Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
200 vestfirskir kjósendur gefa yfirlýs-
ingu í framhaldi af prófkjöri framsóknar
Þverpólitískur
stuðningur við
Pétur Bjarnason
Eftirspurn eftir ijúpu ekki jafnmikil og undanfarin ár
Morgunblaðið/Kristinn
DAVÍÐ Hanssen, kjötverkandi í Kjöti og
fiski í Mjóddinni, með nokkrar rjúpur.
RÚMLEGA tvö hundruð Vestfirð-
ingar hafa undirritað stuðnings-
yfirlýsingu við Pétur Bjamason
þingmann Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum. Kemur hún í kjölfar
úrslita í prófkjöri flokksins þar
sem Pétur hafnaði í 2. sæti. Alls
hafa 222 Vestfirðingar, úr ölium
flokkum og óháðir, sett nöfn sín
við yfirlýsinguna, sem birt var í
Vestfirska fréttablaðinu í gær.
Margvíslegar áskoranir
Pétur Bjarnason segist hafa
fengið margvíslegar áskoranir frá
stuðningsmönnum sínum, bæði í
þá veru að hann hlíti niðurstöðum
prófkjörsins og að hann fari í sér-
framboð. Segist Pétur munu
hugsa sig um fram yfir helgi og
fyrst geri hann upp við sig hvort
hann taki sæti á listanum áður en
sérframboð komi til greina.
Hannes Friðriksson veitinga-
maður á Bíldudal er einn stuðn-
ingsmanna á listanum. „Við erum
að lýsa yfir stuðningi við Pétur
persónulega, við þekkjum hann af
góðu,“ segir Hannes. Að hans
sögn var upphaflega hugmyndin
sú að fá eitt hundrað manns á list-
ann og leitað til fólks úr öllum
stéttum í flestum byggðakjörnum
á Vestfjörðum og úr sveitum en
fjöldi annarra hafí tekið sig til og
viljað lýsa yfír stuðningi sínum við
Pétur.
Sýnir hlýhug
„Þetta sýnir hlýhug manna til
mín og ég kann vel að meta hann.
Ég hef heyrt mikið frá mínum
stuðningsmönnum og sýnist sitt
hveijum. Margir hafa látið sér
detta í hug að óska eftir því við
Framsóknarflokkinn að birta ann-
an lista því það er ljóst að það er
klofningur í þessum röðum en
þetta er alit í deiglunni fram yfir
helgi,“ segir Pétur Bjarnason.
Rjúpan
kostar um
700 krónur
RJÚPUR eru algengur jólamatur
og margir líta ekki við öðru á
aðfangadagskvöld. Undanfarin ár
hefur verðið á þessum hátíðarmat
verið hátt í 1.000 krónur fyrir
rjúpuna. Nú virðist algengt verð
vera á bilinu 650-750 krónur.
í Nóatúni fengust þau svör, að
eftirspurn eftir tjúpu hefði dreg-
ist saman undanfarin ár, enda
væru viðskiptavinir búnir að fá
nóg af háu verði undanfarinna
ára. Nóatún selur rjúpuna á 745
krónur.
Skyttur vilja svimandi
upphæðir
Hreinn Bjarnason, kaupmaður
í Hagabúðinni, sagði að skyttur
vildu svimandi háar upphæðir
fyrir ijúpuna, en það væri allt of
dýrt að selja hveija rjúpu á 850-
1.000 krónur, þegar hægt væri
t.d. að fá kalkún fyrir rúmar 900
krónur á kílóið. Hreinn átti ekki
ijúpur í gær, en kvaðst búast við
að þegar hann fengi þær yrðu þær
á um 650 krónur.
Árni Ingvarsson hjá Hagkaup-
um sagði rjúpuna þar kosta 689
krónur, en fyrir 50 krónur tii við-
bótar er hægt að fá hana ham-
fletta. Árni tók undir það að salan
hefði dregist saman vegna verð-
lagsins undanfarin ár og sagði að
núna hefðu veiðimenn ætlað að
leika sama leikinn og boðið rjúp-
una á 700 krónur. Verslunin gæti
hins vegar ekki keypt hana á því
verði, því þá yrði útsöluverð allt
of hátt.
I Kjöti og fiski í Mjóddinni er
ijúpan seld á 689 krónur, en Páll
Einarsson verslunarstjóri sagði
veiðimenn reyna að hækka verð-
ið. „Við leitum víða fanga til að
bjóða upp á ijúpu á viðráðanlegu
verði,“ sagði Páll. „Ég hef ekki
orðið var við minnkandi eftir-
spurn, en að visu er þessi ijúpu-
sala okkar að mestu bundin við
sömu kúnnana, sem koma ár eftir
ár. Við reynum að útvega þeim
jólasteikina."
