Morgunblaðið - 30.08.1994, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FLUGSLYSIÐ VIÐ BORGARIMES
Morgunblaðið/Sveinn Haukur Pétursson
SJÓNARVOTTAR óðu út að flakinu. Sjór náði þeim í miðja kálfa við flakið. Björgunarmenn komu svo að á gúmbátum.
Virtist
missa mót-
or í klifinu
GUÐBRANDUR Reynisson lög-
reglumaður horfði á flugslysið út
um glugga lögreglustöðvarinnar í
bænum. „Hann hafði flogið lágt og
var að klífa þegar hann virtist hafa
misst mótor í klifinu og skall nið-
ur,“ sagði Guðbrandur sem giskaði
á að vélin hefði verið I 2-300 feta
hæð þegar hún missti flugið.
Guðbrandur var einn á lögreglu-
stöðinni þegar þetta var, en gerði
félögum sínum viðvart, klæddi sig
síðan í flotgalla og óð út að flakinu
og var kominn út að flakinu eftir
nokkrar mínútur.
Hann sagði að mikil umferð hefði
verið eftir þjóðveginuni yfir brúna
þegar slysið varð en umferðin hefði
stöðvast langa leið I báðar áttir og
mikið fjölmenni hefði fylgst með
björgunarstarfinu.
Tveir fórust með flug-
vél að fjölda ásjáandi
TVEIR menn, Magnús
Helgason, 50 ára, og Jóhann
Pétur Jónsson, 50 ára, fór-
ust þegar eins hreyfils fjög-
urra sæta Cessna-flugvél,
TF-EGE, skall til jarðar við
Borgames um klukkan
17.25 á sunnudag. Fjöldi
manna varð vitni að slysinu.
Nokkrir sjónarvottanna óðu
út að flakinu, þar sem það
kom niður í hnédjúpt vatn
yfir sandrifi um 150 metrum
frá byggðinni í Borgarnesi
og um 500 metrum frá
Borgarfjarðarbrú. Mennim-
ir, sem voru tveir í vélinni,
voru látnir þegar að var
komið.
Orsakir slyssins eru til rann-
sóknar hjá flugslysanefnd. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur ekkert komið fram
sem bendir til vélarbilunar. í sam-
Magnús
Helgason
tölum Morgunblaðsins við sjónar-
votta kom fram, að vélin hefði
nokkrum sinnum flogið lágt yflr
Borgarnes og tekið dýfur yfir
Borgarfirði áður en eitthvað virtist
fara úrskeiðis er vélin var í
beygju á leið úr einni dýf-
unni. Við það hafi hún virst
missa mótor og svo skollið
til jarðar.
Mennirnir sem létust
hétu: Magnús Helgason, 50
ára, fæddur 13. júní 1944.
Hann var til heimilis á Háa-
leitisbraut 133 í Reykjavík.
Hann lætur eftir sig eigin-
konu og tvö böm. Jóhann
Pétur Jónsson, 50 ára, fædd-
ur 7. janúar 1944, til heimil-
is í Hraunbæ 162 1 Reykja-
vík. Hann lætur eftir sig eig-
inkonu og tvö börn. Þeir
voru báðir varðstjórar í
Slökkviliði Reykjavíkur og
höfðu starfað þar saman síðan
1968. Magnús, sem var flugmaður
vélarinnar, starfaði einnig sem
ökukennari og rak ökuskóla í
Reykjavík.
Jóhann Pétur
Jónsson
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar kom á staðinn með flugslysanefnd
og hífði síðan flak TF-EGE á þurrt um 2 klst. eftir slysið.
26 björgunarsveitar-
menn á slysstaðnum
Heyrði
dynkinn
GUÐMUNDUR Finnur Guðmunds-
son, björgunarsveitarmaður í Borg-
amesi, sá til flugs TF—EGE, þar sem
hún flaug lágt yfir húsum I bænum.
Síðan heyrði hann dynkinn þegar
hún skall í sjóinn, ræsti strax út
félaga sína í björgunarsveitinni Brák
í Borgarnesi og var meðal fyrstu
manna út að flakinu. „Það var að
byija að falla að og vatnið náði
mönnum sums staðar upp á læri,“
sagði Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið á sunnudagskvöld.
