Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR:, Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. GLÖGGT ER GESTS AUGAÐ ATHYGLISVERT viðtal þirtist hér í Morgunblaðinu sl. sunnudag við Vigdísi Wangchaou Bóasson, kínverskan rekstrarhagfræðing, sem búsett hefur verið hér á landi undan- farin sjö ár, um meistaragráðuritgerð sem hún hefur skrifað og nefnist „ísland. Alþjóðleg samkeppnisstaða". Það er að sumu leyti ferskur blær á umfjöllun Vigdísar, jafn- vel frumlegur, og ætti hún af þeim sökum að vekja menn til umhugsunar um það, hvar hugsanleg sóknarfæri í íslensku efnahags- og atvinnulífi geti legið. Glöggt er gests augað, seg- ir máltækið, og á það vissulega við um ákveðnar ábendingar Vigdísar Wangchaou, þótt það kunni að orka tvímælis, að nefna hana gest, eftir sjö ára búsetu hér á landi. í ritgeriðinni er lögð áhersla á, að íslenskt efnahagslíf þurfi í auknum mæli að flytjast yfir á svið Qárfestingar og nýsköpun- ar, í stað frumvinnslustigsins, að því er varðar nýtingu hráefn- is, sem að uppistöðu til er fiskur. Þannig verði dregið úr hag- sveiflum og efnahagslegur stöðugleiki aukist. Rekstrarhagfræðingurinn telur að ísland eigi mikla framtíð fyrir sér, en stjórnvöld og fyrirtæki verði að hætta að nýta eingöngu frumþætti efnahagslífsins eins og náttúrulegar auð- lindir og lítt sérhæft vinnuafl og snúa sér að þróuðum og sér- hæfðum þáttum, eins og þekkingu, tækni og sérhæfðu vinnuafli. Kínverski hagfræðingurinn greinir framtíðarmöguleika efna- hagsþróunar íslendinga í fernskonar svið: sjávarútveg, orkuiðn- að, heilbrigðismál og byggingariðnað. Hveiju sviði skiptir hún síðan í framleiðslu og þjónustu. Vigdís Wangchaou mælir með því, að framieiðendur í sjávar- útvegi fikri sig í auknum mæli inn á þá braut að framleiða fiskafurðir, undir íslenskum vörumerkjum, í neytendapakkning- um. Hægt sé að auka sérhæfingu í framleiðslu á lífefnafræðileg- um afurðum eins og iýsi og fæðubótaefnum. Þannig verði sam- hliða hægt að þróa efnafræðiiðnað hér á landi. Auk þessa bend- ir hagfræðingurinn á möguleika til þess að auka framleiðslu hátæknivara í sjávarútvegi, á borð við þá framleiðslu sem fer fram hjá Marel. í sérblaði Morgunblaðsins um sjávarútveg, „Úr verinu“, í gær voru þijár jákvæðar fréttir, allar ánægjuleg vísbending um að okkur miði í rétta átt á þeirri braut, sem hagfræðingur- inn mælir með. Ein fréttin var í þá veru, að Marel mun auka veltu sína um nálægt 35% á milli ára og er aukningin nær öll vegna útflutnings. Önnur fjallaði um, að söluskrifstofa ís- lenskra sjávarafurða í Frakklandi hefur aukið sölu á frystum fiski í neytendapakkningum á þessu ári, í Frakklandi og Belg- íu, um 30-40%. Hin þriðja lýsti því hvernig Icelandic France, dótturfyrirtæki SH í Frakklandi, hefur náð umtalsverðri sölu- aukningu á fiski í dýrum neytendapakkningum, sem markaðs- settar voru í Frakklandi í fyrra. Vigdísi Wangchaou er einhæfni íslensks efnahagslífs áhyggjuefni, þ.e. að fiskveiðar og útflutningur sjávarafurða skuli vera undirstaða efnahagslegrar velgengni. En hvað sem áhyggjum rekstrarhagfræðingsins líður, þá er það staðreynd að Island er fyrst og síðast verstöð norður í Atlantshafi. Við höfum um langa hríð byggt afkomu okkar á sjávarfangi og gerum að líkindum, að langstærstum hluta, til langrar