Morgunblaðið - 17.08.1994, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
HARALDUR
ÁGÚSTSSON
+ Haraldur Ágústsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður,
fæddist 24. júni 1930. Hann lést
af slysförum 7. ágúst síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Bústaðakirkju í gær.
MEÐ LÁTI Haraldar Ágústssonar
er fallinn frá einn merkasti maður
í sögu íslenskrar skipstjórnar á þess-
ari öld, en Haraldur var einhver
framsýnasti og fengsælasti fisk-
’T'eiðiskipstjóri þjóðarinnar um árabil
og má rekja margar nýjungar í ís-
lenskum sjávarútvegi til Haraldar.
Haraldur var fæddur að Hvalsá
í Steingrímsfirði 24. júní 1930.
Hann ólst þar upp ásamt sex bræðr-
um. Hann hóf sjósókn á unga aldri
og eftir nokkurra ára sjómennsku
fór Haraldur í Stýrimannaskólann
og að loknu prófi tók hann við skip-
stjóm á 30 tonna báti, Frigg. En
það var árið 1956 sem Haraldur
vekur fyrst athygli sem skipstjóri,
þá á Heiðrúnu frá Bolungarvík.
Haraldur verður landsþekktur sem
skipstjóri á Guðmundi Þórðarsyni
RE. Þar notar hann fyrstur manna
kraftblökk við nótaveiðar, sem þýddi
að nú var nótinni kastað frá sjálfu
veiðiskipinu, en ekki nótabátunum
svonefndu. Og enn í dag eru nóta-
veiðar stundaðar eftir forskrift Har-
aldar. Þá varð Haraldur fyrstur
manna til að nota dælu við að ná
síld úr nót um borð í veiðiskip, en
áður var eingöngu notaður háfur,
en það var um borð í Reykjaborg-
inni, og þá var hann einnig fyrstur
manna til að láta byggja yfir þilfar.
Um margra ára skeið hefur Har-
aldur gert út lítinn dragnótabát,
Reykjaborg, og þar var hann fyrstur
manna til að gera út á dragnótaveið-
ar á vetravertíð og um leið fyrstur
til að nota svonefnd Óseyjarspil, sem
KARÍTAS KRISTÍN
HERMANNSDÓTTIR
+ Karítas Kristín Hermanns-
dóttir fæddist í Ögri við
Isafjarðardjúp 10. nóvember
1927. Hún andaðist í Sjúkrahús-
inu á Húsavík 5. ágúst síðastlið-
inn og fór útför hennar fram
frá Húsavíkurkirkju 15. ágúst.
VEGIR guðs eru órannsakanlegir.
Þetta máltæki sannaðist okkur Hú-
svíkingum núna síðsumars, þegar
hún Kæja í Hlyn tók upp á því að
yfirgefa þennan heim. Við héldum
nefnilega að Kæja ætti eftir að vera
hjá okkur í mörg ár enn, búandi með
honum Steina sínum við Garðars-
brautina þar sem svo þægilegt var
að skreppa inn, fá bolla af almenni-
legu kaffi og síðan spádóm. Spjaila
um alla heima og geima, hlæja,
hneykslast, og stundum gráta pínu-
lítið ef maður var óhamingjusamur.
Hún Kæja með stóra hjartað sitt
tók þátt í allri tilfinningaflórunni
með manni, skammaðist ef henni
fannst maður vera með' aumingja-
skap en huggaði ef henni fannst við
eiga.
Kæja var besta vinkona Ástu
mömmu og eftir að mamma dó, varð
Kæja vinkona okkar systranna. Við
gátum alltaf leitað til hennar, bæði
í gleði og sorg.
Karítas Hermannsdóttir var
skemmtilegur samferðamaður sem
hafði húmorinn í lagi. Minning um
stórbrotna konu Iifir. Konu sem þorði
að lifa lífinu lifandi.
Ég bið Guð að varðveita Steina,
Birgi, Geira og fjölskyldur þeirra svo
og allan systkinahóp Kæju sem henni
var svo annt um.
Hólmfríður Benediktsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JUDITH SVEINSDÓTTIR,
Langholtí 14,
Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 14. ágúst sl.
Bergsteinn Garðarsson,
Barbara, Sigurveig, Jónas,
tengdabörn, barnabörn
og langömmubörn.
t
Ástkær sambýlismaður minn,
SKARPHÉÐINN ÓSKARSSON
frá Haukabrekku,
til heimilis á Höfðagötu 9,
Stykkishólmi,
andaðist aðfaranótt 15. ágúst.
Jarösett verður frá Snóksdalskirkju laugardaginn 20. ágúst
kl. 14.00.
