Morgunblaðið - 29.12.1994, Side 8

Morgunblaðið - 29.12.1994, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þeir eru alltaf jafn heppnir, Leifarnir okkar, nú eru þeir líka búnir að finna Kína. Tillaga meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs Útsvar í bænum verði 9,2% á næsta ári MEIRIHLUTI Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Kópavogs leggur til að útsvar verði 9,2% fyrir árið 1995. Gert er ráð fyrir að að fasteignaskattur verði 0,375% af fasteignamati og að gjald- dagar verði tíu. Lagt er til að vatns- skattur verði 0,19%, holræsagjald verði 0,13% og vatn samkvæmt mæli kr. 11,32 fyrir hvern ferrnetra. Tillagan hefur verið kynnt í bæjar- ráði og vísað til bæjarstjórnar. Elli- og örorkulífeyrisþegar í tillögunni er jafnframt gert ráð fyrir að gjaldendur er greiði lægri fasteignagjöld en kr. 5.000 greiði þau í einu lagi á gjalddaga 1. mars. Einnig að þeir gjaldendur er greiði fasteignagjöld að fullu fyrir 25. jan- úar fái 5% afslátt. Lagt er til að elli- og örorkulífeyr- isþegar er njóti lækkunar fasteigna- skatts skuli fá afslátt samkvæmt sömu reglum og aðrir gjaldendur af þeim hluta sem þeim ber að greiða. Þá er gert ráð fyrir að veittur verði afsláttur af fasteignaskatti allt að kr. 20.500 til þeirra ellilífeyrisþega sem búa í eigin íbúðum og að örorku- lífeyrisþegar fái afslátt af skattinum að teknu tilliti til brúttótekna árið 1994, sem hér segir: Einstaklingar með brúttótekjur undir kr. 880.000 árið 1994 greiði ekki fasteignaskatt. Einstaklingar með brúttótekjur yfir kr. 1.185.000 árið 1994 greiði fullan skatt en ein- staklingum. með tekjur á bilinu kr. 880.000 til kr. 1.185.000 árið 1994 verði veittur allt frá 0 til 100% hlut- fallslegur afsláttur. Hjón með brúttótekjur undir kr. 1.255.000 árið 1994 greiði ekki fast- eignaskatt. Hjón með brúttótekjur yfir kr. 1.610.000 árið 1994 greiði fullan skatt en hjónum með tekjur á bilinu kr. 1.255.000 árið 1994 til kr. 1.610.000 verði veittur hlutfalls- legur afsláttur allt frá 0 til 100%. Sækja yrði um lækkun með því að skila staðfestu ljósriti af skattfram- tali ársins 1994 ásamt ljósriti af ökuskírteini. Fasteignaskattur Lagt er til að sérstakur 1,25% fasteignaskattur verði lagður á verslunar- eða skrifstofuhúsnæði, ásamt tilheyrandi lóð. Lagt er til að sorppoka- og sorp- eyðingargjald á hveija íbúð í Kópa- vogi verði kr. 6.500 fyrir árið 1995. Olíufélagið hf. Bæjarstjórn Seltjarnarness 8,4% útsvar samþykkt Vatnsskattur 0,15% af fasteignamati BÆJARSTJÓRN Seltjarnarness hefur samþykkt að leggja_ á 8,4% útsvar fyrir árið 1995. Álagning fasteignagjalda verður 0,375% af íbúðarhúsnæði og lóð og 1% af at- vinnuhúsnæði, lóðum og óbyggðum lóðum. Bæjarstjórnin hefur einnig sam- þykkti að vatnsskattur verði 0,15% af fasteignamati. Þá verður urðun- argjald kr. 4.000 og hreinsunar- gjald kr. 2.800. Fasteignagjöld Samþykkt var að fella niður að hluta eða með öllu fasteignagjald elli- og örorkulífeyrisþega. Hjá ein- staklingum með tekjur allt að 987.900 eru gjöldin felld niður. Hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 