Morgunblaðið - 15.12.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 15.12.1994, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ NEYTEIMDUR Um fjórðungur þeirra jólatrjáa, sem landsmenn kaupa í ár, eru íslensk Misjafnt verð ájólatrjám hjá söluaðilum Höfuðborgarsvæðið Alaska, Reykjavík Birkihlíð, Kópavogi Blómaval, Reykjavík Eðaltré, Reykjavík Flugbjörgunarsveitin, Reykjavík Garðshorn, Reykjavík Hjálparsv. skáta, Garðabæ Hjálparsv. skáta, Hafnarfirði KR-knattspyrnud., Reykjavík Landgræðslusjóður Skógrækt Reykjavíkur Slysavarnarsveitin Kópavogi Víkingur, Reykjavík Landsbyggðin Blómabúð ísafjarðar, ísaf. Flugbjörgunarsveitin, Akureyri Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum Skógræktarf. Eyjafj., Akureyri 80 cm 140 cm 190 cm Kr. 1.290 2.590 4.190 1.300 2.600 4.200 1.340 2.685 4.285 1.500 2.500 4.100 - 3.100 4.650 - 2.750 4.300 1.700 3.100 4.650 3.000 4.200 80 cm 140 cm 190 cm 645 1.490 2.590 690 1.570 2.790 655 1.505 2.655 1.060 1.900 3.500 720 1.650 2.930 80 cm 140 cm 190 cm 890 1.990 3.300 970 2.300 3.900 920 , 2.050 3.720 3.100 4.650 720 1.650 2.930 3|l “C 2.750 4.300 - f ■ - - 3.200 4.800 720 1.650 2.930 1.010 - - A720| 1.650 A 2.930 * 4 1.010 2.800 4.300 - á ■ 3.300 4.600 . § - 1.895 4 3.000 4.200 800 1.650 3.000 - - - 725 1.648 2.926 1.015 800 1.650 3.000 1.100 2.545 2.307 2.300 2.150 A 3.900 4.096 4.100 Verðmuniir á jólatrjám er töluverður sam- kvæmt verðkönnun, sem gerð var í vikunni. Jóhanna Ing’varsdótt- ir og Guðbjörg R. Guð- mundsdóttir könnuðu verð á jólatijám á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. TÖLUVERÐUR verðmunur er á útsöluverði jólatrjáa í ár samkvæmt niðurstöð- um verðkönnunar, sem Neytendasíðan gerði í vikunni hjá nokkrum útsöluaðilum á höfuðborg- arsvæðinu og úti á landi. Svö dæmi sé tekið kostar 80 sm hátt rauð- grenitré hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík 1.060 kr. á meðan að hægt er að fá það um 40% ódýrara í Alaska í Breiðholti, eða á 645 kr. Alaska reyndist sömuleiðis hafa vinninginn hvað varðar hagstæð- asta verðið í öðrum stærðum og tegundum, sem könnunin náði til. Gæðin verða kaupendur sjálfir að meta því trén eru alls staðar verðlögð eftir stærðum og virðist almenna reglan vera sú að trén eru mæld upp í topp. Þannig gildir gjarnan eitt verð fyrir tré undir ein- um metra og síðan hækka trén yfir- leitt í verði eftir hveija 25 sm. Tré, sem eru 101-;125 sm há, lenda í einum verðflokki, þá koma 126-150 sm hátré, síðan 151-175 sm há tré o.s.frv. Við framkvæmd könnunarinnar voru söluaðilar spurðir um verð á normansþin, rauðgreni og stafa- furu, sem eru algengustu jólatrén í heimahúsum, og var sömuleiðis spurt um þijár stærðir í hvetjum flokki, 80 sm, 140 sm og 190 sm., en auk blómaverslanna hafa ýmis félagasamtök notað jólatijásölu sem fjáröflunarleið. 30-35 þúsund lifandi jólatré Fyrir jólin kaupa landsmenn á bilinu 30-35 þúsund lifandi jólatré og ef að líkum lætur má ætla að hlutur íslenskra tijáa sé allt að fjórðungur. Önnur tré eru innflutt og er danskur normansþinur hvað vinsælastur enda þeim eiginleikum gæddur að fella ekki barrið, nema kannski að örlitlu leyti. Að sögn Kristins Skæringssonar, skógarvarðar og framkvæmda- stjóra Landgræðslusjóðs, byggjast íslensku trén aðallega á rauðgreni og stafafuru. „Það er enn verið að höggva af fullum krafti og nú velt- ur á tíðarfari og tíma hversu mikið næst að höggva fyrir jólin. Þau íslensku tré, sem verið er að selja, koma af Þingvallasvæði, úr Haukadal, Þjórsárdal, Norð- tunguskógi og frá Hreðavatni, úr Skorradal og nokkuð úr Kjósinni líka.“ Hitabreytingar fara illa með jólatrén Kristinn segir að fara þurfi gæti- lega með trén; taka þau ekki snögg- lega úr miklu frosti og inn í hlýj- una. „Það borgar sig að hita tréð smám saman, taka það fyrst inn í bílskúr eða kalda geymslu og síðan inn í hitann." Til að tryggja að barr haldist á rauðgreni og fleiri tegundum má sjóða stofnendann í tíu mínútur sé hægt að koma því við. Þá helst barrið mjög vel á trénu. Þá má leggja það í bleyti áður en það er sett upp. Kristinn bendir að lokum á að nota eigi vatnsfót fyrir tréð og gæta þurfi þess að vatn vanti aldrei. Eftirminnileg jolagjof GTAFA 1 nótf (2 dagar) alla daga vikunnar 5.900 fyrir tvo. Innifalið: moreunverður af hlaðborði í boði eru flmismunandi lyklarj sem gilda til ársioka 1995 ! d HVUNNDAGS 1 nótt (2 dagar) alla daga vikuunar kr. ll.OOO,- fyrir tvo. 2 nætur (3 dagar) ímiðriviku kr. 17.800,- lyrir tvo. kr. 21.800,- fyrir tvo. kr. 29.800,- fyrir tvo. Innifalið í þessum fjórum lyklum: Gisting, morgunverður af hlaðborði og þríréttaður veislukvöldverður Gestir hafa aðgang að öllum þægindum hótelsins svo sem jarðgufubaði, útisundlaug, heitum pottum, þrekæfingasal, tennisvelli, níu holu golfvelli o.fl. Einnig stendur til boða ýmis sérþjónusta svo sem snyrti- og hárgreiðslustofa, nuddstofa, hestaleiga, bflaleiga, stangveiði og margt fleira. Lyklamir eru til sölu á Hótel Örk í síma 98-34700. Sendum lyklana hvert á Iand sem er. Visa - Euro raðgreiðslur. Sendum í póstkröfu. í§| HÓTEL ÖDK HVERAGERÐi - SÍMl 98-34700 - K4X 98-34775 Amerískt íspæ frá Kjörís KJÖRÍS er þessa dagana að senda frá sér amerískt „íspæ“, vanilluís með pecan-hnetum og karamellu í ristuðum botnf. Starfsmenn hjá Kjörís hafa þró- að vöruna samkvæmt amerískri uppskrift og er það selt sem 8-10 manna skammtur. Er rnýícs/ / Jólagjöf \heimilisins RÚMFÖT . JOSS Kringlunni 8-12 Marco Langholtsvegi 111 SILKI V Jólagjöf Vmginkonunnar NÁTTFÖT NÁTTKJÓLAR NÁTTSLOPPAR HEILDVERSLIlN K. Kristinsson hf. S: 91-672077 og 91-671654 CHARMEUSE SILKI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.