Morgunblaðið - 29.12.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 31
MARÍA HALLGRÍMSDÓTTIR
+ María Hall-
grímsdóttir var
fædd í Reykjavík
21. ágúst 1905. Hún
lést í hjúkrunar-
heimilinu Eir 16.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Hall-
grímur Jónsson (f.
1875, d. 1961) skóla-
stjóri við Miðbæj-
arbarnaskólann í
Reykjavík og kona
hans Yigdís Er-
lendsdóttir (f. 1871,
d. 1948) frá Breiða-
bólstöðum á Alftanesi. Hall-
gfrímur og Vigdís eignuðust sex
börn: Maríu, sem var elst, Jón-
as, f. 1907, d. sama ár, Meyvant
Óskar, f. 1909, d. 1980, Ólaf
Davíð, f. 1911, d. 1914, Erlend
Óskar, f. 1914, d. sama ár, og
Önnu, f. 1912. María lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík árið 1925 og emb-
ættisprófi í læknisfræði frá
Háskóla íslands árið 1931. Það
ár hélt hún til Danmerkur og
starfaði þar sem læknir fram
til ársins 1940, er hún hvarf
aftur til íslands og setti upp
læknastofu I Reykjavík. Árið
1951 hóf hún störf við fæðing-
ardeild Landspítalans og starf-
aði þar næstu 24 árin. María
var ógift og barnlaus. Útför
hennar verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag.
SKÖMMU fyrir jól lést móðursystir
mín, María Hallgrímsdóttir, í hárri
elli. Frá árinu 1917 bjó María í
húsinu nr. 17 við Grundarstíg í
Reykjavík. Þar hafði hún íbúð á
efri hæð hússins og ein af mínum
fyrstu bernskuminningum er tengd
stiganum sem lá frá fyrstu hæð
hússins, þar sem ég bjó, upp á aðra
hæð til hennar. Þennan stiga kleif
ég oft eftir að ég náði þeim aldri
að vera fær til slíkra langferða, því
María var með afbrigðum barngóð.
í marsmánuði árið 1914 létust
tveir bræður Maríu, Erlendur Óskar
fyrst og Ólafur Davíð 13 dögum
síðar. Hafði þessi missir mikil áhrif
á hana og allt það ár gekk hún um,
þá átta ára gömul, og leit ofan í
alla bamavagna sem hún sá í leit
að bræðrum sínum. Hún sagði sjálf
að í kjölfar bræðramissisins hafi
hún ákveðið að læra til læknis.
Fyrir unga stúlku árið 1914 hlýtur
það að hafa verið mjög óvenjuleg
ákvörðun, en lýsir Maríu vel í því
að hún fór alltaf sínar eigin leiðir
og skeytti þá ekki um skoðanir
annarra, kringumstæður eða tíðar-
anda. Hún stóð við ákvörðun sína
frá æskuárunum, lauk embættis-
prófi í læknisfræði 26 ára gömul
og starfaði sem læknir æ síðan.
María var mikil kvenréttinda-
kona eftir þeim hætti sem tíðkaðist
í byrjun aldarinnar. Var hún vel
lesin í þeim málum. Henni fannst
sú hefð óréttlát að kenna börn ein-
göngu við feður sína
og þess vegna bætti
hún upphafsstaf móð-
ur sinnar, Vigdísar, í
nafn sitt og skrifaði sig
gjaman Maríu V. Hall-
grímsdóttur. Hins veg-
ar þótti henni tilburðir
kvenfrelsiskvenna
vorra daga afar tor-
skildir og fylgdist með
þeirri þróun í forundr-
an.
María var ljóðelsk
kona. Hún var minnug
á ljóð og verk Matthí-
asar Jochumssonar og
Gríms Thomsens voru henni mjög
að skapi. Allt fram undir það síð-
asta gat hún lesið kvæði þessara
skálda sér til ánægju, því þótt
minnið væri mjög tekið að þverra
sat andblær þeirra enn fast í huga
hennar.
Eitt af áhugamálum Maríu hin
síðari ár var ljósmyndun. Hún átti
myndavél, sem var svo smágerð,
að hægt var að fela hana í lófa
annarrar handar. Með þessari
myndavél tók hún fjölmargar
myndir, mér er nær að halda að
þær skipti þúsundum. Margar þess-
ara mynda eru af samstarfsfólki
hennar á fæðingardeild Landspítal-
ans og af daglegu lífi í Þingholtun-
um.
