Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
GR og GA sveitameistarar í golfi
SVEITIR Golfklúbbs Akureyrar og Golfklúbbs Reykjavíkur urðu
Sveitameistarar unglinga í golfi en sveitakeppnin var haldin
18. - 21. ágúst á Akranesi og í Vestmannaeyjum.
Akureyrarsveitin sigraði í eldri
flokki, 15-18 ára sem lék í
Eyjum og er óhætt að segja að sig-
urinn hafi komið á óvart. Sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur náði best-
um árangri í höggleiknum fyrsta
daginn en Akureyringar lentu í
íjórða til fimmta sæti. GA komst í
4-liða úrslitin vegna þess að fjórði
maður sveitarinnar sem að öllu
jöfnu telur ekki í keppni sem þess-
ari náði betra skori en fjórði maður
Golfklúbbs Sauðárkróks. Sveit GA
kom svo mjög á óvart með því að
leggja sveit GR að velli í undanúr-
slitunum og tryggja sér úrslitavið-
ureign gegn Leyni sem sigraði sveit
GS í hinum leik undanúrslitanna.
Leikinn var ijórmenningur fyrir
hádegi lokadaginn og þá stóðu
sveitimar jafnar 1:1 en Akureyring-
ar fengu tvo og hálfan vinning af
þremur mögulegum í tvímenningn-
um eftir hádegið. Lokatölur urðu
því þrír og hálfur vinningur gegn
einum og hálfum. A-sveit GR varð
í þriðja sæti með því að sigra Golf-
klúbb Suðurnesja með fjórum og
vhálfum vinningi gegn hálfum.
Sveit GA var_ skipuð þeim Birgi
Haraldssyni, Ómari Halldórssyni,
Gunnlaugi Búa Ólafssyni og Bjarna
Gunnari Bjarnasyni. Þeir Gunn-
laugur og Bjarni eru aðeins ljórtán
ára en verða fimmtán síðar á árinu
og Ómar er fimmtán ára og ekki
er ósennilegt að sveitin sé sú yngsta
til að sigra í þessum flokki.
GR-sigur í yngri flokki
Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur
sigraði í yngri flokki en GR hefur
verið mjög sterk á undanförnum
árum í þessum flokki og oft unnið
stóra sigra. A-Sveit GSS náði þó
bestum árangri í höggleiknum
fyrsta daginn. A-sveit GA sigraði
A-sveit GSS í undanúrslitum og
A-sveit GR lagði Leyni að velli.
Sveitir Reykjavíkur og Akureyrar
mættust því í úrslitaleik, jafnt var
eftir fjórmenning 1:1 en GR sigraði
í tveimur tvímenningum og tryggði
sér þar með sigur í keppninni. Sveit-
in var skipúð þeim Kristni Árna-
syni, Ólafi Kristni Steinarssyni,
Haraldi Heimissyni, Guðmundi Frey
Jónassyni. Sveit Leynis varð í þriðja
sæti með sigri á GSS-A 3:2.
Stukku á snjóbrettum
Fyrsta mótið sem keppt er í á snjóbrettum var haldið í Kerlingaijöllum
fyrir skömmu en stokkið var af háum palli. Keppt var í fijálsri aðferð
en dómarar dæmdu hver sitt atriði í stökkum keppenda, hæð, hversu
flókið stökkið var, lendingu, fjölbreytni stökka og hversu öruggir kepp-
endur voru í stökkum sínum. Mótið kallaðist Tab Xtra mótið og keppt
í tveimur flokkum. í 2. flokki sem er byijendaflokkur sigraði Ágúst
Torfason, Guðmundur Þórðarson varð annar og Jón M. Svavarsson þriðji.
í 1. flokki sem er flokkur lengra komna sigraði Jóhann Óskar Heimis-
son, ívar Þór Ágústsson varð í 2. sæti og Daníel Magnússon í því þriðja.
Á myndinni má sjá verðlaunahafana.
Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur sem sigraði i Sveitakeppni fjórtán ára og
yngri á Akranesi. Piltarnir eru frá vinstri: Kristinn Árnason, Ólafur Kristinn
Steinarsson, Haraldur H. Heimisson, Guðmundur Freyr Jónasson ásamt liðs-
stjóranum Sturlu Ómarssyni.
KNATTSPYRNA
Blikastúlkur
skoruðu þrívegis
í framlengingu
Breiðablik varð á sunnudaginn íslandsmeistari íöðrum flokki
kvenna þegar liðið sigraði IA íframlengdum úrslitaleik á Akra-
nesi 4:1
áttu skot í stöng. Fjórða markið
kom á lokamínútunni og var Katrín
þar að verki með annað mark sitt.
Margar efnilegar stúlkur leika í
þessum liðum og ljóst er að í þeim
eru margar þær stúlkur sem verða
merkisberar kvennaknattspymunn-
ar á næstu árum og sumar þeirra
hafa þegar stigið sín fyrstu skref í
1. deildinni.
Sigur Blika var sannfærandi,
UBK hafði jafnara liði á að skipa
og sóknarleikur þeirra var beittari.
Þrátt fyrir tapið geta Skagastúlkur
borið höfuðið hátt. Þær byijuðu
betur og þó þær áttu oft í vök að
veijast fengu þær ágæt færi til að
komast inn í leikinn að nýju.
KR meistari 3. flokks
KR-stúlkur urðu meistarar þriðja
flokks en úrslitakeppnin fór fram á
Valsvellinum fyrir tíu dogum. KR-
stúlkumar sigruðú KA í opnum og
skemmtilegum úrslitaleik 3:1 en
Valsstúlkur sigruðu í keppni B-liða.
Leikur liðanna var jafn í fyrstu.
Akranesstúlkurnar sóttu
meira í fyrri hálfleik og skoruðu
■■■■■■ fyrsta markið á 31.
jón mínútu og var Her-
Gunnlaugsson dís Guðmundsdóttir
skrifar frá þar að verki með
Akranesi skoti af stuttu færi.
í síðari hálfleiknum fóru Breiða-
bliksstúlkumar að bíta meira frá
sér og þær jöfnuðu á 60. mínútu
með marki Söndru Karlsdóttir.
Bæði lið gátu síðan gert út um leik-
inn í hefðbundnum leiktíma þó und-
irtökin hafí verið Blika.
Hildur Ólafsdóttir skoraði
snemma í framlengingunni fyrir
Blika með glæsilegu skoti af löngu
færi. Í síðari hluta framlengingar-
innar bættu Blikar fljótlega við
þriðja markinu og var Katrín Jóns-
dóttir þar að verki en. Skagastúlkur
voru óheppnar að skora ekki mark
skömmu áður þegar þær áttu skot
í stöng. Síðustu mínúturnar skipt-
ust liðin á að sækja og bæði liðin
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Breiðabliksliðið sem varð íslandsmeistari í öðrum flokki kvenna.
ÚRSLIT
2. flokkur kvenna
Úrslitakeppni.
A-riðiil:
UBK-UMFA........................ 7:0
KS-UBK............................0:9
B-riðill:
ÍA - Haukar.......................2:0
ÍBA - ÍA ........................0:3
Haukar-ÍBA.......................1:1
Leikir um sæti:
1-2. UBK - Akranes...............4:1
3-4. UMFA - Haukar...............4:3
5-6. ÍBA-KS......................2:0
■Keppnin fór fram á Akranesi um síðustu
helgi.
3. flokkur karla
Úrslitakeppni.
A-Riðill:
KA-Austri..............................5:1
Selfoss - Austri.......................6:1
Selfoss - KA..............................
