Morgunblaðið - 10.12.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.12.1994, Blaðsíða 14
14 B LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Meiri hag- kvæmni brýn Þegar rithöfundur hefur lokið við að skrifa handrit sitt, útgefand- inn hefur ásamt bókmenntafræð- ingum farið yfír það og ákvörðun verið tekin um að gefa það út, kemur til kasta prentsmiðjunnar. Utgefandinn leitar þar eftir til- boðum í prentun bókar. Prent- smiðjan Oddi er stór í sniðum á íslenskum prentmarkaði. Guð- rún Guðlaugsdóttir spurði Þor- geir Baldursson forstjóra Odda um hans álit á stöðu bókafram- leiðslu á íslandi í dag. IDAG snýst málið um að ná fram meiri hag- kvæmni í framleiðslu bóka með því að skipu- leggja betur og ná meiri nýtingu á þeim tækj- um sem við erum með fyrir bókaframleiðslu," sagði Þorgeir. „Sumar þeirra véla, einkum í bókbandi, eru sérhæfðar og geta ekki notast í neitt annað, það er því mikilvægt að nýta þær jafnt og þétt. Hins vegar er það svo að lang- mestur hluti bóka er unninn síðustu mánuði ársins. Þetta er vandamál sem búið er að glíma við í mörg ár. Á sama tíma erum við að keppa við erlend fyrirtæki sem eru sérhæfð í bóka- framleiðslu og framleiða bækúr alla daga árs- ins. Það er ljóst að við náum ekki þeirri nýt- Gðð sóknarfæri Mál og menning er nú um stund- ir eitt fyrirferðarmesta útgáfu- fyrirtæki íslands. Halldór Guð- mundsson útgáfustjóra Máls og menningar ræðir um bókaút- gáfu, þýðingar o.fl. UNNIÐ hefur verið að því jafnt og þétt í mörg ár að lækka bókaverð, enda hefur það verið nánast óbreytt í langan tíma. Bóka- verð hér er svipað og gerist á öðrum Norðurlönd- um. Bækur í Danmörku eru t.d. jafn dýrar og hér, en þær eru ekki eins vandaðar og hér ger- ist. Tölvuvinnslan hefur breytt miklu. Nú göngum við hér t.d. alveg frá okkar bókum fram að fílmum, þær eru keyrðar út beint á fílmur og eru bæði brotnar um í tölvum og þeim er líka „skotið út“ sem kallað er - raðað á arkir - í tölvum. Eitt er þetta, hitt er það að það væri skynsamlegt fyrir íslenskar prentsmiðjur að bjóða mismunandi gæði í bókaframleiðslu. Bjóða Morgunblaðið/Þorkell GÖMUL prófarkarpressa á sýningunni i Geysishúsinu ingu sem þeim tekst, markaðurinn hér er einfaldlega ekki nógu stór. Við yrðum þá að sækja verkefni erlendis frá og það höfum við verið að þreifa okkur áfram í. Við höfum náð þar nokkrum árangri, einkum í Bandaríkjunum. Hér heima verð- um við að skipuleggja okkur betur og raunar hefur þar orðið nokkur breyting til batnaðar, svo sem með samruna fyrirtækja. Ég held að brýnt sé að innanlands komist betra skipulag á framleiðslumál í prent- iðnaði, það verður okkar helsta glíma í framtíðinni og er orðin það nú þegar.