Morgunblaðið - 30.08.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Börnin og umferðin
í byrjun skóla
Frá Ómari Smára Ármannssyni
Á NÆSTU dögum hefja skólar
landsins starfsemi sína að loknu
sumarfríi. Þá fjölgar mjög ungum
gangandi vegfarendum í umferð-
inni. Það skapar aukna hættu.
Flest börn þurfa að fara fótgang-
andi yfir akbrautir á leið sinni að
og frá skóla. Mörg þeirra eru byrj-
endur. Börnin þurfa því á allri at-
hygli sinni og varkárni að halda á
leiðinni. Það á ekki síður við um
ökumennina. Þeim ber að taka sér-
stakt tillit til hinna gangandi veg-
farenda og haga akstri sínum þann-
ig að sem minnstar líkur verði á
slysum. Ökumenn eru skyldugir til
þess að aka varlega í nágrenni við
skóla eða annars staðar sem vænta
má gangandi vegfaranda. Ábyrgð
þeirra er mikil.
Á haustin er orðið dimmt á
morgnana. Ökumenn geta komið
að ökutækjum sínum með hélaðar
rúður, veðurfar getur breyst
skyndilega og hálka myndast á
akbrautum eftir næturfrost. Sólin
lækkar enn á lofti og getur hindrað
útsýni við tiltekin skilyrði. Öku-
menn þurfa því stöðugt að vera að
aðlaga sig breyttum aðstæðum. það
dregur athygli þeirra frá öðru, sem
einnig þarf að gefa gaum, t.d. gang-
andi vegfarendum. Slysahættan
margfaldast.
Mikil breyting verður á umferð-
inni á höfuðborgarsvæðinu á haust-
in. Sumarfríum er að mestu lokið
Skilvirk kennsla
í öldungadeildum
Frá Örnólfi Thorlacius:
ÞETTA greinarkorn var sent sér-
blaði Morgunblaðsins, „Að læra
meira“, sl. sunnudag, en komst ekki
að þar, og birtist því sem bréf til
blaðsins:
Öldungadeildir eru nú starfandi
við allmarga framhaldsskóla fyrir
nemendur 20 ára og eldri. Það er
margra mál að þessi tegund fullorð-
innafræðslu sé með merkari nýjung-
um í starfi íslenskra framhaldsskóla
á síðari árum. Frumkvöðull á þessu
sviði var Menntaskólinn við Hamra-
hlíð. Þar hófst í janúar 1972„nám-
skeið fyrir fullorðið fólk, er hyggst
þreyta stúdentspróf utanskóla".
Námskeiðinu, sem haldið var á
kvöldin, var gefið nafnið öldunga-
deild.
Guðmundur Arnlaugsson, rektor,
lýsti reynslunni af öldungadeild skól-
ans í lok fyrstu annar hennar svo:
„Þessi tilraun til menntunarauka
fullorðins fólks hefur einkennst af
starfsgleði og ánægju allra er þar
hafa lagt hönd að verki, kennara
jafnt og nemenda. Mér virðast menn
sammála um að hún hafi tekist von-
um framar."
Gert var ráð fyrir nokkrum tugum
nemenda en þegar upp var staðið
höfðu 257 manns skráð sig til náms.
Aðsóknin jókst næstu ár og flestir
voru í deildinni nærri 700 nemend-
ur. Fljótlega komst föst skipan á
kennsluna. Öldungadeiidir, sem síð-
an hafa verið stofnaðar, eru allar
skipulagðar með Hamrahlíð sem fyr-
irmynd. Nemendur greiða hluta
kostnaðar af náminu. Þessi hluti er
nú í MH á bilinu 9-20 þús. kr. á
önn, allt eftir því hve margar náms-
greinar stundaðar eru.
Öldungadeild MH bætti úr brýnni
þörf. Fjölda fullorðinna manna, sem
ekki höfðu tök á að ljúka stúdents-
prófi á venjulegum skólaaldri, bauðst
nú tækifæri til þess. Enn stunda
margir nám í öldungadeildinni til
stúdentsprófs en það færist í vöxt
að menn sæki þangað kennslu í ein-
um áfanga eða fáeinum. Sumir eru
þá einna helst í deildinni sér til
ánægju og yndisauka, segir Örnólfur
Thorlacius, rektor. „Hér býðst t.d.
ágæt og skilvirk kennsla í mörgum
erlendum tungumálum, svo sem
dönsku, ensku, þýsku, frönsku,
spænsku og ítölsku auk byijenda-
náms í rússnesku. Sumir skrá sig í
deildina til að lesa íslenskar fagur-
bókmenntir, fornar eða nýjar, undir
leiðsögn kennara. Aðrir víkka sjón-
deildarhringinn og auka þekkingu
og færni í myndlist, listasögu, sál-
fræði eða lögfræði, svo nokkur dæmi
séu nefnd. Tölvufræði er líka vinsæl
og þörf grein, en skólinn er vel bú-
inn tölvum og forritum. Einnig er
algengt að stúdentar bæti við sig
grein eða greinum til undirbúnings
í sérhæfðu framhaldsnámi."
