Morgunblaðið - 29.12.1994, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SIGURÐUR H.
PÉTURSSON
+ Dr. Sigurður
Helgi Pétursson
gerlafræðingur
fæddist á Skamm-
beinsstöðum í Holt-
um 19. maí 1907.
Hann lést í Reykja-
vík 15. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Pétur Jónsson bóndi
og Guðný Kristjáns-
dóttir. Börn þeirra
hjóna voru tíu tals-
ins og var Sigurður
fimmti í aldursröð-
inni. Þijú þeirra eru
á lífi. Sigurður kvæntist Þor-
steinu Hannesdóttur árið 1932,
en þau slitu samvistir. Börn
þeirra eru: 1) Hulda, ekkja eftir
Hallgrím Hallgrímsson, sem lést
1984. Börn þeirra eru fimm.
Sambýlismaður Huldu er Svavar
Færseth. 2) Svavar, var giftur
Onnu Bergmann, en þau skildu.
Börn þeirra eru fimm. 3) Pétur,
kvæntur Torunn Sigurðsson.
Þau eiga þijú börn. Arið 1947
kvæntist Sigurður Mörthu Guð-
rúnu Eiríksdóttur, en þau slitu
samvistir. Þriðja kona Sigurðar
var dr. Selma Jónsdóttir, fyrr-
um forstöðumaður Listasafns
Islands, sem nú er látin, en þau
gengu í hjónaband árið 1955.
Sigurður lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum i Reykja-
vík 1929 og stundaði síðan nám
við háskóla í Kiel, Leipzig og
Kaupmannahöfn. Hann lauk dr.
phil.-prófl í tæknilegri gerla-
fræði frá háskólanum í Kiel árið
1935 og hóf sama
ár störf sem eftir-
litsmaður með
mjólk hjá Mjólkurs-
amsölunni í Reykja-
vík, en þar starfaði
hann í tíu ár. Hann
starfaði einnig sem
sérfræðingur í iðn-
aðardeild Atvinnu-
deildar HÍ 1937-
1960 þegar hann
varð deildarstjóri
gerladeiidar Rann-
sóknarstofu Fiski-
félags íslands. Sig-
urður kenndi við
framhaldsdeild Verslunarskóla
íslands frá 1943 til 1955. Hann
varð félagi í Vísindafélagi ís-
lendinga 1949 og sat í stjórn
þess 1951-1953 og í stjórn Hins
íslenska náttúrufræðifélags
1946-1950 og formaður þess
1950-1955. A árunum 1956-
1965 ritstýrði hann Náttúru;
fræðingnum og Tímariti VFÍ
1946-1949. Hann sat í Fiskmats-
ráði frá stofnun þess 1960. Sig-
urður stofnaði Niðursuðuverk-
smiðju Borgarfjarðar hf. í Borg-
amesi og veitti henni forstöðu
um margra ára skeið. Sigurður
ritaði mikinn fjölda greina og
ritgerða sem birtust bæði í
fræðitímaritum og dagblöðum,
hérlendis og erlendis.
Sigurður var heimilismaður á
Hrafnistu I Hafnarfirði siðustu
árin og var á áttugasta og átt-
unda aldursári er hann lést.
Útför hans fer fram frá Garða-
kirkju í dag.
GENGINN er einn af frnmherjum um árabil einn af fáum íslendingum
í örverurannsóknum á íslandi, dr. sem numið hafði gerlafræði og lok-
Sigurður H. Pétursson. Hann var ið doktorsprófí í þeirri grein. Lengst
af starfaði hann á iðnaðardeild
Atvinnudeildar Háskólans, en árið
1970 var gerlarannsóknastofa iðn-
aðardeildarinnar sameinuð rann-
sóknastofu Fiskifélags íslands, sem
með lögum um rannsóknir í þágu
atvinnuveganna árið 1965 varð að
Rannsóknastofnun fískiðnaðarins.
Sigurður veitti gerladeild stofnun-
arinnar forstöðu til ársins 1976 er
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir.
Þegar litið er yfir störf Sigurðar
kemur berlega í ljós að viðfangsefn-
in spönnuðu breitt bil eins og ann-
arra sérfræðinga sem komu til
starfa hér á landi á fyrri hluta
aldarinnar. Á gerladeildinni var
unnið úr öllum sýnum af matvælum
sem heilbrigðiseftirlitið í landinu
sendi til rannsókna. Þannig hafði
deildin ekki aðeins með að gera
allar tegundir matvæla, auk fískaf-
urðanna sem var aðalviðfangsefnið,
heldur einnig greiningu á þurrafúa
í skipum og framleiðslu á prófefn-
um til greiningar á júgurbólgu í
mjólkurkúm. Nú hefur gerladeildin
skipt um nafn og heitir nú örveru-
deild og sinnir nær eingöngu fiskaf-
urðum, en matvælarannsóknum
vegna heilbrigðiseftirlits hefur ver-
ið komið fyrir á rannsóknastofu
Hollustuvemdar ríkisins.
Rannsóknir Sigurðar í þágu físk-
iðnaðarins voru einkum á sviði salt-
aðra afurða. Hann rannsakaði or-
sakir svokallaðrar roðamyndunar
og jarðslaga í saltfíski sem olli
miklu tjóni hér á landi. Með tilraun-
um skýrði hann hvernig mætti
halda í skefjum þeim örverum sem
þessum kvillum valda. Þá rannsak-
aði hann söltuð grásleppuhrogn,
enda komu títt upp gallar í þeim
fyrr á ámm, sem gerðu það að
verkum að litaður kavíar sem er
framleiddur úr hrognunum, hafði
takmarkað geymsluþol og vildi af-
litast. Sigurður gerði umfangsmikl-
ar rannsóknir á því hvaða örvemr
næðu að vaxa í hrognunum og
hvemig mætti koma í veg fyrir
gallana.
Hann beitti sér fyrir því að gerð-
ar vom úttektir á gæðum vinnslu-
vatns fyrir fiskiðnaðinn og var öt-
ull við að benda á mikilvægi úrbóta
á því sviði. Ekki féllu orð hans um
þýðingu kólígerla í vatni alltaf í
fijóan jarðveg hjá matvælaiðnaðin-
um. Gat hann þá verið tunguhvass
og komið með athugasemdir sem
tekið var eftir.
Annað viðfangsefni var Sigurði
hugleikið, en það var efling hvers
konar fullvinnslu matvæla. Hann
sá fyrir sér mikla möguleika í full-
vinnslu á sjávarfangi, einkum með
niðursuðu og niðurlagningu, og var
óþreytandi að hvetja menn til dáða
á því sviði bæði í ræðu og riti.
Hann beitti sér fyrir því að Rann-
sóknastofnun fískiðnaðarins kæmi
á fót tilraunaeldhúsi með góðri
aðstöðu, m.a. til reykingar á físki
og niðursuðu. Einnig var hann
hvatamaður að því að til stofnunar-
innar væri ráðinn matreiðslumaður
og niðursuðufræðingur til þess að
aðstoða fyrirtæki við að þróa nýjar
vörur.
Eftir Sigurð liggja bækur um
mjólkurfræði, líffræði, gerlafræði,
hreinlæti við matvælaframleiðslu
og fískverkun, og vora sumar
þeirra um árabil notaðar við
kennslu. Einnig skrifaði hann
margar greinar í blöð og tímarit
um rannsóknir sínar og ýmis fram-
faramál í matvælaiðnaði. Það sem
einkenndi Sigurð sem vísindamann
var hve vel hann kom viðfangsefn-
um sínum til skila því hann var
með afburðum ritfær og átti létt
með að skýra flókin viðfangsefni
þannig að þau yrðu auðskilin leik-
um sem lærðum.
Sá sem hér ritar átti þess kost
að starfa með Sigurði Péturssyni
um skeið á Rannsóknastofnun físk-
iðnaðarins. Það var dýrmæt reynsla
því hann var um margt óvenjulegur
maður og bar sterkan persónuleika.
Hann var víðlesinn og fróður, sagði
skemmtilega frá og hafði ríkulega
kímnigáfu. Hann dró menn og
málefni upp í skýmm litum þannig
að enginn þurfti að velkjast í vafa
um skoðanir hans. Þannig var hann
hreinskiptinn og heilsteyptur mað-
ur.
Um leið og við samstarfsmenn
Sigurðar á Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins kveðjum samferðamann
sendum við aðstandendum öllum
samúðarkveðjur.
Grímur Valdimarsson.
