Morgunblaðið - 17.08.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 31
BREF TIL BLAÐSINS
Ádrepa til stjórnenda
ríkis og sveitarfélaga
Frá Eddu Bergmann:
ÉG undirrituð hefi þörf fyrir að tjá
mig lítillega um aðstöðu og aðgengi
fatlaðra.
Fyrir nokkru síðan voru stofnuð
almenningssamtök, sem hlutu í
sinni „eldskím“ titilinn „íþróttir
fyrir alla“. Ég undirrituð, stofnandi
Trimmklúbbsins „Eddu“, var ein af
FRÁ Árbæjarsundlaug, en bréfrit-
ari segir að fólk í hjólastólum eigi
erfitt með að komast að henni.
þeim áhugasömu manneskjum, sem
þar vildu leggja góðu málefni lið.
Titilorðið taldi ég eiga að ná yfir
alla þjóðfélagsþegna, hvort sem um
var að ræða fatlaða einstaklinga
eða ófatlaða. Síðan þessi bjartsýnis-
stund leið, hefi ég margsinnis rekið
mig á svo ótalmargar hindranir,
t.d. fyrir fólk í hjólastólum, til að
komast hjálparlaust leiðar
sinnar, og þá jafnframt
hindranir að svæðum til
að stunda slíkar íþróttir.
Nú skal vissulega virt
það sem vel er gert og víða
hefir borgin haft frum-
kvæði að lagfæringu í
samráði við ferlinefnd fatl-
aðra, en því miður er sú
lagfæring t.d. skáar í
gangstéttir og uppsetning
handriða ekki þannig unn-
in, að nýtist hreyfihöml-
uðum sem skildi.
Sorglegast er þó, þegar
ný mannvirki eru tekin út,
án þess að slíkt aðgengi
sé tryggt, má þar tilnefna
- kolaportið og hafnar-
bakkasvæðið þar sem
kantar eru alltof háir fyrir
hjólastólafólk að komast
óhindrað leiðar sinnar. I
því efni, sem ótal mörgum
öðrum hafa ábendingar
ferlinefndar ekki verið virt-
ar sem skildi.
Árbæjarsundlaug ekki
aðgengileg
Vestur á Ægissíðu er
verið að koma upp veru-
Afburðagrein
Frá Konráð Eyjðlfssyni:
ÞAÐ VEKUR með mér og líklegast
fleirum mikla ánægju að rekast á
grein í þessu ágæta blaði sem sýni-
lega er skrifuð af afburðasnjöllum
manni með glöggt auga fyrir aðalat-
riðum, mikla þekkingu og er alls
óþjakaður af hismi vinsældavaðals-
ins. Ekki síst þegar viðkomandi er
þess megnugur að túlka skoðanir
sínar á svo aðgengilegan máta að
öllum má boðskapurinn ljós.
Þannig grein var grein Jóns Sig-
urðssonar forstjóra Járnblendiverk-
smiðjunnar sem birtist 17. júlí hér í
Morgunblaðinu.
Afburða lýsing á íslensku
efnahagskerfi
Á einni opnu í Morgunblaðinu var
Jón þess umkominn að gefa afburða
lýsingu á íslenska efnahagskerfinu,
núverandi virkni þess, vanmætti og
afleiðingum, hvað þyrfti til að bæta
þar úr og hvernig ætti að standa að
úrbótunum.
Jafnvel alls ólesnu fólki sem aldrei
hafði skilið eða skenkt hugsun for-
sendum og afleiðingum fjárlagahalla,
veiðileyfagjalds og gengisfellinga
mátti eftir lestur greinarinnar vera
dagsljós áhrif þess á eigin buddu.
Svona vinnubrögð eru einungis á
færi afburðamanna.
Þegar þess er gætt að ástæður
greinarskrifa Jóns virðast eingöngu
vera einlægur vilji til að betrumbæta
samfélagið allri þjóðinni til hagsbóta
þá eykst enn virðing manns á grein-
arhöfundi. Það var því von mín að
sem allra flestir læsu þessa grein,
ekki síst þeir alþingismenn sem oftar
en ekki tala um fjárlagagöt og lána-
slátt ríkisins af lítilsvirðingu og van-
þekkingu. Reyndar hafa fullt.rúar
verkalýðshreyfinga einnig, s.s. Guð-
mundur J., gert sig bera að slíkum
málflutningi.
Fáir tjáð sig um greinina
Ekki veit ég hvort mér varð að
von minni en það lá að að eini þing-
maðurinn sem ég veit til þess að
hafí tjáð sig opinberlega um grein
lega góðri hjólastóla-trimmbraut -
sem fatlaðir notendur eru mjög
ánægðir með, enda er hún mikið
notuð. Fatlaðir þurfa ekki síður en
aðrir á útivist að halda. Það er
margsannað og raunar læknis-
fræðilegt mat, að útivist og hreyf-
ing_ fela í sér lækningamátt.
Ég er mikil suiidáhugamann-
eskja, og hvet fatlað fólk óspart til
að stunda þá íþrótt sér til heilsubót-
ar. Mér kom það verulega á óvart,
að nýja tugmilljóna mannvirkið í
Árbæ (Árbæjarlaugin nýja) skuli
ekki vera aðgengilegt fólki í hjóla-
stólum. Svona mistök eru óafsakan-
leg.
