Morgunblaðið - 29.12.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.12.1994, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þriggja ára drengur á Selfossi gekk í svefni á miðri jólanótt Sá jólaljósið á tröppum vinar síns og bankaði Morgunblaðið/Sig. Jóns JÓLATRÉÐ á Birkivöllum 2. Jónína Kjartansdóttir og Einar Gunnar Sigurðsson með son sinn Andra. Selfossi. Morgunblaðið. ÞRIGGJA ára drengur, Andri Einars- son, gekk á jólanótt í svefni úr rúmi foreldra sinna, út úr fjölbýlishúsinu við Álftarima á Selfossi, þar sem þau búa, og gerði vart við sig í húsi vin- ar síns á Birkivöllum 2 sem er í um eins kílómetra fjarlægð. Veður var stillt á Selfossi þessa nótt og um tíu stiga frost. Hann var kaldur á hönd- um og í andliti en ekkert amaði að honum þótt hann hefði vaðið snjóinn upp fyrir hné. Berfættur í stígvélunum Andri litli og foreldrar hans dvöldu á aðfangadagskvöld hjá langafa hans í húsi við Hjarðarholt á Selfossi. Þegar heim var komið sofnaði Andri strax og foreldrar hans, Inga Fríða Tryggvadóttir og Einar Gunnar Sig- urðsson, skömmu síðar. „Það næsta sem við vitum er að síminn hringir um fimmleytið um nóttina. Ég hélt að þetta væri rugl og leitaði í íbúð- inni en fann strákinn auðvitað ekki,“ sagði Einar Gunnar Sigurðsson handknattleiksmaður, faðir Andra. Svo virðist sem Andri hafi gengið í svefni út úr húsinu og vaknað úti. Hann var í jólanáttfötunum og ber- fættur í stígvélunum og gekk þann- ig, eftir því sem hann segir sjálfur, að versluninni Hominu þar sem hann sagði að enginn hefði verið og ekki heldur í myndbandaleigunni við hlið- ina eða að borða pizzu á Pizza 67. Þá virðist hann hafa tekið stefnuna á Birkivellina þar sem amma hans og afi búa og Skarphéðinn Njálsson vinur hans. Þangað gekk hann svo og gerði vart við sig í fremsta húsinu í götunni, heima hjá Skarphéðni. „Það er eins og einhver yfimátt- úrulegur kraftur hafi hjálpað honum í gegnum þetta,“ sagði Einar Gunnar faðir hans. Hann sagði að Andri þekkti vel þessa leið sem hann fór því hann hefði oft farið hana gang- andi. Einar Gunnar sagðist vera viss um að Andri hefði verið sofandi hluta af leiðinni því hann væri svolítil skræfa í myrkri og þyrði ekki að vera einn. Hann hefði ekki kveikt ljós á ieiðinni og farið um útidymar sem væm stífar. En hann sagði að strákurinn væri hraustur og ákveð- inn ef hann tæki eitthvað í sig. Ein- ar sagðist gera sér í hugarlund að gönguferð stráksins jafnaðist á við að fullorðinn maður gengi þijá kíló- metra og hann sagðist sjálfur ekki vilja reyna slíkt á náttfötunum og berfættur í stígvélum og vaða snjó í hné. Sá jólaljósið á tröppunum „Þetta er besta jólagjöfin okkar héma,“ sagði Jónína Kjartansdóttir, en hún og maður hennar Njáll Skarp- héðinsson tóku á móti Andra. Þau vom með friðarljós á tröppunum sem var enn logandi þegar þau fóm að sofa og Jónína sagði að þau hefðu verið að hugsa um að slökkva á því en létu það samt lifa. Það virðist hafa hjálpað Andra því hann sagðist hafa séð ljósið heima hjá Skarphéðni vini sínum. Jónína sagðist hafa vaknað við dauft bank og að tekið var aftur og aftur í húninn á útihurðinni. Þau fóru bæði fram og niður að útidyr- unum og þegar Njáll opnaði hálfdatt Andri inn. Þau hlúðu strax að honum því hann skalf af kulda og spurði strax um mömmu sína. „Ég kveikti á jólatrénu og spurði hann hvort honum þætti það ekki betra, þá væri eins og Jesúbarnið væri að passa okkur og hann játaði því. Ann- ars var hann alveg rólegur og jafn- aði sig fljótt, grét ekkert. Manni fínnst alveg ótrúlegt að hann skyldi geta þetta,“ sagði Jónína Kjartans- dóttir. Andra varð ekkert meint af gönguferðinni, sofnaði strax og hann kom aftur heim til sín um nóttina. Áður en hann sofnaði sagði hann hálfskömmustulegur við mömmu sína: „Ég skal aldrei gera þetta aft- ur.