Morgunblaðið - 10.12.1994, Qupperneq 8
J
MORGUNBLAÐIÐ
8 B LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
LISTIR
Sýnfyrir
erlendan
markað
HULDA Hákon: Hluti innsetningar. 1992.
MYNPLIST
Listasafn Kðpavogs
— Gerðarsafn
MÁLVERK OG
BLÖNDUÐ TÆKNI
Samsýning. Opið alla daga (nema
mánud.) kl. 12-18 til 18. desember.
Aðgangur ókeypis.
Á ÞESSU afmælisári lýðveldis-
ins hefur verið efnt til kynningar
á íslenskri menningu og listum í
ýmsum löndum, þó ekki hafi alltaf
farið miklar sögur af slíkum fram-
kvæmdum í fjölmiðlum hér heima.
Er það miður, því að erlend við-
brögð óvilhallra (þ.e. annarra en
fastagesta í diplómatamóttökum
hvar sem er í heiminum og blindra
íslandsaðdáenda, sem dásama að
sjálfsögðu allt sem héðan kemur)
gefa alltaf nokkurn fróðleik um
stöðu okkar menningar og sér-
kenni, eins og þau koma öðrum
fyrir sjónir.
Án slíkra upplýsinga er best að
landsmenn fái að sjá þessar kynn-
ingar með eigin augum og dæma
um gildi þeirra. Sýningin sem nú
fyllir efri sali Listasafns Kópavogs
var fyrst sett upp í Barbiean lista-
miðstöðinni í London í vor undir
yfírskriftinni „Visions" (sem hér
hefur verið þýtt ,,Sýn“), og fór
þaðan til New York; sýningin hefur
þannig kynnt íslenska myndlist í
tveimur heimsborgum á þessu af-
mælisári.
Halldór Bjöm Runólfsson list-
fræðingur er sýningarstjóri og valdi
sex listakonur til að gefa erlendum
listunnendum nokkuð yfírlit yfír
hvað íslenskar listakonur hafa ver:
ið að fást við á síðustu árum. í
inngangi sínum í sýningarskrá
bendir Halldór Björn réttilega á,
að leitin að hinu þjóðlega hafí á
síðustu árum vikið fyrir fijálsri leit
listamannsins, því „ ... það er von-
laust að byggja ósvikna list á jafn
fáfengilegum forsendum og
þjóðskrumi".
í kjölfar þessa sé helsta við-
Tónlistar- og
heimsbók-
menntakvöld
á Sóloni
HEIMSBÓKMENNTAKLÚBBUR
Máls og menningar og Sólon ís-
landus efnir til bókmenntakvölds
sunnudagskvöldið 11. desember kl.
21, þar sem lesið verður úr fjórum
úrvalsþýðingum sem eru nýkomnar
út eða væntanlegar á prent.
Bækurnar eru Tvífarinn eftir
rússneska skáldjöfurinn
Dostojevskí, Söngur Salómons eftir
bandarísku skáldkonuna og Nó-
belsskáldið Toni Morrisson og
Krókódílastrætið eftir pólska höf-
undinn Bruno Schulz. Ennfremur
verður lesið úr nýrri og endurskoð-
aðari þýðingu á skáldsögunni Rétt-
arhöldin eftir Franz Kafka, en hún
kemur út í Heimsbókmenntaklúbbi
Máls og menningar á næsta ári.
Á milli lestra mun Martial
Nardeau leika á þverflautu. Dag-
skráin hefst kl. 21. Aðgangur er
ókeypis og öllum opinn.
fangsefni íslenskra listamanna að
„ ... sniðganga allar venjur og
leyfa sér að ráðast beint að vandan-
um, sem mætir flestum einangruð-
um listamönnum. Sá vandi felst í
því að temja sér aðferðir og afstöðu
í samræmi við upplýsingastreymi
nútímans."
Hér eru tiltekin tvö atriði sem
varla geta gengið saman; séu ís-
lenskir listamenn þrátt fyrir allt
einangraðir (sem þeir munu margir
mótmæla), eru þeir væntanlega að
mestu utan þess upplýsingastreym-
is, sem þeir ættu að vinna í sam-
ræmi við. Líklega er réttara, að sá
sem býr við einangrun í nútíma-
þjóðfélagi geri það að eigin vali,
til að fá frið til að rækta eigin
garð fyrir þeirri ofgnótt upplýsinga
og ímynda, sem hellist yfir okkur
úr öllum áttum.