„Það kom strax í Ijós að það var
ekkert lífsmark með mönnunum."
Um 20 mínútum eftir slysið voru
26 björgunarsveitarmenn komnir á
staðinn. Bátar voru settir á flot og
farið á þeim á slysstaðinn. Flug-
slysanefnd kom á staðinn með þyrlu
Landhelgisgæslunnar og lenti við
slysstaðinn um klukkan 18.50 ogtók
við rannsókn slyssins ásamt lögregl-
unni í Borgarnesi.
Þyrlan flutti flak vélarinnar að
fyllingu við Borgarfjarðabrúna, þar
sem hún var tekin á bílpall og ekið
til Reykjavíkur. Aðgerðum björgun-
arsveitarmanna á staðnum var lokið
um klukkan 19.30.
Morgunblaðið/Sveirir
LILJA Ingvadóttir, Fjóla Ingvadóttir og Ása Helga Halldórsdótt-
ir. Lijja og Ása fyígdust með flugslysinu, en Fjóla var á leið út
á svalir þegar hún heyrði vélina skella í sjóinn.
Morgunblaðið/Sverrir
ÁSGEIR Sæmundsson, formaður björgunarsveitarinnar Brákar
í Borgarnesi, Guðmundur Finnur Guðmundsson, Ragnar Andrés-
son og Unnsteinn Þorsteinsson voru í hópi 26 björgunarsveitar-
manna sem unnu við björgun á slysstaðnum.
Sjonarvottar að flugslysinu
Var eins og flugvélin
næði ekki að
lyfta sér úr dýfunni
MÆÐGURNAR Ása Helga Hall-
dórsdóttir og Lilja Ingvadóttir sátu
á svölunum heima hjá sér við Beru-
götu í Borgarnesi þegar þær tóku
eftir TF-EGE, sem flaug nokkrum
sinnum yfír Borgarnes, mjög lágt
að því er þeim virtist. Flugi vélar-
innar fylgdi talsverður hávaði og
bar hana við miðjar hlíðar Hafnar-
fjalls. „Það var eins og hann væri
að leika sér eða sýna einhveijar list-
ir,“ sagði Lilja. „Vélin tók dýfur
upp og niður og flaug í sveig. Eftir
eina dýfuna sveigði hún upp á við
og að nýju í beygju. Þá var eins
og hún næði ekki að lyfta sér. Eft-
ir það hún skall niður. Það heyrðist
rosalegur hvellur."
Fjóla, systir Lilju, hafði verið inn-
andyra en sagðist hafa komið út á
svalir um svipað leyti og vélin skall
til jarðar. Lágflug hennar hafði
vakið athygli Fjólu og var hún á
leið út á svalir til að fylgjast með
vélinni þegar hún heyrði hvellinn.
„Ég hélt fyrst að hún hefði lent á
götunni," sagði Lilja, „ég gat varla
trúað að þetta hefði gerst." Mæðg-
umar eru sammála um að strax og
þær sáu hvernig vélin kom niður
hafí þeiin orðið ljóst að þeir sem í
henni voru hefðu slasast mikið eða
beðið bana.
Vélin kom niður í hnédjúpt vatn
á sandrifi, í á að giska 100-150 m
fjarlægð frá húsunum við Berugötu.
Fjölmargir íbúanna sátu á svölum
sínum og einhveijir þeirra fylgdust
með vélinni úr kíki. Börn voru að
leik við götuna. Fjölda fólks dreif
strax að og tveir menn úr nálægurn
húsum óðu strax út að flakinu. A
leiðinni tók vatnið þeim í bijóst þar
sem dýpst var en þar sem vélin kom
niður var grynnra.
Mægðurnar telja að um 5 mín-
útum síðar hafi lögreglumaður í
flotgalla komið að flakinu og eftir
um 20 mínútur hafí gúmbát verið
róið að flakinu. Þá hafí margt fólk
safnast fyrir á götunni og fylgst
með björgunarmönnum og segja
þær, að fljótlega hafi fólk séð af
látbragði björgunarmannanna og
því hve lítill asi var á þeim, að þeir
sem í vélinni voru væru látnir.
I
I
I
>
I
I
>
I
i
>
i
>
>
í
>
>