Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 350 sóttu stofnfund Regnbogans, samtaka um R-lista Skíptar skoðanir um skipulag forystunnar HÁTT í 350 manns sóttu stofnfund Regnbogans, félags stuðningsmanna R-lista, á Hótel Sögu á laugardag. Kristján E. Guðmundsson, úr níu manna bráðabirgðastjóm, sagði að umræða hefði skapast um hvort nauðsynlegt væri að kjósa sérstakan formann og varaformann samtakanna. Að ráði varð að bráðabirgðastjóm var falið að fara yfir tillögur að skipulagi samtakanna og aðalfundarstörf yrðu afgreidd á framhaldsfundi um miðjan september. Kristján sagði að um samtök stuðningsmanna Reykjavíkurlista væri að ræða. „Samtökin mynda bakhjarl fyrir fulltrúa Reykjavíkur- lista í borgarstjórn og nefndir borg- arinnar, óháð stjómmálaflokkum sem stofnuðu til framboðsins. Þann- ig eiga þetta að vera félagssamtök stuðningsmanna, hvort sem þeir eru innanborðs í þessum fjórum stjórn- málaflokkum eða óháðir," sagði Kristján. Hann sagði að starfsemi félagsins yrði tvíþætt. Annars vegar yrði unnið að málefnum einstakra hverfa í tíu hverfafélögum. Hins vegar yrðu myndaðir starfshópar um ýmis málefni og myndu borgarfull- trúar geta sótt styrk og hugmyndir í þá hópa. 31 í stjórn Drög að lögum félagsins voru lögð fram á stofnfundinum á laugardag. Þau gera ráð fyrir að áðumefnd hverfafélög skipi tíu fulltrúa í stjórn, einn frá hvetju félagi, og aðalfundur kjósi 21 fulltrúa, þ. á m. formann og varaformann. Stjórn kjósi síðan sjö manna framkvæmdastjórn úr sínum röðum og verði hlutverk henn- ar að annast daglegan rekstur fé- lagsins. Kristján tók fram að gott sam- starf hefði verið haft við Reykjavík- urlistafélagið. „Þar sitja allir fulltrú- ar stjórnmálaflokkanna. Það er rangt að þeir hafi ekki verið hafðir með í ráðum. Hins vegar var þetta ekki lagt fyrir stofnanir stjórnmála- flokkanna enda kom þeim það í sjálfu sér ekki við,“ sagði Kristján. Skammur fyrirvari Sigurður Tómas Björgvinsson, framkvæmdastjóri Alþýðuflokks, gagnrýndi hversu skammur fyrirvari væri að stofnun samtakanna. „Eg veit að sumir borgarfulltrúár, þeir sem hafa verið í þessum borgarmála- hópi, fréttu ekki af þessu fyrr en í síðustu viku. Þess vegna hafi þess verið krafist að undirbúningsfundin- um yrði frestað. Ekkert samband hefur heldur verið haft við Alþýðu- flokkinn og mér skilst að svipað sé upp á teningnum hjá Framsóknar- flokknum. Við lítum svo á að R-list- inn hefði aldrei komist á laggirnar nema vegna þess að þessir fjórir flokkar tóku sig til og buðu sameig- inlega fram. En þar með er ekki sagt að verið sé að ýta óflokksbundn- um út enda voru ákveðin sæti á list- anum merkt óflokksbundnu fólki. Aftur á móti er sjálfsagt að hafa samráð við alla flokka og alla sem stóðu að R-lista þegar verið er að stofna mikilvægt bakland á bakvið þá borgarfulltrúa sem fara með stjórn borgarinnar," sagði Sigurður. Hann sagðist vona að betra sam- starf yrði haft við flokkanna í fram- tíðinni og ekki yrðu eftirmál af að- dragandanum nú. Bráðabirgðastjórn Regnbogans skipa Aðalheiður Franzdóttir, Guð- rún Rögnvaldsdóttir, Ingólfur H. Ingólfsson, Kort Sævar Ásgeirsson, Kristján E. Guðmundsson, Mörður Árnason, Sigurður Ingibjörg Inga- dóttir, Sigríður Þorsteinsdóttir og Þuríður Jónsdóttir. Morgunblaðið/Sverrir FJÖLMENNI var í Súlnasal Hótels Sögu á stofnfundi Regnbogans á laugardag. KR bikarmeistari eftir 27 ára bið Þolinmæði er dyggð KR-inga Kristinn Jónsson Kristinn sagði stundirnar frá því að flautað var til ieiksioka á sunnudag ógleymanlegar. „Þetta hafa verið stórkostlegar stundir og viðmót fólks hefur verið með ólíkind- um. Hvar sem ég hef komið hefur ekki linnt hamingjuóskunum og þar sem ég hef verið í bílnum á rauðu ijósi hafa farþegar og ökumenn annarra bifreiða skrúfað niður rúður og látið gleði og ánægju sína í ljós. Þetta hafa verið stór- kostlegar stundir, eins og að koma úr blindbyl í sól og heiðríkju.