Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Hólmfríður Lóðir fegraðar í Grímsey Sala á jólasteikum fer hægt af stað Lambakjötið vinnur á á kostnað svínakjöts Laufásprestakall Aðventu- kvöld fyrir unga og aldna AÐVENTUKV ÖLD verður í Grenivíkurkirkju sunnudags- kvöldið 18. desember kl. 20.30. Dagskráin verður flölbreytt og sniðin bæði fyrir unga og aldna. Kór kirkjunnar syngur aðventu- og jólalög undir stjórn Bjargar Sigurbjörnsdóttur. Ungmenni úr Tónlistarskóla Eyjafjarðar leika á hljóðfæri og sr. Hannes Örn Blandon flytur hugleiðingu. Baldvin Kr. Baldvinsson bóndi í Torfunesi syngur einsöng og samverunni lýkur með Ijósa- helgileik sem væntanleg ferm- ingarbörn flytja. Á þriðjudagskvöld, 20. des- ember kl. 21 hefst „Kvöldstund við kertaljós" í Laufáskirkju. Ljósin á aðventukransinum verða tendruð og lesið jóla- kvæði. Valdimar Gunnarsson flytur ræðu og kór kirkjunnar syngur aðventu- og jólalög. Nemendur úr Tónlistarskóla Eyjaíjarðar leika. Jón Þorsteinsson syngur við undirleik Gígju Kjartansdóttur. Börnin fá kertaljós og lesið verður úr Ritningunni. Áð end- ingu syngja kirkjugestir jóla- sálminn Heims um ból. MIKLAR framkvæmdir hafa stað- ið yfir við sundlaugarlóðina í Grímsey og einnig við kirkjugarð- inn og eru þær nú á lokastigi. Kristján Ingi Gunnarsson hefur haft yfirumsjón með verkinu en með honum vinna tveir menn, Þröstur og Vignir. Þeir byrjuðu í sumar að hlaða grjótvegg um- hverfis kirkjugarðinn, hlóðu þá norður og vesturhlið garðsins en nú í haust hafa þeir verið að hlaða austur og suðurhliðar hans. Verk- inu er svo til lokið en einhver frágangverk þurfa að bíða sum- ars. Þá hefur lóðin við sundlaugin í eynni einnig verið lagfærð en frá því hún var byggð fyrir tæpum áratug hefur lóðin verið ófrágeng- in. Kristján og hans menn hafa haganlega komið þar fyrir stuðla- bergsstöplum sem setja mikinn svip á umhverfið en allt efni vegna þessara lóðaframkvæmda í Gríms- ey er heimafengið. FÓLK virðist vera í seinna lagi en áður að kaupa í jólamatinn, en salan hefur farið óvenju seint af stað að mati forráðamanna kjöt- vinnsla. Hækkun á svínakjöti milli ára hefur valdið því að meira en áður er keypt af lambakjöti á jóla- borðið. Björn Arason hjá Nýja Bauta- búrinu sagði að sala á hefðbundnu jólakjöti hefði verið dræm fram til þessa og virtist mun seinna á ferð- inni en t.d. í yrra. ,;Ætli helsta skýringin á því sé ekki peningas- kortur hjá fólki, það dregur við sig að kaupa inn þar til á síðustu stundu," sagði Björn. Hann sagði að áherslubreyting hefði orðið í innkaupum fólks, lambakjöt væri orðið vinsælla á kostnað svínakjötsins. „Svínakjöt hefur hækkað mikið frá í fyrra. Þá var offramboð og verðið lágt. Við höfum tekið eftir því að sala á londonlambi og lambahamborg- arhrygg hefur aldrei verið eins mikil og nú fyrir jólin. Fólk er félít- ið og kaupir það sem hagstæðast er hveiju sinni.“ Fólk horfir í peninginn Leifur Ægisson hjá Kjötiðnaðar- stöð KEA sagði söluna seinna á ferðinni en áður. „Salan þjappast á skemmri tíma en áður, fólk er farið að draga andann eftir korta- tímabilum," sagði Leifur. Hann sagði að honum virtist-sem minna hefði verið selt af svínakjöti nú miðað við sama tíma í fyrra. Svína- kjöt hefði hækkað töluvert milli ára „og það liggur í augum uppi að fólk horfir í peninginn,“ sagði Leifur. -----♦ ♦ «---- Gripnir glóðvolgir TVEIR ungir piltar, 15 og 16 ára voru gripnir eftir innbrot á veit- ingastaðinn Torgið í fyrrinótt. Piltarnir sem báðir hafa komið við sögu lögreglunna á Akureyri fyrr höfðu á brott með sér 50 þús- und krónur í peningum, ijórar áfengisflöskur og vindlinga. Lögreglumenn á eftirlitsferð veittu piltunum athygli en er þeir urðu lögreglu varir tóku þeir á rás. Þeir voru gripnir á flóttanum og viðurkenndu innbrotið við yfir- heyrslur hjá Rannsóknarlögregl- unni á Akureyri í gær. Tilboð í flutninga Um er aö