“ Bændum boðinn hlutur í Afurðasölunni í Borgarnesi Hluta af greiðslum fyrir sláturgripi haldið eftir nema eigendur geri at- hugasemdir fyrir áramót STJÓRN hlutafélags Afurðasölunn- ar hf. í Borgarnesi hefur sent um 500 framleiðendum í grenndinni bréf, dagsett 15. desember, þar sem þess er farið á leit að þeir kaupi hlut í fyrirtækinu með því að leggja inn tiltekna krónutölu í fjögur ár af hveijum grip sem þeir láta slátra. Lágmarksupphæðir eru mismun- andi eftir dýrategundum og segir í bréfinu að fyrirtækið hyggist halda eftir 120 krónum af verði hverrar kindar sem slátrað var í haust, svo fremi að ekki verði gerðar athuga- semdir til framkvæmdastjóra fyrir- tækisins fyrir áramót. Tilgangurinn er, að sögn ívars Ragnarssonar framkvæmdastjóra Afurðasölunnar, að halda fyrirtæk- inu „öflugu og í héraði“. „Ef almenn þátttaka fæst eru þetta ekki ýkja þungar byrðar á hvern bónda,“ seg- ir hann. í bréfinu segir ennfremur að á næsta ári verði teknar 205 kr. fyrir hvert svín, 280 kr. fyrir hross og 1.780 kr. fyrir naut og kýr í hluta- fé, en gjaldið er miðað við 3% af verðmæti heildarinnleggs hjá fyrir- tækinu. Afurðasalan hf. í Borgarnesi er almenningshlutafélag og var stofnuð um rekstur sláturhúss, kjötvinnslu og afurðasölu Kaupfélags Borgfirð- inga fyrir ári. Segir ívar fyrirtækið ekki eiga í erfiðleikum og sé sala hlutafjárins hluti af þeim ráðstöfun- um sem gerðar voru um síðustu ára- mót. „Markmiðið er að ná inn meiri peningum, það er ekki leyndarmál," segir ívar en hlutafé fyrirtækisins er um 65 milljónir nú um áramót og er miðað við að auka það I 137 milljónir á fjórum árum að hans sögn. 25 hafa sagt nei Miðað er við að framleiðendur eignist um 35 milljóna króna hlutafé í fyrirtækinu með þessu móti, eða um 25% eignarhlut. Aðspurður hvemig undirtektir málaleitan Af- urðasölunnar hafi fengið hjá bænd- um segir ívar að um 25 manns hafi þegar farið fram á að fjárupphæð- um, sem þeir eiga inni vegna haust- slátrunar, verði ekki haldið eftir. Alls segir hann að um 100 manns hafi svarað bréfinu, bæði með fyrr- greindum hætti og til þess að kaupa hlut í fyrirtækinu. Aðspurður hvort margir bændur eigi fjárhæðir inni hjá fyrirtækinu segir ívar Afurðasöl- una hafa fé í umsýslu sem ekki sé greitt fyrir fyrr en það selst og einn- ig eigi eftir að greiða 5% til framleið- enda vegna haustslátrunar. Leitað til sveitarfélaga I bréfinu er greint frá því að leit- að hafí verið eftir hlutafjárloforðum frá sveitarfélögum á Snæfellsnesi og í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og segir ívar að miðað sé við að eignarhlutur þeirra verði 20%, ein- staklinga og félagasamtaka 10% og Kaupfélags Borgfirðinga 45%. Hann segir jafnframt að Borgarbyggð hafi gefið hlutaíjárloforð upp á 21 milljón á þremur árum og séu öll slík loforð tekin saman megi ætla að takast muni að auka hlutafé í 100 milljónir að hlutafé framleið- enda undanskildu. íslendingar voru 266.796 talsins þann 1. desember síðastliðinn Hlutur svæðanna í heildarmanntjölda 1994, 20% á milli strika Sjaldan minni fjölgun ÍSLENDINGAR voru 266.796 tals- ins 1. desember sl., samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Karlar eru 133.784 á móti 133.002 konum. Á einu ári hefur íbúum fjölgað