Þær voru ekki margar samveru-
stundirnar sem við áttum með hon-
um afa, en góðar eru þær minning-
ar sem við eigum um þennan hlýja
og einlæga mann.
Við dótturdætur afa fundum oft
hvað konan va_r fullkomin vera í
augum hans. Á páskum fengum
við „konumar" páskaegg, og á
sængina færði hann okkur konfekt-
kassa, allt sérstaklega ætlað okkur.
Þegar hann bauð okkur í leikhús
eða út að borða var hann svo mik-
ill herramaður að við ljómuðum og
geisluðum sem konur.
Á Ægisíðuna til afa og Selmu
komum við ekki oft, en alltaf tók
afi svo vel á móti okkur, með sínum
dillandi létta hlátri og hlýja faðm-
lagi.
Mennt er máttur, sagði afi, og
stuðlaði að því með góðum gjöfum
þar sem hann færði okkur
orðabækur og fagurbókmenntir.
Blessuð sé minning þín, elsku afi.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Auður, Steinunn
og Guðný.
J^TTV I Nl N %3AUGL YSI Í\IGA R
Siglufjörður
Blaðberi óskast í miðbæinn frá áramótum.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 71489.
Rannsóknastofnun
RALA ,andbúnaðarins
Þróunarstarf í
matvælaframleiðslu
Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar að
ráða starfsmann til rannsókna og þróunar-
starfs á sviði kjöt- og mjólkurúrvinnslu.
Starfsmanninum er ætlað að taka virkan
þátt í samstarfi Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins og Háskólans á Akureyri um
uppbyggingu rannsókna og kennslu í mat-
vælafræði og tengdum greinum.
Starfsvettvangur verður á Búgarði á Akur-
eyri, Tilraunastöðinni á Möðruvöllum og að-
stöðu Háskólans á Akureyri. Æskilegt er að
starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir, er greini frá menntun og fyrri
störfum, sendist:
Forstjóra
Rannsóknastofnunarlandbúnaðarins,
Keldnaholti,
112 Reykjavík,
fyrir 1. janúar 1995.
„Au pair“ - USA
„Au pair“, 21 árs eða eldri, óskast til að
gæta þriggja ára barns í 4 mánuði. Um er
að ræða tímabilið frá 20. janúar til 15. maí.
Skilyrði er að viðkomandi sé sjálfstæð, hafi
reynslu af börnum og sé með bílpróf.
Vinsamlegast hafið samband í síma 668150.
Reykjavík
Starfsfólk
í aðhlynningu
Starfsfólk óskast í aðhlynningu.
Um er að ræða 50% starf. Vinnutími kl. 8-12
og afleysingar um helgar kl. 8-12.
Upplýsingar veita ída Atladóttir, hjúkrunar-
forstjóri, og Þórunn Av Sveinbjarnardóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 689500.
Sérfræðingur
íFjölni
Ert þú sérfræðingur í viðskiptahugbúnaðin-
um Fjölni og vantar aukavinnu?
Okkur vantar hjálp við að setja upp skýrslur
og form, draga fram upplýsingar úr bók-
haldi, nota gagnagrunninn í markaðssókn
o.fl. Við gætum því boðið réttum aðila
skemmtilegt verkefni sem aukavinnu, þar
sem viðkomandi ræður sínum tíma.
Umsóknum skal skilað til afgreiðslu Mbl.,
merktum: „Fjölnir - 7704“, sem fyrst.
Ferskt starfsfólk
Okkur vantar vant starfsfólk sem getur hafið
störf á gamlárskvöld. Tvöföld laun í boði á
gamlárskvöld. Lausar stöður fyrir barþjóna,
glasabörn, dyraverði, salernisvörð og starfs-
menn í fatahengi.
Upplýsingar á skrifstofu Tunglsins og í Casa-
blanca 29. des. frá kl. 15.00-19.00.
Casablanca.
Sjúkrahúsið á Akranesi
Hjúkrunarfræðingar
Okkur bráðvantar hjúkrunarfræðing í afleys-
ingar í 4-6 vikur á lyflækningadeild.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, Stein-
unn Sigurðardóttir, í síma 93-12311.
Frá
Mýrarhúsaskóla
Kennara vantar vegna forfalla í fjórar vikur
frá 4. janúar.
Nánari upplýsingar í síma 614791
frá kl. 9.00-13.00.
Skólastjóri.