ræöa flutning á vörum fyrir Samland s/f, Óseyri 3, 603 Akureyri, Byggingavörudeild KEA, Lónsbakka, 603 Akureyri, og Söludeild KEA, Hafnarstræti 91-95, 600 Akureyri, í Ásbyrgi, til Kópaskers, Raufarhafnar, Þórshafnar, Bakkafjarðar og Vopnafjaröar. (Innan Söludeildar KEA eru eftirfarandi aöilar: Efnaverksmiðjan Sjöfn, Kaffibrennsla Akureyrar, Sláturhús KEA, Kjötiðnaðarstöð KEA, Mjólkursamlag KEA, Smjörlíkisgerð KEA, Safagerð KEA og Brauðgerð KEA). Heimilt er að gera tilboð í flutning á alla þessa staði eða í flutning á hvern staö fyrir sig. Ferðafjöldi skal vera að lágmarki tvisvar í viku á alla staðina. Ferðir geta þurft að færast til milli daga innan hverrar viku vegna samnings- og lögbundinna frídaga og helgidaga og færðar þannig, að samningsbundinn fjöldi haldist. Lokist landleiðin vegna ófærðar eða veðurs tekur flutningsaðili að sér að koma vörum í skip eða flugvél gegn umsömdu gjaldi. í þeim tilfellum ráðstafi flutningsaðili vörum og ferðum í sam- ráði við verkstjóra eða innkaupastjóra viðkomandi deilda. Flutningsaðili tekur að sér að sækja allar vörur til afgreiðslu- staða nema um annað verði samkomulag. Miðað skal við að vörumóttaka og afhending fari fram í dagvinnutíma nema sérstakar aðstæður hamli vegna færðar eða veðurs. Flutningsaðili tekur að sér að lesta og losa að ósk farmeig- anda. Áskilinn er réttur til að leita sérstaklega tilboða í stærri farma (10tonneða meira). Flutningatæki skulu fullnægja skilyröum heilbrigðisyfirvalda um flutning á matvöru. Úm flutninga þessa gilda ákvæði laga nr. 24/1982 um flutn- ingssamning og ábyrgð við vöruflutninga á landi. Flutningsgjald skal miðast við þyngd og taka þeim breytingum á byggingavísitölu sem verða frá upphafsdegi samnings þessa, Ekkert pakka- eða rúmmálsgjald reiknist. Tilboð skulu berast til skrifstofu Samlands, Óseyrí 3, 603 Akureyri, fyrir laugardaginn 31. desember. 1994, merkt: „Flutningstilboð”. Óskað er eftir samninrgi til tveggja ára með sex mánaða upp- sagnarfresti sem framlengist um eitt ár í senn verði honum ekki sagt upp með sex mánaða fyrirvara. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Allar nánari upplýsingar veita deildarstjórar viðkomandi deilda. Blysför sjúkraliða EKKERT verður af samúðarverk- falli sjúkraliða á Norðurlandi eystra sem fyrirhugað var að efna til, en til að sýna samhug í verkfallsbar- áttu sjúkraliða í Reykjavík munu norðlenskir sjúkraliðar ganga blys- för frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og að Ráðhústorgi á laug- ardag, 17. desember, kl; 15.00. Þeir sem vilja sýna sjúkraliðum stuðning eru velkomir í gönguna. Félagsfundur deildar sjúkraliða á Norðurlandi eystra hefur skorað á viðsemjendur sjúkraliða að ganga til samninga hið fyrsta og lýsir deildin yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu sjúkraliða í stéttarfé- lagi sjúkraliða. Spænskt kvöld í Deiglunni SPÆNSKT kvöld verður haldið í Deiglunni í kvöld, fimmtudags- kvöldið 15. desember, og hefst dag- skráin kl. 21, en salurinn verður opnaður hálftíma fyrr. Nokkrir kunnir íistamenn munu leggja sitt af mörkum til að skapa sérstætt spánskt andrúmsloft og gefa fólki tækifæri til að gleyma jólaönn- unum við ljúfa tóna og upplestur. Einar Kr. Einarsson flytur spænska og suður-ameríska tón- list. Arnar Jónsson les úr nýút- komnum Andalúsíuljóðum arab- ískra skálda í þýðingu Daníels Á. Daníelssonar læknis á Dalvík. Rósa Guðný Þórsdóttir les úr þýðingum Guðbergs Bergssonar á úrvali spænskra ljóða og Viðar Eggerts- son úr þýðingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar á Tataraþulum eftir Gabríel Garcia Lorca. Vegna framkvæmda við inn- ganginn í Deigluna er gengið inn um Café Karólínu. Þorgrímur Þráinsson X Og Ömar Ragnarsson árita bækur sínar í dag kl. 1700-1800 A OPIÐ ALLA DAGA TIL 2200 KAUPVANGSSTRÆTI 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.