Morgunblaðið - 30.08.1994, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
VILBOGIMA GNÚSSON
+ Vilbogi Magn-
ússon fæddist
~ 22. apríl 1922 á
Stokkseyri. Hann
lést í Borgarspítal-
anum 21. ágúst síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hans voru María
Gísladóttir og
Magnús Jónasson.
Þau voru ættuð úr
Arnessýslu. Þar
ólst Vilbogi upp
með móður sinni,
sem stundaði
sveitastörf á ýms-
um bæjum í sýsl-
unni. Núlifandi hálfsystkini
Vilboga eru Ingibjörg Helga-
dóttir, Pétur Guðmundsson og
Oskar Magnússon. I æsku
dvaldist Vilbogi um tíma á
heimili Jóns Þorvarðarsonar
og Vigdísar Helgadóttur á
Ragnheiðarstöðum í Flóa og
leit hann ávallt á börn þeirra
sem sín systkini. Vilbogi fór
að vinna fyrir sér um ferm-
ingaraldur. Hann vann öll al-
menn verkamannastörf til sjós
og lands. Lengst af vann hann
sem vörubifreiðarstjóri, en síð-
ustu 12 árin vann hann hjá
j*. embætti Lögreglustjórans í
VILLI afi er dáinn. Villi afi, sem
alltaf var til staðar þegar ég þurfti
á að halda og fylgdist með því sem
á daga mína hefur drifið í 15 ár.
Það var Villi afi, sem fór með mig
upp á slysadeild þegar ég fór þang-
að í fyrsta skipti, það var Villi
afi, sem huggaði mig þegar ég
datt af hjólinu mínu þegar ég var
Reykjavík, fyrst á
bifreiðaverkstæði
og síðan sem að-
stoðarhúsvörður á
lögreglustöðinni
við Hverfisgötu.
Arið 1950 kvæntist
Vilbogi Sigur-
björgu Rósu Vig-
gósdóttur, f. 17.
ágúst 1925, frá
Siglufirði. Heimili
þeirra var alla tíð í
Reykjavík. Þau
eiga fjögur börn,
sem öll eru búsett í
Reykjavík. Þau eru
Eðvarð Viggó, f. 11. október
’50, kvæntur Sesselju Gísla-
dóttur, börn þeirra eru Gísli
Páll, Sigurbjörg Rósa og Reyn-
ir Örn; María, f. 26. mars ’52,
gift Einari Kr. Friðrikssyni,
börn þeirra eru Vilbogi Magn-
ús, Friðrik Sigurður og Kristín
Helga; Jóhann Guðbrandur, f.
13. júní ’54, kvæntur Þórdisi
Gunnarsdóttur, dóttir þeirra
er Erna Bjargey; og Guðlaug,
f. 8. október ’58, sonur hennar
er Hafliði Jónsson. Útför Vil-
boga fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag
að læra að hjóla og það var Villi
afi sem leyfði mér að prófa að
keyra bíl í fyrsta sinn.
Það var svo skrítið, það þurfti
aldrei að biðja hann um aðstoð,
það var alltaf eins og hann fyndi
það á sér þegar ég þurfti á hjálp
hans að halda. Og það hefur verið
ýmislegt sem við höfum brallað
saman. Það var ekki svo sjaldan
sem við lágum saman á gólfinu
og lékum okkur að kubbum eða
bílum. Flest aðfangadagskvöld í
mínu minni höfum við afi látið
okkur hverfa til þess að fara í
kubbaleik en nú verða aðfanga-
dagskvöldin aldrei söm og áður.
I hvert sinn þegar hann kom í
heimsókn byijaði hann alltaf á því
að spyija hvað ég væri nú búinn
að gera nýtt úr kubbunum mínum
síðan síðast. Svo þurfti að skoða,
spjalla, betrumbæta og lagfæra.
Afi vildi fylgjast með öllu því
sem ég tók mér fyrir hendur. Því
var það alveg nauðsynlegt að segja
honum nákvæma ferðasögu í hvert
sinn sem ég fór í ferðalag, hvort
sem það var með skólanum,
mömmu eða nú síðast með ung-
lingadeild Björgunarsveitarinnar
Ingólfs. Því var það alltaf föst regla
þegar ég kom heim úr ferðalagi
að byija á því að hringja í afa.
