Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 21

Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 21 Sköpunar- máttur eldsins Torill Thorstad Hauger Norrænu barnabóka- verðlaunin 1994 Hauger fékk þau í ár NORRÆNU bamabókaverðlaunin em veitt árlega af norrænu sam- bandi kennara sem starfa á skóla- söfnum (Nordisk skolebibliotekar- forening) í þvi skyni að styðja og örva útgáfu á norrænum bama- og unglingabókum. Verðlaunin em einu samnor- rænu bamabókaverðlaunin og em heiðurslaun til núlifandi norræns rithöfundar sem skrifar fyrir böm á skólaskyldualdri. Verðlaununum varð fyrst úthlutað árið 1985 en þá hlaut sænska skáldkonan Marie Gripe þau. Árið 1992 vom þau veitt Guðrúnu Helgadóttur. Verðlaununum var úthlutað í Kaupmannahöfn nú í nóvember. Norski rithöfundurinn Torill Thor- stad Hauger fékk þau í ár. f álitsgerð dómnefndar kemur m.a. fram að skáldkonan er heiðr- uð fyrir ritstörf sín í heild en þó einkum þau skáldrit sem em af sögulegum toga. Með þeim hefur, hún stuðlað að og eflt áhuga bama og unglinga á sögu og arfleifð. Á íslensku hafa komið út tvær bækur eftir Torill TH. Hauger: í víkingahöndum og Flóttinn frá vík- ingunum. Að þessu sinni tilnefndi Félag skólasafnskennara af ís- lands hálfu höfundana Friðrik Erl- ingsson og Magneu frá Kleifum. -----»-■♦-4--- Ovitar frumsýnd- ir í Noregi LEIKRITIÐ Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur verður jólaverkefni Nör- Tröndelag. Teaterværksted í Verdal, skammt fyrir utan Þrándheim, í Nor- egi í ár og var frumsýning 28. desem- ber. Leikstjóri sýningarinnar er einn þekktasti leikstjóri Norðmanna, Arn- ulf Haga, en hann er m.a. frægur fýrir sýningar sínar undir beru lofti að Stiklarstöðum um Ólaf helga Nor- egskonung. Sýningin er sett upp á hveiju sumri og dregur að sér fjölda ferðamanna. Þá hefur verið gengið frá samning- um við Nordiska Strakosch Teaterförlaget í Kaupmannahöfn um alheimsdreifingu á Óvitum fyrir utan Þýskaland og Island. Forlagið er eitt hið stærsta á þessu sviði á Norður- löndum og sérhæfir sig í að koma norrænum leikritum á framfæri er- lendis. , Guðrún Helgadóttir hefur þegar skapað sér nafn erlendis sem barna- bókahöfundur. Verk hennar hafa ver- ið gefin út í níu löndum; Bandaríkjun- um, Þýskalandi, Hollandi, Japan, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Færeyjum. Hún hefur hvarvetna hlotið góða dóma fyrir verk sín. Vaka-Helgafell hefur tekið við rétti á útgáfu á verkum Guðrúnar Helga- dóttur hér á landi og á það bæði við um nýjar bækur sem eldri verk. Fimmtán ár eru nú liðin frá því að leikritið Óvitar var frumsýnt í Þjóð- leikhúsinu. MYNPUST Gallerí Birgir A ndrcsson INNSETNING Halldór Ásgeirsson. Opið fimmtu- daga kl. 14-18 (eða eftir samkomu- lagi) út janúar. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ er ekki oft, sem listunnend- ur haf fengið jafngott tækifæri til að fylgjast með tilraunum og þróun eins listamanns frá einu stigi til annars eins oggefist hefur í sýning- um Halldórs Asgeirssonar síðustu rúm þijú ár. Slíkt tækifæri er ávallt þakkarvert, bæði þegar haft er í huga hversu markviss þróun verka Halldórs hefur reynst vera, og að á sýningunni nú getur að líta eink- ar tæra myndbirtingu þess sköpun- armáttar, sem eldurinn býr yfir, og listamaðurinn hefur verið að fást við á ýmsum stigum undanfarin