Morgunblaðið - 30.08.1994, Side 27
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 27
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDl: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100.
Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt-
ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif-
stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan-
lands. I lausasölu 125 kr. eintakið.
ARÐSEMIOG
EIGINF J ÁRST AÐ A
HELZTU nytjafiskar á íslandsmiðum eru ýmist full- eða
ofnýttir. Framleiðsla búvöru hefur og um langt árabil
verið umfram innlenda eftirspurn. Það var því eðlilegt að horft
væri til þriðju höfuðgreinar atvinnulífsins, iðnaðarins, til að
mæta vaxandi atvinnuþörf og til að auka verðmæti í þjóðarbú-
skapnum. Iðnaðurinn hefur hins vegar átt undir högg að sækja
á undanförnum árum. Iðnaðarframleiðsla hefur dregizt saman,
starfsfólki í greininni fækkað, markaðshlutdeild sumra greina
minnkað og afkoman í það heila tekið verið rýr.
í grein Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, í
Fjármálatíðindum, sem fjallar um starfsskilyrði iðnaðarins,
segir m.a. um þetta efni:
„Hlutdeild iðnaðar í vöruútflutningi hefur Iítið breytzt síðast-
liðin tuttugu ár. Hlutdeildin hefur verið um 20%. Töluverðar
sveiflur hafa þó verið milli einstakra ára. Tveir þriðju hlutai
iðnaðarvöruútflutnings eru afurðir stóriðju en þriðjungur al-
mennar iðnaðarvörur. Þótt ekki hafi verið miklar breytingar á
þessum hlutföllum, þegar á allt er litið, kemur greinilega fram
tilhneiging til samdráttar í almennum iðnaðarvöruútflutningi,
einkum undanfarin ár. Einnig hefur hallað undan fæti á heima-
markaði ...“
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar orðar það svo að iðnaðurinn
hafi um alllangt skeið fremur hrakizt undan brekkunni en sótt
á hana í átt til hærra framleiðslustigs. Hvað veldur? Smæð
iðnaðarins stendur honum að einhveiju leyti fyrir þrifum. Megin-
skýringin felst þó í lakari fjárhagsstöðu, að dómi forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar. Afkoma íslenzkra iðnfyrirtækja hefur ekki ver-
ið viðunandi á undanförnum árum. Raunar hefur afkoma ís-
lenzkra fyrirtækja verið rýr um langt árabil. „Þannig var til
dæmis arðsemi eiginfjár íslenzks atvinnurekstrar í heild aðeins
um 1% að meðaltali á árabilinu 198S-1992. Til samanburðar
benda athuganir Þjóðhagsstofnunar til þess að.sambærilegar
tölur fyrir atvinnurekstur í öðrum löndum séu víða á bilinu
3-5%.“
Lítil arðsemi atvinnurekstrar hér á landi fer saman við al-
mennt bága eiginfjárstöðu íslenzkra fyrirtækja. Eiginfjárstaða
íslenzkra fyrirtækja er að meðaltali um 30% borið saman við
nálægt 50% í öðrum löndum. Eiginfjárstaða íslenzkra iðnfyrir-
tækj? er svipuð og í atvinnurekstrinum í heild. Þessi staðreynd
hefur að sjálfsögðu neikvæð áhrif á afkomu fyrirtækjanna,
ekki sízt þegar vaxtastig er hátt.
Af sjálfu leiðir að lítil arðsemi íslenzks atvinnulífs laðar
hvorki erlenda eða innlenda fjárfesta til fjárfestinga eða ann-
arra umsvifa, þvert á móti. Erlend fjárfesting er og sáralítil hér
á landi, en víða erlendis er hún lyftistöng fyrir atvinnulífið og
mikilvægt framlag til hagvaxtar.
Lítil arðsemi og lágt eiginfjárhlutfall í íslenzkum atvinnu-
rekstri eru verðug íhugunarefni. Umræða um þessi fyrirbæri
þarf að virka sem hvati á öll áhrifaöfl í þjóðfélaginu; hvati til
samátaks um að búa íslenzkum atvinnurekstri viðunandi starfs-
umhverfi. Atvinnulífið verður að fá að byggja sig upp og þró-
ast við hliðstæð skilyrði og atvinnuvegir í samkeppnisríkjum.
