Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 28

Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Steinunn Jóns- dóttir fæddist á Hellissandi 19. júní 1916. Hún lést á heiniili sínu 19. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Valdimar Jóhannesson, sjó- maður, Hellissandi, og Hildur Sigurðar- dóttir, húsmóðir, Hellissandi. Yngri systkini Steinunnar voru Þorsteinn, sem er látinn, og Kristín. Hinn 28. nóvember 1942 giftist Steinunn Braga Agnarssyni, stýrimanni, frá Fremsta-Gili í Langadal, f. 13.11. 1915. Börn þeirra eru Viggó Emil, f. 4. nóvember 1942, Brynjar Örn, f. 16. júlí 1944, Heiðar Þór, f. 14. júní 1947, JHilmar Jón, f. 5. ágúst 1948, Iris Harpa, f. 9. septem- ber 1950, og Agnes Guðrún, f. 19. september 1952. Utför Steinunnar fer fram frá Bústaðakirkju í dag. BÓNDI er bústólpi, segir orðtakið og er ugglaust rétt. Móðir er mátt- arstólpi, er ekki orðtak, en eigi að síður er það staðföst sannfæring mín að svo sé, ekki síst þegar litið er til þess hlutverks sem móðir mín hefur gegnt undanfarin 52 ár. Nú er ég í þeirri undarlegu stöðu, að setja nokkur orð á blað, í kveðju- skyni við móður mína. Orð sem ég sum hef þegar sagt við hana, ein- hvern tíma á 42 ára lífshlaupi mínu og önnur, sem ég hefði átt að segja við hana, en gerði ekki. Eigi einhver skilið nafngiftina „alþýðuhetja" þá er það hún móðir mín. Þessu gerðum við börnin okk- ur ekki grein fyrir, þegar mamma var bæði stýrimaður, skipstjóri, vél- stjóri, bátsmaður og háseti á einu og sama íjölskyldufleyinu, en pabbi úti á sjó að stýra öðrum fleyjum. Það var iðulega haft í flimtingum í fjölskyldunni, eftir að ég komst örlítið á legg, að ég væri „slysið í fjölskyldunni". Það var vegna þess að foreldra okkar dreymdi um að eignast dóttur, eftir að hafa eignast fjóra syni. Þeim varð að ósk sinni, því Iris systir mín fæddist þeim árið 1950 og þar með skyldi bam- eignum lokið. En ég fæddist samt sem áður tveimur árum síðar, að mér skilst, ekki við svo slæmar undirtektir. Engu að síður komst ég einhvern veginn að því, þegar ég var ekki svo ýkja gömul, að ég hafði ekki verið á dagskrá, ef svo má að orði komast. Mamma var ekki lengi að finna út að ég bjó yfir þessari nýju vitneskju: Hún horfði stundum á mig, þessum ástríku, hlýju augum, jafnvel með vott af stríðnisglampa, ef svo bar undir og sagði við mig: „Viltu koma í fangið á mömmu? Hvort á ég að segja slysið mitt eða stórslysið mitt!“ Einatt fannst okkur grislingun- um sex, sem mamma væri bæði stjómsöm og einráð í rekstri fjöl- skyldunnar, þegar hún ein sá um uppeldi og heimilisrekstur. En mamma hafði alveg sérstaka lífs- heimspeki fyrir sig og sín börn. Okkar dómar voru auðvitað ekkert annað en fordómar, því mamma hélt okkur saman, kom í veg fyrir styijaldarástand á heimilinu og kenndi okkur rétt frá röngu, á þann veg að hún varð okkar fyrsti skóli - skóli, sem við allar götur síðan höfum búið að. Við krakkamir höfðum sérstaka nafngift um hana mömmu, sem tengdist laugardagsverkunum, sem hún ein vann, að 95% hluta, en tókst með undraverðu þolgæði og seiglu, að koma um 5% verkanna á böm sín sex! Skapið hét „laugar- dagsskap". A laugardagsmorgnum, á árun- um sem ég fyrst minnist vel, svona upp úr miðjum sjötta áratugnum, var mamma jafiian klædd sama klæðnaði. Hún var í -rauðum hnébuxum, úr