Sigríður Sigurðardóttir.
t
Bróðir okkar,
ÓLAFUR SKAFTASON,
Hátúni 12,
Reykjavík,
ér andaðist þriðjudaginn 9. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Sel-
tjarnarneskirkju í dag, miðvikudaginn 17. ágúst, kl. 13.30.
Eva Skaftadóttir,
Gunnar Skaftason.
OMAR HREINN
MAGNÚSSON
eru nú í allflestum dragnótabátum.
Þekktastur var Haraldur sem
skipstjóri á því mikla aflaskipi Sig-
urði RE en þar var hann skipstjóri
á móti Kristbirni Árnasyni frá Húsa-
vík. Undir þeirra stjórn er Sigurður
að líkindum eitthvert fengsælasta
skip sem íslendingar hafa átt.
Við bræður þekktum til Haraldar
frá fornu fari, en við kynntumst
honum ekki fyrir alvöru fyrr en við
fórum í veiðiferðir með honum og
Flosa heitnum Gunnarssyni skip-
stjóra, mági Haraldar. Veiðiferðir
eru oft sá vettvangur þar sem menn
kynnast náið. í þessum ferðum
fengum við að kynnast mörgum
hliðum Haraldar. Hann var atorku-
samur og harður veiðimaður. Þó svo
að við sæjum ekki fisk, gafst Har-
aldur aldrei upp. Að gefast upp var
ekki til í hans huga. Jafnhliða var
hann glettinn og alltaf í góðu skapi.
Hann hafði gaman af að segja sög-
ur, en afrekssögur af sjálfum sér
sagði hann aldrei.
í þessum ferðum kom líka vel í
ljós hversu vel hann var skipulagð-
ur, aldrei vantaði neitt, hann hugs-
aði fyrir öllu. í Haraldi voru samein-
aðir fleiri kostir en flestir hafa, hann
var hugvitssamur, duglegur, með
óbifandi kjark og áræðni. Hann var
jafnframt mikill fjölskyldumaður.
Hann var kvæntur Guðbjörgu Gunn-
arsdóttur og eignuðust þau fjögur
börn sem öll eru uppkomin. Hann
átti einnig aldraða foreldra á lífí.
Við bræður vottum Guðbjörgu og
öllum ástvinum Haraldar okkar inni-
legustu samúð.
Við þökkum Haraldi fyrir ógleym-
anlegar samverustundir.
Minningin um góðan dreng mun
ávallt lifa.
Oddur og Friðrik
Halldórssynir.
Brlds
Umsjðn Arnór G.
Ragnarsson
Góður gangur í Sumarbrids
GÓÐ mæting hefur verið í Sum-
arbrids síðustu daga. Takmarkið
fram að lokum Sumarbrids er að
fylla húsið nokkrum sinnum. Skor-
+ Ómar Hreinn Magnússon
var fæddur í Reykjavík 15.
nóvember 1941. Hann lést á
heimili sínu í Reykjavík 5. júlí
síðastliðinn og var útför hans
gerð frá Neskirkju 14. júlí.
OKKUR systkinin langar að minn-
ast föðurbróður okkar, Ómars
Hreins Magnússonar.
í dag má líta á það sem forrétt-
indi að fá að alast upp með ömmum
sínum og öfum. Við systkinin áttum
þess kost, þar sem móður- og föður-
foreldrar okkar bjuggu við sömu
götu og við. Móðir okkar og ömm-
ur voru heimavinnandi og gengum
við út og inn á þremur stöðum.
Við áttum þijú heimili. I einu þess-
ara húsa, hjá föðurforeldrum okk-
ar, bjó Ómar frændi. Hann var
ekki bara frændi heldur líka vinur.
Þó að Ómar hafi verið dulur
maður kynntumst við því ekki sem
börn. Alltaf var hann með bros á
vör eða glettni í munni. Alltaf tilbú-
inn til að leika sér, hvort heldur
að sparka bolta, lita eða ræða nýj-
ustu dúkkulísurnar. Að fá að fara
í bíltúr með Ómari frænda á rauða
Fíatinum var okkur mikil skemmt-
un. Þá voru ekki tveir til þrír bílar
á öðru hvoru heimili og á sumum
ekki neinn. Skemmtiferðir stórfjöl-
skyldunnar á Þingvöll, að Laugar-
vatni og lautartúrar í Heiðmörk lifa
í minningunni.
Við erum mörg frændsystkinin
og ég veit að Ómar kom eins fram
við okkur öll. Hann var vinur okkar
að er því á bridsáhugafólk að mæta
vel þessa síðustu daga.
