Morgunblaðið - 17.08.1994, Síða 29

Morgunblaðið - 17.08.1994, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 29 FRÉTTIR Morgunblaðið/Björn Blöndal Yfirmanns- skipti hjá Flotastöð varnarliðsins NÝR yfirmaður Flotastöðvar varnar- liðsins tók við embætti við hátíðlega athöfn á Keflavíkurflugvelli 8. ágúst sl. W. Robert Blake Jr. kafteinn í Bandaríkjaflota tók við starfi yfír- manns flotastöðvarinnar af Charles T. Butler sem einnig er kafteinn í Bandaríkjafiota og gegnt hefur þessu starfi undanfarin tvö ár. Flotastöðin á Keflavíkurflugvelli er sú deild sem annast rekstur allrar þjónustu við aðrar deildir og stofnanir svo sem rekstur húsnæðis og annarra mann- virkja, birgðahald, rekstur slökkvil- iðs, flugvallarmannvirkja á Keflavík- urflugvelli, tækjabúnaðar og þjón- ustu við flugvélar. -----» » ♦---- Danskennar- ar sameinast í eitt félag D AN SKENN ARAS AMB AND ís- lands og Félag íslenskra danskenn- ara hafa verið sameinuð undir nafn- inu Dansráð íslands. Meðal mála er rædd voru á nýleg- um fundi var nýtt brons-, silfur- og gullmerki og stjörnumerki DÍ sem allir skólar bjóða upp á næsta vetur. Kennarapróf var endurskoðað svo og lög félagsins. Umræður fóru einn- ig fram um kennslu 9 ára barna en öll 9 ára börn í Reykjavík og Mos- fellsbæ fengu danskennslu í skólum sínum sl. vetur í tilraunaskyni og þótti það takast svo vel að stefnt er að áframhaldandi kennslu. Einnig var rætt um þörf danskennara fyrir lögverndun, fjármá! DÍ, klæðnað keppenda, stöðu gömlu dansana, hvort dansinn ætti að sækja um inn- göngu í ÍSÍ og stöðu dansins í heim- inum almennt. DÍ er meðlimur í „The World Dance and Dance Sport Co- uncil“ og sendir fulltrúa á árlegt al- þjóðlegt þing danskennara. Dansráð íslands hefurtekið á leigu húsnæði í Skipholti 23 þar sem viku- legir fundir þess eru haldnir. Stjórn DÍ skipa Heiðar Ástvalds- son, forseti, Bára Magnúsdóttir, (JSB), varaforseti, Guðrún Pálsdótt- ir, Hermann Ragnar Stefánsson, Anna K. Norðdahl, Iben Sonne og Jóhann Örn Ólafsson. -----» ♦—♦---- Grindavík Hleðslunám- skeið og hof- bygging ÞJ ÓÐMENNIN GARFÉLAGIÐ Vor siður stendur fyrir hleðslunámskeiði við Hraungerði í Grindavík dagana 20.-28. ágúst. Félagið hefur í samvinnu við Tryggva Gunnar Hansen og Árna Björn Björnsson ákveðið að reisa fyrsta hofið á íslandi í hartnær þús- und ár. Byggt verður í fornum anda. Námskeiðið hefst kl. 10 laugardag- inn 20. ágúst með kynningu á bygg- ingaráætlun. Unnið verður frá kl. 10-18 um helgar en kl. 19-22 virka daga. Allar nánari upplýsingar veitir Tryggvi Gunnar Hansen í Grindavík. TÖBUGJÖLD Stórkostleg sælkeraveisla að Laugalandi í Holtum. Verið velkomin á eina glæsilegustu skemmtun ársins. KK sextett mætir á svæðið ásamt fríðu föruneyti og sýnir að hann hefur engu gleymt. Borðin svigna undan sunnlenskum kræsingum sem seint munu gleymast. Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að gleðja augu, eyru og maga. Á matseðli kvöldsins má m.a. finna: Fordrykkur Brennunjálsgarpur ásamt Ostaveislu kúabænda með ívaFi frá sunnlenskum garðyrkjubændum. Forréttarhlaðborð Hunangslax úr Árbæjarhyl Silungspaté Holta- og Landmanna Ægissíðulaxafrauð Koníakslax úr Lambhagahyl Reykjagarðspaté Aðalréttir Heklugrillað nautafillét Innbakað fjallalamb úr Eyvindaveri Glóðagrillaðir Rangæskir svínabógar Kryddlegnar kapalundir Þykkvabæjarbomba Húnakotsfrauð Grænmetis paradís Onnu Smáratúnsbökur Eftirréttir Skyrterta úr Ásahrepp með Versalachampagne sósu ásamt Ragga Bjjarna og Ellý Vilhjálms. Útsiilustaðir: Hreysti, Skeifunni 19, Reykjavík, Sportbær, Selfossi. Söluskálinn Landvegamótum. Hellir Inn, Ægissíðu. Sælubúið, Hvolsvelli. Miðaverð kr. 3-900.-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.