“ Hvað með skattlagningu á bóka- framleiðslu? „Það er staðreynd að bókin í þessu litla málsamfélagi hér á mjög erfitt uppdráttar og öll íþynging eins og t.d. virðisaukaskatturinn, kemur sem högg á mjög veika starfsemi. Það er ekki nokkur vafí á að virðisaukaskatturinn hefur haft mjög alvarlegar afleiðingar í þessum iðnaði, en hann var að vísu veikur fyrir. Þetta hefur haft þær afleiðing- ar að nokkur útgáfufyrirtæki hafa lagt upp laupana og önnur eru í miklum fjárhagsörðug- leikum, það er þekkt og vitað. Svo eru aftur önnur fyrirtæki sem hafa náð að gera það gott þrátt fyrir þetta, þannig að það er greini- lega fleira sem spilar þama inn. Kaupmáttur fólks hefur rýmað undanfarið og við sjáum á bókabúðum sem við eram tengd- ir hvemig fólk hefur jafnt og þétt minnkað við sig bókakaup. Nú er uggur í mönnum af því að íslenskar bækur era nokkuð dýrar. Það er tiltölulega dýrt að gefa út bækur fyrir svona lítinn markað eins og sá íslenski er, þetta veldur hærra bókaverði. Auðvitað væri hægt að fara þá leið að leggja minna í frá- gang bóka. Stöðugt er verið að vinna í að ná niður framleiðslu- kostnaði með því að ná meiri hag- kvæmni og gera hagstæðari inn- kaup, bæði hér á landi og erlendis. Samt er bókaverð það sem það er. Menn tala um kiljuform í þessu sambandi. Það munar einhverjum tugum króna á því hvort bók er innbundin eða ekki, það gerbreytir ekki öllu. Fólk hér gefur frekar innbundna bók í jólagöf en kaupir sér aftur á móti kiljur. Bókaútgáf- an byggir hins vegar á jólamarkað- inum að töluverðu leyti, þess vegna era flestar bækur innbundnar. Kostnaður á útgáfu á bók er settur saman úr mörgum lið- um. Allt frá greiðslu til rithöfundar eða þýð- anda, framleiðslukostnaður við prentun og frá- gang, kostnaður útgefanda við auglýsingar og dreifingu, álagningu bókaverslana og svo virðis- aukaskattsins, sem er 14 prósent. Verðlagning bókar er svo á endanum mál útgefanda. í titlafjölda er yfír 20 prósent samdráttur í útgáfu núna og mun minna um útgáfu á stór- um og metnaðarfullum verkum. Menn hætta sér ekki út í stór og dýr verk um þessar mund- ir og það er visst áhyggjuefni, ekki síst fyrir prentiðnaðinn í landinu. Þær ráðstafanir sem menn gera til andsvara núna miða allar að því að ná fram hagkvæmni í framleiðslu og þá fyrst og fremst betri nýtingu tækja.“ Þorgeir Baldwrsson annars vegar þau gæði sem við eram vön hér heima og viljum helst hafa á jólagjafabókunum - inn- bundnar í frekar góðu bókbands- efni, með kjölkraga saumaðan á góðan pappír og litmyndakápu. Hins vegar einum „klassa" neðdr, inn- bundnar bækur en kjölskornar og límdar í kjöi, á aðeins ódýrari papp- ír í aðeins ódýrari bókbandsefni. Þarna ætti að geta munað talsverðu á verði. Eitt er þó í þessu, til þess þurfa bæði prentsmiðjur og útgef- endur að koma sér upp skynsam- legri vinnubrögðum en tíðkast hafa. Menn verða að vera fyrr í þvi og vinna hlutina svolítið á undan sér. Hins vegar veitir ekki af að gefa prentsmiðjum hér aðhald með því að leita tilboða utanlands frá, og margir láta prenta erlendis. Loks má nefna þriðju tegund frágangs á bókum, sem er kiljuprentun - prentun á dagblaðavélar á miklu ódýrari papp- ír, kjölskorið og í kartoni. Þarna hafa íslenskar prentsmiðjur alls ekki verið samkeppnishæfar í verði miðað við það sem gerist erlendis. Að end- ingu má nefna einn