Morgunblaðið - 30.08.1994, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
David Charvet segist hafa
meira til að bera en fagurt
útlit.
Charvet vill
leika í
kvikmyndum
DAVID Chvarvet hefur slegið
rækilega í gegn í þáttunum um
*tstrandverðina (Baywatch). Hann
ólst að hluta til upp í Frakklandi
og er sonur Paul
Guez, marg-
milljarðamær-
ings sem stofn-
aði Sasson
gallabuxnafyr-
irtækið. Paul
Guez átti lengi
við eiturlyfja-
vandamál að
k stríða en tókst
’ cið leysa úr þeim
með hjálp Char-
vets. Þótt þeir
hafí oft lent upp
á kant eru þeir
miklir vinir og
Guez segist eiga
syni sínum lífið
að launa.
Enda þótt
Charvet sé
ánægður með
velgengnina sem fylgir Strand-
varðaþáttunum þyrstir hann í meiri
frama. Hann ætlar að reyna að
fylgja í fótspor Eriku Eleniak, sem
lék í fyrrum í Strandvörðunum, en
g, ,hún var í aukahlutverki í kvikmynd
Stevens Seagals „Under Siege“.
„Gefið mér hlutverk í kvikmynd,"
segir Charvet, „og ég skal sanna
fyrir ykkur að ég er ekki bara
kyntákn".
Charvet
þegar hann
var þriggja
ára gamall í
Frakklandi.
Toronto kvikmynda-
hátíðin að hefjast
► ALLSKYNS kvikmyndir verða sýndar á alþjóðlegu
Toronto kvikmyndahátíðinni sem stendur yfir frá 8.-17.
september. A hátíðinni verða sýndar 296 kvikmyndir
frá 45 löndum, þar af 84 stuttmyndir. „Styrkur hátíðar-
innar er að á henni verða sýndar bæði stórmyndir frá
kvikmyndaverunum og ódýrar myndir sem eru gerðar
fyrir um fimm þúsund dollara [350.000 krón-
ur],“ segir Piers Handling sem er
framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Hann bendir á að myndir hátíðarinn-
ar spanni vítt svið allt frá opnunar-
myndinni Whale Music sem fjallar
um rokkstjörnu, til konu sem Ieit-
ar sér að sálufélaga í mynd Nor-
mans Jewisons Only You, en
það verður lokamynd hátíðar-
innar. Jewison mun að öll-
um líkindum mæta á sýn-
inguna ásamt aðallei-
kurum myndarinnar,
Robert Downey Jr.
og Marisu Tomei.
A meðal fleiri
kvikmynda
sem boðið
verður upp
á eru Col-
onel Cha-
bert í leik-
stjóm
Yves Angelo,
en í aðalhlutverkum
eru Gerard Depardieu
Fanny Ardant, Sleep Witn
Me í leikstjórn Rorys Kellys,
en í aðalhlutverkum eru
Eric Stoltz, Craig Sheffer
og Meg Tilly, Captives í
leikstjórn Angelu Pope,
en í aðalhlutverkum eru
Tom Roth og Julia Orm
ond, Bullets Over
Broadway í leikstjórn
Woodys Allens, The
New Age í leikstjórn
Michaels Tolkins, en í
aðalhlutverkum eru
Peter Weller og Judy
Davis og In Custody í
leikstjóra Ismails
Merchants.
Meðal gesta á hátíðinni
verða fjölmargir leikstjór-
ar og leikarar, en meðal
þeirra má nefna Vanessu
Redgrave, James Woods,
Kathy Bates, Peter Weller,
Raul Julia, Louis Malle,
Michael Tolkin og Patrice
Leconte.
KVIKMYND Woody Allens,
Bullets Over Broadway,
verður sýnd á hátíðinni.
Morgunblaðið/Sverrir
GUÐRÚN Þórsdóttir afhendir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur borgarstjóra bækur Farags í Ráðhúsinu í gærdag.
