Morgunblaðið - 28.08.1994, Blaðsíða 44
tATCT
SYSTEMAX
Kapalkerfi
fyrir öll kerfl
hússins.
NÝHERJI
SKIPHOtTI 37 - SlMI 88 80 70
Alltaf skrefi á undan
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓIJ' 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Grísir valdir til undaneldis í Hrísey
Fleiri góð dýr
én búist var við
FULLTRÚAR úr kynbótanefnd
Búnaðarfélags íslands voru í vik-
unni í einangrunarstöð ríkisins í
Hrísey og völdu þá grísi — afkvæmi
tíu gylta sem fluttar voru til lands-
ins frá Noregi sl. vetur — sem not-
aðir verða til undaneldis. Að sögn
Auðbjörns Kristinssonar, svína-
bónda og eins nefndarmanna, er
útkoman framar vonum, og vegna
þessi hve dýrin þóttu góð til áfram-
haldandi ræktunar voru valin 30%
fleiri dýr en menn telja sig í raun
____ þurfa.
Gylturnar tíu, sem komu frá Nor-
egi sl. vetur og hafa síðan verið í
einangrun í Hrísey, eru allar búnar
að gjóta. Fyrstu grísimir fæddust í
lok mars og þeir síðustu í júní.
„Þeir eru því allir komnir svolítið
á legg og við vorum að velja úr þau
dýr sem við ætlum að nota í fram-
ræktunina. Meiningin var að taka
þijár gyltur og einn gölt í hverju
goti, það var talið lágmark til að
geta ræktað þetta áfram, vegna
dreifingar á erfðaefni seinna. En
við fengum það mikið af góðum
dýrum út úr þessu, dýr sem við töld-
um hæf í áframhaldandi ræktun,
að við skildum eftir dálítið meira
en við þurfum. Við erum með 30%
fleiri dýr en við ætluðumst ti! að fá
í upphafi, vegna þess að við töldum,
þau mjög góð,“ sagði Auðbjöm T
samtali við Morgunblaðið.
Þróunarsjóður sjávarútvegsins tekinn til starfa
Þegar samþykkt að úr-
elda um 30 fiskiskip
ÞRÓUNARSJÓÐUR sjávarútvegsins er tekinn til
starfa og hefur stjórn sjóðsins haldið tvo fundi,
þar sem samþykktar voru umsóknir um úreldingu
um 30 fiskiskipa og nema úreldingarstyrkirnir
tæpum 800 millj. króna.
Þróunarsjóður hefur þegar greitt út um 160
millj. í úreldingarstyrki fyrir fjögur skip en áður
en styrkirnir eru greiddir út þurfa eigendur m.a.
að leysa veðbönd af skipum, flytja af þeim kvóta
og afmá þau af skipaskrá, að sögn Hinriks Greips-
sonar, framkvæmdastjóra Þróunarsjóðsins.
Sjávarútvegsráðherra skipaði stjórn Þróunar-
sjóðs í júlí. Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ,
er formaður en með honum í stjórn eru Þorgeir
Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna, og Pétur Bjarnason, framkvæmda-
Ureldingarstyrkir
um 800 milljónir kr.
stjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda.
Þróunarsjóður var settur á laggirnar með lögum
sem Alþingi samþykkti sl. vor. Sjóðurinn fær til
ráðstöfunar eignir Hagræðingarsjóðs og tekur við
eignum og skuldum atvinnutryggingadeildar
Byggðastofnunar vegna sjávarútvegsfyrirtækja
að frádregnum 950 milljónum sem ríkissjóður
tekur við. Þá tekur Þróunarsjóður við öllum eign-
um og skuldum hlutafjárdeiidar.
Hinrik sagði að auk úreldingarverkefna væri
sjóðsstjórnin þegar farin að ræða önnur verkefni
sjóðsins, s.s kaup á fiskvinnslustöðvum og fram-
leiðslutækjum og um þróunarverkefni í sjávarút-
vegi sem sjóðurinn getur tekur þátt í.
Samtals hefur sjóðsstjórn Þróunarsjóðs sam-
þykkt úreldingu á um 2.500 rúmlestum þeirra
30 skipa sem búið er að samþykkja og er það
mun meiri úrelding en átti sér stað á starfsárum
Hagræðingarsjóðs en á árunum 1992 og 1993
samþykkti Hagræðingarsjóður úreldingu um
1.500 rúmlesta.
Hinrik sagði að ekki væri búið að ganga form-
lega frá þjónustusamningi fyrir Þróunarsjóðinn.
Byggðastofnun myndi áfram sjá um atvinnu-
tryggingadeild en leitað hefur verið eftir við stjórn
Fiskveiðasjóðs að hann annist þjónustu fyrir Þró-
unarsjóð líkt og fyrir Hagræðingarsjóð á sínum
tíma en það er ekki frágengið.
