Morgunblaðið - 28.08.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.08.1994, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Skipulögð glæpastarfsemi mikið vandamál á Heathrow 1,5 milljarð- ar í peninga- sendingum hverfa á ári HVERS konar glæpastarfsemi hefur vaxið hröðum skrefum á Heathrow-flugvelli við London undanfarin ár og samkvæmt breskum dagblöðum er talið að þar sé árlega stolið verðmætum fyrir milljarða króna. Þaðan var sem kunnugt er stolið 20 kílóa pakka með um 10 milljónum króna af peningum Seðlabank- ans snemmaíjúlí. Breskir fjölmiðlar hafa ekki fjallað um þjófnaðinn, enda þykja atburðir af þessu tagi næsta hversdagslegir í Bret- landi. Um Heathrow-flugvöll fara árlega meira en 2.000 tonn af verðmætasendingum sam- bærilegum sendingum Seðla- bankans. Verðmæti þeirra er talið nema um 3.000 milljörðum króna. í úttekt sem breska dagblaðið Daily Telegraph gerði á glæpa- starfsemi á Heathrow fyrir nokkru kemur fram að talið sé að jafnvirði allt að 1,5 milljarða íslenskra króna endi árlega í þjófahöndum. En glæpaflokkar á Heathrow sitja um fleira en verðmætasendingar. Síðustu misseri hefur öllu frá flísatöng- um úr farangri og upp í belta- gröfur og jarðýtur verktaka á svæðinu verið stolið. Auk um 1.800 manna öryggisgæsluliðs flugvallarins starfa á svæðinu fímm hundruð lögreglumenn, auk öflugrar tollgæslu. f grein í breska blaðinu Daily Telegraph kemur fram að eng- inn þáttur starfsemi flugvallar- ins sé laus við skipulagða glæpa- starfsemi. Verktakar við Heathrow- flugvöll urðu fyrir nokkrum misserum fyrir því að stolið var frá þeim stórri beltagröfu og nokkrum jarðýtum. Rannsóknin leiddi í ljós að tækjunum hafði verið ekið rakleiðis upp í flutn- ingaflugvél sem flutti þau til Suður-Ameríku þar sem þau voru seld til Bandaríkjanna. Einn mesti sigur yfirvalda í baráttunni við glæpamenn á Heathrow vannst haustið 1992 þegar lögreglu tókst að koma flugumanni inn i hóp manna sem höfðu í undirbúningi rán sem hefði fært þeim hundruð millj- óna króna og hefði verið eitt- hvert mesta rán í sögu Bret- lands. Upp komst um málið þeg- ar ræningjarnir voru í þann veg að láta til skarar skríða og hugð- ust ráðast vopnaðir inn á heim- ili yfirmanns vöruafgreiðslu hol- lenska flugfélagsins KLM. Með þvi að pynta fjölskyldu mannsins ætluðu þeir að fá hann til að opna öryggishvelfingu KLM á Heathrow þar sem þeir vissu að væri ávallt að fínna gífurleg verðmæti, oftast á bilinu 500- 4.000 milljónir króna. Ræningjarnir höfðu undir- búið ránið í eitt ár og í því skyni komið sér í vinnu hjá KLM. Starfsmenn eru taldir tengjast margs konar afbrotum, s.s. sölu á tollfijálsu áfengi til breskra veitingahúsa. Þá hafa menn í hópi öryggisvarða flugvallarins reynst viðriðnir ýmislegt. Ný- lega var t.a.m. maður sem hafði atvinnu af því að gegnumlýsa farangur í öryggisskyni dæmd- ur í 18 mánaða fangelsi sem foringi gengis sem notað hafði gegnumlýsingarnar sem yfirsk- in til að leita að verðmætum og stela síðan öllu sem nöfnum tjáði að nefna úr töskum farþega. Farfuglarnir á Heathrow- flugvelli eru flokkar vasaþjófa, sem síðastliðin 19 ár hafa tekið sér bólfestu á Heathrow-flug- velli um miðjan maí, starfa þar af miklum krafti meðan ferða- mannatíminn stendur sem