María átti bíl af gerðinni Chevro-
let Corvair árgerð 1960. Hún hafði
reyndar tekið bílpróf í Kaupmanna-
höfn árið 1935, en einhvern veginn
treysti hún sér ekki til að aka bíl
sínum í Reýkjavíkurumferðinni eins
og hún var á árunum upp úr 1960.
Það kom því oft í minn hlut að aka
henni um í bílnum. Leiðin lá oftast
suður á Álftanes, en þar átti hún
mörg skyldmenni. Álftanesið var
henni alltaf kært og þaðan átti hún
góðar minningar frá æskuárum sín-
um.
Við sem þekktum Maríu vel
minnumst hennar með miklum
söknuði. Sjálfur er ég þakklátur
fyrir að hafa fengið að njóta góð-
vildar hennar í meira en 45 ár. En
hennar tími var kominn, hún lést á
90. aldursári farin að heilsu.
Hallgrímur Magnússon.
Frænka mín María Hallgríms-
dóttir læknir er látin. Þremur vikum
áður en hún lést heimsótti ég hana
í síðasta sinn á hjúkrunarheimilið
Eir. María lét mjög vel af dvöl sinni
þar og var þakklát hjúkrunarfólki
fyrir alla aðhlynningu og vinsemd.
Þessi síðasta kveðjustund okkar er
mér mjög minnisstæð, því að þrátt
fyrir háan aldur var kímnigáfan til
staðar. Margar snjallar vísur sem
ég kannaðist við frá fyrri árum
flutti hún mér við þetta tækifæri.
Þessar vísur vöktu oftar en ekki
hlátur okkar beggja.
Föður Maríu, Hallgrími Jónssyni,
síðar skólastjóra Miðbæjarskólans,
varð fljótt ljóst að María hafði feng-
ið góðar námsgáfur í vöggugjöf.
Um það leyti sem María var þriggja
eða fjögurra ára orti hann „Vísur
til Maju“:
Hálsinn hvítur, höndin smá,
hakan eins og snúður,
rósakerfí kinnum á,
kollur háraprúður.
Skemmtir tíðum mömmu og mér
Maja í rauða kjólnum,
þegar hún er með opið kver
ein í litla stólnum.
Kverið, sem um er rætt í vísunni
er „Stafrófskver“ sem Hallgrímur
samdi 1907, en sjötta útgáfa þess
var gefin út 1936. Segja má að
þetta kver hafi verið lesið upp til
agna í bókstaflegri merkingu.
María settist í Menntaskólann og
lauk, ein fárra kvenna, stúdents-
prófi árið 1925, og námi í læknis-
fræði við Háskóla Islands árið 1931.
Útþráin var Maríu í blóð borin eins
og fleiri íslendingum. Hún sigldi
því til Danmerkur sama ár og hún
brautskráðist úr Háskólanum og
dvaldist þar að mestu leyti þangað
til hún kom heim frá Petsamo með
Esjunni árið 1940. Þó hafði hún
komið heim 1935 og unnið á Vífils-
stöðum nokkra mánuði.
í Danmörku starfaði María við
fæðingardeild Ríkisspítalans í
Kaupmannahöfn og á Barnaspítala
í Sönderborg. Ég man hve montin
ég var af að eiga frænku sem sendi
mér kort um jól og stundum gjafir
frá Danmörku.
Eftir að María kom heim til ís-
lands hóf hún lækningar og starf-
aði sjálfstætt þar til hún réðst til
starfa á fæðingardeild Landspítal-
ans árið 1951 og þar starfaði hún
til ársins 1975, þegar hún hætti
vegna aldurs.
María var heimilislæknir fjöl-
skyldu minnar um árabil. Það var
sama hvort hún var ónáðuð að nóttu
eða degi, alltaf var hún viðbúin.
Hún minnti mig að sumu leyti á
Matthías Einarsson, sem var heimil-
islæknir foreldra minna og okkar
systkina. Hann var alltaf kominn
ef eitthvað alvarlegt amaði að og
stundum batnaði manni bara við
að sjá hann.
Margar minningar vakna, þegar
ég hugsa nú til löngu liðinna ára.
Minnisstæðast er mér þó, þegar
Friðrik sonur okkar, þá tæplega
þriggja ára, varð hastarlega veikur.