Þær listakonur sem valdar hafa
verið til þátttöku í sýningunni
(Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir,
Hulda Hákon, Inga Þórey Jóhanns-
dóttir, Ráðhildur Ingadóttir, Sól-
veig Aðalsteinsdóttir og Svava
Bjömsdóttir) hafa allar stundað
listnám erlendis og sýnt verk sín
víða um lönd, og allt tal um að list
þeirra spretti úr einangrun landsins
er því óviðeigandi. Þær hafa allar
náð að skapa sér persónulega stíl
og viðfangsefni þeirra byggja jafnt
á möguleikum þess efniviðar, sem
þær hafa kosið sér sem þeirri
myndsýn sem þær leitast við að
túlka.
Allar hafa þessar listakonur ver-
ið með einkasýningar hér á landi
á síðustu tveimur ámm og verk
þeirra hér era því kunnugleg flest-
um listunnendum. í verkunum er
að finna afar ólíka nálgun að lista-
verkinu; Ráðhildur byggir mynd-
irnar „Aðdráttaröfl“ á einfaldri en
yfirvegaðri flatarmálsteikningu, en
Inga Þórey leikur sér á mörkum
málaralistar og höggmyndagerðar
í uppröðun „dropa“ af málverkum.
Svava Björnsdóttir hefur forgengi-
legan pappamassa I æðra veldi, á
meðan Sólveig vinnur með ótínt
rusl, og setur upp í nýtt sam-
BÓKMENNIIR
Barnabók
FJÓSAMÚSIN Á AFMÆLI
eftir Atla Vigfússon. Hólmfríður
Bjartmarsdóttir myndskreytti. Bók-
þing, 1994 — 43 síður.
MYNDBÆKUR fyrir íslensk
börn era fremur fáar og því ánægju-
legar þegar einhver höfundur fær
að búa til bók í fullum litum um
efni sem sótt er í íslenskt umhverfi.
Sagan um ijósamúsina sem held-
ur upp á afmælið sitt er glaðleg
saga um dýr sem búa sig undir að
halda veislu og tína það til sem
hveijum og einum þykir best. Rauð-
ur risaboli bónar bílinn sinn til þess
að hann sé þess verðugur að taka
allar fínu kýrnar með. Fjósamúsin
er stórhuga og býður hestum, kúm,
hænsnum, kindum og músum í af-
mælið og allir era tilbúnir að
skemmta sér. Öll dýrin snyrta sig
hið besta og færa músinni skemmti-
legar afmælisgjafír. Þau eru öll
nafngreind í sögunni svo þarna
kennir margra grasa - eða nafna.
hengi. Guðrún Hrönn býr hinu
hversdagslega nýjan búning, og
Hulda birtir okkur með bros á vör
tilfyndna fjölbreytni einstaklings-
ins í sparifötunum.
Um leið og hér getur að líta
afar persónuleg verk, er sýningin
góður vitnisburður um að íslensk
myndlist nútímans verður til í al-
þjóðlegu samhengi og á fullt erindi
á þann vettvang; erlendir listunn-
endur hafa væntanlega kannast við
efnistökin, um leið og sérstaða
hverrar listakonu hefur verið aug-
ljós.
Sá á kvölina sem á völina, og
er ekki að efa að fleiri listakonur
hefðu sómt sér vel í þessari kynn-
ingu, um leið og breidd hópsins
Myndir Hólmfríðar af dýrunum
eru líflegar og svipbrigðin á dýran-
um mjög skemmtileg. Rauður risa-
boli er býsna eymdarlegur þar sem
hann er að bisa við að bóna bílinn,
hænsnin eru litskrúðug og kinda-
hausamir mildilegir og fagrir.
Hrútahringdansinn er hæfílega
draumkenndur til að geta átt heima
í ævintýrinu og útfærsla lista-
mannsins á því þegar fjallahrútur-
inn og félagar hans láta sig hverfa
er mjög frumleg. Eina myndin sem
mér fínnst ekki hæfa sögunni nógu
vel er myndin af kúnum sem skyndi-
lega eru komnar í háhælaða skó
hefði aukist. Þannig má nefna jafn
ólíkar listakonur og Rúrí, Guðrúnu
Gunnarsdóttur og Steinunni Þórar-
insdóttur sem hafa ekki síður per-
sónulega myndsýn fram að færa
en þær sem valdar voru.
Það er nokkur galli á fram-
kvæmdinni hér, að fæst af því sem
birtist í sýningarskrá er á sýning-
unni sjálfri, og listunnendur hafa
séð mörg verkanna á öðram sýn-
ingum hér á landi nýlega. En þá
ber að hafa í huga að sýningin er
upphaflega miðuð við annan hóp
sýningargesta, og ber að þakka,
að íslenskir sýningargestir fái einn-
ig notið þessa framtaks fyrir er-
lendan markað um síðir.
