Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Kynbætur á íslenskum svínastofni vegna erlendrar samkeppni Norskir grísir til undaneldis MARKMIÐ íslenskra svínabænda með kynbótum á svínastofninum, er að bregðast sem best við samkeppni erlendis frá. Tíu gyitur voru fluttar frá Noregi til Islands og hafðar í einangrunarstöð ríkisins í Hrísey og nú hafa svínabændur valið grísi und- an gyltunum til undaneldis. Útkoman er mjög góð, eins og fram kom í blaðinu á sunnudaginn. Auðbjörn Kristinsson svínabóndi, sem sæti á í kynbótanefnd Búnaðar- félags íslands og var einn þeirra sem valdi dýrin, segir að bæði sé mark- miðið með kynbótum að lækka fram- leiðslukostnað á svínakjöti og auka gæði þess. „Við ætlum að verða samkeppn- ishæfari. Með því að ná dýrum, sem þurfa minna fóður en áður til að framleiða eitt kíló af kjöti, gætum við lækkað framleiðslukostnaðinn. Og það ætti að takast ef þetta fer eins og það lítur út fyrir. Það sem við ætium okkur er að reyna að halda eftir bestu eiginleikunum í okkar stofni; reyna að blanda þessu þannig saman að fáum hraðari vöðvavöxt, en reyna að halda eftir bragðgæðum sem við teljum vera í íslenska stofnin- um.“ Þessi ræktun hefur því gengið framar vonum? Stuðlað að lægri framleiðslukostn- aði og betra kjöti „Já, það má segja það. Við vjssum fyrir fram að ákveðnir gallar væru í norska kyninu, sem við völdum skarpt gegn úti í Noregi þegar við völdum dýrin sem komu til landsins, og við erum mjög ánægðir með ár- angurinn. Það er mjög sjaldgæft að sjá dýr sem maður er ánægður með að öllu leyti; yfirleitt eru einhveijir mínuspunktar í öllum dýrum — en þeir eru ekki margir hjá þessum. Sérstaklega er ein gylta sem við féll- um fyrir: það var í raun sama hvern- ig á hana var litið; miðað við þær kröfur sem við gerum má segja að þessi skepna sé gallalaus. Hún gæti því verið módelið að því sem við vilj- um rækta í framtíðinni." Vandræði að velja Þegar dýrin, sem valin voru í síð- ustu viku, verða orðin kynþroska, verður ákveðið hver þeirra verða notuð til áframhaldandi ræktunar. Að sögn Auðbjöms voru nefndar- menn í hálfgerðum vandræðum að velja dýr, því svo stór hluti þeirra var mjög góður. „Það var aðeins í einu goti sem kom fram áberandi þessi galli í norska kyninu, sem við vissum um. Fæturnir á þeim dýrum eru ekki nógu sterkir, en í raun erum við samt himinlifandi að þessi galli skuli ekki vera í meira en einu goti hjá okkur, því þetta er mikið vanda- mál úti.“ Auðbjörn sagði svínstofninn hér- lendis það lítinn að alltaf sé hætta á skyldleikaræktun, og því hafi verið farið út í að fá ný dýr til landsins. „Við gerum ákaflega miklar kröfur gagnvart sjúkdómum og öðru og af því fengum við í þessum fyrsta inn- flutningi dýr frá Noregi, sem er talið með hreinni löndum sem hægt er að fá dýr frá. Dýr sem er einhver akkur í að kaupa.“ Næsta skref sagði hann að láta þau dýr, sem valin voru í síðustu viku, æxlast þegar þau verða kyn- þroska og síðan yrðu það fyrstu af- kvæmi þeirra sem mættu fara í land úr einangrunarstöðinni. „Það er því raunhæft að um mitt næsta ár geti eitthvað af grísum farið í land, og þá er eftir eitt ár í að þeir fari að skila fyrstu grísunum frá sér.