1.059.100 eru 70% gjald- anna felld niður og hjá einstakling- um með tekjur allt að 1.360.300 eru 30% gjaldanna felld niður. Hjá hjónum með allt að 1.238.700 eru gjöldin felld niður. Hjá hjónum með tekjur allt að kr. 1.473.800 eru 70% gjaldanna felld niður og hjá hjónum með tekj- ur allt að 1.576.800 eru 30% gjald- anna felld niður. Sótt um fjórar lóðir OLÍUFÉLAGIÐ hf. hefur ítrekað við borgarráð fyrri umsókn um lóðir fyrir bensín- og þjónustu- stöðvar. Umsókninni var visað til borgarskipulags og skrifstofu- sljóra borgarverkfræðings. Sótt er um lóðir við Norðlinga- holt/Breiðholtsbraut, Stekkjar- bakka/Höfðabakka, Hamrahlíðar- hverfi/Hallar og í Staðarhverfi við Strandveg. Fram kemur að upphaflega hafi félagið sótt um fleiri lóðir ásamt öðrum svæðum sem betur gætu hentað. Síðan seg- ir: „Það er okkar skilningur að ofangreindar lóðir séu þær sem helst koma til greina. Ef af ein- hverjum ástæðum aðrar lóðir bjóðast eða eru taldar líklegar bensínstöðvar í Reykjavík er það ósk Olíufélagsins hf., að fyrirtæk- inu verði gefinn kostur á þeim.“ Bjargvættur Rafns Benediktssonar Gaman að taka þátt í björgun sem gengur vel Og Rafni Benediktssyni, sem keyrði út af við Fossá í Hvalfirði á mánudagskvöld, varð það að öllum líkindum til lífs að Þórólfur Árnason var að láta hugann reika og rýna út í myrkrið þar sem hann var farþegi í.bíl á suðurleið. Þó- rólfur kom auga á blikkandi ljósin á bíl Rafns í íjörunni fyrir neðan veginn og hlúði að honum þar til þyrla Land- helgisgæslunnar kom og sótti hann. - Hvað varð til þess að þú sást bílinn? „Þegar við vorum komin að Hvalstöðinni fékk ég ein- hveijar hugrenningar um að ég myndi lenda ofan í fjöru. Mér fannst það óhuggulegt því mér fannst eins og þá þyrfti ég að fara að bjarga Margréti, konunni minni, manninum sem var með okkur í bílnum, Manuel Munoz. Þegar við keyrðum Botnsdalinn var ég að horfa á vegriðið og hugsa með mér að það færi nú enginn út af þarna, það væri alls staðar vegrið. En þegar maður er kominn fyr- ir Brynjudalsá og sér Fossá þá hættir vegriðið. Og það er þá sem ég sé blikkandi ljós sunnan megin við Fossána. Þau sáust bara í stutt- an tíma því þau hurfu sjónum okkar þegar við komum nær ánni, ofan í hvilftina. Þá sagði ég strax að það væri bíll ofan í fjörunni. Margrét og Manuel sáu ljósin líka en fannst ólíklegt að það gætu verið bílljós. Svo erum við að spjalla um það hvort þetta gæti verið trilla eða hvað en keyrðum hægt upp brekkuna því við vildum sjá hvort það væru hjólför út af veginum.“ Þórólfur segir að eftir á að hyggja hafi hann hugsanlega séð blikkið útundan sér yfir fjörðinn en það hefði hann örugglega ekki gert ef hann hefði verið að keyra sjálfur. - Hvernig var aðkoman í fjör- unni? „Þegar við sáum hjólförin stopp- uðum við. Ég og Manuel klæddum okkur í úlpur og röktum okkur niður eftir hjólförunum,, sem voru mjög greinileg. Konan mín hringdi strax í lögregluna til að athuga hvort tilkynnt hefði verið um að bíll hefði farið þarna út af. Þegar við komum að bíinum var fyrst þessi hræðsla