Morgunblaðið - 30.08.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 9
FRÉTTIR
Formaður samtaka opinberra starfsmanna í Noregi
Sátt ríkir um breytingar á
ríkisstofnunum í hlutafélög
Hér á landi er staddur Erling Petter Roals-
vig, formaður samtaka opinberra starfs-
manna í Noregi, sem segir í samtali við
Siguijón Pálsson að opinberir starfsmenn
vilji mæta þeim kröfum sem bágborið efna-
hagsástand gerir til aukinnar hagkvæmni í
opinberum rekstri.
menn geta verið vissir um að missa
ekki vinnuna við breytingarnar í
hlutafélag. Því kerfi hefur verið
komið á að starfsmenn endur-
menntast og færa sig yfir á annan
stað í kerfinu ef starfskrafta þeirra
er ekki óskað hjá nýju hlutafélagi.
Um leið og atvinnuöryggi sé tryggt
í kjölfar rekstrarformsbreytinga á
ríkisfyrirtækjum verði starfsmenn
mun jákvæðari gagnvart breyting-
unum að mati Erlings.
ASÍ og BSRB hafa ekki náð
samkomulagi
í NOREGI hefur ríkis-
fyrirtækjum undanfar-
in ár verið breytt í
hlutafélög án þess að
ríkið selji hlut sinn í
þeim. Þetta hefur verið
gert í samkomulagi við
verkalýðsfélög opin-
berra starfsmanna
segir Erling Petter
Roalsvig formaður
samtaka opinberra
starfsmanna í Noregi,
YSS, í samtali við
Morgunblaðið. Hann
er staddur hér á landi
vegna ráðstefnu
verkalýðsfélaga opin-
berra starfsmanna á
Norðurlöndunum, sem haldin var í
Hveragerði.
Erling segir að í Noregi sé sama
vandamál uppi á teningnum og hjá
öðrum þjóðum Norðurlandanna.
Efnahagurinn hafi krafist þess að
hagkvæmni í opinbera geiranum
yrði aukin. Erling Petter fullyrðir
að opinberir starfs-
menn hafí gert sér
grein fyrir því að þess-
ari kröfu þyrfti að
mæta og þeir vilji held-
ur að ríkisfyrirtækjum
sé breytt í hlutafélög
en að þau séu einka-
vædd. Þess vegna með-
al annars ríki almenn
sátt um breytingarnar.
„Til að mynda er þrýst-
ingur á að einkavæða
símaþjónustuna, póst-
þjónustuna og járn-
brautirnar," segir Erl-
ing, „en í augnablikinu
verður aðeins um
rekstrarformsbreyt-
ingu á símaþjónustunni að ræða;
hún verður hins vegar ekki einkav-
ædd heldur fyrirtækinu breytt í
hlutafélag."
Verða ekki atvinnulausir
Annar stór þáttur í þessari víð-
tæku sátt er að opinberir starfs-
Á íslandi þurfa starfsmenn ríkis-
stofnana að skipta um stéttarfélag
ef þeim er breytt í hlutafélög, hvort
sem ríkið selur hlutina eða ekki.
Um þetta var meðal annars deilt
þegar rekstrarform Lyfjaverslunar
ríkisins var breytt sem og þegar
SVR var breytt í SVR hf. Erling
segir að í Noregi fái menn að halda
áfram að vera í sínum gömlu stétt-
arfélögum og þannig standi slík
atriði ekki í vegi fyrir breytingum.
Aðspurð hver sé stefna opinberra
starfsmanna á íslandi gagnvart
framangreindum breytingum á
rekstrarformi segir Sigríður Krist-
insdóttir, formaður Starfsmannafé-
lags ríkisstofnana að engin afstaða
hafi verið tekin enn sem komið er.
Hún telji hins vegar persónulega
það form eðlilegra en einkavæðing.
En stóra hnútinn á eftir að leysa;
að starfsmenn verða að skipta um
verkalýðsfélag. „Aftur á móti verð-
ur bara að segjast að ASÍ hefur
ekki verið tilbúið til að ræða þessi
mál við okkur,“ segir Sigríður.
Erling Petter
Roalsvig
Foreldrar um mótun menntastefnu
Ekki rétt að lengja
skólaárið að svo stöddu
AÐ ÓBREYTTUM forsendum er
ekki rétt að lengja skólaárið úr níu
mánuðum í tíu að mati foreldra er
sóttu landsfund samtakanna Heim-
ilis og skóla. Á fundinum var rætt
um tillögur í skýrslu nefndar um
mótun menntastefnu og sagði Unnur
Halldórsdóttir, formaður samtak-
anna, að meirihluti fundarmanna
hefði bent á að nýta þyrfti betur
þann tíma sem þegar er ætlaður
skólunum.
