Morgunblaðið - 10.12.1994, Blaðsíða 1
01T0tttlMftfrÍfr
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
B
BLAÐ
BÓKASAMBAND íslands genst
þessa dagana fyrir sérstöku
átaki fyrir íslenskum bókum í
desember. Tilgangur átaksins
er sá að vekja og viðhalda al-
mennum áhuga á bókum, ekki
síst vegna uppeldislegs gildis.
sömuleiðis er tilgangurinn sá að
draga athygli fólks að allri þeirri
blómlegu starfsemi sem býr að
Bók er góð
baki bókagerð í landinu. Bækur
eiga í sívaxandi samkeppni við
aðra miðla eins og sjónvarp,
myndband, tímarit og tölvur.
Dagana 3. til 23. desember
stendur Bókasamband íslands
fyrir bókakynningu í Geysishús-
inu og veggspjöld hafa verið
send í skóla og bókasöfn. Auk
þess lesa rithöfundar upp í
Geysishúsinu meðan á átakinu
stendur.
ítarlega umfjöllun um átak
Bókasambandsins er i blaðinu í
dag, þar sem rithöfundar og
útgefendur (já sig um það.
Bandalag íslenskra
listamanna ályktar
AÐALFUNDUR Bandalags ís-
lenskra listamanna sem haldinn
var nýlega samþykkti eftirfarandi
ályktanir:
Fundurinn harmar þær þreng-
ingar sem kvikmyndagerð í land-
inu hefur þurft að þola aö undan-
förnii og lítur alvariegum augum
fyrirhugaðan niðurskurð á lög-
bundnum framlögum tii Kvik-
myndasjóðs íslands, sem og úr-
ræðaleysi menntamálaráðherra í
málefnum Menningarsjóðs út-
varpsstöðva. Aðalfundurinn hvet-
ur menntamálaráðherra tii að taka
stefnu sína í málefnum fslenskrar
kvikmynda- og sjóvnarpsdag-
skrárgerðar til gagngerrar endur-
skoðunar, og skorar á hann að
falla frá fyrirhuguðum niðurskurði
til Kvikmyndasjóðs og sjá til þess
að Menningarsjóður útvarpsstöðva
starfi með eðlilegum hætti og geti
sinnt hlutverki sínu.
Fundurinn lýsir undrun sinni
yfir þeirri ákvörðun menntamáia-
ráðherra að fella niður lögbundið
framlag tii Listskreytingasjóðs
ríkisins á næsta ári. Undanfarin
ár hefur framlag til sjóðsins ávallt
verið skert og var á sfðasta ári
aðeins tólf milljónir, en átti sam-
kvæmt lögum að vera þrjátíu og
sex milljónir.
Listskreytingasjóður ríkisins er
sá eini sem styrkir kaup á mynd-
listarverkum til uppsetningar á
opinberum stöðum um allt land. Á
undanförnum árum hefur sjóður-
inn verið í stöðugri þróun og hefur
stjómin lagt mikla áherslu á fag-
leg vinnubrögð. Aðalfundur
Bandalags íslenskra listamanna
skorar á menntamálaráðherra að
hann beiti sér heilshugar fyrir því
að staðið verði við lögbundnar
skuldbindingar gagnvart sjóðnum.
Fundurinn minnir en ná þá bar-
áttu sem það hefur háð gegn
álagningu virðisaukaskatts á bæk-
ur og alvarlegum afleiðingum
þeirrar skattlagningar frá því að
hún var tekin upp. Þann tfma sem
síðan er liðinn þykir þeim sem til
þekkja hafa ásannast að þess kon-
ar skattlagning menningarstarf-
semi sé engum tii gagns, en öilum
tii' óþurftar þegar grannt er skoð-
að.
Baráttan gegn virðisaukaskatti
á bækur hefur hingað til verið háð
fyrir daufum eyrum stjómvalda.