Það er forsenda þess að það geti mætt vaxandi atvinnuþörf
og risið undir hliðstæðum lífskjörum og bezt þekkjast annars
staðar. Það má heldur ekki gleymast að atvinnulífið er í raun
kostnaðarleg undirstaða allrar félagslegrar þjónustu í samfélag-
inu.
Sitt hvað hefur áunnizt í baráttunni fyrir betra starfsum-
hverfi atvinnulífsins síðustu misserin. En betur má ef duga
skal. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir í tilvitnaðri grein:
„Skilyrði til iðnþróunar eru einstaklega góð um þessar mund-
ir, bæði inn á við og út á við. Hvað skilyrðin inn á við varðar
skiptir mestu máli að raungengi krónunnar er lágt, skattar
hafa verið lækkaðir [á atvinnurekstur] og almennt jafnvægi
ríkir í þjóðarbúskapnum. Skilyrðin út á við virðast einnig hag-
stæð; iðnaðurinn hefur greiðan aðgang að erlendum mörkuðum,
og horfur eru á að þessir markaðir verði í vexti á næstu misser-
um. Nú er því betri viðspyrna í starfsskilyrðum iðnaðar en
verið hefur um langt árabil..."
Þessa viðspyrnu verður að nýta af framsýni og hyggindum.
Treysta verður þá hornsteina, sem leiddu til þess árangurs er
unnizt hefur, stöðugleikann í verðlagi og á vinnumarkaði, lækk-
un skatta, lækkun vaxta og styrkari markaðsstaða erlendis.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar telur einnig mikilvægt að raun-
gengi krónunnar haldist í aðalatriðum óbreytt þótt þjóðhagsleg
skilyrði batni. Þannig fái iðnfyrirtæki að njóta hagstæðra starfs-
skilyrða og sjávarútvegurinn að treysta eiginfjárstöðu sína.
„Það þarf með öðrum orðum að finna leiðir,“ segir hann, „til
að koma í veg fyrir hefðbundna uppsveiflu, sem skilar hvorki
sjávarútvegi né iðnaði betri stöðu þegar upp er staðið.“
LANDBÚNAÐUR
Sundraðir bændur
sjá fram á samkeppni
Neysla á kjöti
hefur minnk-
að um 7,2% á
tíu árum
Aðalfundur Stéttarsambands bænda vill
stuðla að stofnun heildarsamtaka kjötfram-
leiðenda, sem annist vöruþróun, dreifíngu
og heildsölu á öllu Iqöti innanlands og sjái
um afurðalánaviðskipti. Að mati Egils
----^------------------------------------
Olafssonar bendir margt til að erfitt
reynist að ná samstöðu um málið.
á meðan svínakjötsneysla hefur tæp-
lega þrefaldast. Ólíkur styrkur svína-
og sauðfjárbænda felst m.a. í því að
svínabú á landinu eru rösklega 100
á meðan sauðfjárbúin eru um 3.300.
Sauðfjárbændur hafa mörg undan-
farin ár framleitt talsvert umfram
neyslu, en svínabændum hefur tekist
að halda sinni framleiðslu að mestu
í takt við eftirspurn.
Stofnun sölufyrirtækis
Þórólfur Sveinsson, varaformaður
Stéttarsambands bænda, sagði að
staða sauðfjárbænda og nautakjöts-
framleiðenda væri ekki ólík stöðu
verkamanna. Þessir smáframleiðend-
-------- ur séu svo margir og smáir
að þeir geti ekki komið
fram á markaði nema að
sameina krafta sína. Þó-
rólfur er einn þeirra sem
hafa sett fram hugmynd
11 um að bændur endurskipu-
leggi sín markaðsmál og stofni eitt
fyrirtæki sem annist sölu á öllu kjöti
í landinu. Hann sagði að hægt væri
að hugsa sér starfssvið slíks fyrirtæk-
is með ýmsum hætti. Þetta gæti t.d.
verið eignarhaldsfélag sem eigi kjöt-
birgðirnar og fengi sláturhús til að
slátra fyrir sig og kjötvinnslur til að
vinna úr kjötinu. Þórólfur vísar hér
til þess skipulags sem bændur á Nýja-
Sjálandi hafa búið við síðustu 70 ár.
