Morgunblaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAIUDIÐ
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 13
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
BRAUTSKRÁÐIR nemendur ásamt skólameistara.
Skólaslit o g braut-
skráning nem-
enda á Akranesi
Akranesi - Skólaslit á haustönn
1994 í Pjölbrautaskóla Vesturlands
á Akranesi fóru fram þriðjudaginn
20. desember sl. á sal skólans á
Akranesi. Þá voru brautskráðir 34
nemendur frá skólanum en laugar-
daginn 17. desember voru 19 véla-
verðir brautskráðir í Stykkishólmi.
Nemendurnir skiptust þannig á
námsbrautir að 20 luku stúdents-
prófi, 19 prófi vélavarða, 7 loka-
prófum á iðn- og verknámsbraut-
um, 3 burtfararprófi sjúkraliða, 2
almennu verslunarprófi, 1 prófi af
uppeldisbraut og 1 nemandi af sér-
kennslubraut.
Arnheiður Hjörleifsdóttir hlaut
viðurkenningu fyrir bestan árangur
stúdenta auk viðurkenningar fyrir
ágætan árangur í líffræði. Einnig
hlutu Gyða Gunnarsdóttir, Hugrún
Magnúsdóttir, Bjarney Hinriksdótt-
ir og Áslaug Þorsteinsdóttir viður-
kenningar fyrir ágætan árangur í
ýmsum greinum. Þá fengu Eyrún
Baldursdóttir, Gunnar Sturla Her-
varsson og Svanfríður þóra Gísla-
dóttir viðurkenningar fyrir gott
framlag til léiklistar í skólanum.
Athöfnin hófst á því að hljóm-
sveitin Mr. Moon lék tvö lög. Síðar
lék Unnur María Bergsveinsdóttir
nemandi á tónlistarbraut einleik á
píanó. Þá lásu Eyrún Baldursdóttir
og Svanfríður Þóra Gísladóttir upp
dagskrá um heilagan Þorlák.
Þórir Ólafsson skólameistari
fiutti annál skólastarfsins og kom
þar m.a. fram að 679 nemendur
hófu nám á haustönn í dagskóla.
Kennsla í dagskóla fór fram á Akra-
nesi, í Snæfellsbæ og Stykkishólmi.
Auk þess var kennsla fyrir véla-
verði í Grundarfirði og Stykkishólmi
og annaðist Farskóli Vesturlands
það verkefni. Til viðbótar við véla-
verðina hafa tugir manna sótt nám-
skeið á vegum Farskólans.
Starfsmenn skólans á haustönn
1994 voru alls 83 auk þeirra sem
komu að ýmsum námskeiðum Far-
skólans.
Unnið að frekari þróun
Nýtt fulltrúaráð skipað fulltrúum
þeirra sveitarfélaga sem standa að
Fjölbrautaskóla Vesturlands var
skipað eftir sveitarstjórnarkosning-
ar fyrr á árinu og ný skólanefnd í
kjölfar þess. Vinnur skólanefndin
nú að frekari þróun skólans í sam-
ræmi við viðamikla áætlun um starf
hans og uppbyggingu sem kom út
fyrir á þessu ári. Sveitarfélögin á
Vesturlandi hafa staðið vel saman
um framgang og velferð skólans
enda er hann viðamesta samstarfs-
verkefni þeirra.
í lok athafnarinnar á þriðjudag
flutti Helga Atladóttir nýstúdent
ávarp fyrir hönd brautskráðra nem-
enda og skólameistari kvaddi þá
fyrir hönd skólans. Er um 250 sam-
komugestir höfðu sungið saman
heims um ból var viðstöddum boðið
til veislukaffis í skólanum.
Morgunblaðið/Silli
EINAR Njálsson bæjarstjóri flytur framsöguræðu, en við hlið
hans er forseti bæjarstjórnar, Valgerður Gunnarsdóttir.
*
Utvarpað frá
bæj arslj órnarfundi
Húsavík - Á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Húsavíkur var tekin upp
sú nýbreytni að útvarpa frá fund-
inum og sáu nemar framhaldsskól-
ans um þá útsendingu. Þeir hafa
þijá síðastliðna vetur rekið útvarps-
stöð, sem útvarpar að kvöldi til
flesta daga vikunnar.
Fjárhagsáætlun bæjarins var
tekin til fyrri umræðu á þessum
fundi og flutti Einar Njálsson bæj-
arstjóri framsöguræðu með henni.
Ath! Skráning er hafin í okkar geysivinsælu fitubrennslunámskeið
Eitt blab fyrir alla!
L - 1 3H0t0ttnHnbib
a- - kjarni málsins!