gallaefni, skyrtu- blússu og með klút um hárið. Þá var heimilið að Hólmgarði 35, þrifið stafnanna á milli. Mamma, háfætt eins og hind og grannvaxin í hnébuxunum, gekk í verkin af krafti, skip- aði fyrir verkum eins og karlinn í brúnni, hljóp úr kjallaranum þar sem þvotturinn bullaði í suðupotti, strauk svitann af enninu, lækkaði strauminn undir hrísgjjónavellingn- um, las okkur pistilinn og rauk síð- an aftur niður í neðra, (þvottahús- ið) og við göntuðumst með það okkar á milli, að mamma væri nú einu sinni í laugardagsskapinu. Þeir sem Steinu þekktu, skilja vel hversu mikil gamansemi því fylgir að tala um laugardagsskap mömmu, því dagsfarsprúðari, um- burðarlyndari og fordómalausari konu gat vart, en hana mömmu okkar. Enda eru þeir ófáir sem hafa undrað sig á því, að hún mamma mín gæti átt dóttur, jafn freka, aðgangsharða og dómharða og mig. En jafnvel þar var talað fyrir daufum eyrum, þegar mamma átti í hlut. Hún svaraði iðulega, að því mér skilst, einfaldlega eitthvað á þann veg, að þótt hún Agnes væri beinskeitt, þá hafi hún engan ætlað að meiða, engan ætlað að særa eða gera nokkrum rangt til. Hún væri bara þannig, að hún segði hlutina umbúðalaust! Já, hún mamma var engum lík. Þetta átti ég alltaf eftir að þakka henni móður minni, en geri það nú af heilum hug. Pabbi, jafnt og við systkinin, var ávallt mjög stoltur af mömmu, feg- urð hennar og tíguleik. Konan á rauðu hnébuxunum, með klútinn um hárið, gat á svipstundu breyst í drottningu. Hún hafði yfir þessum öskubuskueiginleika að ráða, frá því fyrst ég man eftir mér, og auð- vitað mörg ár, áður en ég fæddist, og hélt honum til dauðadags. Um hver jól, þegar við vorum öll heima í Hólmgarði enn, þegar mamma hafði lokið eldamennsk- unni, upplifðum við þá stund, þegar mamma okkar breyttist í drottn- ingu. Hún átti sér sérstakan spari- kjól, sem hún klæddist á helstu hátíðarstundum þegar við vorum börn, og hver sem sá hana uppá- klædda, í kjólnum glæsilega, með sína fegurstu skartgripi, sá og vissi að þar fór drottning, sem var jafn- framt fegurðardrottning, vegna innri birtu og óumræðilega for- dómalauss og jákvæðs hugarfars. Það var ekki í eðli Steinunnar Jóns- dóttur að tala illa um náungann og baknag var henni framandi. Því átti Steina það til, að ræða af fullri alvöru við mig, yngri dótt- ur sína, undir fjögur augu, og benda á, að dómharka í garð annarra, væri eitthvað sem forðast bæri. Það væri enda hvorki í mínum verka- hring né annarra, að setjast í dóm- arasætið. Auðvitað var það svo, eins og ugglaust oft gerist í samskiptum mæðgna, að þau voru ekki hnökra- laus á milli mín og mömmu, og umvöndunum hennar var ekki alltaf tekið á þann hátt, að ég sé hreykin af, þegar ég lít til baka nú. En í þeim efnum get ég, úr þessu, enga yfirbót aðra gert, en þá að biðjast fyrirgefningar, sem ég veit í hjarta mínu, að mér var ávallt veitt. Móð- urhjartað er svo óumræðilega stórt, ekki satt? Þótt mamma hafi staðið sig sem hetja, sem karlinn í brúnni, eftirlét hún skipstjómina, af sinni stöku Ijúf- mennsku, í hendur föður okkar, þeg- ar hann kom í land, eins og hennar var von og vísa og gerðist fýrsti stýrimaður heimilisskútunnar. Ekki ætla ég hér að reyna að varpa ljósi á það, hvernig hún með sinni háttvísi, dómgreind móður náttúru og elsku í garð okkar allra, sigldi okkur oft