Þórir Dan Bjömsson, prófessor við Thomas Jefferson-háskólann
Valinn í hóp bestu
lækna Bandaríkjanna
DR.MED. Þórir Dan Bjömsson
heiðursprófessor við lyflækninga-
deild Jefferson Medical College
við Thomas Jefferson-háskólann
í Fíladelfíu í Bandaríkjunum hefur
verið valinn í hóp bestu lækna í
Bandaríkjunum. Þessar upplýs-
ingar koma fram í nýjustu útgáfu
bókarinnar „The Best Doctors of
America 1994-1995“, en bók
þessi sem kemur út árlega saman-
stendur af nöfnum valinna lækna
fyrir hinar ýmsu sérgreinar
læknisfræðinnar. Þórir sagði í
samtali við Morgunblaðið að það
þætti mikill heiður að vera valinn
í þennan hóp, en læknar í Banda-
ríkjunum eru tilnefndir í hann af
læknum í sínum eigin sérgreinum.
Þórir Dan Bjömsson lauk
læknisfræðinámi við Læknadeild
Háskóla íslands árið’ 1971. Eftir
læknisstörf á Landspítalanum og
á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
stundaði hann framhaldsnám í
klínískri lyfjafræði við lyflækn-
ingadeildina á Stanford Únivers-
ity Medical Center í Stanford,
Kalifomíu, frá 1974 til 1977.
Árið 1978 var hann ráðinn að-
stoðarprófessor í lyfjafræði og
lyflækningum við Duke Univers-
ity Medical Center í Durham,
Norður-Karólínu, þar sem hann
starfaði til 1986.
Mikill heiður
Frá árinu 1986 hefur Þórir
verið prófessor í iyflækningum
og lyfjafræði og deildarstjóri klín-
ísku lyfjafræðideildarinnar við
iyflækningadeild Jefferson
Medical College of Thomas Jef-
ferson University í Fíladelfíu,
Pennsylvaníu, en árið 1987 varði
hann doktorsritgerð við Lækna-
deild Háskóla Islands. Þrem árum
seinna, eða árið 1990, var honum
veitt heiðursprófessorsstaða við
lyflækningadeildina á Jefferson
Medical College, en staðan kallast
DR. Þórir Dan Björnsson
í rannsóknastofu sinni.
Samuel M.V. Hamilton Family
Professor of Medicine.
Þórir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að bókin yfir bestu
lækna Bandaríkjanna væri aðal-
lega notuð af alls kyns félögum,
stofnunum, spítölum og samtök-
um, og mikill heiður væri fólginn
í því að vera tilgreindur í henni.
Flest allir þeir læknar sem nefnd-
ir væru í bókinni væru starfandi
við háskólaspítala, og því hefðu
háskólasjúkrahús notfært sér
bókina í auglýsingaskyni.
„Þessi bók hefur þannig þó
nokkra þýðingu fyrir spítala,
stofnanir og t.d. félog á borð við
American Heart Association, sem
að sjálfsögðu hefur áhuga á að
vita hveijir séu bestu hjartalækn-
arnir hverju sinni. Oft nota svo
einstaklingar þessa bók til að átta
sig á því hvaða spítalar em lík-
lega bestir á því sviði að fást við
ákveðinn sjúkdóm," sagði hann.
Fátíð staða
Jefferson Medical College er
einn elsti og stærsti læknaskóli í
Bandaríkjunum. Háskólinn var
stofnaður árið 1824 og eru um
220 læknanemar í hveijum ár-
gangi. Gegnum árin hefur fjöldi
þýðingarmikilla framfara í lækn-
isfræði átt sér stað í háskólanum,
t.d. notkun svæfíngarlyfja, upp-
fínning hjarta- og iungnavélar-
innar, uppfínning efnis sem eykur
myndun rauðu blóðfrumanna auk
greiningar afbrigðilegra erfða-
þátta í vissum tegundum bein-
sjúkdóma og hvítblæðis.
Staða heiðursprófessors sem
Þórir gegnir er kostuð af fjöl-
skyldu sem er meðal stærstu eig-
enda Campbell Soup Company,
og er meðal ríkustu fjölskyldna i
Bandaríkjunum. Þórir sagði að
stöður sem þessar væra fremur
fátíðar og því gríðarlegur heiður
að hafa verið boðin þessi staða.
í klínísku lyfjafræðideildinni á
Jefferson starfa um 30 manns
undir stjóm Þóris, og fær deildin
fjölmarga rannsóknarstyrki frá
ýmsum stofnunum og lyfjafyrir-
tækjum, eða 2-3 milljónir dollara
á ári.