Borgarstjóra
afhentar bækur um
hugvit kvenna
í vetur bauð Farag
Moussa forseti IFIA,
Alþjóðasamtaka hug-
vitsmanna, Guðrúnu
Þórsdóttur kennslufull-
trúa á alþjóðaráðstefnu
um hugvit barna. Þar kom
í ljós að það fordæmi sem gef-
ið hefur verið með verkefninu
„Frumkvæði sköpun", sem lagt
er fyrir níu ára nemendur í Folda-
skóla í Reykjavík, þykir til fyrir-
myndar. í framhaldi af ráðstefn-
unni er unnið að þvi að koma á
fót samtökum ungra hugvits-
manna. Einnig er verið að athuga
hvort áhugi sé fyrir því að halda
alþjóðlegar sumarbúðir með hug-
vit barna í Reykjavík.
Þegar Farag Moussa frétti að
Reykvíkingar hefðu kosið sér
konu sem borgarstjóra, fannst
honum eðlilegt að árita og senda
henni tvær bækur um uppfinn-
ingar og hugvit kvenna í heimin-
um. Hann hefur sjálfur skrifað
þessar bækur og vildi með þessu
undirstrika við borgarstjórann
mátt kvenna til uppfinninga og
sköpunar.
Leikarar sækja
í upplestur
TIL SKAMMS tíma vildu
þekktir kvikmyndaleikarar
alls ekki koma nálægt því að
lesa metsölubækur á hljóðsnældur,
en slík útgáfa hefur færst mjög í
vöxt undanfarið. Nú hefur áhugi
leikaranna á þessu hins vegar vakn-
að svo um munar og á næstunni
er til dæmis von á upplestri Ben
Kingsley á Schindlers List og upp-
lestri F. Murray Abrahams á Int-
erwiew With the Vampire. Þá er
væntanlegur upplestur Blair Brown
á The Client og Kirk Douglas mun
lesa upp eigin skáldsögu sem heitir
Last Tango in Brooklyn. Lori Wein-
traub stjórnarformaður Time Warner
AudioBooks segir að nú á tímum sé
hægt að fá nánast hvaða stórstjörnu
sem er til að lesa bækur á hljóðsnæld-
ur, en væntanlega er það ekki ein-
göngu vegna peninganna sem í boði
eru. Leikaramir fá að vísu á bilinu
3.000 til 5.000 dollara fyrir eins til
tveggja daga vinnu í hljóðstúdíói, en
að auki fá þeir gott tækifæri til að
láta reyna á leiklistarhæfileika sína.
Anthony Heald sem fer með veiga-
mikið hlutverk í kvikmyndinni The
Client segir að það sé draumur hvers
leikara að fara með öll hlutverkin á
þennan hátt, en hann hefur lesið
tylft bóka á hljóðsnældur og eru The
Gemini Contenders eftir Robert Ludl-
um og The Pelican Brief eftir John
Grisham þeirra á meðal.
* j
FRÖNSK KVIKMYNDAVIKA
NÆRMYND: ALAIN ROBBE-GRILLET
í kvöld kl. 9.10, L'lmmortale frá 1963.
Dularfull mynd um mann sem reynir að
nálgast unga konu sem reynist ekki vera af
sama heimi og hann. 16 mm enskur texti.
Miðvikudag; L'Eden et aprés
Allar myndirnar eru sýndar kl. 9.10.
Miðaverð 400 kr.
Skýjahöllin skoðuð
í LOK september frumsýna Sam-
bíóin nýja íslenska barna- og fjöl-
skyldumynd sem hlotið hefur
nafnið Skýjahöllin.
Myndin er gerð eftir sögunni
Emil og Skunda eftir Guðmund
Ólafsson leikara. Sagan fjallar um
átta ára strák sem á sér þann
draum heitastan að eignast hund.
Þegar honum býðst að kaupa
hvolp gegn vægu verði lætur hann
slag standa og með þrautseigju
og áræði aflar hann þess fjár sem
upp á vantar. Það kemur þó babb
í bátinn þegar hann fær hvolpinn
í hendumar.
Handritshöfundur og leikstjóri
Skýjahallarinnar er Þorsteinn
Jónsson sem gerði á sínum tíma
kvikmyndirnar Punktur, punktur,
komma, strik og Atómstöðina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MEÐFYLGJANDI mynd var tekin þegar Guðmundur Ólafsson,
Þorsteinn Jónsson og Gunnar Smári Helgason tæknimaður
horfðu á fyrsta rennsli Skýjahallarinnar. Þorsteinn er núna
staddur í London þar sem er verið að leggja lokahönd á myndina.