möguleika enn, bækur á tölvudiskum og á geisladiskum. Sjálfar textabækunar verða þó ábyggilega í bókarformi af því að það er auðveldast, að lesa þær þannig. Fólk les ekki venjulegar skáldsögur á skjá, það er svo þreytandi. Öðru máli gegnir um uppfletti- rit svo sem alfræðiefni og svo kennsluefni. Á Vesturlöndum gera menn ráð fyrir að slík út- gáfa geti orðið um 15 prósent af heildarútgáfu. Prentverk og bókaútgáfa hafa vaxið og munu halda áfram að vaxa jafnt og þétt. Til þess kem- ur margt. Þetta helgast ekki af aukinni bók- menntaútgáfu heldur miklu frekar því að nú orðið er svo margt prentað, svo sem skýrslur af ýmsu tagi í kringum stjórnsýslu og alls kyns efni tengt fyrirtækjum og menntakerfí. Það er til eitthvað í mannskepnunni sem kalla má þörf fyrir sögur. Sú þörf hefur ekki minnkað, hluta af henni er fullnægt af myndmiðlum nú orðið. En það er engin þörf á að setja það upp sem einhveija skelfíngu fyrir þá sem semja sögur. Rithöfundar munu áfram semja sögur sem sum- ar verða notaðar í myndmiðlum, en það kemur að mínu viti ekkert í staðinn fyrir góða bók. Staóa bókmenntanna Staða bókmenntanna er ennþá sú hér á landi að það furðu mikið keypt og lesið af fagurbókmenntum. Upplög og dreifing á íslenskum bókmenntum er ótrúlega mikil. Hins vegar ættu menn að gera meira af því að reyna að koma íslenskum bókmenntum á framfæri erlendis. Það er þó miklu meira gert af því en var t.d. fyrir tíu árum. Þá kom tæpast út íslensk skáld- saga á Norðurlöndum. Núna má reikna með að út komi fimm til sex íslenskar skáldsögur í Sví- þjóð og Danmörku þegar vel lætur til að mynda. Þetta kemur til m.a. af meiri áhuga á íslenskri sagnagerð og svo Norðurlandasamvinnu í þýð- ingum. Þessi áhugi hefur líka smitað yfir til Þýskalands og Frakklands, en hinn enskumæl- andi heimur er hins vegar lokaður með sárafáum undantekningum. Hann er ekki bara lokaður fyrir íslenskum bókmenntum, þar er mjög lítið þýtt af erlendum bókmenntum yfírleitt. I Evrópu era góð sóknarfæri sem við höfum alls ekki nýtt okkur sem skyldi. Á Norðurlöndum starfa skrifstofur sem vinna að útflutningi hugverka, það þyrftum við að gera hér, hafa einhvern aðila sem hægt sé að snúa sér til í þessu skyni. Nú er rætt um að Norðurlönd verði í miðpunkti bókamessunnar í Frankfurt 1997, þá skapast lag fyrir okkur, það er mikill áhugi á íslenskum bókmenntum í Þýskalandi og þar er gríðarlega stór markaður." Halldór Gwómwndsson MENNING/LISTIR NÆSTU VIKU MYIMDLIST Asmundarsafn Samsýn. á verkum Ásmundar Sveinss. og Kristins E. Hrafnss. til áramóta. Kjarvalsstaðir Erró sýnir til 18. des. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar íslandsm. og súlur Siguijóns til áramóta. hjóðminjasafn íslands Leiðin til lýðveldis, sögusýning. Hafnarborg Ljósmyndas. í Sverrissal til 23. des. og sýn. á ísl. hreyfímyndal. til 23. des. Norræna húsið Sigurður Einarsson sýnir til 18. des. Gallerí Fold Sara Vilbergsd. sýnir. Gallerí Greip Myndskr. Halldórs Baldurss. til 23. des. Byggðasafn Hafnarfjarðar „Hafíiarfjörður fyrr og nú“ til 23. des. Galleri Sólon Islandus Jón Axel sýnir til 27. des. Þagnarmúr Rósu Ingólfsd. til 18. des. Gallerí Samurai Haukur Halldórsson sýnir til 11. des. Gallerí Úmbra Smámyndir Eddu Jónsd. tíl 16. des. Gallerí Sævars Karls Katrfn Sigurðard. sýnir. Listhúsið Hafnarfirði 14 listamenn sýna út des. Nýlistasafnið Sams. átta myndlistarm. til 11. des. Gallerí Borg Sigurbjöm Jónssons sýnir til 11. des. Listhúsið Laugardal Sjöfn Har. sýnir til 31. des. Kertastjaka- sýning 10 fél. Leirlistarfélagsins. Hallgrímskirkja fkonasýning Kristínar Gunnlaugsd. til 18. des. Listasafn Kópavogs Sýningin Handverk til 18. des. Listmunahús Ófeigs Ljjósm.sýn. Friðriks Hjaitested 31. des. Gallerí Birgis Andréssonar Halldór Ásgeirsson sýnir út jan. Önnur hæð Verk Kristins Péturss. út des. Mokka kaffi Guðbrandur Ægir sýnir út des. TONLIST Laugardagur 10. desember Laufey Sigurðard. fiðlul. og Richard Talkovsky sellól. halda tónl. í gömlu Álafoss-verksmiðjunni kl. 16. Kóra- mót ( Perlunni kl. 14. og 15.30. Jóla- tónl. Tónsk. Sigursveins í Langholts- kirkju kl. 14. Sunnudagur 11. desember Jólatónl. Tónlistarsk. Reykjav. á Kjar- valsstöðum kl. 20.30. Aðventutónl. Söngsv. Fílharmóníu f Kristskirkju kl. 17. Kóramót f Perlunni kl. 14. Kór Tónlistarsk. í Reykjav. syngur v. messu f Dómkirkjunni kl. 11. Ámes- ingakórinn heldur jólatónl. í Digranes- kirkju kl. 20.30. Jólatónl. Tónlistarsk. Borgarfj. í Logalandi kl. 20.30. Skóla- kór Kársness og Sinfóníuhljómsv. áhugamanna flytja aðventutónl. f Gerðarsafni kl. 16.30. Jólatónl. Kammersveitar Reykjav. í Áskirkju kl. 17. Jólatónl. Suzukideildar í Hraunbergi 2 kl. 14. einnig jólatónl. í Norræna húsinu kl. 17. Mánudagur 12. desember Aðventutónl. Söngsv. Fílharmóníu í Kristskirkju kl. 21. Þriðjudagur 13. desember Jóiatónl. Tónlistarsk. Borgarfj. f Borgameskirkju kl. 20.30. Jólabarokk f Listasafni Kóp. kl. 20.30. Miðvikudagur 14. desember Jólatónl. Tónlistarsk. Rangæinga í Laugalandi kl. 21. Jólatóni. Tónlist- arsk. Borgarfj. í Borgarneskirkju kl. 18. Háskólatónl. í Norræna húsinu kl. 12.30; Karlakvintettinn Acapella. Fimmtudagur 15. desember Jólatónl. Tónlistarsk. Rangæinga í Heimalandi kl, 21.________ LEIKLIST Þjóðleikhúsið Dóttir Lúsífers kl. 20.30; lau. 10. des. Vald öriaganna kl. 20; lau. 10. des., Frú Emilía Kirsubeijagarðurinn kl. 20; lau. 10. des., sun. íslenska óperan Hárið lau. 10. des. kl. 24. Möguleikhúsið Tritiltoppur, lau. 10. des. kl. 15., sun. kl. 14 og kl. 16. Kaffileikhúsið Björt og jólasveinafjölskyldan kl. 14. og 16. lau. 10. des. Þá mun engin skuggi vera til fim. 15. des. kl. 21._____________ KVIKMYIMDIR MTR „Sirkus" sun. 11. des. kl. 16. Norræna húsið „Leitin að jólastjömunni" í Norræna húsinu sun. 11. des. kl. 13. Umsjónarmenn listastofnana og sýningarsala! Upplýsingar um listviðburði sem ósk- að er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringl- unni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 91- 691181.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.