Morgunblaðið - 30.08.1994, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Pizza 67
selur hluta
rekstrarins
PIZZA 67 hefur selt Einari Ás-
geirssyni, eiganda pizzustaða
Hróa Hattar í Hafnarfirði og í
Kópavogi, heimsendingaþjón-
ustu sína í Reykjavík og veitinga-
staðinn við Nethyl. Að sögn Ge-
orgs Georgiou, eins eigenda
Pizza 67, verður starfsemin
áfram rekin undir sama nafni,
og Pizza 67 mun eftir sem áður
reka veitingastaðina við
Tryggvagötu í Reykjavík og í
Hafnarfirði, auk heimsendinga-
þjónustu annars staðar á höfuð-
borgarsvæðinu en í Reykjavík.
„Þetta er bara gert til að liðka
um fyrir nýjum þáttum í starf-
semi okkar fyrirtækis. Við höf-
um byggt upp ímynd Pizza 67,
og munum áfram verða mótandi
í þvi starfi, sem hefur gengið
eins og best verður á kosið,“
sagði Georg. Aðspurður sagði
hann að ekki yrði neins konar
samstarf á milli Pizza 67 í Hafn-
arfirði og Hróa Hattar. „Þetta breytingar. Það verður áfram
verða áfram tvö óskyld fyrir- sama merki, ímynd og gæði sem
tæki, og ég á ekki von á að við- fylgir þeim rekstri Pizza 67 sem
skiptavinir verði varir við neinar nú var seldur.“
Prentidnaður
Prentstofa G. Ben
og Edda í
SAMBAND íslenskra samvinnufé-
laga hefur selt 91,45% hlut sinn í
Prentsmiðjunni Eddu hf. og verður
félagið sameinað G. Ben. prent-
stofu hf. í Kópavogi. Samingar um
sameiningu fyrirtækjanna voru
undirritaðir á föstudag og starfs-
fólki þeirra beggja tilkynnt um
hana á starfsmannafundum sama
dag.
Sameinaða félagið hefur fengið
heitið G. Ben. - Edda prentstofa
hf. og eru hluthafar 18 talsins.
Stærsti hluthafinn er Jón Stein-
grímsson, viðskiptafræðingur, en
hann hefur jafnframt verið ráðinn
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Markmiðið með sameiningu fyr-
irtækjanna er að ná fram aukinni
rekstrarhagkvæmni í þessum
rekstri ásamt því að styrkja mark-
aðsstöðu félaganna, að því er fram
eina sæng
kemur í frétt. Aukin hagkvæmni
er fyrst og fremst talin skila sér
í bættri nýtingu fastaíjármuna t.d.
fasteigna og tækja, auk sparnaðar
við skrifstofuhald og stjórnun. Þá
er stefnt að því að ná sterkri stöðu
á öllum meginhlutum prentmark-
aðarins.
Höfuðstöðvar nýja félagsins
verða á Smiðjuvegi 3, Kópavogi.
Hjá forverum þess störfuðu um
68 starfsmenn en fyrir liggur að
um einhveija fækkun starfa verð-
ur.
Stjórn G. Ben. - Eddu prentstofu
hf. skipa þeir Þráinn Þorvaldsson,
framkvæmdastjóri, formaður,
Sverrir D. Hauksson, prentsmiðju-
stjóri, Steingrímur Eiríksson, lög-
maður, Svanbjörn Thoroddsen,
rekstrarráðgjafi og Jón Stein-
grímsson.
SEIKOSHA
SpeedJET200
Bleksprautu-
prentari
VerðaleK 25.900 i/isi.
fra
SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVlK ,—,,——.
SlMI: 91-627333 • FAX: 91-628622 Cll—»1—>
Drjúgar tekjur af kvikmyndum og sjónvarpi hjá News í Ástralíu
Sydney. Reuter.
Methagnaður
hjá Murdoch
NEWS-jjölmiðlafynrtæki Ruperts
Murdochs hefur tryggt sér sess í
sögu ástralskra fyrirtækja með
mesta nettóárshagnaði í sögu
þeirra, 1.34 milljörðum ástralskra
dollara.
