Morgunblaðið - 15.12.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.12.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 21 ÚRVERINU Morgunblaðið/Sverrir GEIR Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Marels, og Haraldur Böðvarsson, framkvæmdasljóri Haraldar Böðvarssonar hf., hand- sala samning um kaup HB á fiskskurðarvél ásamt flæðilínum. Skurðarvél með tölvusjón til HB á Akranesi GEIR Gunnlaugsson framkvæmda- stjóri Marels hf. og Haraldur Stur- laugsson framkvæmdastjóri Har- aldar Böðvarsonar hf. undirrituðu í gær samning um kaup HB á fyrstu Marel-skurðarvélinni sem hér er sett upp ásamt flæðilínum sem Marel hefur hannað í samvinnu við HB og Ingólf Árnason tæknifræð- ing. Vélin gerir fiskvinnslu kleift að stórauka afköst og nákvæmni í framleiðslu á fiskbitum og á sama tíma minnka hlutfall afskurðar eða blokkarefnis úr hverju flaki veru- lega. Geir segir að þetta sé einn stærsti samningur sem Marel hafi gert til þessa. Skurðarvélin er með svo- nefndri tölvusjón sem metur og vegur fiskflakið áður en það er skorið en hægt er að skera allt að 10 skurði á sekúndu. Kaupverð fisk- vinnslubúnaðarins er um 54 milljón- ir króna og segja stjórnendur HB að stefnt sé að því að láta búnaðinn borga sig upp á tveimur árum með sparnaði í vinnuafli, minni yfirvigt í pakkningum og hærra afurðar- verði. Átta slík fiskvinnslukerfi eru í smíðum hjá Marel um þessar mundir. Um er að ræða tvær flæðilínur með framleiðslueftirlitskerfi ásamt niðurskurðarvél samtengdri við tvö- falda vigtareiningu og 14 stöðva flokkunar- og pökkunarlínu. Eykur heildarafköst Haraldur sagði að nýja vinnslu- línan byggðist upp á fjórum megin- þáttum, þ.e. nýjum vinnslu- og eftirlitshugbúnaði, nýrri snyrtilínu á flökunum, niðurskurðarvél á fiökunum og svo vogar- og pökkun- arlínu. Hann sagði helstu ástæðum- ar fyrir kaupum HB á nýja búnaðin- um þær að framleiðslan verður sveigjanlegri sem gefi væntingar um hærra meðalverð, auðveldara verði að koma til móts við markað- inn með meiri nákvæmni í niður- skurði og flokkun, betra eftirlit með vörunni tryggi gæði og nýja vinnslulínan bæti starfsaðstöðu starfsfólks. Haraldur sagði að grunnþátturinn í uppbyggingu vinnslulínunnar væri sá að upplýs- ingaöflun væri fyrir hendi til vinnslustýringar og vinnslueftirlits. Þá auðveldi búnaðurinn hugsanlega þróun á kaupaukakerfum fisk- vinnslunnar. Nýja vinnslulínan muni auka heildarafköst frystihúss- ins og stefnt sé að því að setja eldri línu upp í vinnslusal Heimaskaga- hússins til vinnslu á úthafskarfa en reiknað er með auknu framboði af honum á næsta ári. Samstarf hófst með fyrirtækjun- um tveimur um þróun skurðarvélar til vinnslu á fiskflökum árið 1993 og hefur vélin verið í fiskvinnslusal HB frá því í ágúst 1994. Skurðar- vélin á að mæta þörfum meðal- stórra og smærri fyrirtækja í fisk- iðnaði og skera fiskflök í bita með STARFSMAÐUR HB matar færibandið flökum sem berast til skurðarvélarinnar. nákvæmni og afköstum sem mannshöndin ræður ekki við. Hámarksfrávik 6% af þyngd bitans Skurðarvélin sker allt að 10 skurði á sekúndu og algengt er að hún skeri frá 1.000 til 2.000 kg á klukkustund. Hún sker bita allt að 75 gramma þunga með 5 gramma nákvæmni. Stærri bita sker vélin með hámarksfráviki frá 6% af þyngd bitans. Vélin býður upp á sveigjanleika þar sem hugbúnaðurinn, það er að segja skurðarforritin geta verið margvísleg. Setja má