Morgunblaðið - 30.08.1994, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.08.1994, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Olía ógn- ar finnska skerja- garðinum OLÍULEKI úr flaki skipsins Park Victory sem sökk við eyna Utö fyrir botni Finnska flóans um jólin 1947 ógnar líf- ríkinu á stóru svæði í finnska skeijagarðinum. Talið er að mörgþúsund tonn af olíu séu í flakinu. Hefur hernum verið fengið það hlutverk að reyna dæla henni upp og afstýra umhverfísspjöllum. Bhutto afiýs- ir Gazaför BENAZIR Bhutto for- sætisráð- herra Pakist- ans aflýsti í gær fyrir- hugaðri ferð til Gaza- svæðisins 4. september vegna „fyrirstöðu" af hálfu ísraela, að sögn utanríkisráðu- neytisins í Islamabad. Geislamælar á landamærum FINNAR ráðgera að setja upp sérstaka mæla á sjö landa- mærastöðvum meðfram rúss- nesku landamærunum. Eiga mælitækin að auðvelda toll- gæslumönnum að koma í veg fyrir smygl með geislavirk efni frá Rússlandi. Hættuleg kappsigling KONA og þijú börn á aldrinum 11-13 ára biðu bana er kapp- siglingu tveggja báta á Viver- one-vatninu á Norður-Ítalíu lauk með ásiglingu. Vitni sögðu að bátamir hefðu siglt á um 30 hnúta hraða en leyfð- ur hámarks siglingahraði er 15 hnútar eða 29 kílómetrar á klukkustund. Liberator Fundu flug- vél eftir 49 ár LIBERATOR-sprengiflugvél úr seinna stríðinu fannst í kjarrlendi i miðhluta Queens- land í Ástralíu en ekkert hafði spurst til hennar frá því 26. ferbrúar 1945. Hvarf hún er hún var á leið frá Darwin til Brisbane. Um borð voru sex bandarískir og tveir breskir flugliðar en engin ummerki fundust um hvað hefði orðið um þá. Suður-Kóreu- menn hóta SUÐUR-Kóreumenn sögðust ekki myndu taka þátt í end- urnýjun og fjármögnun kjarn- orkuverka í Norður-Kóreu nema stjórnvöld norðanmegin féllust á að sunnanmenn legðu til nýju kjarnaofnana. Talið er að stjómvöld í Pyongyang munu eiga erfitt með að sætta sig við lausn af þessu tagi. Bosníu-Serbar hafna friðaráætlun í þjóðaratkvæði Allt að 200% kjörsókn á sumum kjörstöðum Pale. Reuter. RÚMLEGA 90% Bosníu-Serba sem neyttu atkvæðisréttar síns höfnuðu nýjustu áætluninni um frið í Bosníu í þjóðaratkvæðagreiðslu um helgina. Kjörsóknin var sögð mikil og allt að 200% í sumum bæjum. „Þegar helm- ingur atkvæðanna hafði verið talinn var kjörsóknin rúm 90%. Þar af greiddu meira en 90% atkvæði gegn áætluninni," sagði Petko Cancar, formaður kjörstjórnarinnar. „Serbneska þjóðin stóð á krossgötum um helgina en það er ekkert slys að hún skuli hafa hafnað áætluninni. Niðurstaðan mun verða til leiðsagnar fyrir leiðtoga landsins í framtíðinni." Mini- eigendur hittast RÚMLEGA 30.000 eigendur Mini-bifreiða héldu um helgina upp á 35 ára afmæli Minisins. Hátíðahöldin fóru fram á kappakstursbrautinni í Sil- verstone á Bretlandi og var hápunktur þeirra kynning á nýjustu afurð Rover-verk- smiðjanna, Grand Prix Mini Cooper. Rover fyrirtækið er nú í eigu þýska bílaframleið- andans BMW. Alls hafa verið framleiddar tæpar 5,3 milljónir Mini og hefur margt frægðarfólks átt slíkan bíl, m.a. Hussein Jórd- aníukonungur, Bítlarnir, sýn- ingarstúlkan Twiggy og Peter Sellers. Mini-bílarnir nutu mestra vinsælda á sjöunda ára- tugnum en mjög hefur nú dregið úr vinsældum þeirra, nema í Japan, en salan þar í landi tekur sölunni í heima- landinu fram. A myndinni leik- ur Nicola Ridgewell, átta ára, sér með sinn eigin Mini-bíl, á bílasamkomunni í Silverstone. Bandaríkjamenn, Rússar, Þjóð- veijar, Bretar og Frakkar hafa beitt sér fyrir friðaráætluninni og hunsað þjóðaratkvæðið, sagt það skripaleik og brellu af hálfu leiðtoga Bosníu- Serba, sem höfðu hafnað áætlun- inni. Cancar sagði að kjörsóknin hefði sumstaðar orðið meiri en 100%, til að mynda í bænum Doboj í norður- hlutanum, þar sem kjörsóknin var sögð um 200%. Kjörstjórnin skýrir þessa háu tölu með því að segja að flóttamenn, sem ekki voru á kjör- skrá, hafi tekið þátt í þjóðarat- kvæðagreiðslunni. Cancar sagði að lokatölur myndu liggja fyrir í kvöld og að þing Bosn- íu-Serba kæmi saman innan tveggja daga til að staðfesta niður- stöðuna. Framkvæmd atkvæðagreiðsl- unnar virtist einkennileg. Frétta- menn sáu hermenn kjósa með nafnakalli og menn greiða atkvæði fyrir ættingja sína. Erfitt var að staðfesta að kjör- sóknin hefði verið um 90% eins og kjörstjórnin heldur fram. Kjörskráin er nánast marklaus þar sem tugir þúsunda manna hafa flúið af svæð- inu. Frönsk stjórnvöld sögðu at- kvæðagreiðsluna ómarktæka. „Menn geta ekki tekið nokkurt mark á samráði sem s!