Morgunblaðið - 28.08.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.08.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994 27 ar í dagblöðin og kynnti Reykvík- ingum gróðurhúsaframleiðsluna og lét ekkert tækifæri ónotað til að koma smá fréttaklausum til blað- anna ef eitthvað nýtt kom á mark- aðinn frá gróðurhúsunum. Heimili hennar að Hofi við Sólvallagötu var um árabil nokkurs konar_„Unuhús“ garðyrkjumanna.... Frú Olafía Ein- arsdóttir var á alla lund mjög glæsi- leg kona og vel til forustu fallin. Agætlega greind og með góða menntun. ... Hún var fríð kona og virðuleg, orðvör í samræðum, en vel máli farin og lét skoðanir sínar í ljós af mikilli festu og átti hægt með að fá menn til að fallast á skoðanir sínar, en var jafnframt tilbúin að fallast á annarra sjónar- mið, ef hún taldi þau jafngóð sínum eigin skoðunum. Þessir eiginleikar hennar komu sér oftast vel þegar hún starfaði í nefndum, þar sem sjónarmið manna voru það breytileg til viðfangsefna að erfitt gat reynst að samræma þau. Þá var frú Ólafía sjálfkjörinn sáttasemjari og tókst ávallt að finna þá leið sem allir gátu vel við unað. Þáttur frú Ólafíu í sögu íslenskr- ar garðyrkju er margfalt stærri en svo að tök séu á að gera honum skil sem vert væri í þessari minning- argrein. En hitt er víst að ef saga íslenskrar garðyrkju verður ein- hvern tíma rituð, þá verður nafn frú Ólafíu á Hofi meðal brautryðj- enda. Það var hún sem fyrst notaði hér það áhrifamikla kjörorð: Látið blómin tala... Fyrir það starf sem frú Ólafía á Hofi vann íslenskum garðyrkjumál- um fáum við garðyrkjumenn seint þakkað sem verðugt væri.“ Þess var áður getið að áhugamál Ólafíu voru nánast ótæmandi, þó hefur ekki enn verið vikið að þeim þætti sem sneri að þeim sem minna máttu sín í lífinu, að kallað er. Þótt ekki færi slíkt hátt, eru þeir vafalítið margir sem minnast margra orða og verka sem hún innti af höndum j þeirra þágu. Ólafía og Pétur eignuðust þijú börn: Lárus Halldór, lögfræðing, f. 12. janúar 1918, d. 15. febrúar 1948. Dóttir hans og Kristjönu Sigurðar- dóttur konu hans er Guðrún Ólafía, f. 1947, búsett í Danmörku. Kirstínu Dóru, húsfreyju, f. 17 nóvember 1919, d. 5. nóvember 1993. Börn hennar og manns henn- ar, Hans J.K. Tómassonar, f. 24. júlí 1915, d. 2. apríl 1993: Ólafía Sigríður, fóstra, f. 1948, Lára Guð- leif, lögfræðingur, f. 1951, Dýr- finna Petra, sjúkraliði, f. 1957. Einar Leifur lögfræðingur, f. 1. mars 1925. Börn hans og Kristjönu Kristinsdóttur, f. 2. nóvember 1920: Ólafía, stúdent, f. 1958, Halldór, f. 1960. Á aldarafmæli Ólafíu Einarsdótt- ur er ljúft að minnast merks ævifer- ils og ævistarfs hennar, sem víða sér ljós merki. Niðjum hennar og vinum er saga hennar hollt vega- nesti, hið jákvæða hugarfar hennar og lagni í samskiptum við mannlíf og umhverfi farsælt leiðarljós. Hún lést eftir alllanga vanheilsu 11. janúar 1965. Barnabörn. * VINALINAN Sjálfboðaliðar óskast! Fimmtudaginn. 1. sept. og mánud. 5. sept. nk., kl. 20.00 verða haldnir kynningarfundir um Vinalínuna í Þverhoiti 15, í húsnæði ungmennahreyfingar RKÍ. Fundurinn er ætlaður þeim, sem vilja kynnast Vinalínunni með það í huga að gerast sjálfboðaliðar. Allir sem eru undir 25 ára eða eldri, eru velkomnir á fundinn. Undirbúningsnámskeið fyrir sjálfboðaliða verður haldið dagana 15., 17. og 18. september nk. Reykjavíkurdeild RKÍ GRUNNSKÓLADEILD Grunnnám: Samsvarar 8. og 9. bekk í grunnskóia. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja rifja upp frá grunni. Fornám: Samsvarar 10. bekk í grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa náð tilskyldum árangri í 10. bekk. Undirbúningur fyrir nám í framhaldsdeild. Kennslugreinar í grunnnámi og fornámi eru: íslenska, danska, enska og stærðfræði. Kennt er fjögur kvöld í viku og hver grein er kennd tvisvar í viku. Nemendur velja eina grein eða fleiri eftir þörfum. FRAMHALDSDEILD Æskilegur undirbúningur er grunnskólapróf eða fornám. Menntakjarni: Fyrstu þrír áfangar kjarnagreina: ís- lenska, danska, enska og stærðfræði. Auk þess félagsfræði, saga, eðlisfræði, tjáning, þýska, hollenska, ítalska, stærð- fræði 122 og stærðfræði 112. Heilsugæslubraut: Sjúkraliðanám í tvo vetur - kjarnagreinar auk sérgreina svo sem: Heilbrigðisfræði, sálfræði, líffæra- og lífeðlisfræði, efna- fræði, líffræði, næringarfræði, skyndi- hjálp, líkamsbeiting, sjúkdómafræði, sýklafræði og siðfræði. Lokaáfanga til sjúkraliðaprófs sækja nemendur í fjöl- braut í Ármúla eða Breiðholti. Viðskiptabraut: Tveggja vetra nám sem lýkur með versl- unarprófi. Kjarnagreinar auk sérgreina svo sem: Bókfærsla, vélritun, verslunar- reikningur og fleira. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla. Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda og er haldið í lág- marki. Innritun fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, dagana 31. ágúst og 1. september kl. 17.00 til 20.00. Kennsla hefst 12. september. Ath.: Innritun í almenna flokka (frístundanám) fer fram 14. og 15. september. TILBOÐ Píta m/buffi, franskar og sósa kr. 490 Hamborgari m/frönskum og sósu kr. 400 Fjöldi góðra rétta á matseðlinum Apple-umboðið hf. Skipholti 21. Sími: 91 - 62 48 00 Fax: 91-6248 18 Power Macintosh 7100/66 cd 8 Mb vinnsluminni 250 Mb harðdiskur 17" Apple Multiscan-litaskjár Apple CD-300Í Plus-geisladrif Stórt hnappaborð Grunnverð: 575.500,- kr. Tilboðsverð: 445.550,- kr. stgr. Tilboðsverð án VSK: 357.871,- kr. stgr. Power Macintosh 6100/60 cd 8 Mb vinnsluminni 250 Mb harðdiskur Apple CD-300Í Plus-geisladrif 14" Apple-litaskjár Apple-hnappaborð II Grunnverð: 366.400,- kr. Tilboðsverð: 284.050,- kr. stgr. Tilboðsverð án VSK: 228.153,- kr. stgr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.