skilyrði um þyngdarmörk bita og lengd þeirra auk skilyrða um val milli skurðar- mynstra við mismunandi verðmæt- is- og nýtingarniðurstöður. Reikni vélin út að nýting í ákveðnu skurðarmynstri verði lök, til dæmis vegna óhagstæðrar þyngdar eða lögunar flaksins getur hún valið annað fyrir fram ákveðið skurðar- mynstur sem gefur meiri nýtingu. Við þróun vélarinnar var þess gætt að vinna að fyrirkomulagi fyr- ir framan og aftan vélina, það er að segja aðfærslu flaka og frátöku bita. Við vélina má tengja flokkun- arband sem skilar ákveðnum afurð- um völdum ksaman á fyrir fram valda staði, til lausfrystingar til dæmis eða í skömmtum til pökkun- ar. Haraldur Sturlaugsson sagði að síðast hefði verið skipt um fisk- vinnslubúnað í fyrirtækinu fyrir fimm árum og það lýsti kannski best þeirri öru tækniþróun sem nú ætti sér stað. Hann sagði nýja skurðarvélin myndi auðvelda það að gera landvinnsluna samkeppni- hæfa við sjófrystingu. Geir Gunn- laugsson sagði að margir hafi horft til Haraldar Böðvarssonar hf. sem framsækins fyrirtækis í fullvinnslu sjávarafurða. 40 - 60% * I afsláttur dag og á morgun - Áður Nú Jakkapeysa 4.990 2.990 Bómullarpeysa 4.850 1.990 Bómullarbolir 2.950 1.490 Sítt pils 3.700 1.990 Skyrtur 2.950 1.800 Síð vesti 4.800 1.990 Vesti 2.950 1.800 Silkiskyrta 4.250 1.950 Leggings 990 600 Einnig mikið úrval af fatnaði á kr. 990 fizieríOጠSfðumúla 13, Sími 682870. Opnunartími: kl. 10.00-18.00. Aðyentutilboð! r^/olunum fylgir bakstur, þrif og uppþvottur. Við viljum létta þér störfin og bjóðum því þessi fjögur gæða-heimilistæki frá Siemens og Bosch á sérstöku tilboðsverði. SIEMENS BOSCH Hrærivél MUM 4555EU Fjölvirkur Siemens baksturofn. Yfir- og undirhiti, blástur, glóðarsteiking með og án blásturs. Rafeindaklukka, létthreinsikerfi, sökkhnappar. Gaeði hvert sem litið er. Og verðið er einstakt. Tilboðsverð kr. 49.900 stgr. Fjölhæf Bosch hrærivél sem gegnir dyggu hlutverki á mörg þúsund íslenskum heimilum. Uklega mest selda hrærivélin á íslandi undanfarin ár. Blandari, hakkavél og grænmetis- kvörn fylgja með. Og verðið slær enginn út. Tilboðsverð kr. 17.900 stgr. Uppþvottavél Létt og lipur Siemens ryksuga sem auðveldar þér að halda híbýlunum hreinum. 1200 W, sjálfinndregin snúra, fylgihlutir geymdir I vél, hleðsluljós. Og þær gerast vart ódýrari. Tilboðsverð kr. 12.900 stgr. Veivirk, sparneytin og hljóðlát Siemens uppþvottavél. Tekur borðbúnað fyrir 12 manns. Og Kttu á verðið. Tilboðsverð kr. 59.900 stgr. Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru: • Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir • Borgarfjöröur Rafstofan Hvitárskála • Hellissandur Blómsturvellir • Grundarfjörður Guöni Hallgrimsson Stykkishólmur. Skipavík Búöardalur. Ásubúð ísafjörður Póllinn Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur. Rafsjá • Siglufjörður. Torgið ■ Akureyri: Ljósgjafinn ■ Húsavík: öryggi Þórshöfn: Noröurraf Neskaupstaður Rafalda Reyðarfjörður Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson • Höfn í Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar. Tréverk Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvirkinn • Garður. Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavik: Ljósboginn • Hafnarfjörður Rafbúð Skúla, Álfaskeiði SMITH & NORLAND Nóatúni 4 ■ Sími 628300 Viljirðu endingu og gæði-j velurðu Siemens
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.