Morgunblaðið - 29.12.1994, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Samþykkt að lækka hlutafé
Dagsprents niður í 3,4 milljónir
Fr amsóknarfé-
lögin eiga nánast
ekkerti
HLUTHAFAFUNDUR í Dagsprenti
hf. samþykkti í fyrradag að færa
hlutafé félagsins niður um 95%. Þá
var einnig samþykkt að afla nýs
hlutafjár að upphæð um 20 milljónir
króna.
Kaupfélag Eyfirðinga og Kaffi-
brennsla Akureyrar sem eiga um
68% hlut í Dagsprenti, útgáfufélagi
dagblaðsins Dags, hafa lýst yfír vilja
til að leggja fram allt að tíu milljón-
ir króna í nýju hlutafé að því til-
skildu að nýir hlutahafar leggi fram
jafn háa upphæð. Eftir niðurfærsl-
una er hlutafé 3,4 milljónir króna
en stefnt er að því að það verði um
24 milljónir.
Framsóknarfélögin
skoða málið
Tvö framsóknarfélög, á Akureyri
og í Eyjafirði, sem voru næststærstu
hluthafar fyrirtækisins, áttu rúm-
lega 28% hlutafjár. Gísli Kristinn
Lórenzson, formaður Framsóknarfé-
lags Akureyrar, sagði að engin af-
staða hefði verið tekin til þess innan
blaðmu
stjórnar félagsins hvort forkaups-
réttur að nýju hlutafé yrði nýttur
eða hvort félagið myndi alfarið
draga sig út úr rekstrinum. Ljóst
væri þó að hlutur félaganna væri
afar lítill orðinn. Hann sagði fyrir-
hugað að halda stjórnarfund í félag-
inu fljótlega eftir áramót þar sem
málið yrði rætt.
Hluthafar í Dagsprenti eru um
140 talsins og verður þeim á næstu
dögum sent bréf þar sem tilkynnt
er um samþykkt hluthafafundar og
hafa þeir tveggja vikna frest til að
nýta sér forkaupsrétt sinn að kaup-
um á nýju hlutafé. Dagsprent hefur
verið í greiðslustöðvun síðustu mán-
uði og rennur hún út 24. janúar.
Dagur hefur komið út i 77 ár,
þingmenn kjördæmisins stofnuðu
það á sínum tíma en afhentu það
framsóknarfélögunum sem sáu um
útgáfuna áratugum saman. Eftir að
blaðið varð dagblað hefur Kaupfélag
Eyfirðinga verið meirihlutaeigandi
þess á móti framsóknarfélögunum.
Morgunblaðið/Bei\jamín
ÖGN er eins og lamb við hliðina á eldri kálfi í fjósinu á Ytri-Tjörnum.
„ÞETTA er algjört fyrirbrigði,“
varð Ármanni Gunnarssyni
dýralækni að orði er hann skoð-
aði sjö kílóa kvígu sem fæddist
annan dag jóla í fjósinu á Ytri-
Tjörnum í Eyjafjarðarsveit.
Móðirin er tveggja ára gamall
Galloway-holdablendingur en
faðirinn er Hólmi 91637, hrein-
ræktað Galloway-naut úr Hrís-
ey. Vanalega eru kálfar af þessu
Sjö kílóa
jólakálfur
kyni um 30 kíló við fæðingu, en
þessi nýfædda kvíga er á við
vænan einlembing. Kvigan er
ekki skyldleikaræktuð og gekk
hún með kálfinn fullan með-
göngutíma og ríflega það, þann-
ig að þeir þættir skýra ekki
smæð kálfsins. Litla kvígan sem
hlotið hefur nafnið Ögn á frem-
ur erfitt með gang en stendur
óstudd og hefur góða lyst á
mjólkinni sem hún sýgur úr
pela.
Fundir hjá Verkalýðsfélaginu Einingu vegna komandi kjarasamningaviðræðna
Spýtt í lófana verði ekki
farið að ganga í lok ianúar
FJÖGUR atriði eru sett á oddinn
hjá félögum í Verkajýðsfélaginu
Einingu vegna komandi kjarasamn-
inga, hækkun lægstu launa, að þau
laun sem samið verður um verði
tryggð á einhvem máta, skattleys-
ismörkin og lánskjaravísitalan. Und-
irbúningur vegna kjarasamning-
anna hefur staðið yfir frá því í haust
og hafa verið haldnir um 40 fundir
vegna þeirra, nú síðast var farið í
fundaferð um allt umráðasvæði fé-
lagsins i Eyjafírði og rætt við al-
menna félagsmenn um stöðu mála
og hugmyndir kynntar.
Björn Snæbjömsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar, sagði
það ríkjandi skoðun að semja eigi
við atvinnurekendur fyrst áður en
farið verði í viðræður við ríkisvald-
ið. Þá er að eindregin skoðun félags-
manna að Verkamannasambandið
eigi að hafa yfirumsjón með kjara-
samningaviðræðum fyrir sín aðild-
arfélög, stóru samflotin séu ekki
nægilega góð nema að því er snýr
að ríkinu.
Yfirvinna horfin
„Launin eru orðin svo lág og þau
orð sem aðstoðarmaður félagsmála-
ráðherra lét falla á dögunum um
að félagsmálastofnanir gætu ekki
notað kauptaxta sem viðmiðanir
vegna aðstoðar segja meira en
margt annað um hversu hrikalega
lág launin eru,“ sagði Bjöm. „Yfir-
vinna er að stórum hluta horfinn
og fólk er með taxtakaupið eitt, hér
á þessu svæði er ekki mikið um
yfirborganir og þá eru fleiri hundr-
uð manns á atvinnuleysisbótum.