Þórólfur sagðist ekki telja að stofn-
un slíks fyrirtækis brjóti í bága við
samkeppnislög. Bændur hefðu ekki
áhuga á að gerast lögbrjótar. Hann
viðurkenndi þó að tilgangurinn með
stofnun kjötsölufyrirtækis væri ekki
síst sá að styrkja stöðu bænda í sam-
skiptum þeirra við smásöluverslun-
ina. Þórólfur sagði að staða íslenskra
bænda væri mun veikari en starfs-
bræðra þeirra í nágrannalöndum
þeirra hvað þetta varðar.
Svínabændur vilja ekki
vera með
Kristinn Gylfi Jónsson, formaður
Svínaræktarfélags íslands, sagði að
svínabændur væru tilbúnir til að
ræða nánara samstarf kjötframleið-
enda, sem m.a. myndi miða að því
--------- að auka kjötneyslu í land-
inu, en hver Islendingur
neytir í dag um 7,2% minna
af kjöti en har\n gerði fyrir
10 árum. Kristinn sagði
hins vegar að svínabændur
hefðu hingað til ekki verið
tilbúnir til að ljá máls á stofnun sérs-
taks fyrirtækis sem annist alla kjöt-
sölu í landinu. Hann sagði að hags-
munir kjötframleiðenda færu ekki
nema að takmörkuðu leyti saman.
Framleiðendur væru að keppa á ein-
um markaði um hylli neytenda og
ein vara hefði áhrif á aðra.
Óvissa um innflutning
Það sem liggur á bak við hug-
myndir bænda um stofnun eins sölu-
fyrirtækis er ekki bara erfið staða á
markaðnum eins og hann er í dag.
Bændur eru einnig að hugsa um að
Gífurleg verðlækkun á kjöti
á síðasta ári hefur leitt til
þess að bændur ræða nú
um róttæka endurskipu-
lagningu á öllu markaðs- og sölu-
starfi sínu. Sumir bændur vilja ganga
svo langt að stofna fyrirtæki sem
annist alla kjötsölu á heildsölustigi.
I því sambandi leita menn fyrirmynd-
ar til hinna Norðurland- ----------
anna og Nýja-Sjálands þar
sem staða bænda á mark-
aðinum er sterk. Flest
bendir hins vegar til að
erfitt verði fyrir bændur
að ná samtöðu um sölumál ..........
sín. Svínabændur og alifuglafram-
leiðendur vilja ekki binda hendur sín-
ar of mikið.
Þegar núgiidandi búvörusamning-
ur tók gildi árið 1991 varð sú breyt-
ing að ríkið hætti að ábyrgjast sölu
kindakjöts. Jafnframt varð meira los
á verðlagningu búvara, sem hafði
verið meira og minna undir opinberri
forsjá í áratugi. Þegar ríkisvaldið dró
sig til baka misstu bændur bakhjarl
sem áður tryggði nokkuð stöðugleika
á kjötmarkaðnum. Lögmálið um
framboð og eftirspurn fór að skipta
meira máli.
Hörð samkeppni
Framleiðsla á nautakjöti hefur síð-
ustu misserin verið meiri en eftir-
spurn. Framleiðendur gripu til þess
ráðs í fyrra að lækka verð til að örva
sölu. Þetta leiddi til þess að verð á
nautakjöti fór úr 380 kr./kg niður í
200 kr./kg. Um svipað leyti ákváðu
svínabændur að lækka verð til að
örva sölu vegna tímabundinnar of-
framleiðslu. Verðið féll úr 340 kr./kg
í 200 kr./kg. Sambærileg verðlækkun
hefur ekki orðið á lambakjöti, en
verðlagning á því lýtur enn sem kom-
ið er opinberri forsjá, a.m.k. að nafn-
inu til. Sauð-fjárbændur ----------
hafa hins vegar varið mikl-
um fjármunum í afslætti
og söluhvetjandi aðgerðir.