í manni um að eitthvað slæmt hefði gerst því það heyrðist bara tikkið í þessu litla ljósi, annars var grafarþögn. Við bönkuðum í bílinn en það var ekkert lífsmark neins staðar. Svo kölluðum við halló, halló og þá heyrðum við stunurnar í Rafni í gijótinu og snjónum. Við fórum úr úlpun- um og komum annarri _____________ undir hann og hinni yfir hann. Svo lagðist ég upp við hann til að reyna að koma í hann hita. Ég sendi Manuel upp á veg en þá var Margrét búin að stoppa' bíla og senda menn niðureftir. Þeir komu svona tíu mínútum á eftir okkur með Ijós og yfirhafnir og Manuel hljóp á peysunni, renn- blautur í fætuma, með Kraft-galla til okkar sem ég var með í bílnum. Ég náOi að opna hann og koma undir-Rafn til að hann lægi ekki á snjó eða gijóti. Einhver kom með Iambhúshettu og setti á hann en ég var sjálfur berhöfðaður þangað til ég kom upp í bíl aftur. Það var ekki kominn hiti í Rafn Þórólfur Árnason Rafn sýndi styrk og æðruleysi ►Þórólfur Árnason fæddist í Reykjavík 1957, sonur hjón- anna Árna Pálssonar, sóknar- prests á Borg á Mýrum, og Rósu Bjarkar Þorbjarnardótt- ur, fyrrverandi endurmennt- unarsljóra Kennaraháskóla Is- Iands. Þórólfur er verkfræð- ingur frá Háskóla íslands og Danmarks Tekniske hojskole. Hann er framkvæmdastjóri hjá Olíufélaginu hf., Esso. Þórólf- ur er kvæntur Margréti Bald- ursdóttur tölvunarfræðingi. Þau eiga tvö börn, Baldur og Rósu Björk. fyrr en eftir 20 mínútur eða hálf- tíma og þá fór hann að skjálfa. Þetta var alveg ofan í fjöruborðinu og það pusaði aðeins röku lofti og frostið var 6 til 8 stig. Ég reyndi að fá hann til þess að tala en hann vildi alltaf sofna, var orðinn ískaldur. í samtalinu kom í Ijós hveijir ættingjar haps voru og hvaðan hann væri. Ég reyndi að vekja áhuga hans á ein- hveiju og bað mennina í kring að tala við hann líka þegar ég var búinn með öll umræðuefni. Við leituðum að blóði alls staðar og létum hann hreyfa tærnar og finguma. Við sáum spor eftir hann og vissum því að hann var ekki stórbrotinn en hann kvartaði mjög undan eymslum í baki og hnakka þannig að við þorðum ekki að hreyfa hann. Enda hefðum við aldrei komið honum upp skriðuna." - Hvenær barst hjálpin? „Lögreglan kom kl. 22.40 og sjúkralið um tíu mínútum seinna. Þyrlan var svo komin upp úr ell- efu, aðeins örskoti eftir að kallað var á hana. Allt var farið í loftið og búið um hálftólf. Þeir ætluðu að setja mig í þyrluna líka en það var nú ekki á ferðaplaninu. Mer var skítkalt en ég fór ekki að skjálfa fyrr en ég kom upp í rúm. Maður heldur sér gangandi á einhverri innspýtingu og gerir sér ekki grein fyrir kuldanum þeg- ar svona stendur á. Það var ánægjulegt að þetta skyldi allt ganga upp og maður er lánsamur að fá að taka þátt í björgun þegar vel gengur. Rafn bað mig að hringja í kær- ustuna sína, sem átti von á honum norður. Ég gerði það strax og ég kom upp í bíl og lét hana vita að allt væri í lagi. Rafn var með núm- er, nöfn og allt svoleiðis á hreinu. Hann var mjög duglegur, sýndi mikinn styrk og æðraðist aldrei."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.