um 1.867 eða 0,70%. Fjölg- un hefur sjaldan verið minni hlut- fallslega á einu ári. Á liðnum 50 árum hefur fjölgun aðeins verið jafnlítil eða minni árin 1969-1970, 1977 og 1985. í fyrra fjölgaði landsmönnum um 2.726 eða 1,04%. Seinustu tíu ár hefur árleg fjölgnn verið 1,05% og heildarfjölgnn um 26.343 manns. Svo virðist sem 850 fleiri hafi flutt frá landinu í ár en til þess, og að 2.700 fleiri hafi fæðst en látist, en nákvæmar tölur liggja ekki fyrir. Að líkindum fæðast um 4.450 börn á árinu, en um 1.750 manns falla frá. Til landsins flytj- ast um 2.700 manns en frá því um 3.550. Eru þá brottfluttir umfram aðfluttra 1992-1994 um 1.300. Á liðnum áratug fjölgaði fólki um 25.820 á höfuðborgarsvæðinu en um 523 utan þess. Mannfjöldi óx um 1,5% á höfuðborgarsvæð- inu, 0,7% á Suðurnesjum, 0,4% á Suðurlandi og 0,1% á Norðurlandi eystra. Á Austurlandi fækkaði fólki um 1,0%, á Norðurlandi vestra um 1,4% og 1,6% á Vest- fjörðum og á Vesturlandi. Fækk- unin á Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Austurlandi er hin mesta á liðnum áratug. Flugeldastuldur í Keflavík Gengið í lagerinn allan mánuðinn RANNSÓKNARDEILD lög- reglunnar í Keflavík hefur handtekið 12 unga menn vegna þjófnaðar á flugeldum frá björgunarsveit Suðurnesja í Keflavík og fundið mikið magn þýfisins. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeildinni er ljóst að þjófnaðurinn er mun umfangs- meiri en áður hafði verið talið. Á annan í jólum varð vart við að flugeldar höfðu horfið af lag- er björgunarsveitarinnar og töldu forsvarsmenn hennar að þeir hefðu verið teknir í einu innbroti. Svo var hins vegar ekki. Menn hefðu farið margar ferðir á lagerinn og náð sér í flugelda og síðan hafi þetta spurst út. Nagaðir af samviskubiti John Hill rannsóknarlög- reglumaður segir að búið sé að fínna mikið meirihluta þýfisins, þótt eitthvað hafi verið sprengt og skotið upp. Flestir þeir, sem málinu tengist, séu á aldrinum 15 til 20 ára og hafi þeir verið viljugir að vísa á þýfið, enda hafi samviskan og hræðslan nagað þá. Eitthvað af flugeldunum var hættulegt þeim sem ekki kunna með þá að fara og er lögregl- unni kunnugt um að einn maður hefði brennst á handlegg þegar hann var að kveikja í púðri. John segir að góssið hafi verið geymt víða um bæinn og sums staðar hafi bókstaflega verið sofið á því, en í sumum tilfellum voru flugeldamir geymdir undir rúmum fólks. Flýtir varð smyglara að falli Þórshöfn. Morgunblaðið. KÍLÓIN tvö af hassi sem fund- ust í fórum 26 ára gamals ís- lendings sem var handtekinn á flugvellinum í Vogum í Færeyj- um fyrir jól, eru mesta magn af efninu sem færeysk tollyfír- völd hafa nokkru sinni fundið. íslendingurinn var handtek- inn um klukkulíma eftir komu sína til eyjanna og ætlaði með sömu flugvél frá landinu og hann kom með. Þessi flýtir vakti grunsemdir tollvarða sem ákváðu að athuga hvort hann hefði óhreint mjöl í pokahorn- inu, en svo reyndist vera. I yfír- heyrslum hjá lögreglu hefur ís- lendingurinn viðurkennt að hafa með milligöngu annars íslendings, sem ekki er enn vit- að hver er, samið um að sækja hassið til Færeyja og flytja til Reykjavíkur. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. janúar næstkomandi. Stálu sjón- varpi og peningum % BROTIST var inn í íþróttamið- stöðina í Garði í fyrrinótt og sjónvarpstæki og peningum stolið. I gær voru tveir menn handteknir vegna málsins. Þeir höfðu ekki verið yfirheyrðir þegar síðast fréttist en þýfið er fundið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.