Morgunblaðið - 30.08.1994, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
ÉG E£AB> LBITA AÐ )
RéTTA f?A)CSpípAMU<H )
.!SBM HÆFlRPæsÓNUl-Elk'A/VlÍNUÍIÍTj
GEEÍR ICONUie AHJB5 HJAlPAKUANA
JCANMSkU þU ÆTTIie
AÐREVNA RLÓIZOFO©^
^ZVfTN,.
Tommi og Jenni
t>0 eerBAeAÍ^JA, ás ,
kO/VUMN y\FÓeSNENm
HU/HÖK. J I HHM~.
mnuNNi;.
FOKSTJoeiM EK. Ún'A LAUtH
i VIÐSKIFrAFMLSí- HANN
. KeMsr AiDNe/ad fv/
þú EJSTSNEM/ftAt JA, £HH
KO/VUNN HFtM > SÆ.LL.,
hm. dagub.? jXJöLkjs
Ferdinand
Smáfólk
HI,MARCIE..PO
YOU HAVE ANVTHINé
600PTO REAP?
IT'5 THREE 0CL0CK
IN THE MORNINé!
UIHT ARE YOU
CALLIN6 ME AT
THREE O'CLOCK
IN THE M0RNIN6?!
I CAN T 5LEEP
50 I TH006HT
l‘D READABTt
WAITAMINUTE.
I THINK THERE'5
5OME0NE AT
THE P00R...
Hæ, Magga, áttu
eitthvað gott að
lesa?
Klukkan er þijú Ég get ekki Bíddu andar-
um nótt! Af hveiju sofið, svo mér tak, ég held að
ertu að hringja í datt í hug að það sé einhver
mig kl. 3 um nótt?! lesa svolítið ... að banka ...
Þarna! Lestu þetta!!
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími691100# Símbréf 691329
KENNSLA í einum af skólum samtakanna í Gikongoro í Rúanda.
Börnin „okkar“
í Rúanda
34 íslendingar hafa beðið í ofvæni eft-
ir fréttum af börnunum „sínum“ þar
Frá Ulla Magnússon:
SOS-bamaþorpin starfrækja tvö
bamaþorp í Rúanda, eitt í höfuð-
borginni Kigali og eitt í Gikongoro.
Eins og alþjóð veit af fréttum
hefur þar ríkt blóðugt borgarastríð
í marga mánuði. Fréttir voru lengst
af ónákvæmar og er nú fyrst ljóst
hvernig afdrif „okkar“ bama og
bamaþorpa hafa verið. Vopnahlé á
að heita þar nú og ný stjórn tekið
við en ástandið er ennþá mjög
óstöðugt.
Ljóst er að 12 innfæddir starfs-
menn SOS ásamt níu börnum úr
þorpum SOS hafa ekki lifað styrj-
öldina af.
Styrktarforeldrar þessara barna
fá um það tilkynningu þessa dag-
ana en nöfn þeirra hafa nýlega
borist til aðalstöðva SOS í Inns-
bruck.
Á barnaþorpið í Kigali var ráðist
í upphafi ófriðar og það rænt og
ruplað. Þangað em nú komin aftur
m.a. þau börn og starfsmenn SOS
sem voru lögð inn á Roi-Faisal-
sjúkrahúsið í upphafi ófriðar, þar
eru einnig önnur börn sem ieitað
hafa hælis. í barnaþorpinu er ennþá
vatn og gagnast það fólkinu og
börnunum í nágrenninu.
Verið að útbúa
bráðabirgðaþorp
Hvað varðar þau börn og starfs-
menn SOS sem flúðu í átt til Úg-
anda eru þau komin til Ngarama
í norðausturhluta Rúanda. I Ngar-
ama hafa SOS tekið við barnaheim-
ili og eru að útbúa bráðabirgða-
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
barnaþorp, en nú þegar eru starf-
andi á vegum SOS lækningastofa
og leikskóli sem einnig taka við og
þjóna ftóttabörnum sem eru á
svæðinu. í bráðabirgðabarnaþorpið
í Ngarama hafa verið sendar birgð-
ir af matvörum, lyfjum og skóla-
gögn til nokkurra mánaða notkun-
ar.
í Zaire þangað sem flóttamenn
frá Rúanda hafa farið er hroðalegt
ástand. Skv. upplýsingum Rogers
Shabanis, skólastjóra SOS Her-
mann Gmeiner skólans í Bukavu,
er nánast allt kerfið óstarfhæft.
Opinberir starfsmenn fengu síðast
útborgað árið 1992. Símakerfið er
óvirkt. Óðaverðbólga geisar. Einn
pakki af töflukrít hækkaði úr
150.000 zaire í 2.500.000 zaire á
15 mánuðum.
21. júní sl. varð að flytja öll
börnin burt frá barnaþorpinu í Gi-
kongoro og voru þau flutt til
Bukavu í Zaire. 32 íslendingar
styrkja böm frá barnaþorpinu Gi-
kongoro og fá þeir nú að vita um
afdrif „sinna“ barna þar. Allar
mánaðargreiðslur til barnanna í
Rúanda hafa runnið í sjóð sem
stendur undir kostnaði við hjálpar-
starfið. Auk þess hefur neyðarsjóð-
ur SOS reynst vel við þessar að-
stæður. Neyðarsjóður SOS var sett-
ur upp fyrir hartnær tveimur árum.
Þótt stefna SOS sé fyrst og fremst
að byggja barnaþorp fyrir munað-
arlaus og yfirgefín börn til lang-
frama hefur ekki verið hjá því kom-
ist að taka líka þátt í neyðarhjálp
þegar náttúruhamfarir eða styij-
aldir hafa geisað í nágrenni við og
í löndum þar sem SOS-barnaþorpin
starfa. T.d. var strax hægt að
senda peninga þegar flóðin voru í
Bangladesh, borgarastyijöldin í
Sómalíu og jarðskjálftarnir á Ind-
landi. Sérstakt átak hefur verið í
gangi til þess að hjálpa börnunum
í fyrrverandi Júgóslavlu og verður
sagt frá því seinna.
Óllum þeim sem vilja leggja
þessu málefni lið er bent á að hafa
samband við skrifstofu samtak-
anna í Reykjavík.
ULLA MAGNÚSSON,
formaður SOS-barnaþorpanna á
Islandi.