Morgunblaðið - 17.08.1994, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens ■hhhhbhbh
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
SOm,MANAGER..IT T00K ME A
WHILE T0 UNPLU& MY HAIR PRVEK..
Kastaðu honum, Kastaðu Kastaðu honum! Kast- Því miður, stjóri... það tók mig tíma
Gunna boltanum! aðu honum! Kastaðu að taka hárþurrkuna úr sambandi...
honum!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Góð frammistaða
íslenskra skólakóra
á erlendri grundu
Frá Pétri H. Jónssyni:
12. SÖNGMÓT evrópskra kóra,
Europa Cantat, var haldið í bænum
Herning á Jótlandi í síðastliðnum
mánuði. Samkvæmt frásögn dag-
blaðsins Herning Folketidende voru
þátttakendurf um 3.300 frá 30 þjóð-
löndum. Settu austur-evrópskir kór-
ar mikinn svip á mótið að þessu sinni
enda frelsinu fegnir eftir áralanga
innilokun. Lögðu þeir margir á sig
tímafrekan og erfiðan akstur í lang-
ferðabílum til þess að komast á
áfangastað. Rúmenskt kórfólk sem
ég hafði kynni af mátti t.d. láta sig
hafa 3 daga ferðalag hvora leið til
að geta verið með á þessari miklu
sönghátíð. En þama voru einnig kór-
ar frá fjarlægum löndum eins og
Japan og Argentínu og að sjálfsögðu
fjöldi kóra frá Vesturlöndum.
Fulltrúar íslands voru kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur og Skólakór
Kársness _sem Þórunn Bjömsdóttir
stjómar. Eg átti þess kost að hlýða
á tónleika þeirra Hamrahlíðinga í
troðfullum hátíðarsal menntaskólans
í Heming og var alveg af rifna af
stolti yfír frammistöðu landa minna.
Svo sannarlega kom kórinn, sá og
sigraði á þessum tónleikum og er
þó hreint ekki illa kynntur frá fyrri
hátíðum Europa Cantat.
Skólakór Kársness hélt tónleika
við mjög góðar viðtökur áheyrenda
á fyrsta degi mótsins. Ég missti af
þeim tónleikum en varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að verða hópnum sam-
ferða frá Hemig til Kaupmannahafn-
ar og hlýða á tónleika hans í borg-
inni við sundið. „Önga sá ég almini-
lega stúlku“ skrifaði Gísli Brynjólfs-
son um heimsókn í Tívolí árið 1848.
Hann sá heldur ekki Þómnni Bjöms-
dóttur og hennar fríða flokk stíga á
fjalirnar á Plænen, einu af útisviðum
þessa fræga skemmtigarðar. Það var
nokkuð skondið en að sama skapi
afar ánægjulegt að sjá að á auglýs-
ingaspjöldum þar sem tíunduð em
öll helstu dagskráratriði og listvið-
burðir ágústmánaðar innan veggna
Tívolísins gat m.a. að líta nafn Skóla-
kórs Kársness. En svo sannarlega
vom þau stjömur, Kópavogsbúamir
ungu og stjórnandi þeirra, kvöldið
sem þau tróðu upp á þessum fallega
stað og sönnuðu svo ekki verður um
villst að kórinn á erindi að syngja
fyrir heiminn.
Oft er talað um agaleysi í skóla-
kerfinu. Ekki ætla ég að eyða orðum
að þvi en eitt af olnbogabörnunum
í skipulagi þess kerfis, íslenskir
skólakórar, átti tvo glæsilega full-
trúa, vel agaða en bráðskemmtilega
á Europa Cantat í Herning á Jót-
landi. Megi ég einhvem tímann eign-
ast hatt þó ekki verði til annars en
að fá að taka ofan fyrir þeim Þor-
gerði Ingólfsdóttur og Þórunni
Bjömsdóttur í virðingarskyni við
þeirra og góða mikla starf.
PÉTUR HAFÞÓR JÓNSSON,
Álaborg, Danmörku.
Athugasemd við
skrif Víkverja
Frá Þorgeiri Eyjólfssyni:
í VÍKVERJA miðvikudaginn 10.
ágúst er dregin sú ályktun af „mikið
klipptu" fréttaviðtali við fram-
kvæmdastjóra SAL að um samráð
lífeyrissjóða hafí verið að ræða við-
víkjandi útboð á húsnæðisbréfum
þegar ekki bámst 5,00% tilboð í
skuldabréf Húsnæðisstofnunar á út-
boðsdegi 2. ágúst sl.
Það er þýðingarmikið að lesendur
geri sér grein fyrir aðstæðum á verð-
bréfamarkaði á útboðsdegi hús-
næðisbréfanna þannig að þeir geti
myndað sér sjálfstæða skoðun á
málinu.
1. Á útboðsdegi fengust húsbréf,
sem líkjast húsnæðisbréfum að flestu
leyti, _með 5,34% vöxtum.
2. Á Verðbréfaþingi Islands á út-
boðsdegi voru sölutilboð Seðlabanka
íslands á húsnæðisbréfum, þ.e. ná-
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
kvæmlega sömu skuldabréfum og
boðin vom í útboðinu, með 5,06% til
5,10% vöxtum.
Af þessu má sjá að ekki var rétt-
lætanlegt með neinum hætti að ráð-
stafa sparnaði sjóðfélaga til lánveit-
inga til Húsnæðisstofnunar á 5,00%
vöxtum á þeim degi sem útboðið fór
fram þar sem samskonar eða sam-
bærileg verðbréf voru boðin til sölu,
m.a. af Seðlabanka íslands, á sama
degi á hærri vöxtum.
Hvað rangar ásakanir um samráð
lífeyrissjóðanna gagnvart útboðum
varðar vísast til fyrrgreindra að-
stæðna á verðbréfamarkaði á útboðs-
degiog þess að verðbréfafyrirtækjun-
um er einum heimilt að gera tilboð
fyrir hönd fjárfesta í húsnæðisbréfín.
Löngum hefur verið rætt um nauð-
syn fækkunar og stækkunar lífeyris-
sjóða með það að markmiði að auka
hagræði í rekstri kerfísins og auka
öryggi sjóðfélaganna. Stærri lífeyris-
sjóðir væru í stakk búnir til þess að
hafa í starfsliði sínu sérfróða starfs-
menn sem hefðu daglega yfírsýn með
verðbréfamarkaðinum og viðskiptum
í skráðum verðbréfum á Verðbréfa-
þingi íslands með hliðstæðum hætti
og gerist í dag hjá stærri sjóðunum.
Frétt Morgunblaðsins laugardaginn
13. ágúst um fækkun lífeyrissjóða
vegna sameininga er því til vitnis
um jákvæða þróun til aukinnar hag-
ræðingar og vaxandi öryggis sjóðfé-
laga viðomandi lífeyrissjóða.
ÞORGEIR EYJÓLFSSON,
forstjóri Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna.