Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 10

Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Langar umræður á Alþingi um lánsfjárlög fyrir næsta ár Deilt um hvort efnahags- bati lækki fjárlagahalla SÚ efnahagsstefna sem birtist í greinargerð fjárlagafrum- varps ríkisstjómarinnar í haust hrundi við fjárlagaafgreiðsl- una fyrir jól, að mati formanns Alþýðubandalagsins. Forsætisráð- herra og ijármálaráðherra vísa þessu á bug, og segja að fjárlaga- hallinn hafi þvert á móti lækkað frá fyrra ári. í umræðu um lánsfjárlög fyrir næsta ár á Alþingi á þriðjudag sakaði Ólafur Ragnar 'Grímsson formaður Alþýðubandalagsins ríkisstjómina um ístöðuleysi og ábyrgðarleysi í aðdraganda þing- kosninga. Ólafur Ragnar sagði að höfuð- stefna fjárlagafrumvarpsins hefði verið, að nota ætti efnahagsbatann til að minnka fjárlagahallann. Þessi stefna væri skynsamleg: að reka ríkissjóð með halla á sam- dráttartímum gegn því að nota efnahagsbatann til að minnka hall- ann. „En ríkisstjórnin notar batann til að auka ríkisútgjöldin og auka hallann þvert á yfirlýsingar fjár- lagafrumvarpsins og þvert á viður- kennd sjónarmið um viðurkennda hagstjórn. Þessi ríkisstjórn er því að marka þá braut að það eigi bæði að safna skuldum á samdrátt- artímum og vaxtartímum," sagði Ólafur Ragnar og bætti við að efnahagsbatanum hefði verið eytt síðustu dagana fyrir jól. Hann vitnaði þar í þá niðurstöðu fjárlaga, að útgjaldaliðurinn hækk- aði um 3,6 milljarða í meðfömm þingsins en tekjuliðurinn hækkaði um 2,7 milljarða, aðallega vegna batnandi þjóðhagsforsendna. Hallinn minnkaður Davíð Oddsson forsætisráðherra og Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sögðu að fjárlagahallinn hefði lækkað úr 9,6 milljörðum á núgildandi fjárlögum í innan við 7,5 milljarða á fjárlögum næsta árs. Því væri verið að nota efna- hagsbatann til að lækka hallann. Þeir sögðu einnig að allt benti til að áætlun fjárlaga þessa árs myndi standast og hallinn yrði jafnvel minni en ráð var fyrir gert, eða um níu milljarðar. „Þess vegna getum við horft til þess að fjárlagafrumvarpið, sem við höfum nú afgreitt fyrir næsta ár, sé líka á góðum gmnni reist. Þá eram við að tala um frumvarp þar sem hallinn minnkar, vegna batnandi stöðu þjóðarinnar, um tvo milljarða króna. Og það er það sem háttvirtur þingmaður var að gagn- rýna mig fyrir að hafa ekki gert,“ sagði Davíð. Fríðrik sagði hins vegar rétt að hallinn á fjárlögum næsta árs hefði aukist um tæpan milljarð frá fjár- lagafrumvarpinu, m.a. vegna samninga við sjúkrastofnanir í Reykjavík, samninga við sveitarfé- lögin og fyrirhugaðra vegafram- kvæmda. Vaxtahækkun Ólafur Ragnar fullyrti einnig að undanfarna mánuði hefðu raun- vextir ríkisvíxla hækkað verulega, eða um 15%-25%. Þetta gengi þvert á yfirlýsingar forsætisráð- herra í stefnuræðu í haust, um að vextir myndu fara lækkandi á næstu missérum. „Þegar hvort tveggja er hrunið, vaxtalækkunar- þróunin og sú stefna að nota aukn- ar þjóðartekjur til að minnka ríkis- sjóðshallann, er auðvitað ljóst að ríkisstjórnin er á síðustu mánuðum valdaferils síns að bijóta öll þau boðorð sem hún hefur sett sem mælikvarða góðrar efnahags- stjórnar,“ sagði Ólafur Ragnar. Friðrik Sophusson sagði um þetta, að ríkisvíxilvextir hefðu