Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 13 LANDIÐ Grasvöllur tekinn í notkun á Hofsósi Hófsósi - Nýlega var tekinn í notk- un grasvöllur á Hofsósi, en það voru félagar í Ungmennafélaginu Neista sem hófu framkvæmdir á honum á síðasta ári. Knattspyrna hafði áður verið leikin á malarvelli og var mönnum farið að finnast það ansi hvimleitt og var því ráðist í gerð vallarins. Var það trú manna að svo fámennt félag, sem ungmennafélagið er, ætti í erfiðleik- um með þessa framkvæmd, en með samstilltu átaki tókst Neistafélögum þetta þrekvirki. í lok keppnistímabilsins í knatt- spymu voru íeiknii tveir leikir á vell- inum og sigraði Neisti í þeim báðum, en liðið leikur í 4. deild. Var það samdóma álit þeirra sem til þekkja að þeir hafi vel verið að sigrinum komnir eftir allt það erfiði er þeir lögðu á sig við gerð vallarins. Morgunblaðið/Einar Jóhannsson SIGMUNDI Jóhannessyni var færður blómvöndur í seinni leik Neista á grasvellinum, í tilefni þess að þetta var 100. leikur hans með félaginu. ’ Lnji_njvnJ V. HREINT LAND FAGURT LAND HELMINOUR AF ANDVIRÐI POKANS RENNUR TIL LANDGRÆÐSLU OG NÁTTÚRUVERNÐAR Þetta merki tryggir framlag til landgræöslu, skógræktar og annarrar umhverfisverndar. <SSi 'ss> LANDVHRND Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson Logi, Aron og Snorri með minkinn. Ræning- inn festist ígildrunni Vogum - Þrír ungir drengir, þeir Logi, Aron og Snorri, iögðu krabbagildru í fjöruna við Voga til að veiða krabba. Þegar þeir fóru daginn eftir að athuga með árangurinn sáu þeir a_ð eitthvað óvenjuleg hafði gerst. I gildrunni voru þrír ufsar og þrír krabbar en það óvenjulega var að á einn ufsann vantaði hausinn. í fyrstu héldu drengirnir að einn krabbinn hefði ráðist á ufs- ann en þá sáu þeir að í gildrunni var einnig dauður minkur. Hefur minkurinn komist inn í gildruna til að stela af veiðinni en ekki komist aftur út og drepist þar. í samtali við strákana um þessa óvenjulegu veiði sagðist Logi ætla að láta stoppa minkinn upp. 15 ökumenn teknir fyrir stöðvunar- skyldubrot ísafirði - Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir brot á stöðvunarskyldu á ísafirði á fimmtudag. Lögreglan á ísafirði hefur að undanförnu fylgst sérstaklega með gatnamót- um í bænum og var ákveðið að fara í átak gegn umferðarlagabrot- um við gatnamót, sem verður fram haldið næstu daga. 7.500 kr. sekt er lögð við því að virða ekki stöðv- unarskyldu. GÍfÍP plasthúðun • Fjölbreytt vandað úrval af efnum • Fullkomnar plasthúðunarvélar • Vönduð vara - gott verð OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 • 105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 wam tnrvut ó.tij xííjundi jfiyu/v nú0 ÍXX/, ‘UXÓCL' mi. Juictxi' katt' í o.£e»n4ntl£at acj' j^.ii£(Lxetj ttunv tuiuun. Itxlu. eem mt£t£ o(u«i ee |Ufn íacjðy vttá xelltv ítÍAÍkjUt JíLetjtjAu tœicl vltti/ Eílcunxa jjúun; |r.d. líÁAi-v&ali un <- ENGJATEIGI I • SÍMl 687701

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.