Morgunblaðið - 30.08.1994, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Júlíus
FRÁ slysstað við Lindarsmára í Kópavogi í gær.
Þingflokkarnir fjölluðu um drög að fjárlagafrumvarpinu
Hærri skólagjöld
mæta andstöðu
ÞINGFLOKKAR ríkisstjórnarflokkanna fjölluðu um útgjaldahlið fjárlaga-
frumvarpsins á fundum í gær og fengu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
umboð þingflokksins til að ganga frá útgjaldahlið frumvarpsins á ríkis-
stjómarfundi í dag. Á þingflokksfundi Alþýðuflokksins voru menn bæri-
lega sáttir við frumvarpsdrögin þegar á heildina er litið en gerðar voru
athugasemdir við einstaka þætti þess. Gert er ráð fyrir að fjarlagahall-
inn verði innan við níu milljarðar króna á næsta ári.
A
Rauði kross Islands
A
Uttekt á lögum um
stöðu flóttamanna
RAUÐI kross íslands er að láta
gera úttekt á íslenskum lögum og
reglum, samþykktum og alþjóða-
samningum, sem íslendingar hafa
gerst aðilar að, um stöðu flótta-
manna á íslandi. Úttektin er unnin
af nemendum lagadeildar HI undir
stjórn dr. Magnúar K. Hannessonar
og á að liggja fyrir í byijun næsta
mánaðar.
Kristján Sturluson, skrifstofu-
stjóri innanlandsdeildar Rauða kross
íslands, segir að ekki sé verið að
gera úttekt á stöðu fióttamanna hér
á landi, enda viti starfsmenn Rauða
krossins talsvert um hana, heldur á
öllum lögum og reglum, samþykkt-
um og alþjóðasamningum, sem ís-
lendingar hafi gerst aðilar að og
varða stöðu flóttamanna.
Að sögn Kristjáns er úttektin
gerð að beiðni flóttamannanefndar
RKÍ. Hún verður lögð fyrir nefndina
sem mun taka afstöðu til þess
hvemig hún verður notuð. Finnist
glufur í lögum eða gallar gerir Krist-
ján ráð fyrir áð þrýst verði á stjórn-
völd að lagfæra slíkt.
{frumvarpsdrögunum var meðal
annars að finna hugmyndir um
hækkun skólagjalda í framhalds-
skólum og á háskólastigi um sam-
tals 150 milljónir króna, um 110
milljónir í framhaldsskólunum og
um 40 milljónir á háskólastigi.
Þessar hugmyndir mættu mikilli
andstöðu í þingflokkunum, en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefðu þær geta þýtt að skólagöld
í framhaldsskólum hækkuðu úr að
meðaltali um 3.500 krónum í allt
að tíu þúsund krónur á ári. Þá
mættu hugmyndir um eignateng-
ingu bóta Tryggingastofnunar
einnig mikilli andstöðu á þing-
flokksfundi Sjálfstæðisflokksins,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Tilvísanakerfið skoðað
Samkvæmt frumvapsdrögunum
er gert ráð fyrir hagræðingu á
ýmsum sviðum til að ná fram
spamaði og að gætt verði ýtrasta
sparnaðar á öllum sviðum. Fram-
kvæmdum verður frestað þar sem
það er mögulegt. í heilbrigðisráðu-
neytinu verður farið yfir tilvísana-
kerfið og reynt að ná fram spam-
aði á sérfræðingakostnaði.
Alvarlegt
vinnuslys
TVÍTUGUR maður hlaut alvarlega
höfuðáverka í vinnuslysi í Kópavogi
síðdegis í gær. Hann var fluttur á
gjörgæsludeild Borgarspítalans og
lá þar þungt haldinn í gærkvöldi.
Maðurinn var að vinna á vinnupalli
við nýbyggingu við Lindasmára 41
þegar pallurinn féll og maðurinn
með honum. Samkvæmt upplýsing-
um frá Vinnueftirliti ríkisins féll
maðurinn, sem var með hjálm, tæpa
þijá metra. Hann var meðvitundar-
laus þegar að var komið. Vinnueft-
iriitið rannsakar nú tildrög slyssins.
--------♦ ♦ ♦---
Alþýðubandalagið
Verkalýðs-
mennvilja
stofna félag
NOKKRIR alþýðubandalagsmenn
innan verkalýðshreyfingarinnar
hafa, ásamt fleiri félögum í flokkn-
um, ræðst við að undanförnu um
stofnun nýs stjórnmálafélags innan
Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
Ef af stofnun félagsins verður
mun það sækja um aðild að kjör-
dæmisráði flokksins í Reykjavík til
♦að hafa áhrif á hvernig staðið verð-
ur að framboðsmálum í borginni
fyrir komandi alþingiskosningar,
skv. heimildum Morgunblaðsins.