að vísu hækkað frá 4,34% í 5,25% frá apríl til desember en það væra samt lægri vextir en gengi og gerð- ist í nágrannalöndunum. Hins veg- ar hefði Ólafur Ragnar ekki nefnt að snemma árs 1993 vora vextim- ir 11%. Stjórnarandstæðingar drógu upp dökka mynd af viðskilnaði ríkisstjómarinnar í lok kjörtíma- bilsins. Ríkissjóðshalli næmi sam- tals 40 milljörðum á tímabilinu, skuldir þjóðarinnar hefðu stórauk- ist og kröfur Seðlabankans á ríkis- sjóð nær tvöfaldast, úr 8,7 milljörð- um 1991 í 15,8 milljarða nú. Davíð Oddsson sagði hins vegar að samkeppnisstaða atvinnulífsins hefði batnað verulega og því væri að koma hagvöxtur og sóknarfæri í stað stöðnunar. Þetta væri árang- ur af stefnu ríkisstjórnarinnar í vaxtamálum, peningamálum og gengismálum. EIGNAMIÐLUNIN % Sími 88 • 90 • 90 - Fax 88 • 90 • 95 - Síðumúla 21 Hæð óskast — skipti. Viðskiptavinur óskar eftir hæð, a.m.k. 100 fm auk bílsk. í skiptum fyrir 4ra herb. íb. m. bílskúr I Hvassaleiti. Traustur kaupandi - eign Óskast. Höfum traustan kaupanda að góðri 100-150 fm íb. eða hæð miðsv. I Vesturbæ Rvíkur, eða á Seltjnesi. Gjarnan með góðu útsýni. Uppl. veita Björn og Sverrir. Staðgreiðsla - einbýli í Þingholtum eða Vesturborginni. 250-300 fm einbhús á rólegum stað I Þingholtum eða I Vesturborginni ósk- ast til kaups. Staðgreiðsla - allt greitt við samning í boði fyrir eign sem hentar. Staðgreiðsla - einb. í Fossvogi óskast. 250-300 fm einbhús I Fossvogi óskast. Staðgreiðsla. Allt greitt við samning I boði fyrir rétta eign. 1800 fm skrifstofuhúsn. óskast. Traust fyrirtæki hefur beðið okkur að útvega 1800 fm skrifstofuhúsnæði, gjarnan miðsvæöis. öruggar greiðslur I boði. Eitt blaö fyrir alla! -kjarni málsins! LÍV flytur ínýtt húsnæði LANDSSAMBAND íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) flutti starfsemi sína fyrir skemmstu í nýtt og betra húsnæði á annarri hæð við Fákafen 11 í Reykjavík. Landssamband íslenzkra verzlunarmanna var stofnað árið 1957 og er því á þrítugasta og áttunda starfsári. í því eru um 15 þúsund fullgildir félagar í 26 verslunarmannafélögum og deildum verslunarmanna í verkalýðsfélögum um allt land. Verslunarmannafélag Reykja- víkur er langstærsta aðildarfé- lag LÍV með um 70% félags- manna. LÍV er annað stærsta aðildarsamband ASÍ en VR stærsta einstaka félagið. Hlutverk LÍV er víðtækt Hlutverk LÍV er að efla sam- tök skrifstofu- og verslunar- manna, vera málsvari og hafa á BENEDIKT Davíðsson forseti Alþýðusambands íslands afhendir Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur formanni Landssambands ís- lenzkra verzlunarmanna blómakörfu í tilefni af nýja húsnæðinu. hendi forystu í hagsmunamálum þeirrra. í kjarasamningum á undanförnum árum hefur LÍV farið með samningsumboð fyrir flest aðildarfélög nema VR, sem fer sjálft með sína samninga, þótt þeir séu unnir í fullri sam- vinnu við LÍV. í komandi sérlqarasamningum leggur LÍV mikla áherslu á að vinnuveitend- ur semji við verslunarmenn á starfsgreinagrunni, sem þýddi að tekið yrði á mismunandi vandamálum mismunandi starfshópa í greininni, segir í frétt frá LÍV. Frá og meö l.janúar 1995 breytist val til útlanda. í staö 90 kemur 00 PÓSTUR OG SÍMI mundu! ~l.S w stafa simanúmer

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.