Morgunblaðið - 28.08.1994, Page 1

Morgunblaðið - 28.08.1994, Page 1
96 SÍÐUR B/C/D 194. TBL. 82. ÁRG. SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Stjórnvöld á Bretlandi og írlandi sögð reiðubúin að gefa eftir Undírbúa sanming um breytt lög um N-írland Eiginlegt alfræðirit MOSAIC er hún kölluð, alfræðibók sem er eiginlega ekki til, en veitir samt að- gang að öllum þeim upplýsingum sem hugsanlega er hægt að fá. „Bókin“ Mosa- ic er tölvukerfi. Bruce Schatz, prófessor við Illinois-háskóla, þar sem verið er að prófa Mosaic, segir að kerfið vinni á alþjóðlega gagnagrunninum Internet, og leiti á honum að tilteknum skýrslum eða myndum - eða hvorutveggja - sam- kvæmt beiðni notandans. „Segjum að maður biðji um allar myndir sem teknar voru af árekstrum halastjörnunnar Shoemaker-Levy 9 við Júpíter. Þetta gæti virst óvinnandi vegur, því það voru svo margir sljörnusjónaukar notaðir til i þess að fylgjast með Júpíter. En Mosaic leitar í öllum opinberum gagnagrunnum allra stjörnuskoðunarstöðva í heimi, og færir manni úrvalið. Maður getur svo geymt það í tölvunni hjá sér.“ Munurinn á Mosaic og öðrum alfræðibókum er því fyrst og fremst sá, að Mosaic er ekki ein ákveðin bók, eða gagnabanki, sem hefur þegar verið sett saman, heldur hvert einasta opinbert skjal sem til er í heiminum. Schatz segir, að umfang Mosaic sé því í raun hið sama og umfang mannlegrar þekkingar á hverjum tíma. Besti vinur þjófsins ÓNEFNDUR, japanskur hundur var bundinn við girðingu nærri bílastæða- húsi í Sapporo á meðan húsbóndi hans braust inn í bíl, sem stóð í húsinu, til að hafa þaðan á brott með sér sjónvarps- tæki. Eiganda bílsins bar þá óvænt að, og bundinn sá hundurinn á bak sínum þjófótta húsbónda. Þegar lögregla leysti hundinn vísaði hann henni sem leið lá heim til húsbónda síns, þess þjófótta, sem bjó nokkur hundruð metra frá bíla- stæðahúsinu. Lögregla handtók hús- bónda hundsins og ákærði fyrir tilraun til þjófnaðar. Rússland verði með í ráðum SENDIMAÐUR rússnesku stjórnarinnar í ísrael, Viktor Posúvaljúk, sagði á föstu- dag að Rússar ættu stærstu rétttrúnað- arkirkju heims og yrðu því að fá að ráða nokkru um framtið Jerúsalem-borgar. „Að mínu mati höfum við fullan rétt til að taka þátt í fyrirhuguðum samn- ingaviðræðum um framtíð Jerúsalem, borgarinnar helgu,“ sagði Posúvaljúk. „Rússar. eiga stærstu rétttrúnaðarkirkj- una í heiminum. Múslimar eru fjölmenn- ir í Rússlandi og við höfum haft mikil söguleg tengsl við Landið helga.“ Belfast, London. The Daily Telegraph. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, er sagður reiðubúinn að breyta lögum um stjórn írlands frá 1920, gegn því að írska stjórnin heiti því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um að aflétt verði kröfu Ira um lögsögu á Norður- írlandi. Samkvæmt gögnum sem blaðið Irish Times hefur komist yfir, eru stjórnir landanna að íhuga þessar breytingar alvarlega, og yrðu þær samþykktar á fundi ríkjanna á hausti komanda. Samkvæmt skjölum sem írskir og breskir embættismenn hafa skipst á, myndu Bretar breyta kafla í lögunum frá 1920, þar sem kveðið er á um, að breska þipgið haldi „óskor- uðu valdi“ yfir öllu Norður-írlandi. Farið yrði fram á að þingið felli inn í lögin ákvæði, sem fyrst kom fram í samkomulagi íra og Breta árið 1985, um að breyting geti orðið á stöðu Norður-írlands ef meirihluti íbúanna óskar þess. í staðinn myndi írska stjórnin gefa skilyrð- islaust heit um að halda þjóðaratkvæða- greiðslu um hvort nema skuli á brott tvo kafla úr stjórnaskrá ríkisins, þar sem krafist er lög- sögu yfir allri „eynni írlandi." Þess í stað kæmi viljayfirlýsing um sameinað írland, að fengnu samþykki almennings. Stórfelld breyting Ef Major, og írski starfsbróðir hans, Albert Reynolds, ná samkomulagi á þessum nótum yrði það mesta breyting á hlutskipti Norður- Irlands síðan eynni var skipt upp árið 1920. Þótt breska þingið líti á lögin frá 1920 sem næsta óþörf, hafa þau táknrænt mikilvægi fyrir írsku stjórnina og hreyfingu lýðveldis- sinna á Norður-írlandi. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjórnmálarms írska lýðveldishers- ins, IRA, sagði á föstudaginn, að téðum kafla laganna ætti að breyta. En lögin frá 1920 eru ákaflega mikilvæg í augum þeirra Norður-íra sem vilja halda tengslum við Bretland. Þeir líta svo á, að verði lögunum breytt yrði það til marks um, að breska stjórnin hafi um margt svikið heit sín við héraðið, sem hafi mátt þola ofbeldi af hálfu IRA í aldarfjórðung. Ian Paisley, leið- togi flokks sameiningarsinna, sakaði bresku stjórnina um svik sem myndu „vega að undir- stöðu sameiningar Bretlands og Norður- írlands." Lykillinn að Frökkum Heyrði gikkinn spenntan 14 Bílbelti í rútum? 10 HOLLTOBSOn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.