framhjá því, sem eftir á að hyggja, virðast hafa ver- ið blindsker, án þess að við vissum. Við vissum ekki - en hún vissi - hún vissi alltaf. Öll höfum við systkinin ávallt getað leitað til hennar og pabba, eftir að okkur sjálfum varð barna auðið. Ég sjálf minnist þessi ekki að hafa nokkurn tíma fengið synj- un, þegar ég leitaði til mömmu, vegna þess að börn mín, Sunna og Sindri, væru lasin eða veik og þyrftu á umönnun að halda, á meðan ég væri í vinnu. Iðulega var það reyndar svo, að mamma tók af mér völdin, á sinn ljúfmannlega hátt, með því að segja að kvöldi, þegar ég kom og ætlaði að ná í krílið mitt eða krílin: „Held- ur þú nú ekki, Agga mín, að það sé betra að þau verði hjá mér í nótt?“ Sömu sögu segja syskini mín mér, þannig að það er alveg ljóst að mamma og auðvitað pabbi líka, hafa hvenær sem er, verið boðin og búin, að hlaupa undir bagga með okkur systkinunum og börnum okkar. Eftir á að hyggja, óttast ég það mest, að við höfum í reynd misnot- að þessa rausn og hjálpsemi for- eldra okkar. Og þó. Börnin nutu þess að koma til afa síns og ömmu og eyða dag- stund með þeim, læra af þeim, læra um líf þeirra fyrr á öldinni, fræðast á alla lund og ég er ekki í nokkrum vafa að ánægjan var gagnkvæm, því amma Steina og afi Bragi hlökk- uðu ávallt til þess að fá barnabörn- in sín í heimsókn. Nú verður það afi Bragi, sem fær þau til sín og kemur til þeirra, en engar verða þær pönnukökurnar hennar ömmu Steinu, sem á borðum verða. Mamma hafði lokið jólaundirbún- ingnum fyrir þessi jól, þegar sú ákvörðun var tekin mjög skyndi- lega, að hún ætti ekki að fá að njóta jólanna með okkur, fjölskyldu hennar. Ekkert var henni kærara en fjölskyldan - það vitum við best, sem stóðum okkur á misjafnan hátt í að rækta það, sem henni var dýr- mætast. Nú sitjum við eftir með sárt enn- ið. Staðreyndin er hins vegar sú, að mamma gerði aldrei neinar kröf- ur á hendur okkur. Hún var þakk- lát og glöð þegar við komum, eða þegar við buðum henni og pabba til okkar. Kröfugerð var henni jafn- framandi og rógur og baknag. Ein- mitt vegna þess að mamma okkar var þessi hljóðláta alþýðuhetja, sem með pabba kom börnum sínum sex til manns, fylgdist hljóðlát, en full athygli með hveiju okkar spori og þáði með þökkum þann allt of nauma tíma, sem við, þessi dæmi- gerða ’68 kynslóð, plús/mínus fimm sex ár, gátum séð af, til þess að sinna þessum máttarstólpa fjöl- skyldunnar, stöndum við uppi hálf- hjálparlaus nú. En við trúum því, að hún vaki áfram yfír hveiju okk- ar spori. Það er okkar huggun. Þegar hún hafði svo skyndilega og án nokkurrar aðvörunar yfirgef- ið okkur, mánudaginn 19. desember sl., sló það mig sárt það kvöld, þeg- ar við öll vorum samankomin á heimili hennar og pabba - pabbi, börnin þeirra sex, tengdabörn og barnabörn - að hér var samankom- inn óskafélagsskapur mömmu. Bara, elsku mamma mín, að þú hafir verið þar með okkur, og vitað að húgur okkar, væntumþykja og ást var með þér. Hvíl þú í friði. Þín dóttir, Agnes Bragadóttir. Við fráfall Steinunnar tengda- móður minnar hefur veröldin brugð- ið lit. Sárt er að hugsa til þess að sá tími sem við fáum notið með henni sé nú liðinn. En fyrir þann tíma vil ég þakka og votta henni virðingu mína því ég á minningu hennar skuld að gjalda. Við kynntumst fyrir rúmum 18 árum og hún tók mér strax opnum örmum