Og það var einmitt á sýningu sem
Björgunarsveitin Ingólfur hélt sem
við afi vorum saman í síðasta sinn,
daginn áður en hann dó. Þá fylgd-
ist hann með þegar ég tók þátt í
sýningunni og ég veit að það gladdi
hann mjög mikið og mér fannst
líka gott að vita af honum.
Þegar mamma mín og systkini
hennar voru lítil þurfti afi að vinna
mjög mikið og gat því ekki verið
með sínum bömum eins mikið og
hann hefði örugglega viljað.
Mamma hefur því oft sagt að hann
hafi getað sinnt mér meira en öll-
um sínum börnum til samans. Og
það var mikið lán. Afi var verka-
maður alla tíð og stoltur af því.
Hann taldi ekki eitt starf merki-
' GUÐRÍÐUR M. PÉTURSDÓTTIR
+ Guðríður M.
Pétursdóttir
fæddist í Hafnar-
firði 25. maí 1923.
Hún lést 19. ágúst
1994 í Borgarspítal-
anum. Móðir henn-
ar var Guðmunda
Eggertsdóttir, f. 1.
febrúar 1902, d. 16.
október 1989. For-
eldrar hennar voru
Eggert Gíslason og
Guðríður Arnadótt-
ir. Þau voru útvegs-
bændur í Kothúsum
í Garði. Faðir Guð-
ríðar var Vigfús Pétur As-
mundsson, f. 21. janúar 1900,
d. 1. maí 1967, sjómaður og
verkamaður. Foreldrar hans
voru Ásmundur Björnsson og
Katrín Markúsdóttir, þau
bjuggu á Húsavík. Guðmunda
og Vigfús Pétur bjuggu í Höfn
í Garði. Guðríður ólst þar upp
ásamt yngri bróður sínum,
Kristjáni Karli, f. 16. október
1931, d. 11. maí 1979. Hún gift-
ist 1947 Gunnari Oskarssyni,
f. 17. september 1927, d. 1.
nóvember 1981, deildarstjóra
r og söngvara. Fyrir átti hún
soninn Davíð Eyrbekk, f. 13.
maí 1943, slökkvi-
liðsmann á Kefla-
víkurflugvelli.
Hann ólst upp hjá
foreldrum hennar.
Guðríður og Gunn-
ar eignuðust tvo
syni, Gunnar Örn,
f. 2. desember 1946,
mýndlistarmann,
og Þórð Steinar, f.
23. janúar 1948,
hæstaréttarlög-
mann. Hann ólst
upp hjá fósturfor-
eldrum, hjónunum
Bjarnfríði _ Sig-
uijónsdóttur og Ágústi Ólafs-
syni rafvirkjameistara í
Reykjavík. Guðríður og Gunn-
ar slitu samvistir. Seinni maður
Guðríðar var Geoff Meekosha,
verslunarmaður, f. 5. desember
1924 í Englandi, d. 30. apríl
1983, Þau eignuðust soninn
Pétur, f. 9. október 1957. Hann
er hleðslustjóri hjá Flugleiðum.
Guðríður og Geoff bjuggu um
árabil í Englandi. Guðríður
starfaði m.a. við verslunar-
störf. Barnabörn hennar eru
13 og barnabarnabörnin 10.
Útför hennar fer fram frá Út-
skálakirkju í Garði í dag.
ELSKULEG tengdamóðir mín er
látin eftir erfið veikindi.
Ég ætla ekki að skrifa um ævi
hennar, heldur kveðja hana með
fáeinum orðum.
Ég rifja. upp í huga mínum þegar
ég hitti hana í fyrsta skipti árið
1977. Ég var feimin og vandræða-
leg, en hún heilsaði mér og varð
strax þægileg í viðmóti. Strax varð
gott samband á milli okkar og
feimnin hvarf fljótlega og alitaf síð-
an höfum við getað talað mikið
saman og stundum án orða, við
vissum oft hvað hin var að hugsa.