Þeir sem unnið hafa að undirbún-
ingnum eru sagðir þreyttir á væring-
um milli ABR og Birtingar. Viðmæl-
andi úr þeirra röðum sagði undirbún-
inginn á byijunarreit og óvíst hvort
- af stofnun yrði.
Aðmíráls-
fiðrildi í
Eyjum
TVÖ aðmírálsfiðrildi hafa
fundist í Vestmannaeyjum. Þau
hafa 5-6 sentimetra vænghaf
og eru mjög litfögur. Að sögn
Kristjáns Egilssonar, forstöðu-
manns Náttúrugripasafns Vest-
mannaeyja, eru aðmírálsfiðrildi
nokkuð algengir flækingar og
mikil flökkufiðrildi og man
hann eftir þeim i Vestmanna-
eyjum áður. Mest af þeim mun
hafa komið árið 1947 og þá var
talið að þau hefðu borist alla
leið frá Marokkó eða Spáni.
Kristján segir að frá Norður-
Afríku leggi urmull af stað á
hverju sumri ogfljúgi norður
Morgunblaðið/Sigurgeir
um alla Evrópu og út á Atlants-
haf. Þar setjast þau á skip og
koma hingað eða berast með
hlýjum vindum. Kristján segir
að þegar vart verði við aðmír-
álsfiðrildi sé hugsanlegt að ein-
hver fjöldi hafi boristtil lands-
ins en mest verði þó vart við
þau eitt og eitt. Kristján segir
að fiðrildinmuni ekki lifa nema
nokkra daga hér og aðeins
meðan hlýtt er. Um Ieið og
kólni drepist þau. Stelpurnar
sem náðu fiðrildinu í gær heita
(f.v.): Guðný Gunnlaugsdóttir,
Guðlaug Arnþrúður Guðmunds-
dóttir og Erla Ásmundsdóttir.
Vatnsflaumur í V estfjarðagöngum
350 miUjóna
aukakostnaður
VEGAGERÐ ríkisins hefur sótt um 350 milljóna króna aukafjárveit-
ingu vegna kostnaðarauka við Vestfjarðagöng á þessu og síðasta
ári. Að sögn Björns Harðarsonar, staðarverkfræðings Vegagerðar rík-
isins, er kostnaðurinn að langmestu leyti til kominn vegna vatnsflaums-
ins í göngunum og tafanna sem hafa orðið á verkinu vegna hans.
Að sögn Jóns Rögnvaldssonar,
aðstoðarvegamálastjóra, hafa
framkvæmdir við Vestfjarðagöng
staðist áætlanir mjög vel. Unnið sé
eftir tveggja ára gamalli vegaáætl-
un og þegar hún hafi verið gerð
hafi hið mikla vatnsrennsli í
göngunum ekki verið komið til. Það
hafi komið upp á miðju síðasta ári
og síðan sé ljóst að kostnaðarauki
vegna þess verði um 350 milljónir
króna. „Þetta hefur að öðru leyti
staðist mjög vel áætlanir en það
má gera ráð fyrir því að þetta vatns-
rennsli geri það að verkum að heild-
arkostnaðurinn verði 10-15% hærri
en gert var ráð fyrir í upphafi sem
þýðir að heildarkostnaður við göng-
in getur orðið 3,9 milljarðar,“ segir
Jón.
Bjöm Harðarson segir að alltaf
hafi verið gert ráð fyrir ákveðnu
frárennsliskerfi í öll göngin fyrir
grunnvatn en þetta vatnsmagn kalli
á alveg sérstaka lögn frá þeim stað
þar sem mesta vatnið kemur inn,
hjá fossinum svokallaða, og út úr
göngunum sem eru um þrír kíló-
metrar. Þriðja lögnin er svo neyslu-
vatnslögn fyrir ísafjarðarbæ en
bærinn greiðir að mestu kostnað
við hana, að sögn Bjöms.
Lánþegum
LÍN fer
fjölgandi
FLEIRI hafa þegið lán hjá
Lánasjóði íslenskra náms-
manna námsárið 1993-94 en
árið á undan en lánþegum
sjóðsins fækkaði jafnt og þétt
árin 1990—93. Samkvæmt út-
reikningum Gunnars Karlsson-
ar hjá LÍN voru lánþegar 3.937
á námsárinu 1993-94 saman-
borið við 3.639 á sama tíma í
fyrra. 2.123 þeirra leggja stund
á nám við Háskóla Islands en
1.814 sækja skóla erlendis.
5.314 námsmenn fengu
greiðslu úr sjóðnum námsárið
1990-91.
Að sögn Gunnars hefur nú
verið skráð hjá sjóðnum 6.421
umsókn en þær voru 6.179 á
sama tíma í fyrra. Árið 1992
höfðu 4.624 umsóknir verið
skráðar á þessum tíma árs.