Morgunblaðið - 29.12.1994, Side 24

Morgunblaðið - 29.12.1994, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ! 1 Niels Helveg Petersen um evróp STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. UMBÆTUR A STJÓRNARSKRÁ FRUMVARP til breytinga á mannréttindakafla stjórnar- skrár íslands hefur verið lagt fram á Alþingi og eru flutn- ingsmenn forystumenn allra þingflokka. Alþingi ályktaði á hátíðarfundi sínum á Þingvöllum síðastliðið sumar að Ijúka skyldi fyrir næstu þingkosningar endurskoðun mannréttinda- kaflans. Færa skyldi ákvæði kaflans til samræmis við alþjóð- lega mannréttindasáttmála, sem ísland er aðili að, og hafa hliðsjón af tillögum stjórnarskrárnefndar. Fram kom í ræðu Geirs H. Haarde, fyrsta flutningsmanns frumvarpsins, er hann mælti fyrir því á þingi, að tilgangur frumvarpsins væri í fyrsta lagi að styrkja og samræma mann- réttindaákvæði stjórnarskrárinnar þannig að þau gegndu bet- ur því hlutverki sínu að vera vörn almennings í samskiptum við ríkisvaldið, í öðru lagi að færa ýmis ákvæði til nútíma- horfs og gera þau auðskildari, og í þriðja lagi að taka mið af þjóðréttarlegum skuldbindingum samkvæmt t.d. mannrétt- indasáttmála Evrópu og alþjóðasamningnum um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Meðal mikilvægra nýmæla í frumvarpinu má nefna máls- grein, sem tryggir rétt manna til að standa utan félaga, en núverandi stjórnarskrárákvæði um félagafrelsi hafa ekki stað- izt mannréttindasáttmála Evrópu að mati Mannréttindadóm- stólsins. Þá verður fest í stjórnarskrá jafnræðisreglan svokallaða: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarhátt- ar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Ákvæði um trúfrelsi og rétt manna til að standa utan trúfé- laga eru færð til nútímahorfs, en áfram er ítrekaður stuðning- ur ríkisins við hina evangelísku lúthersku kirkju sem þjóð- kirkju íslendinga og er það vel. Þá eru ákvæði um tjáningar- frelsi aðlöguð þeirri staðreynd að íjölbreytni í fjölmiðlun hef- ur aukizt mjög. Mikilvægt nýmæli er ákvæði um að löggjafinn megi ekki framselja til stjórnvalda ákvörðun um hvort skattur verði lagð- ur á, honum breytt eða hann afnuminn og afturvirkni skatta- laga er bönnuð. Stjórnarskráin er auðvitað grundvallarskjal, sem ber að hrófla sem minnst við, en það er þó sjálfsagt að hún taki mið af þjóðfélagsþróun og alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins. Mannréttindakafli núverandi stjórnarskrár, sem að stofni til er frá 1874, er að sumu leyti orðinn úreltur. Allar þær breyt- ingar, sem umrætt frumvarp kveður á um, virðast því til bóta. í framtíðinni verður það ef til vill íhugunarefni, hvort kveða beri fastar að orði í stjórnarskrá um takmarkanir á skattlagn- ingarvaldi stjórnvalda. Ákvæði af því tagi kynnu að veita nauðsynlegt aðhald í ríkisfjármálum. Mál, sem hins vegar ber að taka á nú þegar, er að við aðrar breytingar á stjórnarskránni sem fyrirhugaðar eru á ýfirstandandi þingi — breytingar sem snerta kosningalög og kjördæmaskipan — verði farið að hinni nýju jafnræðisreglu og réttur manna til að kjósa fulltrúa sína á þing jafnaður, óháð búsetu. MORGUNBLAÐIÐ OG RAFRÆN FJÖLMIÐLUN AÁRINU, sem nú er að renna skeið sitt á enda, hefur Morgunblaðið með ýmsum hætti nýtt sér kosti rafrænn- ar fjölmiðlunar til að bæta þjónustu við lesendur sína. Fyrst ber að nefna að Morgunblaðið selur nú áskrift að gagnasafni sínu með milligöngu Strengs hf. Notendur hafa í gagnasafninu aðgang að efni blaðsins allt frá árinu 1986 í tölvutæku formi og geta leitað að margvíslegum upplýsingum. Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir hafa þegar nýtt sér þessa þjónustu með góðum árangri. í annan stað geta blindir nú lesið Morgunblaðið með aðstoð tölvu og talgervils sem les upp efni blaðsins fyrir þá. I þriðja lagi verður hægt, með milligöngu Strengs hf., að kaupa áskrift að Morgunblaðinu á upplýsingaveitunni Inter- net frá og með 1. febrúar næstkomandi. Frá áramótum og fram að þeim tíma verður texti blaðsins, að frátöldum augiýs- ingum, öllum aðgengilegur til reynslu, án endurgjalds. Internet-áskrift býður upp á marga nýja möguleika. Meðal annars auðveldar hún íslendingum erlendis mjög að fylgjast með íslenzkum fréttum, og með því að lesa blaðið í tölvu sparast hin háu póstburðargjöld, sem innheimt eru af áskrif- endum dagblaða erlendis. Með þessum nýjungum leitast Morgunblaðið við að veita lesendum sínum áfram sem bezta og fjölbreyttasta þjónustu og að vera öllum aðgengilegt, sem áhuga hafa á efni blaðsins. • • ________ Oryggi eins Evrópi er öryggi allra am Atlantshafsbandalagið eitt getur tryggt hem- aðarlegt öryggi í Evrópu og allar nýjar hliðar á hemaðarsamstarfi aðildarríkjanna munu eiga sér stað innan þess, ekki utan. Kemur þetta fram í grein eftir Niels Helveg Peter- sen, utaiiríkisráðherra Danmerkur. EFTIR inngöngu Austurrík- is,'Svíþjóðar og Finnlands í Evrópusambandið vérð- ur næsta stóra verkefnið á vettvangi þess ríkjaráðstefnan á árinu 1996. Þá verður innganga nokkurra ríkja í Mið- og Austur- Evrópu, þar á meðal Eystrasalts- landanna, ofarlega á baugi og er það í samræmi við stefnu okkar Dana. Evrópa hefur aftur fengið tækifæri til að sameinast sem ein fjölskylda. Á dagskrá ríkjaráðstefnunnar verða einnig önnur mál, sem deilur hafa staðið um í Dan- mörku. Ber þar hæst stefnuna í utanríkis- málum og ákvarðana- ferlið innan sambands- ins. Miklu skiptir, að við séum vel undir ráð- stefnuna búnir en með þjóðaratkvæðagreiðsl- unni 18. maí 1993 var stefna okkar í Evrópu- málum mörkuð í aðal- atriðum. Það kom einn- ig fram í umræðum fyrir þjóðaratkvæða- greiðsluna, að sjö stjórnmálaflokk- ar eru sammála um, að engar breyt- ingar geti átt sér stað nema að undangenginni annarri þjóðarat- kvæðagreiðslu. Þetta þýðir þó ekki, að umræður um Evrópumálin haldi ekki áfram hér í Danmörku. Þvert á móti. Með þjóðaratkvæðagreiðslunni var ekki verið að loka á nýja hugsun og vangaveltur enda ber okkur skylda til að halda áfram fordómalausri umræðu um framtíð Danmerkur í Evrópu. Meginatriði stefnunnar í varnarmálum tel ég vera þessi: Þrjú grundvallaratriði I fyrsta lagi, að öryggisábyrgðir séu trúverðugar. Innantómar yfir- lýsingar eða ábyrgðir, sem ekki er unnt að standa við, eru verri en engar. Það reyndu Evrópumenn á árunum fyrir stríð hvað varðaði Tékkóslóvakíu og Pólland. I öðru lagi, að öryggi eins Evrópuríkis sé óaðskiljanlegt frá öryggi annars. Annaðhvort er um að ræða öryggi og stöðugleika í allri Evrópu eða óáran og átök, sem láta ekkerl land ósnortið. Minna má á, að 1.400 danskir her- menn eru nú í Júgóslavíu, sem áður var, þrátt fyrir mikla fjarlægð milli landanna. í þriðja lagi hefur inntakið í ör- yggismálastefnunni flust frá herj- um og hernaðarbandalögum, sem miðuð eru við stórstyrjöld í Evrópu, til fyrirbyggjandi aðgerða með áherslu á efnahagslega þróun og aukin samskipti. Frá árinu 1989 hefur orðið grundvallarbreyting á stöðunni í öryggismálum. Þá var það stefna okkar og bandamanna okkar að geta hrundið skyndiárás Sovétríkj- anna og raunar annarra ríkja, sem eru nú meðal vinaþjóða okkar, til dæmis Pólverja. Nú er það verkefn- ið að standa vörð um friðinn, taka þátt í fyrirbyggjandi aðgerðum og leggja okkar af mörkum til að kommúnistaríkin fyrrverandi geti lagað sig