hæst en fljúga aftur heim til Kólumb- íu, Chile og Perú þegar haustar með ríflegan afrakstur sumars- ins enda hefur yfirvöldum flug- vallarins gengið illa að standa þá að verki. Um farþegasalina sveima einnig smáglæpamenn sem lifa af því að bijóta upp sjálfsala en í afgreiðslusal flugfélaganna starfa menn, sem lifa á því að lesa á nafnspjöld á ferðatöskum fólks sem bíður við afgreiðslu- borð flugfélaganna. Þeir skrá nöfnin niður og selja síðan upp- lýsingar um það hvar auð og mannlaus hús sé að finna í betri hverfum borgarinnar til inn- brotsþjófa og fá allt að 2.000 krónur fyrir nafnið. . BARNADANSNÁMSKEIÐ í Mjódd þriðjudaga og laugardaga í sal Þjóðdansafélagsins í Álfabakka 14A Mjódd (12 tíma námskeið). Ath. að miðstöð strætisvagna er í Mjódd Mjódd Mjódd Mjódd Þriðiudagar þriðjudagar briðjudagar 3-5 ára K| 10.00-10.30 Kl. 17.00-17.30 Kl. 10.00-10.30 6-8 ára Kl. 10.40-11.25 Kl. 17.40-18.25 Kl. 10.40-11.25 9 ára og eldri Kl. 18.30-19.30 Systkinaafsláttur er 25% Kennsla hefet þriðjudaginn 13. september 1994. Innritun og | upplýsingar í síma 871616. 4» IUNl V Stálu tóbaki fyrir 900 þúsund TÓBAKI fyrir um 900 þúsund krón- ur var stolið í innbroti í verslun Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga. Innbrotið uppgötvaðist þegar starfsfólk mætti til vinnu á föstu- dagsmorgun, spenntur hafði verið upp gluggi bakatil á húsinu, þar farið inn, tóbakslagerinn tekinn en engar skemmdir unnar. Lögreglan á Blönduósi vinnur að rannsókn málsins og óskar eftir vís- bendingum um grunsamlegar mannaferðir um Hvammstanga. í fyrradag stöðvaði lögreglan í Reykjavík bíl í Hvaslfirði vegna gruns um að þar færu menn sem tengdust málinu en ekkert þýfi fannst í bflnum. ------»-4 ♦------ Bíl stolið o g velt TVEIMUR bílum var stolið á ísafirði aðfaranótt laugardags. Lögreglu hafði í gærmorgun ekki tekist að hafa hendur í hári misind- ismannanna en öðrum bflnum var velt og er hann mikið skemmdur. Mikil ölvun var í bænum um nótt- Táknmálsfræði og -túlkun við Hl Tímamót fyrir samfélag heyrnarlausra Fyrir samfélag heyrnalausra markar upphaf kennslu í táknmálsfræðum og táknmálstúlkun við æðstu menntastofnun landsins tíma- mót. Með því er tungumál heymarlausra viðurkennt sem fullgilt tungumál. Ávinning- urinn er ómetanlegur. Ekki aðeins á hagnýtan hátt heldur líka fyrir sjálfsmynd þessa hóps. Að tungumál þeirra sé þess virði að fjallað sé um það í þijú ár í háskóla," segir Svandís Svavarsdóttir mál- fræðingur. Hún hefur verið skipaður kennslustjóri tákn- málsfræði og táknmálstúlk- unar við Háskóla íslands. Kennsla hefst í þessum grein- um í haust. Tvískipt nám Svandís Svavarsdóttir Svandís segir að námið sé sett upp í tvennu lagi. „Annars vegar er um að ræða 60 eininga fræði- legt nám á BA-stigi til hliðar við eða með öðrum tungummálum, s.s. frönsku, ensku eða dönsku. Hægt er að ljúka aðalgrein í táknmáli með málsvísindum, íslensku eða hvaða annarri grein sem er. Námið er fræðilegt og ekki með beinan hagnýtan tilgang." „Hins vegar er svokölluð tákn- málstúlkun. Hún er 40 eininga við- bótarnám, eins og t.d. fjölmiðla- fræðin í félagsvísindadeild. Námið væri ekki hluti BA-náms heldur hagnýtt að því námi loknu,“ segir Svandís. Hún segir að ekki hafi mikið verið lagt upp úr að skilgreina hagnýtan tilgang námsins. „Okkar stefna hefur fremur verið að halda náminu sem mest fræðilegu. Að námi loknu væri hægt að fara út í kennslu, rannsóknir eða allt mögulegt annað, á sama hátt og ef valin hefðu verið önnur tungu- mál.