íku,“ sagði Richard Duque, talsmaður franska utanríkisráðuneytisins. „Atkvæða- greiðslan fór fram á ólýðræðislegan hátt og vitað var um niðurstöðuna fyrirfram." Reynt að bjarga áætluninni Andrej Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, ræddi við Slobod- an Milosevic, forseta Serbíu, í Belgrad á sunnudagskvöld og fór á fund bosnískra ráðamanna í Sarajevo í gær til að freista þess að bjarga friðaráætluninni. Stjórn- arerindrekar töldu að Kozyrev hefði tjáð Milosevic að slakað yrði á við- skiptabanninu gegn Serbíu ef hann féllist á að alþjóðleg eftirlitsnefnd fengi að fylgjast með því viðskipta- banninu á Bosníu-Serba yrði fylgt eftir. Hermt er að Milosevic hafi hins vegar viljað að slakað yrði á viðskiptabanninu áður en hann samþykkti alþjóðlegt eftirlit. Reuter Sprenging í olíuleiðslu Moskvu. Reuter. SPRENGING varð í helstu olíu- leiðslunni sem liggur frá Rússlandi til Úkrainu á sunnudagsmorgun, skammt frá borginni Púgasév. Talsmaður orkumálaráðuneytisins í Moskvu sagði að orsök spreng- ingarinnar væri ókunn. Leiðslan er rúmur metri í þver- mál. Itar-Tass fréttastofan rúss- neska sagði að olía hefði dreifst um allmikið gróið land en ekki hefði orðið tjón á vatnsbólum og ekkert þéttbýli væri í grennd við staðinn. Að sögn fulltrúa ríkisolíufélags- ins Transneft er óljóst hve mikil áhrif atburðurinn hefur á orkumál Úkraínumanna sem eru algerlega háðir Rússum um olíu. Spenna í sambuð Grikkja og Albana Aukinn viðbúnað- ur við landamæri Reuter NABIL Shaath, samningamaður PLO (t.h.) og Danny Rothschild, ísraelskur undirhershöfðingi, skiptast á skjölum eftir að hafa undirritað samning um aukna sjálfstjórn Palestínumanna á vestur- bakka Jórdanár. Samningar um vesturbakka Jórdanár Aukin sjálfstjórn PLO Ksamil, Tírana, Albaníu. Reuter. GRIKKIR hafa eflt viðbúnað með- fram landamærum sem þeir deila með Albönum vegna spennu í sam- búð ríkjanna. Málflutningi lauk í gær í Tírana, höfuðborg Albaníu, í réttarhöldum gegn fimm grísk- fæddum Albönum sem voru ákærðir fýrir njósnir í þágu Grikkja. Fangelsisdómar sem olía á eldinn Saksóknari krafðist þess að mennirnir fimm yrðu dæmdir í sjö til níu ára fangelsi hver. Stjórn- málaskýrendur sögðu að dómar af því tagi gætu verkað sem olía á eld í sambúð ríkjanna. „Þeir hafa allir framið þann glæp að þjóna grísku leyniþjónustunni og þess vegna förum við þess á leit við réttinn að þeir verði dæmdir sekir,“ sagði Arben Qeleshi sak- sóknari. Hann sagðist hafa undir höndum nægar sannanir til þess að hefja mál á hendur grísku stjórninni og ýmsum stofnunum hennar, meðal annars leyniþjón- ustunni, fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Grikkir hafa haldið því fram að réttarhaldið væri pólitísk sýndar- mennska og sett á svið til þess að kúga gríska minnihlutann til undirgefni við stjórnina í Tírana. Albanir saka Grikki hins vegar um óeðlileg afskipti af innanríkismál- um og að kynda undir starfsemi albanskra aðskilnaðarsinna. 24.000 Albanir reknir til baka Til að hefna fyrir meint brot gegn gríska minnihlutanum í Alb- aníu hafa Grikkir að undanförnu rekið þúsundir ólöglegra innflytj- enda til baka til Albaníu, að því er haft var eftir albönum sem búa í héruðum með fram grísku landa- mærunum. Fullyrti talsmaður stjórnarinnar í Tírana á sunnudag að frá 15. ágúst hefðu Grikkir sent 24.000 ólöglega albanska inn- flytjendur til baka. Talið er að 350.000 Albanir stundi atvinnu í Grikklandi. Er kommúnistastjórn- in féll 1990 hófst straumur úr landi, einkum yfir sundið til Korfú sem liggur tvo kílómetra undan strönd Albaníu. Erez. Reutcr. ÍSRAELAR og Frelsissamtök Pal- estínumanna (PLO) undirrituðu í gær samning sem veitir Palestínu- mönnum á vesturbakka Jórdanár forræði yfir fimm sviðum - mennta-, heilbrigðis-, skatta-, ferða- og félagsmálum - sem Isra- elar hafa farið með í 27 ár. Samningurinn er annar áfang- inn í ársgömlu friðarsamkomulagi ísraela og PLO. Palestínumenn fengu sjálfstjórn á Gaza-svæðinu og í Jeríkó á vesturbakkanum í maí og stefnt er nú að valdatil- færslu á öðrum svæðum vestur- bakkans. Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, sagði undirritun samnings- ins sögulegan viðburð. „Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Palestínu- menn geta veitt börnum sínum menntun á eigin tungu og sam- kvæmt eigin hefðum - nokkuð sem gerðist aldrei undir stjórn Breta eða Tyrkja eða Jórdana eða nokkurra annarra."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.