Úrslit á þriðjudag (26 pör) urðu:
N/S:
Gylfi Baldurss. - Sigurður B. Þorsteinsson 324
Ámi Bragason - Erlingur Einarssqn 316
Gunnlaupr Sævarsson - Sverrir Ólafsson 305
A/V:
Karl G. Erlingsson - Jón Stefánsson 349
Halldór M. Sverriss. - Sverrir Ármannss. 329
Guðmundur Sv. Herm. - Helgi Jóhannss. 293
og hann átti sinn þátt í því að við
áttum skemmtilega barnæsku.
í bókinni Spámanninum, eftir
Kahlil Gibran, stendur m.a. um vin-
áttuna:
Vinur þinn er þér allt.
Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð
þinni er sáð og gleði þín uppskorin.
Ómar bar ekki tilfinningar sínar
á torg og þótti dulur og jafnvel
einrænn að eðlisfari. Hann valdi
sér það hlutskipti í lífinu, sem hann
lifði.
Og þegar hann þegir, skiljið þið hvor ann-
an. Því að í þögulli vináttu ykkar verða all-
ar hugsanir, allar langanir og allar vonir
ykkar til, og þeirra notið í gleði, sem krefst
einskis.
(K.G.)
Þegar við komumst á fullorðins-
ár skildu leiðir að vissu marki.
Æskan var að baki — við vorum
ekki lengur börn, en þegar við hitt-
umst fengum við eins og áður klapp
á koll eða strok á kinn.
Betra veganesti út í lífið en gleði-
rík æska er ekki til. Hafi elsku
Ómar þökk fyrir.
Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við
vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst
um í fari hans, getur orðið þér ljósara í
farveru hans, eins og fjallgöngumaður sér
fjallið best af sléttunni.
(K.G.)
Þórdís, Jón Magnús og
Sigríður Jóna Jónsbörn.
Úrslit á miðvikudag (34 pör)
urðu:
N/S:
Hjalti Elíasson - Páll Hjaltason 539
JónBjömsson-BjömÞorláksson 497
Halldór M. Sverriss. - Guðmundur Sveinss. 474
Halldór Guðjónsson - Brynjar Jónsson 464
A/V:
Helgi Bogason - Haraldur Gunnlaugsson 489
Páll Bergsson - Ragnar S. Halldórsson 480
Helgi Sigurðsson - Sverrir Ármannsson 478
Gestur Pálss. - Guðmundur Sigurbjömss. 468
Úrslit á fimmtudag (32 pör) urðu:
N/S:
SveinnR.Eiríksson-MuratSerdar 540
Ólafur Jóhannesson - Eggert Þorgr. 495
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 489
RagnaBriem-ÞórannaPálsdóttir 462
A/V:
Bjöm Theodórsson - Sigurður B. Þorst. 476
Karen Vilhjálmsd. - Þorvaldur Óskarsson 460
Dan Hansson - Vipir Hauksson 459
Karl Sigurhjartarson - Snorri Karlsson 458
Og staða efstu spilara að lokinni
spilamennsku 11. ágúst er þá orðin:
Láras Hermannsson 416
ErlendurJónsson 372
EggertBergsson 357
Páll Þ. Bergsson 324
GuðlaugurSveinsson 319
SveinnR.Eiríksson 283
ÞórðurBjömsson 276
Gylfi Baldursson 255
Dan Hansson 254
Jón Viðar Jónmundsson 247
Sigurður B. Þorsteinsson 245
ÓskarKarlsson 242
BjömTheodórsson 239
SverrirÁrmannsson 230
Sævin Bjamason 222
Halldór Már Sverrisson 221
Þórður Sigfússon 221
Jacqui McGreal 196
KjartanJóhannsson 181
Þröstur Ingimarsson 180
Rétt innan við 300 spilarar hafa
hlotið stig í Sumarbrids til þessa,
sem er með því mesta fram að þessu
í Sumarbrids. Takmarkið er að ná
350 spilurum á skrá áður en yfir
lýkur.
Spilað er alla daga kl. 19 (nema
laugardaga) í Sumarbrids og að
auki kl. 14 alla sunnudaga. Allt
spilaáhugafólk velkomið í Sigtún 9
(hús BSI).
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
GESTS GÍSLASONAR,
Vogatungu 45,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Sunnuhlíðar.
Líney Bentsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
UNNAR PÉTURSDÓTTUR
frá Rannveigarstöðum.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
HALLGRÍMS HALLGRÍMSSONAR,
Helgamagrastræti 42.
Guð blessi ykkur öll.
Rut Guðmundsdóttir,
Margrét Hallgrímsdóttir, Ottó Leifsson
og barnabörn.