í Neðra Dal í Vestur Eyjafjalla- hreppi 7. septem- ber 1908. Foreldr- ar hans voru hjón- in Ingvar Ingvars- son bóndi þar og kona hans Guð- björg Ólafsdóttir. Samúel var einn af 16 börnum þeirra hjóna, fimm þeirra létust í æsku en ellefu komust til fullorðinsára. Hann fór ungur að heiman til sjós í Vestmannaeyj- um og stundaði sjómennsku fyrri hluta ævinnar. Samúel kvæntist árið 1936 fyrri konu sinni, Ástu Grétu Jónsdóttur frá Seljavöllum í Austur-Eyjafjalla- hreppi, þau bjuggu lengst af í Vestmannaeyjum. Dætur Samú- els og Ástu Grétu eru: Sigríður Jenny, f. 23. febrúar 1936, Hulda Ingibjörg, f. 30. nóvem- ber 1937, auk þess áttu þau dóttur, f. 1942 en hún lést í frumbernsku. Ásta Gréta lést 6. ágúst 1945 löngu fyrir aldur fram. Þann 7. september 1948 kvæntist Samúel seinni konu sinni, Arnfríði Jónu Sveinsdótt- ur. Þau bjuggu um hríð í Vest- mannaeyjum en fluttu árið 1954 að Heylæk í Fljótshlíð og hófu búskap þar. Síðar flutti fjöl- skyldan að Sámsstöðum í sömu sveit og seinna að Skálmholti í ViIIingaholtshreppi. Árið 1966 flutti fjölskyldan til Selfoss og þaðan til Reykjavíkur þar sem þau hjón bjuggu til æviloka, lengst af á Dalbraut 21. Samúel lést 15. desember 1993. Arnfríð- ur Jóna Sveinsdóttir fæddist i Reykjavík 6. maí 1912. Hún lést 8. ágúst síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Sveins Sæ- mundssonar, frá Nikurlásarhús- um í Fljótshlíð, og konu hans, Ingiríðar Jóhönnu Jónsdóttur frá Heylæk í Fljótshlíð. Arnfríð- MÓÐURSYSTIR mín, Arnfríður Jóna Sveinsdóttir, lést þann 8. ág- úst síðastliðinn. Oldruð kona hvíld- inni fegin og sátt við að hverfa frá okkur í faðm horfinna ástvina. Eig- inmann sinn Samúel Ingvarsson hafði hún misst í desember sl. og nú fær hún þá ósk sína uppfyllta að fá að fylgja honum eftir yfir móðuna miklu. Mig langar í nokkr- um orðum að minnast Jónu frænku minnar og þá um leið hennar ágæta eiginmanns sem lést fyrir nokkrum mánuðum. Jóna frænka mín var einstök kona, henni fylgdi ætíð slíkur létt- leiki og glaður andblær að hún hafði ósjálfrátt áhrif á alla í nán- asta umhverfí sínu. Á gleðistund var hún hrókur alls fagnaðar og á stundum sorgar og trega var hún sú sem kunni að milda sorgina með jákvæðu hugarfari og réttsýni á líf- ið og tilveruna. Móðir mín og Jóna frænka voru svo lánsamar að fá að alast upp saman og með þeim var alla tíð mikill systrakærleikur og einlæg vinátta. Mér eru minnnis- stæðar stundirnar þegar Jóna frænka kom í bæinn úr sveitinni og dvaldi hjá okkur, hvernig hlátra- sköllin í systrunum Ómuðu um alla íbúðina. Þær kunnu að gleðjast saman og njóta samvistanna og um leið gleðja aðra í kringum sig. Jóna þekkti samt sorgina og tregann af eigin raun, því ung stóð hún upp með Ijögur lítil börn er Tryggvi, fyrri maður hennar, lést svo skyndi- lega af slysförum. Það var hennar gæfa er hún giftist Samúel mági sínum þremur árum seinna, en hann hafði einnig orðið fyrir þeirri þung- bæru sorg að missa kornunga konu sína úr lömunarveiki sama árið og Tryggvi lést. Saman áttu þau Jóna og Samúel góða og ástríka ævi, þau ur Jóna var önnur í röðinni af 6 systkinum, en þau voru: Ósk- ar, f. 16. júní 1910, Arnfríður Jóna, f. 6. maí 1912, Þórunn f. 6. janúar 1914, Jóhanna f. 1. september 1915, Guðrún Þor- gerður, f. 9. október 1917 og Ingibjörg, f. 29 júlí 1919. Að Arnfríði Jónu látinni er nú ein- ungis eftirlifandi af þeim systk- inum Guðrún Þorgerður og býr hún á Hvolsvelli. Arnfríður Jóna kvæntist árið 1931 Tryggva Ing- varssyni frá Neðra Dal í Vestur- Eyjafjallahreppi. Þau bjuggu mestan sinn búskap í Vest- mannaeyjum og þar lést Tryggvi af slysförum 3. maí 1945. Börn Jónu og Tryggva eru: Ólafur, f. 21. janúar 1932, Ingibergur Garðar, f. 10. febr- úar 1933, Guðrún Jóna, f. 6. desember 1935, Svanhvít Inga, f. 13. nóvember 1938. Arnfríður Jóna kvæntist seinni manni sín- um, Samúei Ingvarssyni, 7. sept- ember 1948. Börn þeirra eru: Ásta Gréta, f. 20. janúar 1949, Tryggvi Óskar, f. 16. febrúar 1952, Bjarni, f. 3. ágúst 1956. Aðalstarf Arnfríðar Jónu var alla tíð húsmóðurstarfið, en eft- ir að þau hjón brugðu búi, hóf hún störf utan heimilis og vann lengst af hjá Sláturfélagi Suður- lands í Reykjavík. Útför Arn- fríðar Jónu Sveinsdóttur fer fram frá Áskirkju í dag. söfnuðu ekki auði en þau söfnuðu hamingju og ást og þau veittu öðr- um ríkulega úr fangi sínu. Þau voru alla tíð ákaflega hamingjusöm hjón- in og einlægir ástvinir. Jóna og Samúel eignuðust saman þijú böm og samanlagt var barnahópurinn þeirra stór og því oft þröngt í búi, því þótt dætur Samúels af fyrra hjónabandi og tvö af bömum Jónu og Tryggva væru alin upp hjá ætt- ingjum, þá áttu börnin stað í hjarta þeirra og í húsi þeirra. Fyrstu bú- skaparár sín bjuggu Jóna og Samú- el í Vestmannaeyjum, þá stundaði Samúel sjóinn. Eftir að þau fluttu í sveitina drýgði hann tekjurnar á veturna með því að róa frá Þorláks- höfn og vinna í sláturhúsi á haust- in. Þegar þau bmgðu búi hóf Samú- el störf hjá Vegagerð ríkisins og vann hann við brúargerð ámm sam- an. Meðal annars vann hann við smíði Borgaríjarðarbrúarinnar og einnig við brýrnar austur í Skafta- fellssýslu sem opnuðu okkur braut í kringum landið. Samúel var stolt- ur af þessum brúm enda em þær okkur landsmönnum mikil sam- göngubót. Annars var Samúel ekki sá maður sem hreykti sér af gjörð- um sínum, lítillátari og hæverskari mann var vart hægt að hugsa sér. Hann var glaðsinna maður og með eindæmum barngóður og hlýr í allri viðkynningu. Samúel var mikill dýravinur og þau hjónin minntust oft á það hin seinni ár hversu erfitt það hefði verið fyrir hann meðan hann starfaði sem bóndi, að þurfa að farga dýram sínum, það var hans erfíðasta starf. Á heimili þeirra Jónu og Samúels var ætíð margt um manninn, þau voru vin- sæl og vinamörg og hvar sem þau bjuggu og allir voru aufúsugestir á þeirra heimili. Þótt ekki væri til mikið handa á milli, var alltaf hægt að bæta við í heimilið og taka á móti gestum hvort heldur sem var til lengri eða skemmri tíma. Systra- synir Jónu nutu til dæmis sumar- dvalar hjá þeim hjónum þótt fyrir væru í ranni börn þeirra og öll væru krakkarnir á svipuðum aldri og að sjálfsögðu öll frek til fjörs- ins. Það kom jafnvel fyrir að tjaldað var úti á túni sumarlangt yfir hluta af