Morgunblaðið/Júlíus
Þúsundir í
miðbænum
ÞRATT fyrir mikinn mannfjölda
í miðborg Reykjavíkur í fyrri-
nótt var fremur rólegt hjá lög-
reglunni á svæðinu. Var áætlað
að nærri tvö þúsund og fimm
hundruð manns hefðu verið í
bænum. Hverja helgi í sumar
hafa á bilinu tvö til fimm þúsund
manns safnast þar saman að-
faranótt laugardags. Búist hafði
verið við miklum fjölda á föstu-
dagskvöld þar sem skólafólk er
almennt að hætta í sumarvinnu
áður en skólar hefjast. Fremur
lítið var um að vera hjá lögregl-
unni þessa nótt; einhverjir ungl-
ingar undir aldri teknir fyrir að
vera með áfengi, einn og einn
óróaseggur róaður og fólk í
vandræðum aðstoðað. Nítján
lögreglumenn voru á vaktinni,
um einn á hverja hundrað mið-
bæjargesti.
Morgunblaðið/Þorkell
Bikarsláttur í Grindavík
Islendingarnir lausir úr prísundinni í Texas
Spennan mikíl
á svona stað
Sala Guðbjargar IS
til Gr undar fj ar ðar
Drög að
kaupsamn-
ingiundir-
rituð
SKRIFAÐ hefur verið undir drög að
kaupasamningi um sölu togarans
Guðbjargar frá ísafirði til útgerðar-
félagsins Guðmundar Runólfssonar
hf. á Grundarfirði.
Að sögn Guðmundar Smára Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra út-
gerðarfélagsins, er þó ekki víst hvort
af kaupum verði þar sem ekki hefur
tekist að uppfylla kröfur Þróunar-
sjóðs sjávarútvegsins um úreldingu
-md’ móti skipinu. Þarf útgerðin að úr-
**■ elda togarann Runólf SH og annan
bát til viðbótar á móti Guðbjörginni
sem er 2.700 rúmmetrar. Sagði hann
að útgerðin setti sig í talsverðar
skuldir vegna kaupanna en eftir að
Þróunarsjóðurinn hefði tekið til
starfa hefði úreldingarverð hækkað
og ýmis atriði varðandi fjármögnun
' væru ófrágengin. Ef allt gengi upp
fengju þeir skipið eftir mánuð.
KR og Grindavík leika til úr-
slita I bikarkeppni karla í knatt-
spyrnu og hefst leikurinn kl.
14 á Laugardalsvelli í dag,
sunnudag. Þá ættu úrslitin að
ráðast en Gunnar Vilbergsson,
fyrrum formaður knattspyrnu-
deildar Ungmennafélags
Grindavíkur, tók forskot á sæl-
una og lét synina slá blettinn,
þannig að ekki færi á milli
mála hvar bikarinn væri hvern-
ig sem úrslitin yrðu á leikvellin-
um. Eins og sjá má af verkum
sláttumannanna trónir bikarinn
í garðinum, ártalið er fyrir neð-
an auk stafanna UMFG sem
reyndar sjást ekki á myndinni.
Fremst er Gunnar á milli sona
sinna, Eyjólfs til vinstri og
Gunnars Más, sem leikur með
liði Grindvíkinga.
■ Hápunktur/40
ÍSLENDINGARNIR tveir, sem voru
í haldi útlendingaeftirlits í Bandaríkj-
unum og vistaðir í fangelsi við landa-
mæri Mexíkó og Bandaríkjanna, voru
látnir lausir í fyrrinótt hvor gegn 3
þúsund dala tryggingu.
Ingi Björnsson, 29 ára, og Jón
Páll Pálsson, 24 ára, voru handtekn-
ir á leið til vinnu hjá verktakafyrir-
tæki í eigu fimm íslenskra bræðra.
Eftir tveggja daga vist í Flórída voru
fangelsi útlendingaeftirlits í Flórída
orðin full af kúbverskum flóttamönn-
um og voru þeir því fluttir í fangelsi
útlendingaeftirlitsins í Port Isabel í
Texas þar sem þeir voru í viku og
höfðust við í 150 manna svefnsal.
„Það er mikil spenna á svona stað.
Þarna voru menn frá öllum löndum
og öllum kynþáttum og það komu
upp svona atvik þar sem stutt var í
slagsmál en menn reyna að halda
sig á mottunni því annars eru þeir
settir í einangrun," sagði Ingi í gær-
morgun þegar Morgunblaðið náði
tali af honum á heimili Ólafs Árna
Ásgeirssonar, ræðismanns í Houston
Ingi hefur dvalist vestanhafs í um
tíu mánuði og hyggst sækja um dval-
ar- og atvinnuleyfi í Flórída en Jón
Páll er væntanlegur heim til íslands
næstu daga.
Hann sagði að í Port Isabel fang-
elsi útlendingaeftirlitsins hefðu verið
um 1.000 manns, fáir kúbverskir en
flestir frá ýmsum öðrum ríkjum
Rómönsku-Ameríku og þar á meðal
væru menn sem hefðu verið búsettir
í Bandaríkjunum í 14 ár og ættu þar
íjölskyldur en hefðu ekki atvinnu-
leyfi. „Aðstæðurnar voru frekar
slæmar; léleg hreinlætisaðstaða,
slæmt drykkjarvatn og engin loft-
ræsting í meira en 30 gráðu hita.“
Ingi sagði að þeir væru þakklátir
fyrir alla þá aðstoð sem þeim hefði
verið veitt og vildu sérstaklega þakka
Ólafi Ásgeirssyni hjálpsemi og höfð-
ingsskap og einnig vinum og vanda-
mönnum heima og erlendis sem stað-
ið hefðu á bak við þá og aðstoðað
þá við að leggja fram tryggingarféð.