I ljós kom að um lífhimnubólgu á
háu stigi var að ræða, eftir að botn-
langi hafði sprungið. Snögg, en
fumlaus viðbrögð Maríu áttu án efa
þátt sinn í því að ekki fór verr enda
mátti ekki tæpara standa. Með
Guðs hjálp bjargaði María ásamt
skurðlæknunum á Landakoti, Hall-
dóri Hansen og Karli Jónassyni, lífi
lítils drengs. Slíkt gleymist aldrei
og verður ekki fullþakkað.
Jafnframt starfi sínu þýddi María
nokkrar bækur og þar á meðal bók-
ina um Níels R. Finsen, sem stund-
aði nám við Menntaskólann í
Reykjavík og hlaut Nóbelsverðlaun-
in í læknisfræði árið 1903.
Um þessar mundir höldum við
hátíð ljóss og friðar. Hugurinn flýg-
KARL ÁGÚSTSSON
+ Karl Ágústsson fæddist á
Hellissandi 18. ágúst 1909.
Hann Iést á St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði 18. desember síð-
astliðinn og fór útför hans fram
frá Hafnarfjarðarkirkju 27.
desember.
MIG LANGAR að minnast í fáum
orðum Karls Ágústssonar eða
Kalla, eins og hann var kallaður.
Minningarnar streyma fram hver
af annarri.
Ég hef þekkt Kalla frá blautu
barnsbeini og var tíður gestur á
heimili þeirra Kalla og Möggu konu
hans, sem er afasystir mín.
Kalli var með eindæmum barn-
góður maður og liændust börn
ávallt að honum. Reyndar átti það
við um fólk á öllum aldri. Allir höfðu
ánægju af að kynnast honum og
njóta samvista með honum.
Kalli var afar handlaginn og hið
mesta ljúfmenni. Ég minnist hans
niðri í kjallara heima hjá sér að
smíða hinu ýmsu hluti sem prýða
nú mörg heimili. Stundum fékk ég
að koma með honum niður og dútla
mér þar aðeins við smíðar. Ég á
enn í dag ýmsa hluti sem ég smíð-
aði þar. Mér þykir vænt um þá og
þær minningar sem við þá eru
tengdar.
Eg minnist þess líka að oft á
sumrin fórum við niður að læk að
gefa öndunum. Þá leituðum við þar
einnig að fjöðrum, en þær notaði
hann til þess að búa til sérstakar
litlar veiðiflugur. Veiðidellan var
trúfastur förunautur Kalla og þær
eru ófáar veiðiferðirnar sem ég hef
farið í með honum. Það var einmitt
hann sem gaf mér fyrstu veiði-
stöngina mína.
Á hveiju sumri stóð Kalli fyrir
veiðiferð í bústað. Þar kom fjöl-
skyldan saman og naut lífsins í rík-
um mæli yfir helgl.
Það var einmitt í þessum veiði-
ferðum sem Kalli naut sín best.
Alltaf var hann fullur af lífsgleði
og með henni tókst honum að hrífa
alla með sér.
Það er erfitt að sætta sig við að
eiga aldrei eftir að hitta þennan
yndislega mann aftur. En eftir lifir
allur fróðleikurinn og gleðin, sem
hann hefur gefið mér á liðnum
árum.
Elsku Kalli, ég sakna þín sárt,
en hugsunin um þig er góð.
Magga mín, ég sendi þér mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Tíminn læknar öll sár og minningin
um góðan dreng lifir og lýsir á erfið-
um stundum.
Bjarney Valsdóttlr.
ur til ættingja og vina með bestu
jólaóskum. A þessum jólum minn-
umst við sérstaklega Maríu Hall-
grímsdóttur og biðjum Guð að veita
henni eilífan frið.
Við Sophus og börnin okkar
sendum Önnu systur Maríu, og fjöl-
skyldu hennar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Áslaug María Friðriksdóttir.
Mínar fyrstu bernskuminningar
tengjast konunni Maríu Hallgríms-
dóttur, sem kvödd er í dag. Ólafía
Einarsdóttir í Hofi við Sólvallagötu
fóstra mín og Maja voru frænkur.
