Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 35 EINAR FARESTVEIT + Einar Farestveit fæddist 9. apríl 1911 ájörðinni Farest- veit í Modalen á Hörðalandi í Noregi. Hann lést 14. ágúst síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni miðvikudag- inn 24. ágúst sl. ÁRIÐ 1933 hugðust nokkrir Hún- vetningar stofna refabú. Silfurrefir voru keyptir í Noregi, maður ráðinn til að koma með þá til landsins og stjóma búinu fyrst í stað. Það má segja að enginn ráði sínum nætur- stað. Maðurinn sem ráðinn hafði verið til verksins veiktist á síðustu stundu og gat þar af leiðandi ekki komið, en í hans stað kom ungur maður, Einar Farestveit að nafni. Hann hafði lítillega fengist við refa- rækt og þar sem kostakjör voru í boði og ráðningartíminn stuttur, greip hann tækifærið og var tilbú- inn til fararinnar. Ekki sá hann eftir þessari skjótteknu ákvörðun og sagði hann oft að hér hefði hann orðið mikillar gæfu aðnjótandi. Bjó hann hér til dauðadags. Einar kom með norsku skipi og hafði refina meðferðis, en búið átti að setja upp á Stóra-Osi í Miðfirði. Ekki varð þó úr því og skyldu refa- búin nú reist á Hvammstanga. Þar sem faðir minn hafði stundað nám í Noregi, og þar af leiðandi vel mæltur á norska tungu, varð hann túlkurinn á staðnum og fannst for- eldrum mínum ekki koma til greina annað en að ungi Norðmaðurinn yrði til húsa hjá þeim, þar sem ein- hver var til að ræða við hann og nóg húsnæði fyrir hendi. Einar var sérstaklega myndar- legur maður, hár og grannur með svart hár og brún augu. Ungu stúlk- unum á Hvammstanga mun vafa- laust hafa þótt hann glæsilegur og það að vonum. Guðrún systir mín hafði verið á Akureyri en kom heim nokkru eftir að Einar kom til okkar og er ekki að orðlengja það, að þau felldu hugi saman og gengu í hjóna- band árið 1934. Fyrstu árin bjuggu þau á efstu hæðinni (á loftinu) í húsinu heima. Gekk sambúðin sérstaklega vel og þeir faðir minn og Einar urðu ein- staklega góðir vinir. Milli þeirra ríkti gagnkvæmt traust og á vin- áttu þeirra bar aldrei skugga. Einar var feikilega duglegur og starfsamur maður enda alinn upp við mikla vinnu og aga. Refunum fjölgaði í búinu, allt fóður þurfti að vinna heima og starfíð varð ofviða einum manni. Fleiri menn voru ráðnir og á þeim árum sem búið var starfrækt unnu þar allmargir Norðmenn og tveir Færeyingar auk íslendinga. Allir útlendingarnir voru til húsa heima svo við kynnt- umst þeim vel. Þeim var það sam- eiginlegt að vera hörkuduglegir og einstök prúðmenni. Á stríðsárunum tók Einar að sér starf í Reykjavík en þá var mjög erfítt að fá húsnæði. Guðrún varð því eftir fyrir norðan með drengina þeirra tvo og beið þess að úr rætt- ist með húsnæðið. Oft var keyrt norður um helgar. Einu sinni sem oftar er Einar var á förum norður skrapp hann að heimsækja norskan vin sinn og fyrr- um starfsmann sem lá veikur með botnlangabólgu á sjúkrahúsi í Reykjavík. Ekki var búið að skera manninn. Læknirinn hans hafði nefnilega „forfallast" og aðrir lækn- ar vildu ekki blanda sér í málin að svo stöddu. Sjúklingurinn var bæði reiður og sár, auk þess sem hann var illa haldinn af verkjum og vildi bara komast norður á Blönduós til Páls Kolka læknis. Ekki leist