Dijúgar tekjur af kvikmyndum
og sjónvarpi vógu þyngra á metun-
um en samdráttur á blaðamarkaði
vegna verðstríðs í Bretlandi þrátt
fyrir aukna útbreiðslu æsifrétta-
blaðsins The Sun.
Tekjur News Corp eftir skatta
fjárhagsárið 1993/94 jukust um
54.5% af 8.7% söluaukningu í 11.6
milljarða ástralskra dollara.
A timabilinu hefur Murdoch
beitt sér fyrir ásækinni stefnu til
þess að gera fyrirtækið að sjón-
varpsheimsveldi, en árangurinn
hefur látið bíða á eftir sér. Ástr-
alskur fjölmiðlafræðingur, Lac-
hlan Drummond, segir að verð-
stríð brezku blaðanna hafi orðið
Murdoch dýrkeyptara en búizt
hafi verið við. Hins vegar hagnað-
ist Murdoch til dæmis á sölu á
34.5% hlut í The South China
Morning Post í september 1993.
Sterkastur í Bandaríkjunum
Stöðvum Fox-sjónvarpsfyrir-
tækis Murdochs í Bandaríkjunum
fjölgaði um þriðjung í 184 úr 138
og þær ná tii 98% heimila í land-
inu.
Sjónvarpsdeildin mun enn bæta
stöðu sína 1995 þegar hún mun
njóta góðs af rétti, sem hún
tryggði sér í desember fyrir 1.6
milljarða Bandaríkjadala til þess
að sjónvarpa frá Bandaríkjakeppn-
inni í ruðningi.
Kvikmyndadeildin Twentieth
Century Fox hefur grætt milljónir
dala á myndinni Mrs Doubtfire.
Rekstrartekjur af kvikmynda-
og skemmtideild jukust um 166%
í 141 milljón ástralska dollara.
Norður-Ameríka var af skiljan-
legum ástæðum ábatasamasta
svæði Murdochs 1993/94. Brezkar
tekjur minnkuðu um 26% í 297
miiljónir ástralskra doliara og tekj-
ur í Ástralíu og á Kyrrhafi lækk-
uðu um 33.9% í 22 milljónir ástral-
skra dollara. Tekjur í Bandaríkjun-
um jukust hins vegar um 11.8% í
1.1 milljarð ástralskra dollara.
STAR TV á sléttu
Gervihnattastöðin STAR TV í
Hong Kong, sem Murdoch á 64%
í, tapaði 20 milljónum Bandaríkja-
dala 1993/94. en virðist ætla að
koma slétt út 1994/95.
Tekjur af sameignarfyrirtækj-
um, þar á með BSkyB, sem News
Corp á 50% hlut í, og flutninga-
og flugfélaginu Ansett Transport
Industries rúmlega tvöfölduðust í
394 milljónir ástralskra dollara.
More tölw
486 DX, 40 MHz, 8Mb minni, 210 Mb diskur,
VESA Local Bus, 14" SVGA skjár, lyklaborð og mns
Verð frá 145.000,-
^BODEIND-
Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081
Digital sel-
ur 8% hlut
í Olivetti
Innflutningur
BRETIAND
REYKIAVIK
S 1
Aætlanaskip Eimskips sem lesta vörum í Immingham á
fimmtudegi eru komin til Reykjavíkur á sunnudegi.
Nánari upplýsingar um innflutning er
að fá hjá innflutningsdeild Eimskips
Sími: 91-69 72 40
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
Mílanó. Reuter.
BANDARÍSKA tölvufyrirtækið
Digital hefur selt 8% hlut, sem það
keypti í ítalska fyrirtækinu Olivetti
fyrir tveimur árum til þess að
styrkja tengsl við það.
Olivetti segir að Digital hafi selt
um 100 milljónir af hlutabréfum
sínum í síðari hluta júlí og ágúst-
byijun. Þetta sé liður í endurskipu-
lagningu, sem miði að því að draga
úr kostnaði og umsvifum.