framtíð- ar enn. Okkur ber þrátt fyrir það að hlýða á góð ráð hagfræðingsins og annarra og þróa eftir megni frekari vinnsluaðferðir, rann- sóknir, framleiðslu og tækni í sjávarútvegi, með það í huga að auka þjóðartekjur okkar og fullnýta þá framleiðslumögu- leika sem enn eru vannýttir. Endurskoðun náms á háskólastigi, með nýja forgangsröðun, þar sem aukin áhersla er lögð á rannsóknir og gæði menntun- ar, til dæmis í sjávarútvegsfræðum, þar sem kanna mætti hvort rétt væri að bjóða upp á doktorsnám, mætvælafræði, lífefna- tækni, kynni að stuðla að því að slík markmið næðust, þegar til framtíðar er Iitið. Einnig bendir hagfræðingurinn á að stjórnvöld gætu lagt grunn að því að langtímamarkmiðum verði náð, með því að Ieggja fyrirtækjum í landinu, í framleiðslugreinum og hátækni- iðnaði, til sérmenntað starfsfólk, aðstoða háskólann og rann- sóknastofnanir við þróun og framleiðslu á nýjum vörutegundum sem fela í sér mikinn virðisauka og greiða síðan leið þeirra á erlenda markaði. Hún telur einnig að stjórnvöld gætu komið við sögu við 3tofn- un nýrra fyrirtækja, með sérstökum stofnlánum, markaðsráðg- jöf og öflugu starfi viðskiptafulltrúa. Þessar leiðir telur hún vænlegri til árangurs en bein styrkjaframlög til fyrirtækja, sem vilja þróa nýjar vörutegundir. Það hlýtur að vera þess virði að íhuga tillögur Vigdísar Wanghaou Bóassonar af fyllstu alvöru. Þær eru að minnsta kosti áhugavert og nýstárlegt 'innlegg í umræðuna, um það með hvaða hætti við komumst upp úr þeim öldudal, sem við höfum verið í, og tryggjum hér stöðugleika til framtíðar. * Atök í kjördæmisráði Alþýðubandalagsfélagan Brestir í stuðning Svavars Gestssc Mikil ólga er meðal alþýðubandalagsmanna í Reykjavík vegna framboðsmála og er reiknað með að lögð verði fram tillaga um að hætt verði við prófkjör á fundi kördæmisráðs í kvöld en í grein Omars Friðrikssonar kemur fram ÞAÐ ER satt að segja allt upp í loft út af þessu máli,“ sagði áhrifamaður innan Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur (ABR) í samtali við Morgunblaðið um þær deilur sem uppi eru meðal alþýðubandalags- manna um undirbúning framboðs- mála í borginni fyrir alþingiskosning- arnar í vor. Tekist er á um hvort efnt verði til prófkjörs eða farið í uppstillingu frambjóðenda í efstu sæti listans í samræmi við þær hug- myndir sem ræddar hafa verið að undanförnu í kjörnefnd alþýðubanda- lagsfélaganna og innan forystu flokksins, sem Guðrún Helgadóttir lýsti yfir að væri skilyrði fyrir því að hún viki úr 2. í 4. sæti listans á óvæntum blaðamannafundi sem hún boðaði til í seinustu viku. Hugmyndin gengur út á að Svavar Gestsson alþingismaður skipi áfram 1. sæti, Bryndís Hlöðversdóttir, lög- fræðingur ASÍ, verði í 2. sæti, Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB í 3. sæti og Guðrún Helgadóttir verði í 4. sæti. Endanlegt vald er í höndum kjördæmisráðs sem kemur saman í kvöld. Þar verður að öllum líkindum lögð fram tillaga um að hætt verði við prófkjör. Er reiknað með miklum hitafundi um málið. I fyrri hluta nóvember var kjör- nefnd falið að undirbúa framboðslista í Reykjavík og láta fara'fram próf- kjör. I samþykktinni var sleginn sá varnagii að ef kæmu upp óvæntar aðstæður, s.s. ef nýir einstaklingar gengju til liðs við flokkinn eða ef efnt yrði til alþingiskosninga fyrr en ætlað hefur verið, gæti kjörstjórn leitað til kjördæmisráðs um að endur- skoða ákvörðun sína um að láta próf- kjör fara fram. Fimm félög standa að 65 manna kjördæmisráði flokksins í Reykjavík. Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur á 39 fulltrúa, Birting 14, Framsýn á 6 fulltrúa, en það var stofnað sl. sumar m.a. af nokkrum forystumönnum í verkalýðshreyfingunni, Sósíalistafé- lagið, sem stofnað var í haust, á 3 fulltrúa og loks á æskulýðsfylkingin 3 fulltrúa. í kjörriefndinni sem unnið hefur að undirbúningi framboðsins eru full- trúar ýmissa fylkinga innan flokksins en þeir eru Árni Þór Sigurðsson, Ástráður Haraldsson og Guðrún Siguijónsdóttir úr ABR, Gísli Gunn- arsson, Birtingu, Þorsteinn Óskars- son, fulltrúi Framsýnar, og Stefanía Þorgrímsdóttir er fulltrúi Sósíali- stafélagsins. Á seinustu vikum hefur verið rætt innan kjörnefndar og forystu flokks- ins um möguleika á að fá Ögmund og Bryndísi Hlöðversdóttur, félaga í Framsýn og varaformann stjórnar kjördæmisráðsins, til að taka sæti á listanum með uppstillingu í stað próf- kjörs. Með þessu tækist _____________ flokknum m.a. að styrkja tengslin við verkalýðs- hreyfinguna. Þó ekki sé full sátt um þessar hug- myndir í kjörnefnd eru þær að nokkrír helstu stuðningsmenn Svavars Gestssonar úr innsta kjama ABR hafi snúist gegn honum í þessu máli. Valdahlutföllin Kjördæmisráð Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík, samtals 65 fulltrúar Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur (ABR) 39 fulltrúar Klofið í afstöðu til uppstillingar eða prófkjörs Sósíalistafélagið 3 fulltrúar Vill prófkjör Birting 14 fulltrúar Vill uppstillingu Framsýn 6 fulltrúar Vill uppstillingu Æskulýðsfylkingin 3 fulltrúar Óvíst um afstöðu Svavar Gestsson Bryndís Hlöð- versdóttir Ögmundur Jónasson Guðrún Helgadóttir Árni Þór Sigurðsson Gísli Gunnarsson Auður Sveinsdóttir Stefanía Þorgrímsdóttir Tillaga um að hætt verði við prófkjör sagðar njóta stuðnings mikils meiri- hluta kjörnefndarmanna. Hugmynd- irnar voru þó ekki frágengnar þegar Guðrún Helgadóttir hélt frétta- mannafund sinn og olli yfirlýsing hennar óþægindum fyrir ýmsa for- svarsmenn ABR í kjörnefndinni og víðar, að sögn eins viðmælenda minna. Þá hafa þessar þreifingar kjörnefndar og yfirlýsing Guðrúnar _________ valdið mikilli óánægju meðal nokkurra félags- manna í ABR og Sósíalista- félaginu. Þeir telja að ekki hafi verið farið að sam- þykktum flokksins um prófkjör og verið sé að ýta til hliðar Auði Sveinsdóttur, sem skipaði þriðja sæti framboðslistans fyrir seinustu kosningar og Guðmundi Þ. Jónssyni sem skipaði fjórða sætið. Hafa þau bæði lýst yfir að þau vilji að haldið verði prófkjör. „Auðvitað er það ekki eðlilegt að þingmaður ijúki til og tilkynni ein- hveija hugmynd á blaðamannafundi án samráðs við félaga ____________ sína,“ sagði Garðar Mýr- dal, formaður ABR. Hann kveðst vera fylgjandi því að efnt verði tii prófkjörs en telur einnig mögulegt Meir talim hand að þó samið verði við Ögmund eða aðra utanaðkomandi aðila um sæti á listanum verði ákveðið að kjósa um önnur sæti í prófkjöri. Alfheiður Ingadóttir sagði að sem flestir félags- menn ættu að koma að því að velja á framboðslistann. Hún sagði ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.