Ein- ari á að ræna sjúklingi af spítala, en þeir landar voru báðir bíræfnir og fannst að við svo búið mætti ekki standa, var því hringt á Blönduós og síðan haldið norður. Kolka læknir ijarlægði botnlangann en Einar aðstoðaði við svæfínguna og gekk læknisaðgerðin samkvæmt áætlun. Fyrir hreina tilviljun tókst Einari að festa kaup á íbúð í Reykjavík svo Guðrún flutti suður með dreng- ina. Þeirra var sárt saknað fyrir norðan en heimili þeirra í Reykjavík varð okkar annað heimili upp frá því. Fimmtán ára var ég við nám í héraðsskóla er ég veiktist af berkl- um ásamt nokkrum öðrum nemend- um og var send á Vífilsstaði. Einar og Guðrún hugsuðu ákaflega vel um mig og eftir Vífílsstaðadvölina má segja að þau tækju mig í fóst- ur. Ég bjó hjá þeim og þau létu einskis ófreistað til að koma heilsu minni í lag. Mér voru settar reglur og eftir þeim skyldi farið. Aldrei út eftir kvöldmat nema með sér- stöku leyfi. Ein stór skeið af lýsi á morgnana og fleira og fleira sem ég hef fyrir löngu gleymt. Það var verst með lýsið, það vildi stundum gleymast. En húsbóndinn sat við morgunverðarborðið þar til það hafði verið innbyrt og satt best að segja vorum við krakkarnir oftast æði snögg að bæta úr gleymsk- unni. Ég er ævarandi þakklát fyrir allt sem þau gerðu fyrir mig og það var sannarlega ekki alltaf strang- leikinn sem hafði yfirhöndina. Einar var oft glaður og skemmtilegur, en systir mín er ein af þessum blíðu og góðu konum sem ekkert aumt má sjá án þess að vilja bæta það. Fyrir nokkrum árum fór ég til Modalen ásamt mági mínum og systur. Ég hafði ferðast nokkuð um Noreg en aldrei komið á æskustöðv- ar hans. Arthur, sonur þeirra, sótti okkur til Björgvinjar og þótti mér merkilegt að aka í gegnum öll jarð- göngin er liggja inn í Modalen. Við dvöldum í sumarhúsi þeirra, Guð- rúnarbúð, en þaðan er fagurt út- sýni yfír dalinn og ána. Þarna áttum við ánægjulega daga. Þau sýndu mér allt það markverðasta og þegar kvölda tók settist Einar í stólinn sinn við stofugluggann og rifjaði upp minningar frá liðinni tíð, okkur öllum til óblandinnar ánægju. Það er margs að minnast frá því sextíu ára tímabili sem ég hef verið samferða Einari, ótaldar ánægju- stundir fyrir norðan og síðan á heimili þeirra Guðrúnar í Reykjavík. Þar var oft glatt á hjalla, börnin þeirra bráðhress og sannarlega ekki hugmyndasnauð. Einar tók veikindum sínum af mikilli karlmennsku og þeirri reisn er honum var meðfædd, en verst þótti honum að geta ekki stutt konu sína í hennar veikindum. Með dyggilegri aðstoð bama sinna og tengdabarna fékk Einar þá ósk sína uppfyllta að vera á heimili sínu þar til yfír lauk. Hann fékk hægt and- lát umvafinn ást og kærleika, eigin- konu og skyldmenna. Blessuð sé minning Einars Far- estveit. Benny Sigurðardóttir. Einar Farestveit, kær vinur okk- ar, er allur eftir langa og hetjulega baráttu við skæðan sjúkdóm. Það fer ekki hjá því að maður undrist lífsvilja hans og kraft fram á síð- asta dag. Sennilega er sá baráttu- hugur einkennandi fyrir allt hans líf. Einar var nefnilega mikill at- orkumaður og skilur eftir sig vitnis- burð um það. Það eru rúm sextán ár frá því við kynntumst Einari og Guðrúnu en þá hafði Hákon, sonur þeirra, verið