Eiríkur Þorláksson
og spássera um á afturfótunum
með reigingi.
Sagan um dýrin og veisluna
þeirra er ætluð yngstu lesendunum.
Efnið höfðar til barna 7-14 ára,
bama sem eru annaðhvort á þeim
aldri að lesa þarf fyrir þau eða á
þeim aldri að þau eru aðeins farin
að lesa sjálf. Samt er hér til nokkuð
mikils ætlast af lesendum. Textinn
er of þungur fyrir lítil börn sem eru
að byija að lesa. Mörg orð eru mjög
löng, t.d. „hrútahringdans", „hest-
húsamýsnar", og „kúavamarlitur-
inn“. Því er þetta nefnt hér að vafa-
mál má telja að lítil börn sem eru
að byija lesturinn komist í gegnum
svona texta sjálf. Blaðsíðurnar eru
einnig mjög stórar og mikill texti
á hverri síðu, sem getur virkað frá-
hrindandi. Til þess að saga af þessu
tagi komi nægilega vel til skila
þurfa höfundar að hafa blaðsíðurn-
ar minni - og þá um leið bókina
þykkari - textann einfaldari og
laga orðanotkun að getu ungra les-
enda. Ef sagan er ætluð til upplestr-
ar eingöngu er óþarfi að hafa á
henni svona flennistórt letur.
Sigrún Klara Hannesdóttir
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
Lesið úr
jólabókum
ÞRIÐJA bókadagskrá Listaklúbbs-
ins í desember verður mánudaginn
12. dsember.
Þá verður lesið úr ljóðabókunum
Þijár óðarslóðir eftir Böðvar Guð-
mundsson, Að baki mánans eftir
Ágústínu Jónsdóttur og Rauðhjallar
eftir Baldur Óskarsson. Skáldsög-
unum Draugar í sjöunda himni
bamabók eftir Kristínu Steinsdótt-
ur, Efstu dagar eftir Pétur Gunn-
arsson, Þetta er allt að koma eftir
Hallgrím Helgason, Úr Tundur-
dufli, Erótísk saga, eftir Auði Har-
alds og Villtir svanir eftir Jung
Chang í þýðingu Hjörleifs Svein-
björnssonar og minningabókunum
Brynja og Erlingur fyrir opnum
tjöldum eftir Brynju Benediktsdótt-
ur, Erling Gíslason og Ingu Þóru
Magnúsdóttur og Vor í dal eftir
Friðrik Þór Friðriksson og Árna
Óskarsson.
Einnig syngja Svanhildur Jak-
obsdóttir og Anna Mjöll nokkur lög
af nýútkomnum geisladiski sínum
Litlu bömin leika sér.
Dagskráin hefst kl. 20.30 og er
aðgangur ókeypis.
-----» ♦ ♦---
Sýning á Eitt-
hvað ósagt fell-
ur niður í kvöld
SÝNINGIN á einþáttungnum Eitt-
hvað ósagt eftir Tennesse Williams
sem átti að vera í Kaffíleikhúsinu
í Hlaðvarpanum í kvöld fellur niður
af óviðráðanlegum orsökum.
Allra síðasta sýningin á Eitthvað
ósagt verður föstudaginn 16. des-
ember.
HÖRÐUR við eitt verka sinna.
Málverkasýning
Harðar
Neskaupstað. Morgunblaðið.
UNDÁNFARNA daga hefur staðið
yfír í fundarsal Hótels Egilsbúðar
málverkasýning Harðar Rafnssonar
þar sem hann sýnir 16 málverk,
flest máluð í olíu.
Hörður er 33 ára Norðfirðingur
og stundar nám í myndlistaskóla í
Danmörku.
» ♦ ♦-----
Nýjar bækur
• í Þú misskilur mig fj allar De-
borah Tannen um hvers vegna svo
oft gætir misskilnings þegar kona
og karl ræða saman. Tannen leggur
áherslu á að til þess að kynin geti
umgengist farsællega þurfi bæði í
konan og karlmaðurinn að vera
meðvitandi um að hugsanagangur-
inn og tjáningarmátinn er ekki hinn
sami hjá báðum kynjum.
Höfundurinn, sem er bandarískur
prófessor í málvísindum, byggir bók
sína á eigin rannsóknum og vitnar
auk þess í rannsóknir fjölda ann-
arra fræðimanna á sama sviði.
Útgefandi erAImenna bókafé-
l'dgið.
Bókin er innbundin og er 336
blaðsíður. Prentsmiðjan Oddi hf. sá
umprentun. Verð er kr. 3.390.
Afmæli fjósamúsarinnar
Hólmfriður
Bjartmarsdóttir
Átíi'
Vigfússon