að vestrænum samfélags- gildum. Gömul viðhorf endurmetin Þetta gerir miklar kröfur til okk- ar og kannski meiri en við gerðum okkur grein fyrir. Það kallar einnig á, að við verðum að endurmeta gömul viðhorf enda er ekki víst, að þær stofnanir og það samstarf, sem dugði vel gegn Sovétríkjunum, séu best fallin til að leysa þau öryggis- vandamál, sem blasa við í Evrópu á miðjum tíunda áratug aldarinn- ar. Það væri raunar undarlegt ef svo væri. Enn er það Atlants- hafsbandalagið, NATO, með þátttöku Banda- rikjamanna, sem eitt getur tryggt hernaða- röiyggi í Evrópu. Loforð eða yfir- lýsingar einhverra annarra sam- taka í þeim efnum eru marklaus. Þess vegna verða allar nýjar hliðar á hinu hernaðarlega samstarfi að eiga sér stað innan bandalagsins, ekki utan þess eða í samkeppni við það. Vestur-Evrópusambandið, VES, er tvímælalaust evrópski horn- steinninn í NATO og með sam- þykki Bandaríkjamanna. Óttinn við VES sem keppinaut, sem ætlað væri að koma Bandaríkjamönnum burt úr Evrópu og gera NATO óþarft, er horfinn. Bandaríkjamenn leggja sig nú fram við að hvetja Evrópuríkin til að leggja meira af mörkum til eigin varna. Varnar- samstarf Evrópuríkjanna mun ekki verða til að ýta Banda- ríkjamönnum út úr Evr- ópu, það er miklu heldur, að skortur á því muni vekja þá spurningu hjá þeim hvort það sé þess virði að vera með 100.000 hermenn í Evrópu ef Evrópumenn vilja ekki axla byrðarnar að sínu leyti. Evrópuherinn, sem er í meginat- riðum fransk-þýskur, stendur NATO til boða verði ráðist á banda- lagsríkin og hann er hluti af NATO, ekki í samkeppni við það. NATO er einnig reiðubúið að hjálpa VES á ýmsum sviðum (þ.e.a.s. þegar ekki er um að ræða árás á banda- lagið). Þjóðveijar hafa einnig fagn- að vaxandi samstarfi Breta og Frakka í hermálum og allt stuðlar þetta að aukinni þátttöku Evrópu- ríkjanna í starfsemi NATO. Stækkun NATO í áustur Eftir nokkurn umþóttunartíma er stækkun NATO í austur aftur komin á dagskrá. Hefur verið unn- ið að því máli á mörgum fundum ÖRYGGI eins Evrópuríkis er óa að sögn Niels Helvegs Petersen láti ekkert land ósnortið og mim eru nú í Júgóslavíu, sem áður ' milli landanna. Myndin er af með fulltrúum NATO-ríkjannna og kommúnistaríkjanna fyrrverandi (NACC) og innan Félagsskapar um frið (PFP). Til að byija með snýst málið um hvernig NATO getur fært út mörk sín til austurs en það er ekki til neins að heita því að ábyrgjast öryggi einhverra ríkja ef ekki er hægt að standa við það. Það mun ekki auka á stöðugleik- ann. Keppikeflið er, að staðan í öryggismálum verði svo sterk og trúverðug, að á hana reyni aldrei. Fái rikin í Mið- og Austur-Evr- ópu ásamt Eystrasaltsríkjunum að- ild að NATO munu þau telja hag sínum betur borgið en áður en í Moskvu munu ráðamenn spyija hvers vegna ríkin telji sig þurfa á þessari tryggingu að halda. Svarið liggur í augum uppi. Þetta vandamál verður ekki leyst nema komið verði á víðtæku sam- starfi um öryggismál í allri Evrópu. Hér kemur OSE (Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu) til sögunnar. Takist að auka samstarfið á þeim vettvangi mun minni áhætta verða tekin með stækkun NATO í austur. Takist það ekki verðum við að horf- ast í augu við, að stækkun NATO leiði ekki endilega til þess, sem að er stefnt: Aukins öryggis í allri Evrópu. í hnotskurn er það vandinn að koma Rússum í skilning um, að stækkun NATO geti stuðlað að auknu öryggi og stöðugleika í allri álfunni. Þetta þýðir ekki, að Rússar hafi neitunarvald varðandi stækkun NATO. Það er NATO-ríkjanna að Niels Helveg Petersen Innantómar öryggis- ábyrgðir eru verri en engar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.