“ Uppsöfnuð þörf -Hverjir sækja ínámið ? „Fólkið hefur áhuga á þessu af öllum mögulegum ástæðum. Nem- endur skrá sig í námið eins og aðrar greinar og eina inntökuskil- yrði eins og í þær, er stúdentspróf." „Tuttugu og þrír hafa skráð sig á fyrsta árið. Sá fjöldi er mun meiri en við þorðum að vona og mjög ánægjulegt að áhuginn skuli vera svona mikill. En að einhveiju leyti er um uppsafnaða þörf að ræða. Töluvert af fólki hefur verið að bíða eftir námi af þessu tagi. Því er viðbúið að eitthvað færra skrái sig á fyrsta árið á næsta ári.“ ► Svandís Svavarsdóttir er fædd 24. ágúst 1964 á Selfossi. Hún varð stúdent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 1983 og lauk BA-gráðu í ís- lensku og málvísindum frá Háskóla Islands árið 1989. Und- anfarin tvö ár hefur Svandís starfað hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heymar- skertra. Jafnframt hefur hún unnið að mastersritgerð sinni um málfræði táknmáls. un. Þarna verður reynt að spanna sem flest svið samfélagsins með áherslu á túlkun á vettvangi. Eitt námsskeiðið gæti t.d. verið með áherslu á skólatúlkun, annað á heilbrigðisgeirann o.s.frv. Sérstak- lega yrði farið í táknforðann á hveijum stað og gerðar æfingar. En þessi hluti verður fyrst kenndur 1996 til 1997 og er ekki orðinn fullmótaður enn.“ -Hver er bakgrunnur starfandi ís- lenskra táknmálstúlka ? „Hann er fjölbreyttur. Samt eru flestir kennarar úr Heyrnleysingja- skólanum. Þeir hafa tekið stök námskeið á vegum ýmissa aðila, t.d. á vegum Samskiptamiðstöðvar. Einhveijir hafa líka lært erlendis. En skortur hefur verið á túlkum og raunar aðeins verið hægt að sinna brýnustu þörfum eða neyðar- túlkun fram að þessu.“ Langur undirbúningur -Hvaðan koma kennararnir ? „Ég kenni málfræðina. Frá sam- skiptamiðstöð koina tveir tákn- málskennarar. Þær eru menntaðar í Svíþjóð og Bandaríkjunum og hafa mikla reynslu af því að byggja upp og kenna á námskeiðum hér. Því er í raun komin mikil reynsla á námsefnið á fyrsta árinu. Annars eru stöðurnar að mestu leyti mannaðar frá Sam- skiptamiðstöð heyrnarlausra og heymarskertra, a.m.k. fyrst um sinn.“ Hagnýti hlutinn -Hvemig verður náminu hagað í hagnýta hlutanum ? „Hann samanstendur af átta fimm eininga námskeiðum þar sem megináherslan er á hagnýta túlk- -Hafið þið kynnt ykkur hvernig svona nám ferfram ílöndunum í kringum okkur ? „Já. Við höfum lagt töluverða vinnu í að kynna okkur hvernig sambærilegt nám er byggt upp erlendis, sér- staklega í Svíþjóð, Dan- mörku og Bandaríkjun- um, og haft hliðsjón af því hér. Undirbúningurinn hefur ómeðvitað verið mjög langur en kannski markviss í 4 til 5 ár.“ -Hvemig vaknaði áhugi þinn á þessu sviði ? „Áhugi minn vaknaði þegar ég sótti námskeið í táknmáli heymar- lausra á masterstigi í málfræði í háskólanum. Ég fékk vinnu á Sam- skiptamiðstöð heyrnarlausra í framhaldi af því og hef unnið þar síðan í október 1992.“ Tuttugu og þrír hafa skráð sig fyrsta árið V ina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.