B-riðill
FH - KR................................0:4
Grótta-FH..............................2:4
KR - Grótta............................4:2
Úrslitaleikur um sæti í úrslitaleik:
KR-KA................................ 2:0
■Fram vann sér rétt til að leika í úrslita-
leikinn með því að sigra í A-riðli og liðið
mætir KR bæði í úrslitum íslandsmótsins
og bikarsins. Úrslitaleikur íslandsmótsins
fer fram næsta sunnudag og bikarúrslitin
annan sunnudag.
3. flokkur kvenna A
Úrslitakeppni.
A-Riðill:
KR-ÍA..............................4:1
Sindri- ÍA.........................1:5
KR-Sindri..........................8:1
B-Riðiil:
UMFG-Valur.........................1:5
ValurKA............................2:3
KA-UMFG............................3:3
Leikir um sæti:
1.-2. KR-KA........................3:1
3-4. Valur- ÍA.....................3:2
5-6. UMFG - Sindri.................3:2
3. flokkur kvenna B
A-riðill:
ÍA - Fjölnir............................3:1
Fjölnir - Fylkir........................4:3
Fylkir-ÍA...............................0:8
Briðill:
UBK - Þór 2:5
Þór-UBK 3:1
Leikir um sæti:
3:0
3-4. Þór- Fjölnir 2:0
5-6. UBK - Fylkir 3:0
■Leikið var á Valsvellinum og lauk keppn-
inni 21. ágúst.
4. flokkur karla
Úrslitakeppni.
Riðlar 1. og 2:
ÍBK-Fram..........................5:3
KR-UMFA...........................2:1
ÍBK-HK............................4:0
UBK-KR............................3:1
Fram - HK.........................3:0
UMFA-UBK..........................0:3
4-liða úrslit:
iBK-KR............................5:2
Fram-UBK........................ 7:6
Úrslitaleikur riðla:
ÍBK - Fram...................... 4:0
■Riðlar 1. og 2. voru í umsjá ÍBK.
Riðlar 3. og 4.:
ÞórAk. - Fylkir...................4:0
Þróttur R.-KA.....................1:2
Þór - Þróttur N................ 15:0
Þróttur R. - Austri...............7:0
Fylkir - Þróttur..............:....5:0
KA - Austri.......................8:0
4-liða úrslit:
Þór Ak. - Þróttur........,.........5:2
Fylkir-KA.....................F. vann
Úrslitaleikur:
Fylkir-ÞórAk......................3:1
■Riðlar 3. og 4. voru í umsjá Fylkis.
Úrslitaleikur íslandsmóts:
ÍBK - Fylkir......................6:3
■Leikið á Valbjarnarvelli í Laugardal.
5. flokkur karla:
íirslitakeppni.
Riðlar 1. og 2.:
Fremri úrslit eru hjá A-liðum, aftari hjá B-lið-
um.
Fjölnir-ÍBK......................1:1 / 2:1
Fylkir-FH........................2:0 / 4:0
Fjölnir - Þór V..................3:0 / 3:2
Fylkir - Haukar..................1:1 / 7:0
ÍBK-ÞórV.........................3:1 / 0:1
FH-Haukar........................6:0 / 1:1
Undanúrslit:
Fjölnir - FH.....................3:1 / 1:2
ÍBK - Fylkir.....................2:1 /1:1
Úrslitaleikur:
Fjölnir- ÍBK.....................2:2 / 2:1
■Riðlar 1. og 2. voru leiknir í Keflavík.
Riðlar 3. og 4.
Þór-Fram.........................1:5 / 0:3
KR-KA............................5:2 /10:1
Þór-Austrí.......................2:2 / 3:1
KR-Huginn........................5:1 /12:1
Fram-Austri......................8:0 /5:0
KA-Huginn........................6:2 / 7:2
Undanúrslit:
Fram-KA..........................7:2 / 2:1
Þór-KR...........................1:2 / 0:4
Úrslitaleikur riðla 3. og 4.:
Fram-KR..........................1:0 / 1:1
■Riðlarnir voru í umsjón Austra og leikið 'á
Eskifirði.
Úrslitaleikur íslandsmóts:
Fjölnir-Fram.....................1:1 / 4:3