ár. Halldór hafði áður haslað sér völl sem listmálari, en með sér- stæðri sýningu í Gallerí einn einn vorið 1991 kom hann fram með nýtt verkfæri, ef svo má að orði komast: eldinn. Á þeirri sýningu gat að líta teikningar, sem reykur eldsins hafði markað á fjölbreytileg efni, og síðar á sama ári hélt Hall- dór stóra sýningu í Nýlistasafninu, þar sem öfl jarðar, 'sjávar, vinda og elds voru leidd saman í rekavið- ardrumbum, sem listamaðurinn hafði bórið eldi og mótað í táknræn för lífsins. En eldur Halldórs hefur ekki aðeins mótað lífræn efni, heldur tók hann einnig að bera eld að hrauni og vikri. Hann sýndi m.a. þannig verk á sýningu Myndhöggvarafé- lagsins í Hveragerði, og loks á einkasýningu í Listasafni ASÍ fyrir um ári, þar sem fínlegir glertaumar úr bræddu hrauninu dönsuðu um salina; hér er að finna rökrétt framhald þeirrar sýn- ingar, sem víkkar út það samspil elds og lita sem þar var að finna. Innsetninguna nefn- ir Halldór „Hraun-um- myndir“, enda byggir hún á ummyndun hrauns fyrir tilstilli þess sköpunarkrafts, sem býr í eldinum. Galleríið er aðeins eitt herbergi með stórum glugga (sem gefur ágæta „innsýn" á verk- ið, komi menn að lokuðum dyrum), og listamaðurinn nýtir kosti þess með einfaldri uppsetningunni. Úr loftinu hangir stór hraunmoli, sem hefur verið sviðinn eldi að hluta, svo að úr honum leka gleijaðir taumar niður í þriggja hæða stæðu af flöskum, sem innihalda litað vatn; í þeim er litrófið spannað frá glæru niður í nær svart. Á sýningunni í Listasafni ASI og í verki Halldórs á sýningunni „Skúlptúr - Skúlptúr" á Kjarvals- stöðum í sumar var hægt að finna litla en mikilvæga litadropa, sem voru myndaðir líkt og heitar slettur frá bráðnu hrauninu. Hér er þessari hug- mynd um samspil elds og lita fylgt eftir á enn skemmtilegri hátt, þeg- ar taumar bráðins hraunsins tengjast sjálfri undirstöðunni, litrófinu í flöskunum. Ýmsir listmálarar - þar skal vitaskuld Kjarval fyrstan telja - hafa áður kennt íslend- ingum að líta til litanna í hrauninu. En þar hef- ur þó ætíð verið um að ræða það sem hvílir utan á; ljós, mosar, skófir, lyng og skuggar hafa skapað þá litadýrð sem málverkin sýna. Með því að nýta kraft eldsins gengur Halldór skrefí lengra og leysir úr læðingi þá liti, sem búa innra með hrauninu sjálfu; þannig opnast mönnum áður óþekktar víddir, sem enginn er betur hæfur til að kanna nánar en Halldór sjálfur. Það er vissulega ánægjulegt að fá að ljúka misjöfnu myndlistarári með því að mæla eindregið með jafn góðri sýningu og hér getur að líta, en sýningin mun einnig standa mánuð af nýju ári. Eiríkur Þorláksson Síðustu sex mánuði hefur gengi hlutabréfa í Auðlind sýnt un Allir sem fjárfesta í hlutabréfum fyrir 129.900 kr. fá skattaafslátt sem nemur Leitið upplýsinga hjá ráðgjöfum okkar í síma Þegar fjárfest er í hlutabréfum skiptir máli hver ávöxtun þeirra er. Síðustu sex mánuði hefur gengi hlutabréfa í Auðlind hækkað um 9,1% sem gerir 19% ávöxtun á árs- grundvelli. Einstaklingur sem kaupir hlutabréf fyrir 129.900 kr. fyrir áramót fær 43.480 kr. skattaafslátt á næsta ári og hjón allt að 86.960 kr. Kaupþing býður lán á hagstædum kjörum til kaupa á hlutabréfum í Auðlind. KAUPÞING HF Löggilt verdbréfafyrirtœki í eigu Búnaðarbankans og sparisjóðanna Halldór Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.