Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 5
FRETTIR
Fokker bilaður á Egilsstöðum
í hálfan annan sólarhring
Varahlutur sótt
ur til útlanda
Egilsstöðum. Morgunblaðið
FOKKERVÉL Flugleiða bilaði á
Egilsstaðaflugvelli þegar hún var í
morgunáætlun sinni í fyrradag.
Flugvirkjar félagsins komu austur
síðdegis með öðrum Fokker sem
hélt síðan áfram til Parísar, en sú
vél hefur verið leigð út til að fylgja
París-Dakar rallinu um þriggja
vikna skeið. Ekki reyndist unnt að
gera við bilunina, en rafall hafði
bilað og þurfti að fá nýjan varahlut
í útlöndum.
Nýr rafall kom til landsins um
miðjan dag í gær, frá Kaupmanna-
höfn, og flaug vél frá Flugfélagi
Austurlands til Keflavíkur til að
sækja hlutinn og flytja hann austur
og gert var ráð fyrir að Fokkerinn
kæmist í lag fyrir kvöldið. Flugvél-
in hafði þá verið biluð í hálfan ann-
an sólarhring.
Verst fyrir farþega okkar
Að sögn Einars Halldórssonar,
umdæmisstjóra Flugleiða á Egls-
stöðum, geta svona dagar komið
upp, að vélar bili. Tvær flugvélar
biluðu, önnur staðsett hér á Egls-
stöðum og hin í Reykjavík, þriðja
vélin leigð til útlanda og aðeins eft-
ir ein vél til að sinna áætlunum.
„Þetta kemur sér verst fyrir farþega
okkar,“ sagði Einar, „þegar svona
mikil röskun verður í flugnu. Nýja
flugbrautin er þó búin að nýtast vel
í vetur og bjarga málum, því kvöld-
flugð var flogð með þotu til Kefla-
víkur, og allir okkar farþegar náðu
áfangastað þó ferðin yrði lengri."
FOKKERINN á Egilsstaðaflugvelli.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Andlát
OTTÓ J.
ÓLAFSSON
OTTÓ J. Ólafsson fyriverandi full-
trúi hjá Innflytjendasambandinu
lést á heimili sínu í Reykjavík á
jóladag, 92ja ára að aldri.
Ottó fæddist í Kaupmannahöfn
7. mars 1902 og var sonur hjón-
anna Jóns A. Ólafssonar húsgagna-
smíðameistara og Guðrúnar Jóns-
dóttur húsmóður. Hann fluttist
bam að aldri til íslands og starfaði
ungur sem loftskeytamaður, meðal
annars hjá Landhelgisgæslunni.
Einnig starfaði hann hjá fyrirtæki
föður síns, Jón Halldórsson og
kompaní, en varð síðar fulltrúi hjá
Innflytjendasambandinu og var þar
til starfsloka um 85 ára aldur.
Ottó kvæntist Borghildi Ólafs-
dóttur 28. maí 1932. Hún fæddist
16. október 1905 og lést í október
árið 1989. Þeim varð þrigga dætra
auðið en þær heita Heba, Guðrún
Sigríður og Helga Kristín. Ottó var
gerður að heiðursfélaga hjá Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur fyrir
störf að félagsmálum árið 1981 og
hjá styrktar- og sjúkrasjóði félags-
ins árið 1992. Hann starfaði einnig
í Sjálfstæðisflokknum og átti meðal
annars sæti í fulltrúaráði þess um
langt skeið.
Þetta hefur þér aldrei boðist áður:
Hlutabréf
með jyre i ðsl ufresti
afborjjunarkjör í allt að 24 mánuði
- skattaafslattur ojj vaxtaafsláttur
Landsbréf hf. og umboðsmenn Landsbréfa í útibúum Landsbanka íslands um allt land
bjóða þér fram til áramóta að njóta 5% vaxtaafsláttar um leið og þú nýtir
skattaafsláttinn á greiðslukjörum! Skattaafslátturinn nemur allt að 42.000 kr. miðað við
kaup fyrir 127.000 kr. hjá einstaklingi og helmingi hærri fjárhæð hjá hjónum.
Samkvæmt núgildandi skattalögum mun skattafrádráttur vegna hlutabréfakaupa verða afnuminn um áramótin 1997-1998.
Kaupár Fjárhæð vegna fjárfestingar
1994 127.000 kr. rúmar
Skattafrádráttur
42.000 kr.
Endurgreiðsla skatts
ágúst1995
1995 127.000 kr.rúmar
1996 200.000 kr. rúmar
ar
nri
iIIM
■HHIUUHI
1997
200.000 kr. rúmar
42.000 kr.
42.000 kr.
ágúst1997
ágúst1998
Framúrskarandi ávöxtun
Við bjóðum þér að kaupa hlutabréf í öllum skráðum hlutafélögum á Verðbréfaþingi Islands
gegn gjaldfresti, s.s. í íslenska hlutabréfasjóðnum sem hefur oft skilað hluthöfum sínum
framúrskarandi ávöxtun, samanborið við aðra hlutabréfasjóði.
Einstök kjör meÖ bónus
Auk þess að njóta einstakra kjara í hlutabréfakaupum, færð þú ómetanlegan bónus:
• Faglegar ráðleggingar við kaup hlutabréfa
• Ráðleggingar í sambandi við æskilegar skattaráðstafanir fyrir áramót
• Aðferðir við að byggja upp verðbréfasafn og draga úr áhættu
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum okkar
og umboðsmönnum í Landsbanka íslands um allt land.
'v Miðstöð hlutabréfaviðskiptanna.
*
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 588 9200, bréfasími 588 8598. Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
HOlSVON'ISiTDnvaNtíjH