Staða bænda til að þola
svona mikla verðlækkun
er misjöfn. Flestir kúa-
bændur byggja meginafkomu sína á
framleiðslu mjólkur og eru því betur
í stakk búnir til að þola tekjusam-
drátt af minni sölu nautakjöts en
sauðfjárframleiðendur. Framleiðend-
ur á svína- og alifuglakjöti eru mjög
stórir og geta því flestir tekið á sig
tímabundna lækkun á afurðaverði.
Það eru hins vegar sauðfjárframleið-
endur sem eiga erfiðast með að þola
samkeppnina. Þeir hafa stöðugt verið
að tapa markaðshlutdeild á seinustu
árum á meðan hinar kjöttegundirnar
sækja á. Sala á lambakjöti hefur
minnkað um 25% á síðustu 10 árum
Nýsjálending-
ar ætla sér að
selja kjöt til
íslands
Kjötsala 1984-1993
Tonn
10.000
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
j
\ \ <ind akjöt
Lr-?
i
/ /jíL
í J (á y
/ Vaut ikjöt
Svín akjöt
Alifugl akjöt
I 1 — Hrossakiöt L
1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993
Þórólfur Sveinsson
Gísli Karlsson
Kjötmarkaður á
krossgötum
Þórólfur segir bændur
of marga og smáa til
að geta komið fram á
markaði nema þeir
sameini krafta sína.
Gísli segir erfitt fyrir
Islendinga að sanna að
hætta stafi af innflutn-
ingi á kjöti frá Nýja-
Sjálandi.
búa sig undir að keppa við innfluttar
kjötvörur. Við gildistöku GATT-
samningsins á næsta ári verður leyfi-
legt að hefja takmarkaðan innflutn-
ing. Reyndar virðist vera mjög óvíst
hvernig að þessum innflutningi verð-
ur staðið og í landbúnaðarráðuneyt-
inu virðast menn jafnvel standa í
þeirri trú að heilbrigðisreglugerðir
komi í veg fyrir innflutning á hráu
kjöti. Allir forystumenn bænda, sem
Morgunblaðið hefur rætt við, telja
hins vegar að mjög erfitt verði fyrir
íslendinga að stöðva innflutning á
hráu kjöti eftir gildistöku GATT.
GATT-samningurinn gerir ráð
fyrir að ríki verði að sanna að hætta
stafi af innflutningi búvara. Sérstök
stofnun á vegum GATT
mun skera úr ágrein-
ingsatriðum hvað þetta
varðar. Gísli Karlsson,
framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs, segist
telja að erfitt verði fyr-
ir íslendinga að sanna
að íslenskum búfjár-
stofnum stafi hætta af
innflutningi á hráu
kjöti frá Nýja-Sjálandi.
Heilbrigðisreglur séú
þar strangar og heil-
brigði búfjár gott.
Nýsjálendingar vilja
flytja inn kjöt
Sömu viðhorf koma
fram í skýrslu sem
Valdimar Einarsson,
búfræðingur á Nýja-
Sjálandi, hefur unnið
fyrir Framleiðsluráð. í
skýrslunni kemur fram
að Sölusamtök nýsjá-
lenskra kjötframleið-
enda hafi nýlega látið
vinna skýrslu um ís-
Ienska kjötmarkaðinn
með það í huga að hefja
þangað innflutning eftir 2-3 ár.
Valdimar segir að innihald skýrslunn-
ar sé enn trúnaðarmál og því liggi
ekki fyrir upplýsingar um markaðs-
setningu. Hann segist hins vegar telja
að nýsjálensku sölusamtökin muni
reyna að ná markaðshlutdeild hér
með sértilboðum án þess þó að lækka
hér almennt verð á kjöti.