Að sögn Unnar má merkja veruleg-
an áhuga foreldra á að bæta skólana.
Sagði hún að sjónarmið og aðstæður
væru misjafnar eftir skólum og því
ekki raunhæft að gefa út tilskipun
sem næði til allra skóla landsins. „í
einu orði er talað um sjálfstæði skól-
anna en svo eiga allir að starfa í tíu
mánuði," sagði hún. í ályktun fundar-
ins kom fram að hugleiða ætti leng-
ingu skólaársins í framhaldi af vel
skipulögðum níu mánaða gæðaskóla.
Þá segir að tryggja þurfi aukið
kennslumagn og sjálfstæði skóla með
tilliti til staðhátta og óska viðkomandi
sveitarfélaga. Með fleiri daglegum
kennslustundum og samfelldum
skóladegi megi auka fjölbreytni og
gæði í kennslu.
Einsetinn skóli
Fram kom að einsetinn skóli er
forgangsverkefni en með honum auk-
ist líkur á betri nýtingu kennslu-
stunda, fjölbreytni í námi og betri
árangri í skólastarfi. Þá eru foreldrar
hlynntir gæðastjórnun í skólum og
telja að samræmd próf geti verið lið-
ur í slíku starfi. Aukin ábyrgð og
áhrif foreldra á innra starf skólans
veiti stjórnendum stuðning og aðhald
og sé því jákvætt og nauðsynlegt að
foreldraráð sé við hvern skóla.
Um flutning á rekstri grunnskóla
til sveitarfélaga segir í ályktun fund-
arins að það sé auðveldara verkefni
fyrir stærri sveitarfélög en þau
smærri. Jafnframt að vanda þurfi
undirbúning og tryggja fjármagn.
Um kjarasamninga kennara segir
að það sé grundvallaratriði að endur-
skoðun fari fram með tilliti til vinnu-
tíma kennara og kjara þeirra þannig
að tryggt verði að hæfir starfskraft-
ar geti helgað sig kennslu.
Fundurinn mótmæiir því að fellt
verði úr grunnskólalögum ákvæði
um hámarksfjölda í bekkjardeildum
og leggur til að nemendur verið 15
til 20 í hverjum bekk. Þess er og
krafist að skólayfirvöld beri meiri
virðingu fyrir bekkjareiningunni og
að hún fái að halda sér þó að fækk-
un verði í árgangi. Stöðugar upp-
stokkanir á bekkjum rjúfi félagsleg
tengsl barna og hafi neikvæð áhrif
á einbeitingu þeirra í námi.
Andlát
GUNNAR SIGURÐSSON
GUNNAR Sigurðsson,
fyrrverandi vara-
slökkviliðsstjóri og for-
maður ÍR, lést aðfara-
nótt sl. mánudags, 77
ára að aldri.
Gunnar fæddist í
Reykjavík og öðlaðist
meistarabréf í rennismíði
1942. Þá lauk hann vél-
stjóraprófi frá Vélskóla
íslands 1942 og stundaði
nám í Brandinstruktor
við Civil forsvarets Tekn-
iske Skole í Tinglev í
Danmörku og lauk það-
an námi 1966. Gunnar
var formaður UMF Aft-
ureldingar í Mosfellssveit
1953-1955 og 1958 og
varaformaður UMSK
1954 til 1959. 1958 til
1984 var Gunnar vara-
slökkviliðstjóri í Reykja-
vík. Þá sat hann í stjóm
Starfsmannafélags
Reykjavíkur 1955 til
1959 og í stjóm ÍR 1942
og 1943 og var formaður
ÍR 1965 til 1972.
Gunnar var kvæntur
Ragnhildi Guðmunds-
dóttur, sem lést árið
1984. Synir Gunnars
eru Guðmundur og Sig-
urður Ágúst.
Betra verð hjá
Bílaleigubílar um allan
Sími 91-880880, fax 91-881881
Franskar kápur
úr ull og kasmír
TESS
Nt
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardag
kl. 10-14.
Sportbúð Kópavogs,
Hamraborg 20, sími 641000.
Frábær tilboð á innanhússskóm. Verð frá 1.490,-
Einnig mikið úrval af nýjum haustvörum.
Nýir eigendur - nýjar áherslur - betri þjónusta.
Hlaðborð í fiádeginu alla
virfta daga. yrfe
Kr. 750
storantc-
Suðurlandsbraut 14
sími 811844
MaxMara marjna r[N/\ldi
Haustsendingin er komin!
! _______Mari__________
Hverfisgötu 52-101 Reykjavík - Simi 91 -62 28 62
QUEEN frá abecita
Fyrir stórar stelpur
st. 75-105 b-c-d-e.
Verð með spöngum kr. 2.950
verð án spangar kr. 2.750
Póstsendum