Wí áréttar Bandalag íslenskra
listamanna ályktun sína um sama
efni frá síðasta aðalfundi og skor-
ar enn á stjórnvöld að afnema
fyrrgreindan skatt áður en verra
hlýst af.
Fundurinn skorar á stjórn Þjóð-
leikhússins að setja listdans aftur
á verkefnaskrá sína i áskrift og
sinna þannig menningarlegum
skyldum sínum við listdansinn.
Fundurinn hvetur yfirvöld
menntamála til þess að endur-
skoða þátt menningarlegs uppeldis
innan skólakerfisins. Með því að
treysta grunninn, t.d. með kennslu
f menningar- og listasögu, eflist
með nemendum skilningur á mikil-
vægi menningarlegra og listrænna
gilda.
SAMTÖKIN um tónlistarhús
halda tónleika í Kaplakrika á
sunnudagskvöldið kl. 20.00.
Þórhallur Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, sagði
að þessir tónleikar væru einstakur
tónlistarviðburður. Fram koma níu
tenórar ásamt Sinfóníuhljómsveit
íslands og gefa allir listamennirnir
vinnu sína.
Á efnisskránni eru verk eftir
Handel, Weber, Giordano, Verdi,
Sigfús Einarsson, Lalo, og Adams.
í lokin verður flutt verk tengt
jólunum.
Tenórarnir níu eru: Guðbjörn
Guðbjörnsson, Gunnar Guðbjörns-
son, Jóhann Már Jóhannsson, Jón
Þorsteinsson, Kári Friðriksson,
Kolbeinn Ketilsson, Ólafur Árni
Bjarnason, Óskar Pétursson og
Þorgeir Andrésson.
Þess má geta að þeir Guðbjörn,
Gunnar, Kolbeinn og Ólafur Árni
koma sérstaklega til landsins til
þess að syngja á þessum tónleik-
um.
„Tónleikarnir eru liður í söfnun-
arátaki,“ segir Þórhallur. „Við
bjóðum okkar styrktarfélögum á
tónleikana. Það er enginn að-
gangseyrir að tónleikunum en öll-
TENQRAR FYRIR TÖNLISTARHÖS
Einstakur tónlistarviðburður
þegar níu tenórar og Sinfóníu-
hljómsveit Islands koma fram á
styrktartónleikum í Kaplakrika
á sunnudagskvöldið og gefa all-
ir listamennimir vinnu sína.
————————------------------------- Guóbjörn
Guóbjörntson
Gunnor Jóhann Mór
Guóbjörnston Jóhannsson
Jón
Þorsteinsson
Kóri
Frióriksson
Kolbeinn Ólafur Árni
Ketilsson Bjarnason
Óskar Þorgeir
Pétursson Andrésson.
um er boðið að gerast styrktarfé-
lagar, meðan húsrúm leyfir. Til
þess að gerast styrktarfélagi má
hringja í síma 629277 eða 629169
og kostar það 3.000 krónur á ári.
Einnig má skrá sig í Kaplakrika
fyrir tónleikana og verður húsið
opnað kl. 19.00.
I ár erum við að byggja upp
nýtt styrktarfélagaátak. Það má
segja að styrktarfélagarnir, ásamt
tónlistarfólkinu, sem gefið hefur
vinnu sína, hafi haldið lífi í þessum
samtökum. Einnig höfum við
ákveðið að standa árlega fyrir sér-
stakri uppákomu til örvunar og til
að rækta sambandið við félagana
og veita þeim þannig umbun fyrir
sinn ómetanlega stuðning.
I dag eru í gangi viðræður við
samgönguráðuneytið og Reykja-
víkurborg og til 'stendur að skipa
nefnd vegna hugmyndar sem fram
er komin um sameiginlega bygg-
ingu tónlistar- og ráðstefnuhallar.
Þetta er lítið land og því skynsam-
legt að sameina og hagræða. Þetta
dæmi gæti vel gengið upp og hafa
hlutaðeigandi sýnt þessu mikinn
áhuga.“
S.A.