Valdimar hvetur íslenska kjöt-
framleiðendur til að sameina krafta
sína og stofna sölusamtök að nýsjá-
lenskri fyrirmynd. Hann telur að
markmið slíkra samtaka eigi að vera
að annast sölu á kjöti og öðrum afurð-
um bænda, ábyrgjast birgðahald,
hámarka skilaverð til bænda og sjá
um uppgjör til bænda.
Tilkynnt að kosningar verði í Danmörku 21. september
----------i---------------—
JAFNAÐAR-
MENN HAFA
GÓÐAN BYR
Borgaraflokkarnir eiga undir högg að sækja
eftir gott gengi undanfarin ár en forsætisráð-
herrann stefnir á áframhaldandi stjómarsam-
starf miðjuflokka. Sigrún Davíðsdóttir spáir
í kosningabaráttuna, sem er nýhafin
Eftir vangaveltur vikum sam-
an hefur Poul Nyrup Ras-
mussen forsætisráðherra .
og formaður Jafnað-
arflokksins danska nú kveðið upp úr
um að Danir gangí til kosninga 21.
september. Hann stefnir eindregið á
að halda áfram núverandi stjórn
flokks síns og þriggja lítilla miðju-
flokka. Hætt er þó við að tveir þeirra
nái ekki tilskildum atkvæðafjölda, svo
jafnaðarmenn gætu þurft taka Sósíal-
íska þjóðarflokkinn með í stjórnar-
samstarfið, þó forsætisráðherra hafi
hingað til gert lítið úr þeim mögu-
leika. Af hálfu borgaraflokkanna er
undirstrikað að kosningarnar standi
um rauða eða bláa stjórn og fram-
vindu efnahagsmálanna. Eftir gott
gengi undanfarið ár hafa vinsældir
Vinstriflokks Uffe Ellemann Jensens
dalað og sem stendur er ólíklegt að
borgaraflokkunum takist að ná meiri-
hluta.
Stjórnarflokkarnir, sem eru Mið-
demókratar, Kristilegi þjóðarflokk-
urinn og Róttæki vinstriflokkurinn,
auk Jafnaðarflokksins, hafa þegar
komið sér saman um drög að fjárlög-
um, auk þess sem þeir eru sammála
í meginatriðum um efnahagsstefnu. Á
grundvelli þessa munu þeir heyja
kosningabaráttuna. Síðan í vor hefur
þó komið hik á tvo fyrstnefndu flokk-
ana en þeir virðast efast um hversu
fastlega þeir eigi að binda trúss sitt
við núverandi stjórnarflokka eftir
kosningar, en bæði Mið-demókratar
og Kristilegi þjóðarflokkurinn eiga á
hættu að detta út af þingi við næstu
kosningar, sökum lítils fylgis. Ýmsir
háttsettir flokksmenn hafa hvað eftir
annað hikað við að lofa því að líta
ekki í aðrar áttir. Ef þessir tveir smá-
flokkar detta út af þingi verða Jafnað-
arflokkurinn og Róttæki vinstriflokk-
urinn væntanlega að leita eftir sam-
starfi við Sósíalíska þjóðarflokkinn,
annaðhvort með stjórnaraðild eða að
flokkurinn styddi minnihlutastjórn
þess sem eftir verður af stjórnarflokk-
unum.
Venjulega er kosið hér á þriðjudög-
um, svo flestir höfðu giskað á 20.
september sem kosningadag, en for-
sætisráðherra hefur þess í stað valið
miðvikudaginn 21. september. Kosn-
ingaslagurinn verður stuttur og
snarpur og jafnaðarmenn ætla sér
greinilega að nýta sér góðan byr og
góðar undirtektir við drög að fjárlög-
um. Kreppa innan litlu stjórnarflokk-
anna ýtir vísast einnig undir að heppi-
legt er fyrir stjórnina að hraða kosn-
ingum. Stjómarmyndun verður þá
væntanlega í höfn, þegar þingið kem-
ur saman að venju fyrsta þriðjudag í
október, sem í ár ber upp -----------
á 4. október.
Ef jafnaðarmenn þyrftu
á einhvern hátt að leita
fulltingis Sósíalíska þjóð-
arflokksins við stjórnar-
myndun fengi stjórnin á sig rauðan
blæ og því hefur Nyrup Rasmussen
gert lítið úr þessum möguleika, þar
sem hann stefnir fremur á að styrkja
ímynd flokks síns sem einhvers konar
miðjuflokks, fremur en að undirstrika
félagshyggjuþáttinn. Um leið rær
flokkurinn á sömu mið og borgara-
flokkarnir. Þessi stefna er í anda þess,
sem haldið hefur verið á lofti innan
flokksins síðan Nyrup tók við leiðtoga-
hlutverki. Lítill áhugi hans á að leita
eftir stuðningi Þjóðarflokksins hefur
ergt leiðtoga hans, sem segjast ekki
skilja hvemig Jafnaðarflokkurinn ætli
að koma stefnu sinni áleiðis, ef ekki
verði með stuðningi þeirra. Mið-demó-
kratar hafa alla tíð sagt að eitt helsta
erindi þeirra í stjóm sé að halda Þjóðar-
flokknum utan stjómar og um leið
allri vinstrihugmyndafræði. Jafnvel þó
þeir detti út, þá hefur Nyrup Rasmuss-
en varla áhuga á neinni vinstrisveigju
og mun því í lengstu lög halda sig frá
Sósíalíska þjóðarflokknum, þó þessir
tveir flokkar vinni til dæmis saman
innan borgarstjórnarinnar í Kaup-
mannahöfn og hafi gert um árabil.
Vinsældir Engels vaxa
Ihaldsflokkurinn undir stjórn Hans
Engells hefur átt góðu gengi að fagna
undanfarið, eftir að vera loksins kom-
inn út úr skugga Tamílamálsins.
Hæglátlegt og góðlegt yfirbragð En-
gells fer vel í Dani. Hann er ekki jafn
hressilegur og Poul Schlúter fyrir-
rennari hans, en hann er málefnalegur
myndun með hon-
um.
Uffe Ellemann
Jensen formaður
Vinstriflokksins
hefur haft hægt
um sig um langa
hríð og því er enn
óljóst hvaða tónn
verður í kosninga-
baráttu flokksins.
Fyrir um ári síðan
var Ellemann efst-
ur á óskalista
Dana um forsætis-
ráðherra, en vin-
sældir hans hafa
dalað undanfarin.
Harðsnúinn og á
köflum örlítið
ósvífínn tónn hans
fer misvel í kjós-
endur. Hann hefur
ekki hikað við að
lýsa því yfir að
hann stefni á for-
sætisráðherrastól-
inn, en sem stend-
ur væri þó erfitt
að ná honum frá
Engell, ef borgara-
flokkarnir fengju
tækifæri til að
spreyta sig á
stjómarmyndun.
Jafnvel þó flokk-
arnit' tveir eigi það
sameiginlegt að
vilja gjarnan í stjórn og þá saman,
stefndi í hörð átök formannanna
tveggja um forsætisráðherraembætt-
ið. Þá hefur flokkurinn verið gagn-
rýndur fyrir að gagnrýna stjórnina,
Poul Nyrup
Rasmussen
Hans
Engell
Vilja í stól forsætisráðherra
Forsætisráðherrann
neyðist e.t.v. til sam-
starfs við Sósíalíska
þjóðarflokkinn.
Vinsældir formanns
Ihaldsflokksins hafa
vaxið hægt og bítandi
að undanförnu.
Kosið um
rauða eða
bláa stjórn
og það mælist vel fyrir. Því er ekki
gott að segja hverju hann fær áorkað
í stuttri kosningabaráttu, en vinsældir
hans vaxa hægt og bítandi. Flokkur-
inn hefur gefið til kynna að hann
hafi hug á borgarlegri stjórn með
--------- Vinstriflokknum. í borg-
aralegri stjóm Schlúters
var Róttæki vinstriflokkur-
inn á tímabili með þessum
tveimur flokkum, en sem
stendur virðist sá síðast-
nefndi ætla að halda sig við stjórnar-
þátttöku með jafnaðarmönnum. Þá
þyrfti borgarleg stjóm flokkanna
tveggja iíklega á stuðningi Framfara-
flokksins að halda, þó báðir flokkarnir
hafi hingað til þvertekið fyrir stjórnar-
án þess að koma með eigin tillögur.
Aðal kosningamálin verða efna-
hagsmálin og efnahagsstefnan.
Borgaraflokkarnir gagnrýna stjórn-
ina fyrir óráðsíu í fjármálum og segja
peningana fossa út úr ríkiskassanum,
með hækkandi skuldum _______________
ríkissjóðs. Þær námu 56,7
prósentum af þjóðarfram-
leiðslu síðasta árs, en
reiknað er með að þær
verði 60,8 prósent í lok “"“““
næsta árs. Stjórnin segist hins vegar
vilja nota góða stöðu efnahagsmála
til aðgerða gegn atvinnuleysinu. Það
eru teikn á lofti að einhver umræða
sé að koma upp um styrkjakerfið, eða
styrkjaklafann sem sumir nefna kerf-
STJÓRNARFLOKKARNIR munu heyja kosninga-
baráttuna á grundvelli fjárlaganna. Hér hjólar l’jár-
málaráðherrann og jafnaðarmaðurinn Mogens
Lykketoft með drög að fjárlögunum til þingsins.
ið, sem deilir út alls kyns félagslegum
styrkjum. Meðal annars er bent á að
styrkir til atvinnuleysingja, ætlaðir
til að hjálpa þeim að koma á stofn
sjálfstæðum atvinnurekstri, geri
meira ógagn en gagn, því þeir orsaki
óeðlilega samkeppni þeirra sem njóta
styrkja og svo þeirra óstyrktu. Vísast
mun endurómur af þessari umræðu
koma fram í kosningaumræðunum.
Bæði Uffe Ellemann Jensen og Pia
Kjærsgaard formaður Framfara-'
flokksins segja kosningarnar klár-
lega snúast um hvort Danir kjósi
yfir sig rauða eða bláa stjórn og þá
með tilheyrandi efnahagsstefnu.
Minnihluta stjórn
Stjórnin sem nú situr er mjög
óvenjuleg í danskri stjórnmálasögu
að því leyti að hún er meirihluta-
stjóm. Hér hafa oftast setið minni-
hlutastjórnir. Ef Jafnaðarflokkurinn
kemur vel út úr kosningum kemur
það vísast í þeirra hlut að heija stjórn-
armyndun og þá gæti allt eins verið
að útkoman yrði minnihlutastjórn
hans og Róttæka vinstriflokksins,
hugsanlega með stuðningi Sósíalíska.
þjóðarflokksins. Það er hins vegar
spurning hvort síðastnefndi flokkur-
inn lætur sér það nægja, því leiðtogar
hans hafa látið á sér skilja að þeir
séu ekkert endilega til viðtals um
nokkuð annað en stjórnaraðild. Hvort
jafnaðarmenn horfa í aðrar áttir á
eftir að koma í ljós, en í sjónvarpsum-
ræðum Nyrup Rasmussens og Engells
í síðustu viku sagði forsætisráðherra
að honumféllivelvið Engell. Stíll þeirra
--------- tveggja væri líkur og á milli
þeirra væri góður andi og
bætti svo við að þeir ættu
vel saman. Engell roðnaði
við, en lét vinsamlegum
ummælum forsætisráðherr-
Uffe Ellemann-
Jensen
Harðsnúinn og ósvíf-
inn tónn formanns
Vinstriflokksins fer
misvel í kjósendur.
Stuttur og
snarpurkosn
ingaslagur
ans að öðru leyti ósvarað. Hvort þetta
var bara kurteisishjal eða tilboð um
eitthvað meira á eftir að koma í ijós,
en það dettur víst engum í hug að
forsætisráðherra léti það sama út úr
sér við Uffe Ellemann Jensen.