Morgunblaðið - 29.12.1994, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gífurlegxir vatnsskaði
á bókalager Iðunnar
Rakanum haldið
í húsnæðinu til
að draga úr tjóni
HEITT vatn olli miklum skemmdum
á lager bókaforlagsins Iðunnar við
Seljaveg í fyrrinótt. Ofn í húsnæði
á næstu hæð fyrir ofan lagerinn
sprakk og lak vatnið niður. Tjón
varð bæði vegna vatns og gufu en
að sögn Jóns Karlssonar, fram-
kvæmdastjóra Iðunnar, eru sér-
fræðingar á vegum vátryggingafé-
lagsins Skandia væntanlegir til
landsins í dag með sérstakan búnað
til að rakatæma húsnæðið.
Jón segir að þegar menn komu
til vinnu í gærmorgun hafi hita-
veituvatnið flætt út af lagemum
og út í portið fyrir framan hann.
Hann segir ógerlegt að meta tjónið,
það sé gífurlegt enda eigi bækur
og vatn enga samleið.
Húsnæðið var vatnstæmt í gær
og mikið af bókunum flutt út af
lagemum til að hægt væri að
hreinsa vatnið burt. Jón sagði að
bækurnar yrðu síðan settar inn aft-
ur, húsnæðið kælt og rakanum
haldið inni til að draga úr tjóni.
Þetta hefði verið gert í samráði við
sérfræðinga vátryggingafélagsins
Skandia í Svíþjóð. Þeir væm síðan
væntanlegir til landsins í dag með
tæki til að rakatæma húsnæðið og
bjarga þeim bókum sem hægt er.
Forlagið undirtryggt
Jón segir að án tillits til trygg-
inga sé þetta gífurlegt tjón fyrir
Iðunni því forlagið sé undirtryggt.
í húsnæðinu hafí verið allur bóka-
og plötulager Iðunnar, bæði gamalt
og nýtt efni, hundrað þúsunda
bóka. Húsnæðið er um þúsund fer-
metrar að stærð með fímm metra
lofthæð o g er pallettum með bókum
staflað upp undir loft. Meðal þess
sem gjöreyðilagðist vora allar út-
gáfur með söng Kristjáns Jóhanns-
sonar, geisladiskar, plötur og kass-
ettur.
Húsnæði Héðins á efri hæðinni,
þar sem ofninn sprakk, var ekki í
notkun og urðu skemmdir þar eng-
ar.
Morgunblaðið/Kristinn
HLUTI bókalagers Iðunnar var fluttur út úr húsnæðinu í gær
meðan vatnið var hreinsað burtu.
Silfurlax
fær rík-
isábyrgð
RÍKISÁBYRGÐ á 50 milljóna króna
láni til Silfurlax var samþykkt við
þriðju umræðu lánsíjárlaga á Al-
þingi í gær með 24 atkvæðum gegn
20. 10 þingmenn greiddu ekki at-
kvæði og 9 vora íjarverandi.
Flokkslínur riðluðust nokkuð við
atkvæðagreiðsluna og gerðu margir
grein fyrir atkvæði sínu. Fimm þing-
menn Sjálfstæðisflokks greiddu at-
kvæði gegn ábyrgðinni, þeir Matthí-
as Bjamason, Einar K. Guðfinnsson,
Eggert Haukdal, Ingi Björn Alberts-
son og Eyjólfur Konráð Jónsson.
Matthías Bjarnason sagðist m.a.
alltaf hafa verið hlynntur fiskeldi
og ekki ráðist að stjómvöldum þegar
þau hafi sýnt þeim málum skilning
eins og allar fiskveiðiþjóðir hafi gert.