“ Ný laug afhjúpuð í Lysti- garðinum MARGRÉT Jónsdóttir, Ieirlista- kona, afhenti bæjaryfirvöldum á Akureyri í gær litla mósaík-vatns- laug að gjöf. Lauginni hafði hún komið fyrir í Lystigarðinum og tileinkar hana barnapíum á Akur- eyri, sem gjarna leggja leiða sína í garðinn. Margrét var bæjarlistamaður á Akureyri 1992-93 og ákvað, frek- ar en að halda hefðbunda sýningu að þeim tíma loknum, að gefa bænum nefnda laug; „eitthvað sem yrði á hversdagslegum en fjöl- förnum stað úti í bæ, þar sem fólk færi um og myndi þannig gleðja fleiri,“ eins og hún sagði við Morg- unblaðið þegar hún var að leggja lokahönd á verkið í siðustu viku. Laugin var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í gær og var það Gísli Bragi Hjartarson, varaforseti bæjar- sljórnar, sem tók við gjöfinni fyr- ir hönd Akureyrarbæjar. Morgunblaðið/Bjöm Gíslason EKKI var annað að sjá en laugin félli í góðan jarðveg hjá viðstöddum, ekki síst þeim yngstu — enda leikurinn til þess gerður að þau hefðu gaman af. „Þetta er lítil laug fyrir krakka, sem þau geta leikið sér við eða buslað að- eins í,“ sagði Margrét þegar hún var að setja verkið upp, og strax í gær var ljóst að krakkarnir kunnu að meta laugina; þeir voru strax byij- aðir að busla í henni. Nýr golfvöllur í Eyjafirði Eigum ávallt fyrirliggjandi: Skrifstofustólaplast PVC plast 1 til 5 mm þykkt, hvítt og glært. Skuróarbrettaefni 10 til 45 mm þykkt, fyrir matvælaiðna&. Auglýsingaplast 3 og 10 mm þykkt, hvítt. Getum útvegað litað. Létt og handhægt. Sníðum ni&ur eftir þínum óskum. Sendum hvert á land sem er. PLASTIÐJAN BJARG Frostagötu 3c • 603 Akureyri Sími 96-12578 • Fax 96-12995 NOKKRIR bændur í Eyjafjarðarsveit stefna að því að koma upp 9 holu golfvelli í sveitinni. Þar er snjólétt á vetrum og þessi nýi völlur gæti því opnast mun fyrr á vori og'verið op- inn lengur á hausti en Jaðarsvöllur á Akureyri Hreiðar Hreiðarsson veitingamað- ur í Vín í Eyjafjarðarsveit er einn aðstandenda hugmyndarinnar. Hann sagði að ásamt sér væru í þessu dæmi nokkrir bændur og einn verk- taki, en fyrir þeim vekti að stofna félag um að taka landið á leigu, gera völlinn og reka hann. Hreiðar sagði að vðllurinn yrði í landi Espihóls, en þangað er um tveggja kílómetra ferð frá Hrafna- gili. Völlurinn teygðist ögn inn á lönd Stokkahlaða og Rifkelsstaða, en bændur á þessum býlum væru í þeim hópi sem að þessu stefndi. Hreiðar sagði að grundvöllur ætti að vera nægur fyrir golfvöll í Eyja- fjarðarsveit. Margt ferðamanna sem kæmi í Vín og Hótel Vin á Hrafna- gili spyrði um golfvöll og fjöldi mar.na sem vildi njóta útiveru í golfí, til dæmis um helgar, kæmist iðulega ekki að á golfvellinum að Jaðri vegna þess að þar væru golfmót. Þá kæmi þessi nýi völlur kylfingum á Akur- eyri að gagni þar sem þarna væri snjólétt og unnt yrði að leika fyrr á vori og síðar að hausti en á Akureyri. Góður 9 holu völlur Hannes Þorsteinsson á Akranesi, sem sérhæft hefur sig í golfvalla- hönnun, sagði aðstæður allar í Espi- hólslandi prýðilegar fyrir 9 holu völl. Hann kvaðst hafa farið um landið og sett niður hæla á fyrirhuguðum teigum og flötum. Þárna yrði hægt að koma upp góðum velli á tiltölu- lega stuttum tíma. Hannes hefur gengið frá teikningum af vellinum og aðgerðir gætu því hafíst bráðlega. Hreiðar sagði að fyrir aðstandend- um vallarins vekti að gera hann eins góðan og hægt væri og gera skála áður en hleypt yrði á völlinn. Til þess teldu þeir sig þurfa Vh ár. Morgunblaðið/Árni Helgason ANSGARSHÓPURINN sem heimsótti kaþólska söfnuðinn í Stykkishólmi fyrir skömmu. Ansgarshópur heimsótti