“ - Hvernig var biðin? „Hún var þjáningar- full, en þolinmæðin er sú dyggð, sem við KR-ingar höfum. Það er aðdáunar- vert hvað KR hefur eflst og styrkst á þessum bið- tíma og titlaleysið hefur alls ekki komið niður á félagsstarfinu. Þvert á móti höf- um við eflst við hveija raun og ég er mjög hreykinn af því hvað fólk hefur staðið þétt á bak við KR í gegnum tíðina. Umhyggja fjölda fólks í Reykjavík og á landinu öilu fyrir KR er ótrúlega mikil og heillaóskaskeyti og sím- hringingar víða að sýna hvað KR er ríkt í fólkinu, en auður KR er í þessu fólki.“ - Hvaða þýðingu hefur titill- inn fyrir KR? „Þetta hefur gífurlega mikla þýðingu fyrir félagsmenn og fé- lagið í heild. Leikmenn liðinna ára hafa verið undir því álagi að vera stöðugt bornir saman við þá, sem áður voru og gerðu garðinn frægan. Þetta hefur verið óheppilegur samanburður fyrir strákana, en nú þarf ekk- ert að ræða um fyrri sigra, því nú vita strákarnir hvað það er að sigra. Því eflir þetta þá til enn frekari dáða og ekki síður þá, sem eru að vinna fyrir félag- ið og sjá nú árangur af verkum sínum.“ - Hvað er heist á stefnuskrá félagsins? „KR er gamalt og rótgróið félag, verður 100 ára 1999. Innan þess hef- ur verið starfað af miklum krafti og ótrú- legt er hvað starfið hefur hlaðið utan um sig í tímans rás frá því að safn- að var fyrir einum bolta og féiag- ið stofnað. Stöðugt hefur verið unnið að uppbyggingu mann- virkja og aðstaðan er góð, en okkur vantar íþróttahús fyrir aðrar greinar, heimavöli fyrir handbolta og körfubolta, og við ætlum að byggja íþróttahús. Hins vegar gerum við okkur grein fyrir að knattspyrnan er andlit félagsins út á við og það er alveg ljóst að þegar til lengri tíma er litið er landrými í Vest- urbænum af skornum skammti. Varla er nokkur blettur til þar sem hægt er að sparka bolta og þetta er áhyggjuefni. Með ►KRISTINN Jónsson er for- maður Knattspyrnufélags Reykjavíkur, sem var stofnað fyrir rúmlega 95 árum. Krist- inn er fæddur 22. nóvember 1940, lék með meistaraflokki knattspyrnudeildar 1959 til 1967 og var bikarmeistari síð- asta árið sem leikmaður. Síð- an hefur hann sinnt stjórnun- arstörfum fyrir knattspyrnu- deild og aðalstjórn, en 11 deildir eru í félaginu. „Félags- menn eru 10 til 11 þúsund og þeim fer fjölgandi enda er tvímælalaust um öflugasta, fjölmennasta og besta félag landsins að ræða,“ sagði for- maðurinn eftir að biðin eftir titli í meistaraflokki karla í knattspyrnu var á enda, en KR vann Grindavík 2:0 í bikar- úrslitaleiknum í fyrradag. áframhaldandi uppbyggingu í huga er nauðsynlegt að vera sem víðast með velli og mörk og það yrði mikið framfaramál fyrir all- an Vesturbæinn að koma upp slíkri aðstöðu.“ - Hvernig líður þér annars? „Mér líður ólýsan- lega, þetta er ólýsan- leg tilfinning og við KR-ingar getum verið hnarreistari en áður. Það eru fáir sem þekkja betur en KR-ing- ar að vera í langri eyðimerkur- göngu. Fólk gerir alltaf kröfur til KR og hæðst hefur verið að okkur, en við höfum haldið ótrauðir áfram að settu marki. A sunnudaginn var ísinn brotinn og hann var þykkur, en þetta tókst vegna ótrúlegrar samstöðu allra KR-inga og ég færi öllum stuðningsmönnum miklar þakkir fyrir hvað þeir hafa stutt okkur vel og fyrir að hafa aldrei gefist upp. Þetta er sigur liðsheildar- innar, það er mikil gleði í huga allra KR-inga og víst er að biðin er á enda.“ Úr blindbyl í sól og heið- ríkju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.