Hins vegar gagnrýni hann að fyrir-
tækjum sé mismunað, eins og þegar
Landsbankinn hafi gert vel reknu
fyrirtæki, Þórslaxi í Tálknafirði,
óbærilegt að starfa og rekið það í
gjaldþrot. Matthías sagði Silfurlax
að veralegu leyti í eigu útlendinga,
„og virðist ríkisstjórnin gera mikinn
mun á því hvort um sé að ræða ís-
lenskt framtak eða erlent. Þessu
óréttlæti mótmæli ég og segi nei“.
■ Mikilvægt/6
Veðurstofan
Ekki von á samkomulagi víð ESB um tollamál fyrr en í janúar
Hægviðri
umallt
land um
áramótin
VEÐURFRÆÐINGAR spá
hægri breytilegri átt um allt
land á gamlársdag og á ný-
ársdag. Það ætti því að viðra
vel fyrir landsmenn þegar
þeir skjóta á loft áramóta-
flugeldunum.
Smá él verða við strendur
landsins um áramótin en létt-
skýjað inn til landsins. Hiti
verður á bilinu 0 til 3 stig.
Á morgun föstudag verður
hvöss norð-austan átt á land-
inu og él norð-austanlands
en fremur hæg breytileg átt
og léttskýjað í öðrum lands-
hlutum. Frost verður á bilinu
2 til 6 stig.
Saltsíld flutt út af kappi
til Finnlands og Svíþjóðar
SÍLDARÚTFLYTJENDUR keppast nú við að
koma sem allra mestu af saltsfld á Finnlands- og
Svíþjóðarmarkað fyrir áramót, þar sem allt stefnir
í að 10-12% tollar á saltsfld taki gildi við inn-
göngu þessara Ianda í Evrópusambandið. Talið
er að bráðabirgðasamkomulag við ESB um tolla-
lækkanir, sem stefnt hafði verið að fyrir áramót,
náist ekki fyrr en í janúar.
Fríverzlun hefur verið með físk innan Fríverzl-
unarsamtaka Evrópu, EFTA, um nokkurra ára
skeið og hefur það komið sfldarútflytjendum til
góða, enda eru Finnland og Svíþjóð beztu síldar-
markaðir íslendinga. Er löndin ganga úr EFTA og
í ESB um áramót verður hins vegar tekinn upp
10—12% tollur á saltaða síld.
íslendingar hafa leitað eftir samningum við ESB
á grundvelli GATT-reglna um að innganga ríkja
í viðskiptabandalög skuli ekki hafa í för með sér
lakari stöðu viðskiptaríkja þeirra. Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra átti í byijun desember
fund með Leon Brittan, varaforseta framkvæmda-
stjómar ESB, og sagðist eftir þann fund bjartsýnn
á samkomulag um tollamálin. Næðist það ekki
fyrir áramót, væri hugsanlegt að gert yrði bráða-
birgðasamkomulag um tímabundinn innflutn-
ingskvóta á lægri tollum.
Bandaríkjamenn gerðu fyrr í vikunni slíkt sam-
komulag við Evrópusambandið vegna þeirra vara,
sem þeir flytja út til EFTA-landa sem nú ganga
í ESB. Hins vegar er ekki talið að samkomulag
verði gert við- íslendinga fyrr en í janúar.
Þolum að bíða örfáar vikur
Gunnar Jóakimsson, framkvæmdastjóri Sfldar-
útvegsnefndar, segir að reynt hafí verið að stjóma
söltun og útflutningi með það fyrir augum að sem
minnstur skaði yrði af þvl að tollar legðust á salt-
sfldina um áramót.
„Við höfum flutt meira út fyrir áramót en venju-
lega og þolum þess vegna kannski að bíða örfáar
vikur,“ segir hann. „Við eram að verða búnir að
koma allri sfld frá síðustu vertíð til Flnnlands, en
hefðum að öllu jöfnu verið að flytja hana út fram
eftir vori. Við höfum sömuleiðis flutt mun meira
út til Svíþjóðar nú fyrir áramótin en við höfum
gert undanfarin ár.“
Gunnar segir að sér skiljist að hugsanlegt sé
að þótt bráðabirgðasamkomulag við ESB náist
ekki fyrr en í janúar, verði það afturvirkt til ára-
móta.
