Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 17 Reuter HERSKIPIÐ USS Williams legg'ur úr höfn í Guantanamo-flóa til að leita fleiri flóttamanna. I forgunni eru McCalIa- tjaldbúð- irnar, þar sem flóttamenn frá Haítí hafast við. Kastró vill stöðva straum flóttafólks Flóttamönnum fækkar mjög Havana, Washington. Reuter. BANDARÍKJAMENN og Kúbverjar gerðu á sunnudag tilraun til að bæta samskipti þjóðanna er Fidel Kastró, forseti Kúbu, fyrirskipaði að beitt yrði „fortölum" til að koma í veg fyrir flóttamannastrauminn frá landinu en bandarísk yfirvöld segjast munu bregðast jákvætt við lýðræð- islegri viðleitni að háifu Kastrós. Mun færri gerðu tilraun til að flýja Kúbu um helgina og er talið er hertar reglur Kúbústjórnar eigi hlut að máli. í gær varð bandaríska strandgæslan vart vör flóttamanna. Þingið úr- skurðar í ESB-deilu Helsinki. Morgunblaðið. FINNSKA ríkisstjórnin tekur ekki formlega afstöðu í valdabaráttu for- seta og forsætisráðherra um hvor þeirra verði fulltrúi Finna gagnvart Evrópusambandinu (ESB). Stjórnin ákvað í síðustu viku að sleppa full- trúamálinu úr lagafrumvarpi sínu um ESB-aðild. Verður nú þingið að taka afstöðu í málinu. Martti Ahtisaari Finnlandsforseti, sem er ákafur ESB-sinni, hefur sagt það sína skoðun að stjórnarskráin hafi skýr ákvæði um að forseti fari með umboð Finna á leiðtogafundum ESB. Þingflokkar, ríkisstjórnin og stjórnarskrárnefnd hafa hins vegar verið þeirrar skoðunar að forsætis- ráðherra ætti að skipa sæti Finna á leiðtogafundunum þar sem helstu ákvarðanir um stefnumál ESB verði teknar. Nú hefur málinu verið skotið til þingsins. Ríkisstjórnin getur ekki tekið neitt frumkvæði án samþykkis forseta. Þingið getur hins vegar breytt umboði forseta að vild. Hing- að til hefur samt aldrei komið fyrir að raunverulegur valdabarátta hafi átt sér stað milli þings og forseta. Strandgæslu og lögreglu á Kúbu hefur verið fyrirskipað að koma í veg fyrir að ótryggir bátar og flek- ar sem börn og unglingar eru á, fari frá landi. Tilskipunin, sem var undirrituð af Fidel Kastró forseta, birtist á forsíðu dagblaðsins Juv- entud Rebelde á sunnudag. Segir þar að löggæslumenn eigi beita „fortölum" til að kyrrsetja fólkið og aðeins að beita skotvopnum í undantekningartilfellum. Warren Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði á sunnudag að Bandaríkjastjórn sæktist ekki eftir því að koma Kastró frá völdum, þrátt fyrir að hún teldi hann ábyrgan fyrir öldu flóttamanna frá Kúbu í ágúst. „Ef hann færist óyggjandi nær lýð- ræði, munum við bregðast varlega við og að vandlega íhuguðu máli,“ sagði Christopher. Tölvufax ogmotald Innbjggð, utanáliggjandi, PCMCIA frá kr. 10.000,- *BGÐEIND- Austurströnd 12. Sími612061.Fax612081 \_____________________/ NORDISK FORSKERUTDANNINGSAKADEMI Norræna vísindamenntunarakademían býður norrænum vísindamönnum og vísindastofnunurn að sækja um styrki til: Norrænnar vísindamenntunar á öllum sviðum vísinda: Vísindasamskipti - Vísindaþing - Vinnuhópar - Ferðastyrkir - Styrkir til stuttrar dvalar - Norræn þátttaka í alþjóðlegum vísindanámskeiðum - Norrænir eða alþjóðlegir gestakennarar/ leiðbeinendur - Skipulagningarfundir - Önnur vísindastarfsemi. Fresturinn á einnig við um styrkumsóknir fyrir vísindanám- skeið vegna norræna umhverfisrannsóknarverkefnisins: Rannsóknir varðandi loftslagsbreytingar - Umhverfisrannsókna- samvinna á Eystrasaltssvæðinu - Hinar samfélagslegu forsendur umhverfismálastefnunnar. UMSOKNARFRESTUR ERTIL1-OKTOBER1994 Nánari upplýsingar: Pantið bæklinginn „Grenselos forskerutdanning 1994“ sem inniheldur umsóknareyðublaðið, hjá skrifstofu NorFA NORDISK FORSKERUTDANNINGSAKADEMI Postboks 2714, St. Hanshaugen, N-0131 Oslo Sími: 90 47 22 03 75 20 / Símbréf: 90 47 22 03 75 31 Bæklinginn er einnig hægt að fá í háskólum, hjá rannsóknastofnunum og rannsóknaráðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.