Ég hefi ferðast víða um landið í
sumar, með útlendum gestum mín-
um. í þessum ferðum mínum gerði
ég mér far um að líta á sundstaði
með tilliti til aðgengis. Ótrúlega
víða hefir verið reynt að bæta úr
aðgengisþörf, en þá er skrefið aldr-
ei stigið til fulls, því ýmist vantar
baðstóla eða laugarbarmar eru allt
of lágir og handriðalausir.
Innantóm orð?
Nú verður Reykjavíkurmaraþon
um nk. helgi eða 21. ágúst. Hefir
verið hugað að því hvort fólk í hjóla-
stólum komist óhindrað leiðar sinn-
ar? Er brautin greiðfær slíkum
ferðamáta? Ef svo reynist ekki vera,
ásamt ýmsum öðrum hindrunum,
sem hér er drepið á, er orðtakið
„Íþróttir fyrir alla“ bara innantóm
orð sem skila engri merkingu.
Fyrir okkur, sem búum við ein-
hverskonar líkamlega fötlun, sum
hver langa ævi, er mikilvægt að
búa í samfélagi, sem skilur hagi
okkar og langanir til að lifa á mann-
sæmandi hátt, það getum við aðeins
með því, að komast óhindrað leiðar
okkar, svo sem í verslanir, þjónustu
heilbrigðisgeirans, ýmsar ríkis-
stofnanir og ekki hvað síst til tóm-
stunda og útivistar.
Ég skora eindregið á stjórnendur
ríkis og sveitarfélaga að líta sér nær
í þessum efnum og láta engin stór-
slys henda við hönnun og fram-
kvæmd mannvirkja í framtíðinni.
EDDA BERGMANN,
Hverfisgötu 29, Reykjavík.
Jóns er Einar K. Guðfinnsson úr
Bolungavík og það óhugnanlega er
að sýnilega skildi maðurinn hvorki
haus né sporð greinarinnar þó ættað-
ur sé úr sjávarplássi.
Grein Éinars, . . . himinhrópandi
þögn (Mbl. 30.júlí), ber reyndar í titli
sínum vitni um öfugmæli innihalds-
ins. Greinin er aumkunarverð tiiraun
þingmannsins til að veitast að Jóni
með hismi sem engu breytir boðskap
Jóns s.s. lengd greinarinnar, óbreyt-
anlegum fortíðarafglöpum kollega
Einars og fleiru sem jafn litlu máli
skiptir.
Vanmáttug varnarárás Einars er
til komin vegna tillögu Jóns um afla-
gjald á útgerðina og svo lágt lýtur
þingmaðurinn að hann freistar þess
að hætti smárra að ómerkja heilindi
Jóns, til verksins spinnur þingmaður-
inn upp staðleysu þess efnis að orku-
veiturnar njóti sömu fríðinda og út-
gerðin. Allir sem eru hreinlega vak-
andi muna gríðarháar bætur sem
greiddar voru fyrir land fyrir Blöndu-
virkjun, girðingar, uppgræðslu og
vegalagningar og er þó ekki allt
greitt enn.
Það er frá mínum bæjardyrum
auðséð að þeir útgerðarmenn sem
eru þess umkomnir að kaupa kvóta
fisks í sjónum fyrir milljarða hver
af öðrum eru þess megnugir að
kaupa sama verði kvóta af ríkinu.
Eini munurinn er að í stað örfárra
kvótaeigenda nyti öll þjóðin réttlátrar
hlutdeildar í sameiginlegri auðlind.
Tilgangur þessarar greinar
minnar ar að benda þeim sem misstu
af hinni frábæru grein Jóns á að
bæta sér það upp og setja ofan í við
Einar K. Guðfinnsson.
Nú í föstudagsblaði Morgunblaðs-
ins 17. ágúst lætur Jón Sigurðsson
svo lítið að svara Einari og það er
ekki að sökum að spyija, hann jarð-
ar hnitmiðað og rökfast allt froðu-
snakk þingmannsins.
Hafðu einlæga þökk fyrir grein-
arnar, Jón Sigurðsson.
KONRÁÐ EYJÓLFSSON,
rekstrarfræðingur og fram-
kvæmdastjóri.
3ja dyra 882.000 kr.
5 dyra 932.000 kr.
í tilefni 40 ára
afmælis BfirL höfum
við fengið sendingu
af Hyundai Pony
með ríkulegum
aukabúnaði.
Því er óhætt að
fullyrða að
sambærilegur bíll
er vandfundinn á
þessu verði.
Afmælisútgáfan af Pony
er með:
• 1,3 lítra og
74 hestafla vél
• samlæsingu
• styrktarbitum í hurðum
• tölvustýrðu útvarpi
og segulbandi með
4 hátölurum
• lituðu gleri í rúðum
• samlitum stuðurum
Innifalið í verði:
6 ára ryðvarnarábyrgð og
3ja ára verksmiðjuábyrgð.
Hafið samband við
sölumcnn okkar eða
umboðsmenn um land allt
4 dyra 985.000 kr.
HYunom
...til framtíðar
19S4. ■ 1994
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36