Það kom tímabil í lífi mínu þegar
mér leið oft illa. Þegar Gugga
hringdi í mig þá vissi hún strax
hvernig mér leið og sagði þá eitt-
hvað gott, eitthvað hughreystandi.
Alltaf leið mér betur á eftir. Er ég
henni ævinlega þakklát fyrir það.
Andleg málefni varð okkur oft
tíðrætt um. í þeim málum var
Gugga fróð um margt, auk þess
sem hún sjálf hafði gott innsæi.
Fólk kom til hennar til að fá kraft.
Þegar hún greindist með krabba-
mein fyrir rúmlega níu árum, varð
hún strax mjög meðvituð um sjúk-
dóminn og mikilvægi andlegs og
líkamlegs jafnvægis gagnvart hon-
um.
Hún ræddi oft um það hvernig
hún hreinsaði huga og líkama. Hún
las mikið um þessi málefni og
fræddi mig um margt. Aldrei fann
ég fyrir biturleika eða vorkunn
vegna veikindanna heldur var hún'
ákveðin í að fá lífsfyllingu út úr
hverjum degi og aðlagaði sig að
ástandi sínu á hveijum tíma.
Gugga sagði mér að sér fyndist
haustið daprasti tími ársins þegar
allt færi að fölna og deyja. Hún
kvaddi okkur áður en sá tími kom.
í bókinni Yoga heimspeki, sem
hún hélt mikið upp á, segir að
maðurinn hafi alltaf lifað og muni
alltaf lifa. Að það sem við köllum
dauða, sé eins og að sofna um kvöld
til þess eins að vakna aftur að
morgni. Að dauðinn sé aðeins
skammvinnur missir meðvitundar.
Að lífið haldi sífellt áfram og mark-
mið þess sé þroski, vöxtur og fram-
þróun.
Þessu trúði Gugga og kveð ég
hana með þessum orðum. Blessuð
sé minning hennar.
Þórdís.
Okkur systurnar langar með ör-
fáum orðum að kveðja elskulega
ömmu okkar hinstu kveðju. Við vilj-
um þakka henni fyrir þær mörgu
og góðu stundir sem við áttum hjá
henni yfir kaffi og hjónabandsælu.
Við fráfall ömmu Guggu, eins og
við kölluðum hana, þessarar ljúfu
og glaðlyndu konu, koma fram
margar góðar minningar þar sem
léttlyndi og bjartsýni var ávallt í
fyrirrúmi. Svo ekki sé minnst á
þann frið og ró sem ávallt ríkti á
Vandaðar
ú tfa ra rsk reytinga r.
Kransar,
krossat;
kistuskreytingar.
Sími: 6812 2 2
legra en annað, bara ef því va_r
sinnt af samviskusemi og alúð. Á
síldarárunum var hann til sjós og
þá kom hann meðal annars að landi
á Siglufirði. Það var þá sem hann
kynntist Rósu ömmu og hann sagði
alltaf að þá hefði verið sín fengsæl-
asta vertíð og um það get ég verið
sammála honum.
Árið 1950 giftu afi og amma
sig og síðan hafa þau verið mjög
samrýnd og varla mátt hvort af
öðru sjá. Ég átti því láni að fagna
að vera mikið hjá ömmu og afa
og það var alltaf jafngott að koma
í Njörvasundið. Við mamma fórum
oftast í mat til þeirra á sunnudög-
um og afi sagði alltaf að hann
hefði varla lyst á sunnudagsmatn-
um nema við borðuðum með þeim.
Eftir matinn fórum við oft í bíltúr
í nágrenni Reykjavíkur. Afi og
amma höfðu líka afskaplega gam-
an af því að ferðast um iandið og
ég fékk oft að fara með þeim.
Þetta eru ferðalög sem seint munu
gleymast, því þá voru þau nú al-
deilis í essinu sínu.
Eftir að afi veiktist í lok júlí var
honum bannað að keyra bíl og það
átti hann mjög erfitt með að sætta
sig við. Hann var alveg ákveðinn
í því að gera allt til að jafna sig
sem fyrst eftir þau veikindi svo
hann þyrfti ekki að vera eins og
fangi í búri, eins og hann sagði
sjálfur. Því kom það eins og reiðar-
slag þegar hann fékk annað hjarta-
áfall sem var honum ofviða. Sem
betur fer þurfti hann ekki að þjást
mikið, því hann sagði alltaf að
hann vildi ekki ættingjum sínum
svo slæmt að þurfa að hugsa um
sig í veikindum því hann yrði ör-
ugglega „leiðinlegt gamalmenni“.
Elsku Rósa amma, þó Villi afi
sé dáinn lifa ininningarnar um
hann. Góðu stundirnar með afa
heimili hennar og fylgdi henni hvert
sem hún fór. Amma Gugga sá allt-
af það bjarta þrátt fyrir margar
erfiðar stundir í lífínu, ekki síst í
erfiðum veikindum sínum, sem að
lokum höfðu betur þrátt fyrir mikla
baráttu hennar, lífsvilja og dugnað.
Elsku amma, við kveðjum þig
með söknuði og minningin um
glaða, fallega og einlæga ömmu
mun lifa í hjörtum okkar um
ókomna tíð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kolbrún, Ester og Magnea.
voru margar og þeim gleymum við
aldrei. Og þó afi sé dáinn er ör-
uggt að ferðum mínum í Njörva-
sundið fækkar ekki því ég veit að
það verður alltaf jafngott að koma
til þín.
Hafliði.
Elsku afi minn er dáinn. Þessi
orð reika um í huganum á mér en
þau eru bara svo óraunveruleg.
Afi var alltaf svo hress og ég man
eiginlega aldrei eftir að hafa séð
hann veikan.
Afi var góður maður og það var
alltaf gaman að tala við hann. Við
afi áttum nokkur sameiginleg
áhugamál og eitt af þeim var söng-
urinn.
En það var annað sem okkur
afa fannst gaman að spjalla um
og þá sérstaklega þegar við vorum
uppi í sumarbústað, og það voru
trén okkar.
Afi var svo duglegur að gróður-
setja tré uppi í sumarbústað og
venjulega hafði ég engan áhuga á
trjám, en þegar ég talaði um þau
við afa var það bara gaman.
Fyrir nokkrum árum komu svo
amma og afi upp í sumarbústað
eins og oft áður. En í þetta skipti
voru þau með fullt af litlum reyni-
tijám með sér. Þessi tré voru svo
gróðursett víðs vegar um sumarbú-
staðalandið.
En það var eitt tré sem var
miklu minna en öll hin. Það var
svo lítið að þegar við höfðum lokið
við að gróðursetja það, þá sást það
varla. Við vorum alls ekki viss um
að þetta tré myndi lifa, en áður
en amma og afi fóru þá sagði afi
mér að passa þetta tré sérstaklega
vel, vökva það og reyta grasið í
kringum það svo það myndi ekki
kafna. Með þessum orðum gerðum
við afi þetta litla reynitré að trénu
okkar.
í langan tíma á eftir fór ég allt-
af með einn vatnsbrúsa og hellti á
tréð í hvert skipti sem ég kom upp
í sumarbústað og enn þann dag í
dag geng ég stundum að þessu tré
og kíki á það. Það er ennþá pínulít-
ið þó það hafi stækkað mikið síðan
við gróðursettum það. En ég veit
að þetta tré á eftir að stækka
mikið í viðbót og verða fallegasta
tréð á öllu sumarbústaðalandinu.
Og þó að afi sé ekki lengur hér
þá verður þetta tré alltaf tréð okk-
ar og ég mun alltaf hugsa vel um
það.
Ég veit að þessi orð segja ekki
mikið um það hvernig hann afi
var, en þetta er bara smábrot af
öllum þeim frábæru minningum
sem ég á með afa.
Elsku afi, takk fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig.
Og amma mín, ég veit að Guð
styrkir þig í þessari erfiðu sorg,
en mundu það líka að okkur þykir
öllum vænt um þig.
Erna Bjargey Jóhannsdóttir.
LEGSTEINAR
H6LLUHRRUNI 14, HRFNRRFIRÐI, SlMI 91-652707
Minnismerki úr steini
Steinn er kjörið eí'ni í allskonar minnismerki. Veitum
alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki.
Áralöng reynsla.
BjS. HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-7.6677