og bauð mig velkomna í fjöl- skyldu sína. Hún bauð mér líka vin- áttu sína, sem er auður sem ég er þakklát fyrir og endist mér alla ævi. Steina var engin venjuleg kona. Hún var af þeirri kynslóð sem hefur lifað mikla breytingatíma og var þeirrar skoðunar að iðjusemi og hófsemd væru vísasti vegurinn til farsældar. Hún var ein af þessum hetjum hvunndagsins sem aldrei heyrðist kvarta og bað aldrei um neitt sjálfri sér til handa. Þegar aðrir áttu um sárt að binda fann hún til og var ekki í rónni fyrr en hún gat hjálpað en ef eitthvað amaði að henni sjálfri hét það ræfíl- dómur og hún var ekki til viðræðu um það meir. Jákvætt viðhorf hennar til lífsins og einstaklega létt lund voru sterk- ir þættir í persónuleika hennar ásamt heilindum og hógværð. Af þessum eiginleikum gaf hún í ríkum mæli og á því högnuðumst við hin, meira en hana grunaði nokkurn tíma sjálfa. Steina var félagsvera og naut sín aldrei betur en þegar hún var umkringd fjölskyldu eða vinum. Skoðanir hennar á hvers kyns málefnum voru skýrar og hún lúrði ekki á þeim en sjaldan eða aldrei heyrði ég hana fella dóm yfír mönnum. Enn heyri ég hlátur hennar hljóma í huganum og minningamar eru ótalmargar og skemmtilegar. Hæst ber þar ferð í sumarhús á Laugarvatni í ágúst sl. þar sem við eyddum helgi tvær saman. Þessi ferð er mér ógleymanleg og dýr- mætur kafli í bók minninganna. Nú er dagsverki jiessarar vin- konu minnar lokið. A seinni ámm átti hún við ýmiss konar veikindi að stríða en lát hennar bar þó brátt að. Og þótt söknuðurinn sé yfír- þyrmandi er huggun í því að dauða hennar bar að eins og hún sjálf hafði óskað sér - hún dó heima, með sömu reisn og hún lifði, vinn- andi fram á hinsta dag. Söknuður Braga, sem nú hefur misst lífsförunaut sinn eftir rúm- lega hálfa öld, er þó sárastur og orð lítils megnug gegn sorginni og skugganum sem yfír honum hvíla. Ég bið almættið að standa með honum og styrkja í þessum erfið- leikum. Hulda. Elsku amma Steina. Okkur lang- ar að minnast þín með þessum ljóð- línum um leið og við þökkum þér samfýlgdina. Þú hafðir fagnað með gróandi grösum og grátið hvert blóm, sem dó. Og þér'hafði lærzt að hlusta unz hjarta í hveijum steini sló. Og hvemig sem syrti, í sálu þinni lék sumarið öll sín ljóð, og þér fannst vorið þitt vera svo fagurt og veröldin Ijúf og góð. Samt vissirðu að Dauðinn við dymar beið. Þig dreymdi’ hann kæmi hljótt og legði þér brosandi hönd á hjarta. Svo hvarf hann, en ljúft og rótt heyrðirðu berast.að eyram þér óm af undursamlegum nið. Það var eins og færa þar fjallasvanir úr Qarlægð með söngvaklið. Og Dauðinn þig leiddi í höll sína heim þar sem hvelfingin víð og blá reis úr húmi hnígandi nætur með hækkandi dag yfir brá. Þar stigu draumar þíns liðna lífs í loftinu mjúkan dans. Og drottinn brosti, hver bæn þín var orðin að blómum við fótskör hans. (Tómas Guðmundsson) I dag munum við eiga stund með þér í huganum í kirkju hér í Kaup- mannahöfn og kveðja þig í hinsta sinn með söknuði. Takk fyrir allt. Yala og Orri. Elsku amma mín. Þú varst alltaf góð við mig. Þeg- ar ég var veik, þá bauðstu til að hugsa um mig og dekraðir við mig eins og þú gast. Þegar þú áttir von á mér í heim- STEINUNN JÓNSDÓTTIR sókn þá gerðir þú alltaf pönnukökur fyrir mig, af því að þú vissir hvað mér þóttu þær góðar, eða þú gerð- ir mat sem þú vissir