íslendingar hafa saltað í um 40-50.000 tunnur
árlega fyrir Finnlands- og Svíþjóðarmarkað. Sam-
kvæmt tölum frá Hagstofunni voru á síðasta ári
flutt út 1.630 tonn af saltsfldarflökum til Svíþjóð-
ar, að verðmæti 185,6 milljónir króna. Til Finn-
lands fóru 1.866 tonn af flökum og heilsaltaðri
sfld að verðmæti 133,9 milljónir króna.
■ Fréttir: Evrópa/16
Hagkaup stendur fyrir
stórri áramótabrennu
HAGKAUP hf. hefur sótt um og
fengið leyfí fyrir áramótabrennu á
Geirsnefi í Elliðavogi. Að sögn
Hilmars Þorbjörnssonar aðstoðaryf-
irlögregluþjóns er þetta í fyrsta
skipti svo hann muni sem einkafyr-
irtæki á borð við Hagkaup stendur
fyrir brennu á gamlárskvöld, en
yfírleitt haldi hverfisfélög eða
íþróttasamtök utan um slíka at-
burði.
Oskar Magnússon, forstjóri Hag-
kaups hf., segir að hugmyndin hafi
kviknað hjá yfirbílstjóra fyrirtækis-
ins fyrir nokkru, enda safnist upp
mikill eldsmatur hjá fyrirtækinu ár
hvert og ekki síst fyrir jólahátíðina.
Fyrirtækið hafí fullkomna „endur-
vinnslu" og flokki sorp og setji í
bagga, sem síðan séu yfirleitt flutt-
ir til Sorpu eða á aðra sorpeyðingar-
staði. Mönnum hafí þótt það góð
hugmynd að gera eitthvað úr þessu
mikla magni af tré- og pappírs-
rusli, sem skipti tonnum, og sé Ijóst
að um risabrennu verði að ræða.
„Áður fyrr sáu pollamir um að
safna í brennu en eldmóðurinn fer
þverrandi og unga fólkið virðist
hafa meira að gera við að horfa á
myndbönd og tölvuleiki, þannig að
kannski er þettatilraun til að endur-
vekja þann sið að fólkið safni í ögn
breyttri mynd. Síðan voru borgaryf-
irvöld svo vingjarnleg að lána okkur
þennan frábæra stað, sem er miklu
stærri en maður gerir sé grein fyrir
í fljótu bragði,“ segir Óskar.
Efnt verður til blysfarar frá bíla-
umboði Ingvars Helgasonar hf.
klukkan 20 á gamlárskvöld, þar
sem þátttakendur fá áramótahatta
og börn stjörnuljós. Reiknað er með
að flugeldasýning hefjist um
klukkutíma síðar og mun hún vera
stór í sniðum. Tröll, álfar, vættir
og lúðrasveit bregða á leik, og
stendur starfsfólk Hagkaups hf.
fyrir framkvæmdum að mestu leyti,
mikið til í frítíma sínum að sögn
Óskars. Hjá fyrirtækinu starfa að
jafnaði um 915 manns en um 100
starfsmenn bætast við fyrir jól og
á öðrum annatímum, auk þess sem
Óskar segir öllum almenningi vel-
komið að slást í blysförina og vera
viðstaddur brennuna. Brennukóng-
ur er upphafsmaður hennar, Ársæll
Magnússon.
Morgunblaðið/Þorkell
Margir þurftu að skipta
ÞÓTT jólin séu um garð gengin
var jólaös í Hagkaup í Kringl-
unni í gær. Margir þurftu að
skipta ájólagjöfum, bæði bók-
um og fötum sem ekki pössuðu
þegar til kom. Voru langar bið-
raðir við alla átta kassa verslun-
annnar.