Það segir sig því sjálft að fólk var
ekki sérlega upprifið á þessum
fundum. Ástandið er mjög slæmt
og getur ekki^versnað, neyðin fer
að reka menn út í aðgerðir."
Björn sagði starfsöryggi fisk-
SKRETTING A/S í Noregi ætlar
að kaupa um 4.400 tonn af fiska-
fóðri af fóðurverksmiðjunni Laxá á
Akureyri á næsta ári og ef til vill
meira verði aðstæður góðar.
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Laxár sagði samn-
inga um sölu fiskafóðurs til Noregs
einkar góða fyrir fyrirtækið en það
magn sem Skretting hyggst kaupa
á næsta ári væri ekki ósvipað því
sem verið væri að framleiða í heild
fyrir innanlandsmarkað. Utflutn-
ingurinn hefði því í för með sér
meiri vinnu í fyrirtækinu og gera
mætti ráð fyrir tvöföldun á mann-
skap þegar kæmi fram á næsta ár.
„Það er alveg ljóst að þessi sala
út til Noregs þýðir meiri vinnu hjá
okkur, sennilega verður hér vakta-
vinna mestallt næsta ár og einhvern
hluta þess þarf eflaust að vinna
allan sólarhringinn gangi allt eftir.
Þetta magn sem við væntanlega
munum selja út jafngildir nánast
verkunarfólks mjög hafa brunnið á
fólki í kjölfar þess að Vinnuveit-
endasambandið og Vinnumálasam-
bandið hafa sagt upp kauptrygg-
ingasamningum við Verkmanna-
sambandið.
„Við höfum ekki langan tíma til
að semja, nú verða menn að fara í
viðræður af fullum krafti og það
er alveg ljóst að ef ekkert verður
farið að ganga undir lok næsta
mánaðar verður að skoða stöðuna
vandlega. Ef ekkert hefur gerst á
því tímabili verða menn að fara að
spýta í lófana,“ sagði Björn.
því sem við erum að framleiða í
verksmiðjunni fyrir allan innan-
landsmarkaðinn,“ sagði Guðmund-
ur.
Hann sagði að fyrir utan sjálf
viðskiptin sem fælustú fóðursölunni
væri mikill styrkur fyrir fyrirtækið
að eiga samskipti við Skretting A/S
en fyrirtækið væri hið fremsta í
gerð laxafóðurs í heiminum. „Þessi
samskipti styrkja okkur því mjög
sem fóðurframleiðendur," sagði
Guðmundur en í bígerð er að koma
á samstarfssamningi milli fyrir-
tækjanna tveggja um ýmislegt er
lýtur að starfsgreininni.
Aukning
Skretting er nú að kaupa fiska-
fóður af Laxá í þriðja sinn og hefur
salan aukist jafnt og þétt. Árið
1993 voru seld tæplega 800 tonn
af fóðri til Noregs, tæplega 1.600
tonn í ár og að minnsta kosti 4.400
tonn á næsta ári.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ARNAR Jónsson átti 40 ára
leikafmæli í fyrrakvöld.
Arnari
fagnað á
40ára
leikafmæli
ARNARI Jónssyni leikara var vel
fagnað eftir frumsýningu á leikritinu
Óvænt heimsókn eftir J. B. Priestley
hjá Leikfélagi Akureyrar í fyrra-
kvöld, en rétt 40 ár voru þá frá því
hann steig sín fyrstu spor á leiklist-
arbrautinni. Hann fór með hlutverk
Hans í barnaleikritinu um Hans og
Grétu sem var jólaleikrit Leikfélags
Akureyrar árið 1954, en þá var hann
11 ára gamall. Viðar Eggertsson
leikhússtjóri færði Arnari blóm í til-
efni af 40 ára leikafmælinu og rakti
feril hans, en Arnar sem er fastráð-
inn leikari hjá Þjóðleikhúsinu er
gestaleikari hjá LA í þessari sýn-
ingu. Arnar sagði eftir frumsýning-
una að hann tryði því vart að liðin
væru 40 ár frá því hann byijaði að
leika og hann vænti þess að næstu
40 ár í lífi sínu yrðu jafnskemmtileg
og þau sem liðin eru. Síðast lék
Arnar með Leikfélagi Akureyrar
árið 1983 í rómaðri uppfærslu á
My Fair Lady og sagðist hann enn
síður trúa því að 11 ár væru frá því
hann hefði síðast stigið á fjalir gamla
Samkomuhússins á Akureyri.
Fjarkennsla um tölvur
við Verkmenntaskólann á Akureyri
Kenndar verða eftirtaldar greinar
ef næg þátttaka fæst:
Bókfærsla, danska, eðlisfræði, enska, félags-
fræði, íslenska, saga, sálfræði, stærðfræði,
þjóðhagfræði, þýska.
Öll kennsla er miðuð við yfirferð og kröfur í
samsvarandi framhaldsskólaáföngum
og lýkur með prófi.
Nánari upplýsingar og innritun 2.-6. janúar í
Verkmenntaskólanum á Akureyri,
sími 96-11710 á milli kl. 8.00 og 15.00.
-kjarnimálsins!
Laxá selur Skrett-
ing fiskafóður