Hlutabréfin voru upphaflega
keypt til þess að innsigla tækni-
og viðskiptasamning, sem var und-
irritaður 1992 og veitti Olivetti að-
gang að sumri tækni Digital og
skuldbatt ítalska fyrirtækið til þess
að auka kaup sín á einkatölvum
ítalska fyrirtækisins.
í kauphöllinni í Mílanó hefur ver-
ið á kreiki orðrómur um að Digital
hafi staðið á bak við mikla sölu á
hlutabréfum í Olivetti, sem hófst
um 20. júlí. Vegna sölunnar lækk-
uðu venjuleg hlutabréf í Olivetti um
20%, en verð þeirra hefur að mestu
leyti færzt aftur í fyrra horf síðan
sölunni lauk 17. ágúst.
Methagnaður
hjá Bang &
Olufssen
BEZTA rekstrarári danska sjón-
varps- og hljómtækjaframleiðand-
ans Bang & Olufsen lauk í maílok
með nettóhagnaði upp á 90 milljón-
ir danskra króna miðað við tap upp
á 60 milljónir d. kr. í fyrra.
Sala jókst um 13% í 2.40 millj-
arða d.kr. úr 2.12 milljörðum d.kr.
Stjórn fyrirtækisins ákvað að
greiða arð í fyrsta skipti í fjögur
ár,^ 10 d.kr. á hlutabréf.
I bráðabirgðaskýrslu segir að
afkoma fyrirtækisins hafi batnað
þótt yfireitt sé lítill markaður fyrir
hljómflutningstæki, sjónvörp og
skyldan varning nú um stundir.
Financial Times.
Háttjen rýrði
hag Toyota
Tokyo. Reuter.
STYRKUR jensins og lítil sala inn-
anlands minnkuðu hagnað Toyota
um 25% á síðasta rekstrarári fyrir-
tækisins, sem lauk 30. júní
Hagnaðurinn nemur 2.16 millj-
örðum dollara af 82.4 milljarða
dollara sölu, sem hefur minnkað
um 9.7%.
Hagnaður Toyota hefur rýrnað
fjögur ár í röð. Minni sala 1993/94
er fyrsti samdrátturinn í sex ár.
Aukinn hagn-
aðurHonda
Tokyo. Reuter.
LÍFLEG sala í Bandaríkjunum
stuðlaði að því að hagnaður
Honnda-bifreiðaverksmiðjanna
tvöfaldaðist á fyrsta fjórðungi
fjárhagsárs fyrirtækisins, en
traust staða jensins dró úr sölu-
tekjum þess og sérfræðingar segja
að Honda mun ekki ná heils árs
hagnaðartakmarki.
Hagnaður Honda fyrir skatta
var 32.25 milljarðar jena (327.4
milljónir dollara) á þriggja mánaða
tímabili til júníloka, 110.3% meiri
en ári áður, af sölu að upphæð
973.10 milljarðar jena (9.88 millj-
arðar dollara), sem er 5.8% aukn-
ing.
Sala bifreiða, aðallega af Acc-
ord-gerð, jókst um 20.2% í Norður-
Ameríku frá því ári áður í 214,000
á fyrsta fjórðungi. í Evrópu jókst
salan um 18.9% í 44,000, en^í
Japan dróst hún saman um 11.4%
í 132,000.
Hagnaður af Rover
Honda seldi 20% hlut sinn í
Rover í Bretlandi eignarhaldsfé-
lagi Rovers fyrir 200 milljónir
punda og keypti 20% hlut í Honda-
fyrirtækinu í Bretlandi af eignar-
haldsfélaginu fyrir 74 milljónir
punda. Af 32.25 milljarða jena
hagnaði Honda fyrir skatta á
fyrsta fjórðungi voru 14.60 millj-
arðar jena af sölu hlutabréfanna
í Rover.
I
I
»
r
t?
»
I
»
»
I
i
»
I
»
I