heimagangur hjá okkur um skeið. Einari var umhugað um vel- ferð barna sinna og því hringdi hann einn morgun til okkar í leit að Hákoni syni sínum sem þá var farinn að skjóta sig í Guðrúnu dótt- ur okkar. Enginn hafði hugmynd um að Einari væri kunnugt um samband þeirra en hann vissi oft meira en menn héldu. Allt frá fyrsta degi tóku þau Guðrún og Einar Guðrúnu okkar, sem dóttur sinni. Alla tíð hefur verið svo sterkt samband milli þeirra að sérstakt þykir. Bæði hafa þau hjónin átt við veikindi að stríða undanfarin ár og börn þeirra og tengdabörn hafa hjálpast að við að gera þeim lífið auðveldara. Guðrún hefur búið á sjúkradeild Hrafnistu í Hafnarfirði en Einar dvalið áfram heima. Sterkt fjölskyldusamband gerði hjónunum kleift að hittast því böm og tengdaböm skiptu á milli sín dögum í umönnun sinni. Sú fórn- fysi við foreldra sína segir talsvert meira um virðingu en mörg orð. Við vitum að dóttursynir okkar þrír munu sakna heimsóknanna til afa og ömmu á Garðatorgi en erum þess um leið fullviss að þeir eiga og geyma allar góðu minningarnar. Um leið og við kveðjum Einar með söknuði biðjum við guð að styrkja Guðrúnu, konu hans, og alla fjöl- skylduna. Laufey og Albert. í bókinni Norður í svalann eftir Sigurð Pálsson, sem út kom 1982, rekur Einar Farestveit æviminning- ar sínar. Þar segir m.a. frá störfum hans í þágu félags Norðmanna á íslandi, Nordmannslaget, en Einar var þar virkur félagi og forystumað- ur eftir að þau Guðrún kona hans fluttust til Reykjavíkur frá Hvammstanga um 1940. Samheldni var mikil meðal Norð- manna hér á landi á þeim erfiðu tímum sem þá fóru í hönd, girt var fyrir samband við ættingja í Noregi og fréttir stopular af hinu raunveru- lega ástandi í hernumdu heima- landi. Á þessum tíma stofnuðust sterk vináttubönd milli Norðmanna sem hér höfðu sest að og fjöl- skyldna þeirra. Tomas faðir minn sem var for- maður Nordmannslaget á stríðsár- unum og Einar urðu strax miklir mátar, þótt aldursmunur væri nokkur, og var vinátta milli heimil- anna æ síðan. Báðir voru þeir íþróttamenn og stunduðu skíða- göngu og skautahlaup sem ekki var algengt á þeim tíma. Það mun hafa þótt skrítið í vesturbænum þegar þeir félagar, sem þá voru einnig nágrannar, hlupu í kringum gamla fótboltavöllinn við Sólvallagötu í þeirrar tíðar „trenings-göllum“. Það gladdi móður mína mjög á áttræðisafmæli hennar í maí sl. að þau Einar og Guðrún skyldu treysta sér til að heimsækja hana þrátt fyrir erfið veikindi. Ræða sú sem hann flutti í því afmælishófí verður okkur sem á hlýddum lengi minnis- stæð svo mjög sem hún bar vott um ríkan vinarhug í garð foreldra minna, einkum þó föður míns þótt meir en þrír áratugir séu liðnir frá fráfalli hans. Reyndar var Einar áður búinn að koma til okkar gam- alli kvikmynd þar sem þeir faðir minn voru í góðum félagsskap að reisa norska bjálkakofann í Heið- mörk upp úr 1950. Við þann reit eru bundnar margar ánægjulegar æskuminningar. Einar haslaði sér völl í viðskiptum hér á landi og rak eigið fyrirtæki um langt árabil. Þótti hann stálheið- arlegur í öllum viðskiptum og naut víðtæks trausts á sínum starfsvett- vangi. Hygg ég að honum hafi jafn- an verið meira annt um „sitt góða nafn