Á heimilinu í Hofi var mikill
gestagangur og einn af gestunum
var Maja, hún kom reglulega, gust-
aði af henni, klædd á sinn sérstaka
hátt, fór ekki úr yfirhöfn né stígvél-
um. Já, stígvélin, ég man hana varla
í öðru til fótanna. Ég barnið drakk
I mig hvert orð af vörum hennar
og fór að þykja vænt um þessa
konu. Árin liðu og ég gekk með
frumburð minn. Maja fylgdist vel
með meðgöngu barnsins, svo vel
að ég hafði á orði við hana: „Það
mætti halda að þú værir faðirinn,
Maja mín.“ Handvömm við fæðingu
barnsins varð til þess að það lifði
stutt. Þetta tók vinkona mín mjög
nærri sér, reyndi að réttlæta kollega
sína og vini, sem reyndust henni
svo vel þegar árin færðust yfir.
Hafí þeir þökk fyrir. Vistarverur
hennar á fæðingardeild Landspítal-
ans voru sérstakar, það vita þeir
sem til þekktu. Það var kapítuli út
af fyrir sig að koma þangað og
reyna að útbúa sér sæti og spjalla.
Við Maja áttum eftir að gleðjast,
með góðri hjálp og umhyggju Guð-
mundar heitins Jóhannessonar
fæddust mér þrír synir. Nokkuð
þurfti að hafa fyrir tilvist þeirra,
en umvafin góðvild Guðmundar
voru ákveðnir fæðingardagar
drengjanna, sem teknir voru með
keisaraskurði og Maja tilbúin með
myndavélina, tók myndir frá byrjun
til enda. Myndir þessar prýða
fremstu síður í myndabókum sona
minna, gjöf frá Maju. Þá þekktist
ekki að feður væru viðstaddir hol-
skurði og eru þessar myndir mér
fjársjóður.
Maja mætti á heimili okkar við
skírn allra drengjanna og þótti mér
afar vænt um það, því hennar stíll
var ekki að stunda veislur. Hún
hringdi reglulega og fékk fréttir
af fólkinu í Hofi. Mér er í minni
morgunstund á 70 ára afmæli henn-
ar þar sem ég fór og heilsaði upp
á hana í tilefni dagsins. Hún hafði
tekið fram nokkra fallega kjóla og
vildi fá álit hvað skyldi velja: „Því
strákarnir (kollegarnir) vilja endi-
lega bjóða mér á Hótel Holt, ég
verð stutt, þeir verða þá bara leng-
ur og skemmta sér.“
Þar kom að hún gat ekki lengur
verið eki heima á Grundarstíg og
þurfti aðstoð heima fyrir. Frétti ég
að heiðurskonan Þóra Gísladóttir
væri komin henni til aðstoðar, þá
vissi ég hana í kærleiksríkum hönd-
um.
Föstudaginn 16. desember var
Maja svo sterk í huga mínum að
ég hringdi í systur hennar, Önnu,
til að fá fréttir af líðan hennar.
Mér telst svo til að á meðan á sam-
tali okkar stóð hafi Maja lagt af
stað yfir móðuna miklu. Hún dvaldi
á Hjúkrunarheimilinu Eir síðustu
ævidagana.
Að léiðarlokum kveð ég þig, vin-
kona mín, og þakka allar góðar
stundir.
Guð geymi þig.
Lóa.
Skilafrest-
ur vegna
minningar-
greina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. I mið-
vikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum
fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunn-
inn eða eftir að útför hefur
farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
t
ELÍN DANÍELSDÓTTIR
frá Björnshóli,
Miðfirði,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 26. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Systkini hinnar látnu.
t
Alúðar þakkir fyrir vinsemd og hlýhug við fráfall
SIGRÍÐAR ÞORVARÐARDÓTTUR,
ásamt sérstökum þökkum til starfsfólks Hrafnistu, Hafnarfirði.
Sólveig Kr. Einarsdóttir, Lindsay O’Brien,
Jóhanna Axelsdóttir,
Edda Þorsteinsdóttir, Halldór Guðmundsson,
Einar Baldvin Þorsteinsson,
Gísli Rafn Ólafsson, Guðbjörg Lind Valdimarsdóttir,
Þorvarður Tjörvi Ólafsson
og barnabarnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
INGIBJARTAR J. ARNÓRSSONAR
húsasmiðameistara,
Droplaugarstöðum,
áður Bogahlíð 22.
Jóhannes Ingibjartsson, Sigurbjörg Jónsdóttir,
Sigurður Ingibjartsson, Signý Hauksdóttir,
Svandís Ingibjartsdóttir, Rafn Eyfell Gestsson,
barnabörn og barnabarnabörn.