ÖRNÓLFUR THORLACIUS,
skólameistari,
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Þakkarbréf frá „ein-
um hinna slösuðu“
Frá Rolando Nofri:
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi bréf frá Rolando Nofri,
en hann var einn farþega í rútunni
sem valt í Bólstaðarhlíðarbrekku 30.
júlí sl:
Ég er einn farþeganna sem slös-
uðust þegar rúta valt í Bólstaðarhlíð-
arbrekku 30. júlí sl. og mig langar
að þakka öllum {>eim sem veittu mér
aðstoð í veikindum mínum.
Innilegar þakkir vil ég færa
starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Sauð-
árkróki svo og starfsfólki á deild 11G
á Landspítalanum og þá sérstaklega
Atla Eyjólfssyni lækni. Einstök hlýja
og velvild einkenndi öll þeirra störf.
Einnig vil ég þakka Kjartani Lárus-
syni, framkvæmdastjóra Ferðaskrif-
stofu íslands, og Pétri Björnssyni,
ræðismanni á ítölsku ræðismanns-
skrifstofunni, fyrir velvilja í minn
garð.
Ég bið Morgunblaðið að koma
þessu á framfæri fyrir mig þar sem
ég hef ekki tök á að þakka þessu
fólki persónulega því ég ligg ennþá
á sjúkrahúsi í heimabæ mínum,
Arezzo á Italíu.
Það er von mín að ég geti kom-
ið aftur til íslands til að njóta vel-
vilja íbúanna þar og fegurðar
landsins.
Bestu kveðjur,
ROLANDO NOFRI,
Via Mácallé, 3
52100 Arezzo,
Ítalíu.
og börnin verða miklu virkari þátt-
takendur í umferðinni en mánuðina
þar á undan. Þúsundir þeirra fara
fótgangandi á vinnustaði sína, mörg
í fyrsta skipti. Þau bera sjálf mikla
ábyrgð, en eru illa varin fyrir hætt-
unum í umferðinni.
Á foreldrum skólabarna hvílir
mikil ábyrgð. Þeim ber að fræða
börn sín um þær hættur, sem fyrir
hendi eru, leiðbeina þeim um val á
öruggustu leiðinni á milli heimili
og skóla, hvetja þau til þess að
nota undirgöng eða merktar gang-
brautir þar sem slíkt er fyrir hendi
og sjá til þess að endurskinsmerkin
séu á sínúm stað. Nauðsynlegt er
að foreldrar fylgi yngstu börnunum
í skólann fyrstu dagana. Sérstak-
lega á þetta við þegar börn þurfa
að fara yfir hættulega og fjölfarnar
umferðargötur.
Þegar ökumenn setjast undir
stýri á næstu dögum verða þeir að
gera sér grein fyrir því að skóla-
börnin eru nú óumflýjanlegur hluti
af umferðinni, vegfarendur sem
taka verður sérstakt tillit til, stað-
reynd sem ökumenn verða að horf-
ast í augu. við. Nú reynir á að þeir
fari varlega.
Lögreglan mun halda uppi eftir-
liti í nágrenni skóla á næstu dögum.
Það er eindregin von hennar að
allir geri sitt til þess að draga úr
slíkum slysum. Eitt slys er einu slysi
of mikið.
ÓMAR SMÁRIÁRMANNSSON,
aðstoðaryfirlögregluþjónn,
í Reykjavík.
aðstoðar þig í
dagana 17.-24. nóvember
Farþegar í feröum 17., 19., 20. og 22. nóvember njóta
sérstakrar leiðsagnar og ráögjafar Heiðars Jónssonar í
fataverslunum í Edinborg og Glasgow. Hann mun halda
kynningarfundi með Edinborgarförum á Mount Royal
hótelinu, vera fólki innan handar um fata- og litaval (
versiunum t borginni og aðstoða það í samskiptum við
afgreiðslufólk. Heiðar mun einnig fara með farþegum í
Slaters í Glasgow, stærstu herraíataverslun heims.
Verslanir í Edinborg eru fullar
af nýjustu haust- og vetrartískunni.
Múm útsýh
Órídei er eió fimia jaftt
í’oll úrreil eif röneliióiiiii
kren- og keirlmeinnei-
feitneieii og í rerslunum
í EeUnhorg. Hrort sem
fní erl en) leilei eu)
heítískufeitneidi ee)ei
k leiss t'sk it iii feit nei <) i.
ineíttii rerei riss iiin eie)
fitinei þeið sein hentar
þér í Eelinborg. ()g ekki
sþil/ir eie) rerðid er
nijög heigsteett.
J 66
■flíl'iP llí
hífftnúla 4: sími 699 300,
Hafnarfirði: sítni 65 23 66, Keflat ík: s(mi 11353,
Selfossi: sími 21666, Ahureyri: simi 2 50 00
- og bjá umboðsmötinum um land alll.