og rykti“ en skjótfenginn ávinning. Þau Einar og Guðrún héldu tryggð við okkar fjölskyldu í meira en hálfa öld. Þegar ég hóf afskipti af stjórnmálum var Einar í hópi þeirra fyrstu sem veittu mér hvatn- ingu og stuðning. Það þykir mér enn ákaflega vænt um. Einar Farestveit gat litið stoltur yfir farinn veg eftir rúmlega 60 ára búsetu hér á landi, þar af tæp 50 ár sem íslenskur ríkisborgari. Ævi- starf hans var mikið og árangurs- ríkt og hann lætur eftir sig marga, dugmikla afkomendur. Fyrir hönd fjölskyldu minnar sendi ég Guðrúnu ekkju hans og ástvinum öllum inni- legar samúðarkveðjur með þökk fyrir vináttu liðinna ára. Við minn- umst Einars Farestveit með djúpri virðingu. Geir H. Haarde. Fleiri minningargreinar um Einar Farestveit bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Útför MAGNÚSAR GRÍMSSONAR skipstjóra, ferfram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 15.00. Þuriður Magnúsdóttir, Bolli Magnússon, Atli Magnússon, Svanhildur Magnúsdóttir, Matthildur Magnúsdóttir, Helga Magnúsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR THEODÓRA HALLDÓRSDÓTTIR HESTNES, Sæviðarsundi 35, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtu- daginn 1. september. Útförin hefst kl. 13.30. Erling Hestnes, Ingibjörg Lára Hestnes, Bi-ynjólfur Sigurðsson, Halldór Hestnes, Hulda Gústafsdóttir, Guðlaug Hestnes, Örn Arnarson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR M. PÉTURSDÓTTIR, Suðurgötu 14, Keflavik, sem lést 19. ágúst, verður jarðsungin frá Útskálakirkju, Garði, í dag, þriðju- daginn 30. ágúst, kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti Krabbameinsfélagið njóta þess. Davíð Eyrbekk, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, Þórdís ingólfsdóttir, Þóröur Steinar Gunnarsson, Helga Sigþórsdóttir, Pétur Meekosha, Kristvina Magnúsdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRODDUR JÓNASSON iæknir, sem lést á heimili sínu laugardaginn 27. ógúst, verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 2. september kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Vinasjóð Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri eða aðrar líknarstofnanir. Guðný Pálsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og iangafa, SÓLMUNDAR M. EINARSSONAR, Birkihvammi 10, Kópavogi, verður gerð frá Kópavogskirkju fimmtu- daginn 1. september kl. 13.30. Rannveig K. Jónsdóttir, Bára Sólmundsdóttir, Helgi Ingvarsson, Anna Sólmundsdóttir, Geir Geirsson, Ejnar Sólmundsson, Svanhvi't K. Einarsdóttir, Jóna Sólmundsdóttir, Einar Baldvin Sveinsson, barnabörn cg barnabarnabörn. t Alúðarþakkir sendum við öllum, er heiðruðu minningu föður okkar, tengda- föður, bróður, afa og langafa, ÞORKELS BJÖRNSSONAR frá Hnefilsdal, og sýnduð okkur samúð og vinarhug við andlát og útför hans. Sérstakar þakkir til starfsfólks í íbúðum aldraðra, Lönguhlíð 3, fyrir góða um- önnun í veikindum hans. Björn Þorkelsson, Anna Þrúður Þorkelsdóttir, Eirikur S. Þorkelsson, Ingvi Þór Þorkelsson, Helga Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Oddný Óskarsdóttir, Gunnar D. Lárusson, Sigrún Skaftadóttir, Hansína Á. Björgvinsdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.