heimilisfólkinu til þess að allir kæmust fyrir. Þá smíðaði Samúel gólf í tjaldið svo úr varð hin ágæt- asta vistarvera. Fólk sótti í félags- skap þessara ágætu hjóna og það átti jafnt við um börn sem full- orðna, enda var hinum unga viði sýnd sama virðing og þeim sem eldri voru og það fundu börnin fljótt. Jóna og Samúel nutu efri ára sinna í ríkum mæli í faðmi barna og bamabarna og fjölskyldna þeirra. Þau höfðu eignast yndislegt heimili á Dalbraut 21 og þar eru íbúðir fýrir aldraða og þar nutu þau þess í ríkum mæli að skemmta sér með gamla fólkinu eins og þau orð- uðu það sjálf og að vera til og njóta ellinnar. Það var Jónu frænku minni þungbært er Samúel lést um síð- ustu jól, hann hafði þá um árabil átt við erfíð veikindi að stríða og hún sjálf oft verið þungt haldin af hjartveiki. Alltaf var það þó þannig að þau virtust í sameiningu ná sér á strik aftur og samhent sem endra- nær héldu þau baráttunni áfram þar til yfír lauk. Mér eru minnisstæð orð Jónu frænku minnar þá er ég vitjaði hennar að Samúel látnum: „Það var mín gleði og hamingja á sorgarstund að hann Samúel minn skyldi fá að deyja í faðmi mínum.“ Þessi orð frænku minnar lýsa henni betur er nokkuð annað. I júlí sl. gengumst við afkomend- ur barna þeirra Ingiríðar og Sveins Sæmundssonar fyrir niðjamóti að Goðalandi í Fljótshlíð. Þangað komu flestir þeir afkomendanna sem komið gátu því við og þar hittumst við mörg í fyrsta skipti en önnur rifjuðu upp gömul kynni frá æsku- árunum. Jóna frænka hlakkaði mik- ið til mótsins og var staðráðin í því að mæta. Þegar ég heimsótti hana fjársjúka upp á Borgarspítala nú í vor þá verð ég að viðurkenna að ég efaðist að hún gæti mætt á niðja- mótið í júlí. En eins og endranær hresstist frænka, komst heim af spítalanum og mætti á niðjamótið hress og kát í sinni. Þar skipaði hún heiðurssess ásamt Guðrúnu systur sinni og Magnúsi Ingvarssyni mági sínum, sem giftur var Ingibjörgu systur þeirra, en hún lést á síðast- liðnu sumri. Á föstudeginum var sungið við varðeld fram á nótt og á laugardeginum var dansað fram á nótt. Það geislaði gleðin af and- liti Jónu frænku og hún dansaði og söng með okkur ásamt Guðrúnu og Magnúsi og það var hvergi gefið eftir. Þegar ég kvaddi frænku mína á sunnudeginum og spurði hvort hún væri ekki alveg búin að gera út af við sig, svaraði hún: „Nei, ég er ekki þreytt, mér hefur ekki lengi liðið eins vel og mér líður núna og ég er svo hamingjusöm yfir að hafa hitt ykkur öll og fengið að vera með ykkur og nú ætla ég beint á Selfoss og vera við skírn á barna- bamabarni mínu og mig munar ekkert um það.“ Nokkrum dögum seinna veiktist Jóna frænka alvar- lega og var þá vart hugað líf, en heim komst hún aftur þótt kraftarn- ir væru á þrotum. Hún lést í rúmi sínu að morgni miðvikudags 8. ágúst, hlustandi á morgunútvarpið. Nú kveð ég þessa kæru frænku mína með gleði í hjarta þrátt fyrir söknuðinn. Börnum hennar og börnum Samúels og hinum fjölda- mörgum niðjum þeirra sendi ég mínar einlægu samúðarkveðjur. Guð geymi þessi góðu hjón og blessi minningu þeirra. Petrína Ó. Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.