Stykkishólm Heimsókn til styrktar starfsemi kaþólskra Stykkishólmi - Fjörtíu og sjö manna hópur kaþólskra presta og leikmanna, svonefndur Ansgars- hópur, kom nýlega til Stykkishólms og dvaldi í tvo daga til styrktar starfsemi kaþólskra hér. Tíðir gestir Ansgarshópurinn hélt hádegis- samkomu í kapellu kaþólskra hér í bæ þar sem kaþólskri presturinn, sr. Jan Habets, tók þátt og einnig systurnar og var boðið upp á góð- gerðir að því loknu. Einnig var nýja kirkjan skoðuð í fylgd Gunn- ars Eiríks Haukssonar, sóknar- prests, og lýsti hann fyrir þeim kirkjunni og starfínu og svaraði spurningum gestanna. Á eftir flutti hópurinn söngmessu, þ.e. bænir og söng. í þessum hópi voru 11 prest- ar sem skiptu með sér söngmess- unni. Fréttaritara var tjáð af hópnum að þeir eða meðlimir kaþólsku kirkj- unnar í Þýskalandi hefðu í mörg ár heimsótt Norðurlöndin, þannig að fjórða hvert ár heimsæktu þeir hvert Norðurlandanna fyrir sig og í ár væri það ísland. Um leið væri þetta skemmtiferð kaþólskra og væri því ekki sama fólkið sem kæmi með hópnum í hvert sinn. Hópurinn var ekki í vafa um að þessi sam- skipti milli landanna hefði mikið að segja og því væri ákveðið að halda þessum samtökum áfram enda fleiri og fleiri sem vildu komast að. Kaþólski söfnuðurinn í Stykkis- hólmi hefur nú starfað í 56 ár. Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson ÓLÖF Erla Bjarnadóttir, formaður dómnefndar, afhendir Astríði Sigurðardóttur verðlaunin. Þróunarverkefnið Ullarselið verður að fyrirtæki Hvannatúni í Andaklíl - Bænda- skólinn á Hvanneyri, kvenfélaga- sambönd og búnaðarsamtök á Vest- urlandi komu haustið 1992 á fót þróunarverkefni, sem nefnist Ull- arselið. Nú í haust mun Ullarselið breytast í fyrirtæki á félagslegum grunni. Auk frumkvöðlanna munu um 20 manns, sem unnið hafa meira eða minna að verkefninu, standa fyrir stofnun fyrirtækisins. Þetta er allt áhugafólk á Vesturlandi. Markmið Ullarselsins hefur ætíð verið að auka nýtingu íslensku ullarinnar til nytja, list- og heimilisiðnaðar. Þar hafa verið framleiddar hágæða vörur úr úrvals ull auk ýmiss kónar hand- verks úr náttúrulegu hráefni, t.d. kanínufiðu, bómull og líni. Handsverksfólkið, sem vinnur við Ullarselið, hefur aðstöðu á Hvann- eyri og opna söluaðstöðu á meðan það vinnur sitt verk, hefur orðið vart við aukinn áhuga fólks til að sjá hvernig ull verður að bandi og fylgjast með kembingu, spuna og verkfærunum, segir Jóhanna Pálmadóttir, frumkvöðull Ullarsels- ins. Tog er skilið frá þelinu, sem er mest notað í prjónles, en togið, sem er lengri og sterkari hluti ullar- innar, er hentugt í vefnað, útsaum og slitsterkar vörur. Söluaukning hefur orðið talsverð og er hægt að verða sér úti um sjaldséða hluti. Pijónaðir eru veiðivettlingar, þar sem hægt er að stinga puttunum út um þar til gerð göt á vettlingun- um og reiðvettlingar með sérprjón- uðum þumalfingri og litlafingri, svo fátt eitt sé nefnt. Nýlega héldu 10 konur í Ullarsel- inu nokkurs konar undankeppni til að mæta hópi kvenna sem vinna í Þingborg í Hraungerðishreppi. Þær hafa skorað á Ullarselskonur að keppa við sig í haust. Hver kona fékk 100 gr óþvegna og ókembda ull og átti að spinna og pijóna úr ullinni einn sokk. Mældur var tími og gæðin metin. Sigurvegarinn, Ástríður Sigurðardóttir, fékk hring- pijón úr hrosslegg að íaunuin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.