að mér þætti góður - þá hringdir þú oft í mig . og bauðst mér í mat. Ég man eftir því, þegar ég var lítil, þá fannst mér svo gaman að geta hjálpað þér að elda, baka eða taka til og mér er sérstaklega minnisstætt hvað það var skemmti- legt, að sjá og fylgjast með, hvað þú gast pijónað hratt. Þú varst alltaf svo góð við alla - þér þótti svo vænt um alla og þú hafðir svo gaman af lífinu. Guð blessi þig og varðveiti. Þín Inga Bima. Elsku amma mín. Það er bæði svo óvænt og sárt að þurfa að kveðja þig svona snögg- lega. Samt ætla ég að rifja upp nokkrar ánægjulegar minningar frá mörgum og góðum samverustund- um okkar. Það sem mér finnst einna skemmtilegast að rifja upp, er lík- lega þegar við vorum saman í nokkrar vikur í smábænum Bei- enbach í Þýskalandi fyrir fjórum árum. Við fórum alltaf til Netphen til að versla og fara í sund. Ég man að bæði þú og afí kölluðuð það „Neften"! Þegar við fórum í sundlaugina komst þú oft með í sund, en stund- um labbaðir þú bara um garðinn í fötunum þínum. Þegar þú sast og fylgdist með okkur systkinunum við fímm metra háa stökkbrettið, voru oft einhveijir gaurar, kannski tæp- lega tvítugir, sem léku sér að því að stökkva þannig að það skvettist vatn út um allt og þú rennblotnað- ir. Margir hefðu skammast út í þá, en þú vildir aldrei eiga í útistöðum við neinn og hlóst bara að þessu öllu saman. Þú varst farin að tapa sjón og stuttu eftir að við komum heim fór ég að koma í Asparfellið og lesa fyrir þig úr Mogganum. Þú vildir alltaf fá að heyra allt sem mamma skrifaði. Þar fýrir utan vildir þú líka að ég læsi fyrir þig það sem þér fannst forvitnilegt. Ég man þegar þú baðst mig síðasta vetur að lesa fyrir þig grein um Eimskip, sem mamma skrifaði. Það var mjög erfitt að skilja greinina og um tveimur mínútum eftir að ég byijaði að lesa, fórst þú að bardúsa eitthvað í eldhúsinu (ég sat við eldhúsborðið) og um það bil einni blaðsíðu seinna, af ég veit ekki hvað mörgum, gerði ég mér grein fyrir því að þú hafðir ekki verið að hlusta frá upphafi. Þú skildir nefnilega ekkert meira í þessu rugli en ég! En svo voru aðrar greinar sem við báðar höfðum svo mikinn áhuga á, að ég gat ekki hætt að lesa og þú ekki að hlusta fyrr en ég hafði lesið síðasta orðið. Við systkinin komum stundum eftir skóla í hádegismat til þín. Þú vissir hvað við vorum hrifin af gijónagraut og þegar þú ætlaðir að hafa grjónagraut og slátur hringdir þú oft í okkur og bauðst okkur í mat. Þú bjóst líka til heims- ins besta plokkfísk. Stundum vorum við Sindri hjá þér frá hádegi og fram yfir kvöldmat. Þegar við vorum veik, vorum við oft hjá þér, frá því að mamma fór í vinnuna þangað til hún kom heim á kvöldin, en stundum gistum við hjá þér og þú dekraðir við okkur þangað til okkur batnaði. Þegar við vorum hjá þér, þurftum við aldrei að láta okkur leiðast. Stundum náðum við í gamla happ- drættismiða og handtöskur. Svo notuðum við happdrættismiðana fyrir peninga og fórum í búðarleik. Ef við vildum ekki vera í búðarleik, gátum við farið að teikna eða í dúkkuleik. Ef við vorum voðalega ósjálfbjarga, gast þú kennt okkur milljón ný spil, eða bara talað við okkur. Þú varst alltaf svo góð við alla og þér þótti alltaf svo vænt um alla. Ég vona bara, elsku amma mín, að þér líði vel núna. Þín Sunna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.