Þórir hefur hlotið fjölmargar
viðurkenningar í sérgrein sinni
og hefur hann starfað mikið í
sérfræðingafélögum. Rann-
sóknaáhugamál hans hafa eink-
um varðað grundvallarrannsókn-
ir á sviði blóðsegamyndunar og
verkana ýmissa lyfja sem hindra
blóðsegamyndun, auk almennra
rannsókna á lyfjum í sjúklingum.
Ennfremur stundar hann grund-
vallarrannsóknir á Alzheimer-
sjúkdómi og verkunarmáta nýs
flokks lyfja sem hafa áhrif á
hvernig prótein myndast í
kjarnasýrum. Samtals hefur Þór-
ir birt nærri 200 fræðigreinar,
bókakafla og úrdrætti. Eigin-
kona hans er Erna Jakobsdóttir
og eiga þau einn son, Alexander
Daníel.
Formaður fjárlaganefndar Alþingis
Fjárlagahalli
verður 8-8,5
milljarðar kr.
FORMAÐUR fjárlaganefndar spá-
ir því að fjárlög næsta árs verði
afgreidd með 8-8,5 milljarða króna
halla. Hann segir að fjárlaganefnd
muni fyrir þriðju umræðu um fjár-
lagafrumvarpið leggja fram tillög-
ur um niðurskurð upp á 3-500
milljónir króna. Þá muni endur-
skoðuð tekjuáætlun væntanlega
sýna að tekjur ríkisins aukist
meira á næsta ári vegna aukinnar
veltu í samfélaginu en gert var ráð
fyrir þegar fjárlagaframvarðið var
lagt fram.
Alþingi samþykkti í gær breyt-
ingartillögur meirihluta fjárlaga-
nefndar við fjárlagafrumvarpið, en
þær tillögur þýða aukin útgjöld
upp á 378 milljónir króna. Boðað-
ar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
skattamálum þýða aukin útgjöld
upp á 2 milljarða á næsta ári. Þá
hefur fjárlaganefnd ekki enn af-
greitt mál sem gætu haft aukin
útgjöld í för með sér. Þar eru
stærst málefni sjúkrahúsa í
Reykjavík, landbúnaðarmál og
málefni Háskóla íslands sem bíða
öll þriðju umræðu um fjárlaga-
frumvarpið.
Krafa um forgar.gsröðun
„Það er rétt að efalaust eiga
eftir að koma til einhver aukin
útgjöld en tekjuhlið fjárlaga er
einnig óútrædd og það eiga einn-
ig eftir að koma til auknar tekj-
ur, fyrst og fremst vegna meiri
veltu í samfélaginu sem ég reikna
með að endurskoðuð tekjuáætlun
muni endurspegla. Síðan mun
fjárlaganefnd koma með tillögur
til lækkunar útgjalda við þriðju
umræðu,“ sagði Sigbjörn. Að-
spurður sagði hann að sá niður-
skurður gæti numið 3-500 millj-
ónum króna.
Landbúnaðarnefnd Alþingis
hefur í sérstöku áliti talið upp
ýmsar aðgerðir sem hún telur
nauðsynlegar til stuðnings land-
búnaði og einstakir nefndarmenn
hafa metið á um 1 milljarð króna.
Minnihluti heilbrigðisnefndar Al-
þingis telur að 'um 2 milljarða
vanti til heilbrigðismáia. Þá hafa
talsverðar umræður verið um að
auka þurfi framlag til Háskólans
um a.m.k. 300 milljónir.
Um þetta sagði Sigbjörn að
hann hefði velt því upp við aðra
umræðu um fjárlagafrumvarpið
hvort ekki væri þörf á einhverri
forgangsröðun hjá þessum stærstu
stofnunum samfélagsins. „Ég held
að sú krafa hljóti að vera uppi hjá
fjárveitingarvaldinu; það er ekki
alltaf hægt að velta vandanum
yfír á Alþingi og alþingismenn,“
sagði Sigbjörn.
Atkvæðagreiðsla um fjárlaga-
framvarpið tók óvenju stuttan
tíma í gær. Stjórnarandstaðan
greiddi atkvæði með öllum breyt-
ingartillögum meirihluta fjárlaga-
nefndar en sat hjá þegar frum-
varpið í heild var borið undir at-
kvæði.
Einstakir þingmenn Alþýðu-
bandalags og Kvennalista, auk Jó-
hönnu Sigurðardóttur, lögðu fram
ýmsar breytingartillögur við fjár-
lagafrumvarpið en þær vora flestar
kallaðar aftur til 3. umræðu. Þær
sem komu til atkvæða voru felldar.
Tillögur stjórnarandstöðunnar
þýddu alls um 930 milljóna út-
gjaldaauka fyrir ríkissjóð á næsta
ári en flestar þeirra vora frá þing-
mönnum Alþýðubandalags.